Morgunblaðið - 27.10.2006, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 27.10.2006, Qupperneq 32
Sumir verslunareigendur vestanhafs láta markvisst dæla sérstakri lykt í verslanir sínar til að fá neytendur til að kaupa meira. Sálfræðingar hafa til dæmis fundið út að melónuilmur virk- ar vingjarnlegur og finni viðskiptavin- ir ilm af fíkjum þá líður þeim að öllum líkindum vel í viðkomandi verslun. Æ fleiri nýta sér nú þessa sölutækni í Bandaríkjunum og kaupmenn í Bret- landi eru farnir að kynna sér aðferðina líka. Í stórmörkuðum tíðkast að úða ilm af nýbökuðu brauði við inngang versl- ana til að laða að viðskiptavini. Angan af nýstraujuðum skyrtum mætir við- skiptavinum sem leggja leið sína í verslanirnar Thomas Pink og viðskipta- vinir ungbarnadeildarinnar hjá Mot- hercare munu finna ilm af barnapúðri þegar þeir ganga þar um. Kröftugur ilm- ur á að örva eyðsluklær matur 32 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Fyrir allmörgum árum tókuíslenskir matreiðslumennað nota meira vín í mat-argerð líkt og tíðkast víða annars staðar, einkum og sér í lagi í vínræktarlöndum meginlandsins, eins og á Ítalíu, Spáni og í Frakk- landi. Þeir lærðu þetta náttúrlega og stúderuðu erlenda kokka og vissu og vita vel hvað þeir eru að gera og hvaða reglur gilda varðandi notkun víns í matargerð. Ég man hins vegar eftir æði sem fór af stað í kjölfar matreiðsluþátta í sjónvarpinu á sínum tíma. E.t.v. hef- ur almennt meiri notkun víns á veit- ingastöðum líka haft sitt að segja og aukin ferðalög fólks erlendis. Mikil vínalda fór af stað og gusaðist ofan í potta og pönnur landsmanna með misvel heppnuðum hætti. Svo virðist sem lykilsetningin að vel lukkuðum rétti hafi verið: „Þeim mun meira og dýrara, þeim mun betra!“ Koníaki var skvett í sósur og súpur við hvert tækifæri (oft ótæpilega) og snarhíf- aðar rauðvínssósur runnu í stríðum straumum með nautasteikunum. Notað eins og önnur hráefni Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan og menn búnir að læra mikið í þessum efnum. Á Íslandi er engin vínhefð fyrir og litið er á vín nánast sem lúxusvarning, sem drekka skuli með mat og því þarft að setja vín reglulega í samhengið sem víngerð- arlöndin setja það, þ.e. vín sem hluta af máltíðinni. Það er jafn sjálfsagt að drekka eitt rauðvínsglas með matn- um sínum og bera fram brauð með salatinu. Á sama hátt er vín notað í matargerð á jafnsjálfsagðan hátt og önnur grunnhráefni sem gefa matn- um kraft og skarpara bragð, sbr. salt, pipar, ólífuolía og kraftur. Það þykir náttúrlega enn sjálfsagðara að nota vín í matargerð á Ítalíu verðs- ins vegna. Menn nota yfirleitt ódýr- ustu vínin í matargerðina, borðvín sem kosta um 1 evru lítrinn, marsala sem kostar 2–3 evrur og brandí sem kostar 3–4 evrur. Það er samt þess virði að koma sér upp matarvínskáp og nota vínið rétt og af hófi í matargerðinni (hægt að kaupa litlu flöskurnar þegar um borðvínið er að ræða, til að fari síður til spillis). Þegar maður notar vín í matargerð fer notkunin eftir því hvað maður vill fá fram. Ef maður vill kalla fram súrt bragð í rétti skal víninu blandað saman við matinn við mjög háan hita: þannig gufar alkó- hólið upp en önnur einkenni vínsins sitja eftir. Til að bragðbæta soð er gott að nota kraftmikið vín á borð við portvín og marsala og blanda saman við sjóðandi vökvann. Til að búa til vínsósu með eftirréttum skal láta vínið gufa upp við vægan