Morgunblaðið - 27.10.2006, Page 1

Morgunblaðið - 27.10.2006, Page 1
STOFNAÐ 1913 292. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is KLASSAKONUR TÍSKUTEYMI SI KLÆDDI STJÓRN- MÁLAKONUR Í DRAGFÍN DRESS >> 34 ÓSKASTUND? HITTI BALTASAR KORMÁKUR KANNSKI Á ÞJÓÐIN FJÖLMENNIR Í BÍÓ >> 60 Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is ASÍ spáir umtalsvert meiri verð- bólgu á næsta ári en greiningar- deildir bankanna. Landsbankinn gerir t.d. í endurskoðaðri spá sinni ekki ráð fyrir verðbólgu á næsta ári en hagdeild ASÍ gerir ráð fyrir í nýrri spá sinni, sem kynnt var á árs- fundi ASÍ í gær, að hún verði 4,2%. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmda- stjóri ASÍ, segir Seðlabankann hafa lýst því með stýrivaxtahækkunum sínum að hann hafi ekki trú á því sem samningsaðilar og stjórnvöld hafi gert í sumar og hafi þannig skapað þær aðstæður að allar líkur séu á því að krónan muni veikjast þegar líða taki á næsta ár, og það framkalli þá aftur meiri verðbólgu. Þannig sé Seðlabankinn óbeint kom- inn í hring. Hagdeild ASÍ spáir því að stýri- vextir Seðlabankans verði að með- altali um 11,5% á næsta ári og að þeir verði komnir niður í 6,5% á árinu 2008. ASÍ gerir í spá sinni ráð fyrir hægt vaxandi atvinnuleysi á næstu misserum og að það fari úr 1,5% í ár, í 2,1% á næsta ári og í 2,4% árið 2008. Bent er á að um níu þúsund er- lendir ríkisborgarar hafi verið starf- andi hér í fyrra og á fimmta þúsund hafi bæst við það sem af er þessu ári. ASÍ gerir ráð fyrir umtalsverðri verðbólgu SJÁLFSTÆTT Skotland gæti verið hluti af Breska eyjaráðinu og haft jafnnána samvinnu við England og Írland og nú er með Norðurlöndun- um innan Norðurlandaráðs. Alex Salmond, leiðtogi skoskra þjóðern- issinna, SNP, kynnti þessa hugmynd í gær. Salmond lagði áherslu á, að Eng- land, Skotland og Írland ættu að taka sér til fyrirmyndar Norðmenn, Íslendinga, Dani og Svía. Þjóðirnar væru nátengdar sögulega og menn- ingarlega en hefðu samt stigið það heillaspor að vera sjálfstæðar. Sam- vinna þeirra væri aftur á móti mikil og náin og á jafnréttisgrundvelli. Er þetta svar við því, sem fram kom hjá Gordon Brown, fjármála- ráðherra Bretlands, nýlega en þá sagði hann, að yrði Skotland sjálf- stætt myndi það hafa alvarlegar af- leiðingar fyrir atvinnulífið, verslun og viðskipti. Leggur til breskt eyjaráð Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is BORGARRÁÐ hafnaði á fundi sín- um í gær tveimur útfærslum á mis- lægum gatnamótum á mótum Bú- staðavegar og Reykjanesbrautar. Á fundinum voru kynntar útfærslur sameiginlegs starfshóps Vegagerð- arinnar og framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar sem unnar voru með ráðgjöf frá Línuhönnun í sam- ræmi við samþykkt aðalskipulag. Fól fyrri tillagan í sér að beygjuakrein frá Reykjanesbraut til vesturs að Bú- staðavegi yrði lögð í undirgöng og seinni tillagan að beygjuakreinin yrði um brú yfir Reykjanesbrautina. Að sögn Hrólfs Jónssonar, sviðs- stjóra framkvæmdasviðs Reykjavík- urborgar, gerði fyrri tillagan ráð fyr- ir því að vestari kvísl Elliðaánna yrði færð til á um 200 metra kafla til að koma beygjurampi og undirgöngum fyrir. Sagði hann að samkvæmt seinni tillögunni yrði farvegur árinn- ar óbreyttur, en gert væri ráð fyrir að hún rynni undir beygjubrúna sem myndi hvíla á þar til gerðum stöplum. Sagði hann vegstæðið afar þröngt á þessum stað og því gæti reynst bæði erfitt og kostnaðarsamt að komast niður á tillögu sem skerti Elliðaár- dalinn sem allra minnst. Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs, sagði tillögunum hafa verið hafnað sökum þess að borgar- fulltrúum hefði ekki þótt ásættanlegt að raska lífríki Elliðaánna. „Við telj- um raunar að hefðbundið slaufu- mannvirki á stað sem þessum gangi ekki og teljum að huga verði að öðr- um lausnum.“ Aðspurður segir Björn Ingi hins vegar mikilvægt að fundin verði lausn til frambúðar á fyrr- greindum gatnamótum sem tryggi umferðaröryggi vegfarenda og greiði fyrir umferðinni. „Við teljum nauð- synlegt að auka öryggi og draga úr slysahættu á fjölförnustu gatnamót- um. Hins vegar er ekki sama hvernig það er gert,“ segir Björn Ingi og vís- ar til þess að frá gatnamótunum sé stutt í viðkvæmt útivistarsvæði. Tillögu um flutning Elliðaáa hafnað á fundi borgarráðs Í HNOTSKURN »Mislæg gatnamót á mótumBústaðavegar og Reykja- nesbrautar eru á vegaáætlun fyrir árið 2008. »Borgarráð hafnaði í gærtveimur útfærslum á mis- lægum gatnamótum á fyrr- greindum stað þar sem ekki þótti ásættanlegt að raska líf- ríki Elliðaánna en önnur til- lagan fól í sér flutning á vest- ari árkvíslinni á um 200 metra kafla. Umferð og útivistarsvæði Tölvugerðar afstöðumyndir sem sýna annars vegar tillögu um undirgöng þar sem önnur kvísl Elliðaánna hefur verið færð á nokk- uð löngum kafla og liggur samsíða veginum. Hins vegar er tillaga um brú yfir Reykjanesbrautina sem átti samkvæmt tillögunni að liggja yfir ánni að hluta. Morgunblaðið/Einar Falur Undirgöng eða brú? Séð yfir vesturkvísl Elliðaáa, á móts við Bústaðaveg. ♦♦♦ London. AFP. | Einn af auðugustu kaupsýslumönnum Afríku, Mo Ibra- him, kynnti í gær verðlaun sem veita á fyrrverandi leiðtoga Afríku- ríkis fyrir góða stjórnsýslu. „Við þurfum að uppræta spill- ingu og bæta stjórnunina,“ sagði Ibrahim. Verðlaunin verða veitt á hverju ári og eru aðeins ætluð leiðtogum sem afsala sér völdum með lýðræð- islegum hætti og hafa stuðlað að friði og framförum í löndum sínum. Verðlaunahafinn fær fimm millj- ónir dollara, sem svarar 340 millj- ónum króna, á tíu árum. Að þeim tíma liðnum fær hann 200.000 doll- ara, eða 13,6 milljónir króna, á ári til æviloka. Eru þetta mestu pen- ingaverðlaun sem veitt eru í heim- inum. Góðir leiðtogar verðlaunaðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.