Morgunblaðið - 27.10.2006, Blaðsíða 29
neytendur
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 29
Gert er ráð fyrir að í Berlín séu um
253 þúsund hundar. Ýmsir borg-
arbúar, og þá auðvitað aðallega þeir
sem ekki eiga hunda sjálfir, kvarta
undan því hástöfum að borgin sé að
verða að eins konar hundaklósetti,
eins og fyrirsögn á forsíðu stærsta
blaðs borgarinnar, BZ eða Berl-
inerZeitung, bar með sér nú fyrir
skömmu. „Hunde Klo Berlin“ stóð
þar og í yfirfyrirsögninni var fullyrt
að 400.000 skítahrúgur lentu á göt-
um og gangstéttum borgarinnar
daglega. Nú leggja menn sig fram
um að ná til þeirra ábyrgðarlausu
hundaeigenda sem leyfa hundunum
að gera stykkin sín á almannafæri
og hirða ekki upp eftir þá. Hins veg-
ar kemur fram í máli ýmissa hunda-
eigenda að þeim finnist ekki nóg að
gert hjá borgaryfirvöldum. Þeir
borgi sem svarar 10.500 kr. í hunda-
skatt á ári en hvergi sé gert ráð fyrir
aðstöðu fyrir hundana, lítið sem ekk-
ert sé um fötur sem hægt sé að kasta
stykkjum þeirra í og hvergi sé boðið
upp á ókeypis plastpoka. Allt ætti
þetta að geta verið til reiðu sem end-
urgjald fyrir hundaskattinn.
Skráðir hundar í Berlín eru 103
þúsund en reiknað er með að óskráð-
ir hundar séu a.m.k. 150 þúsund og
sé gert ráð fyrir að hver hundur
skilji eftir sig tvær hrúgur á dag
nemur úrgangurinn um 55 tonnum á
dag. Ekki eru þó allir hundaeig-
endur jafnslæmir því nýverið sá
blaðamaður mann og hund við hús.
Þegar hundurinn hafði létt á sér dró
maðurinn upp einnota plasthanska,
tók upp skítinn og kom honum fyrir í
ruslatunnu hússins.
Hunda-
skítur
vandamál
í Berlín
Orlando Vacation Homes
If you are planning a trip to Orlando, Florida and you are interested
in learning more about vacation home ownership, please contact
us or visit our website.
www.LIVINFL.com
Contact: Meredith Mahn
001-321-438-5566
Domus Pro Realty - Vacation Home Sales Division
Kópal Glitra þekur betur, ýrist sama og ekkert og er svo til lyktarlaus.
Spurðu um KÓPAL.
Útsölusta›ir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfir›i • Málningarbú›in Akranesi
Byko Akranesi • Axel fiórarinsson, málarameistari, Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfir›i • Litabú›in Ólafsvík
Núpur byggingarvöruverslun, Ísafir›i • Vilhelm Gu›bjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sau›árkróki
Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfir›i • Byko Rey›arfir›i • Verslunin Vík, Neskaupsta› • Byko Selfossi
Mi›stö›in Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík
Erlendur Eiríksson
málari
Þekur betur
KÓPAL Glitra
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
A
L
34
75
3
10
/2
00
6
Í GEGNUM tíðina hefur það vakið
undrun margra og þá sérstaklega
kvenna hversu leiðinlegt körlum
þykir að fara í búðir. Nú gæti út-
skýringin á þessari furðu verið kom-
in því ný rannsókn sýnir að versl-
anirnar eru sérstaklega hannaðar
með kvenkyns viðskiptavini í huga.
„Verslunarrými eru löguð fyrst
og fremst að konum og það fælir
karlana frá,“ segir neytenda-
sérfræðingurinn Carsten Bech sem
sagt er frá í Aftenposten. „Það er
ekkert við Y-litninginn sem gerir
það að verkum að karlar geta ekki
verslað.“
Hann efast þó ekki um að kyn sé
afgerandi þáttur í því hvað við
kaupum og hvar við kaupum það.
Bech á nokkur ráð uppi í erminni
til að fá karlkyns viðskiptavini til að
taka upp veskið. „Hafið verslunina
einfalda og yfirlitsgóða og sjáið til
þess að hafa heimasíðu með mikið af
upplýsingum svo karlarnir geti
skoðað sem mest heiman frá sér.“
Hann segir eldri karlmenn sjald-
an kunna vel við sig í nútíma versl-
unum og Jesper Kunde, forstjóri
auglýsingastofunnar Kunde og Co
tekur undir það. „Það er erfitt að ná
til karlmanna,“ segir hann. „Þeim
hentar eiginlega best að hafa eina
verslunarmiðstöð þar sem þeir geta
keypt allt sem þeir þurfa á að halda.
Þó mega ekki vera of margar búðir í
henni og oft neita eldri karlmenn
hreinlega að fara inn í slíka kjarna.“
Konuvænt Verslanir eru hannaðar
með konur í huga.
Karlmenn eru fældir frá búðum
Sængurfataverslun, Glæsibæ • Sími 552 0978 • www.damask.is • Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16
Barnasængur
- barnasett
Fréttir á SMS