hita og þykkna og þéttast. Hægt er að blanda ef vill dálítilli sterkju saman við uppleystri í smávatni. Við gerð risotto-hrísgrjónarétta er hvítvíni skvett á grjónin í upphafi og látið gufa upp við háan hita og síðan er bætt við soðinu. Ef það vínið væri sett í lokin (þó um besta kampavín væri að ræða), yrði rétturinn súr og óætur. Þeir sem kjósa að nota ekki vín í matargerð (eða hafa það ekki við höndina en vilja samt útbúa upp- skrift þar sem vín er eitt af hráefn- unum) þurfa ekki að örvænta því yf- irleitt er hægt að finna óáfengar útgáfur þess eða aðra staðgengla. Útkoman verður aldrei alveg sú sama, en kemst oft mjög nálægt hinni upprunalegu. Það er t.d. upp- lagt að nota mysu stað hvítvíns í ris- otto, fiskisúpur o.fl. Hér á eftir fylgir uppskrift að ítalska eftirréttinum zabaglione, sem er eins konar þykkur eggjapúns sem hægt er að bera fram í ýmsu samhengi. Klassíska meðlætið með zabaglione eru ferskar fíkjur (eins er gott að baka fíkjurnar fyrst með smáhunangi í), en einnig má bera réttinn fram í kampavínsglasi og sötra á og dýfa cantuccini-kexkökum eða savoiardi (ladyfingers) ofan í. Zabaglione er einnig fyrirtak einn og sér, eða sem fylling í pönnukökur eða vatnsdeigsbollur. Ef þið þurfið á fyrirgefningu að halda frá makanum eða viljið bæta fyrir einhverja mis- gjörð, þá bræðir eftirfarandi dek- urmorgunverður án efa hjarta hans. Croissant með zabaglione og granateplafræjum (uppskrift fyrir lítinn bolla af zabag- lione – margfaldist eftir þörfum) 1 eggjarauða 1 msk. sykur 2 hálfar eggjaskurnir (40 ml) mar- salavín (eða moscato eða ljóst púrtvín) 1 croissant fræ úr hálfu granatepli (má líka nota skógarber, eða smátt skornar ferskjur eða ferskar fíkjur) Þeytið vel saman í hitaþolinni glerskál eggjarauðu og sykur. Blandið víninu saman við og þeytið af alefli yfir vatnsbaði þar til úr verður þykk og mjúk froða (ekki of þykk samt). Blandan skal aldrei sjóða og mikilvægt er að hræra stöð- ugt í allan tímann). Skerið croissant- hornið í tvennt og hellið zabaglione- blöndunni yfir annan helminginn. Skreytið með granateplafræjum. Færið makanum í rúmið. Ljósmyndir /HF Öðruvísi Marsala í eggjaskurn Vín í matargerð Það að nota vín í matargerð virðist auðvelt en er alls ekki svo einfalt. Hanna Friðriksdóttir gefur hér einnig uppskrift að ítalska eftirréttinum zabaglione þar sem marsalavín kemur við sögu nú eða þá ljóst púrtvín. Lista yfir fleiri staðgengla víns í matargerð má finna á: http:// homecooking.about.com/library/ archive/blalcohol6.htm Val Í rzbaglione er best að nota annaðhvort marsala- eða moscatovín. Freistandi. Morgunverður þegar á að dekra við einhvern Glæsileg 115 fm 4ra herb. útsýnisíbúð á efstu hæð í vönduðu lyftuhúsi fyrir eldri borgara á þessum eftirsótta stað. Íbúðin skiptist í forstofu með skápum, eldhús með fallegum innrétting- um, þvottaherb. innaf eldhúsi, stórar og bjartar stofur með frábæru útsýni til suðurs að Reykja- nesfjallgarði og víðar, 2 herbergi og flísalagt baðherbergi auk gestasnyrtingar. Stórar flísa- lagðar svalir út af stofum með hita í gólfi að hluta og lýsingu á veggjum. Íbúðinni fylgir sér- stæði í upphitaðri bílageymslu, hlutdeild í mat- sal, leikfimisal, gufubaði o.fl. Nánari uppl. veitt- ar á skrifstofu. FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Miðleiti - Vönduð 4ra herb. útsýnisíbúð fyrir eldri borgara
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.