Morgunblaðið - 27.10.2006, Side 39

Morgunblaðið - 27.10.2006, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 39 TÖLVUFÍKN er ný árátta sem tengist vaxandi tölvunotkun í nú- tíma þjóðfélagi. Tölvueign Íslend- inga er með því mesta sem gerist í heiminum og börn byrja mjög snemma að umgang- ast tölvur. Því þarf að fylgjast vel með tölvunotkun þeirra og reyna að koma í veg fyrir að þau verði tölvufíklar. Mikilvægt er að hafa stjórn á notkuninni, því tölvu- fíkn líkist spilafíkn að því leyti að ein- staklingar missa stjórn á hegðun sinni. Stærsti hluti þeirra sem ánetjast tölvu- fikn stundar tölvu- leiki og spila þá oftast í gegnum Netið við aðra einstaklinga. Þessir einstaklingar geta verið félagar úr næsta umhverfi eða frá öðrum lönd- um og jafnvel öðrum heimsálfum. Einstaklingarnir ganga inn í mis- munandi hlutverk í leiknum og leik- urinn getur gengið í marga mánuði. Drengir eiga frekar á hættu að ánetjast tölvuleikjafíkn en stelpur, en þó þekkist þetta hjá báðum kynj- um. Einstaklingum með lágt sjálfs- mat er hættara við að ánetjast tölvufíkn. Ekki er óalgengt að ein- staklingur með tölvufíkn eyði frá 8 upp í 16 tímum á sólarhring í tölvu- notkun. Einstaklingur í þessu ástandi vanrækir aðra hluti í lífi sínu eins og nám, starf og samveru með vinum og fjölskyldu. Grunn- þörfum líkamans er ekki sinnt. Ein- staklingarnir sleppa svefni, hreyf- ingu, hollum máltíðum og þrifum. Fylgikvillar netfíknar geta oft verið þeir sömu og hjá vímu- efnaneytendum eins og sinnuleysi, félagsleg einangrun, þunglyndi, skapofsa- köst og veruleikafirr- ing. Foreldrar standa ráðalausir frammi fyrir þessu vaxandi vanda- máli og algengt að þessa sé ekki getið í al- mennu forvarnarstarfi. Þegar einstaklingur er langt leiddur í tölvufíkn er erfitt að snúa honum til baka. Hann afneitar fíkninni en er í tölvunni nánast allan sólar- hringinn, allt annað verður að víkja, hann fer á bak við foreldra eða nán- ustu aðstandendur til að komast í tölvu með öllum ráðum. Þegar hér er komið þarf einstaklingurinn á sérhæfðri meðferð að halda. Í for- varnarskyni er æskilegt að for- eldrar stýri tölvunotkun barna sinna, þannig að börn og ungmenni sitji ekki meira en 2 klst. á dag við skjáinn. Reynslan hefur sýnt að góð líðan barna sem hafa tölvufíkn eykst með minni tölvunotkun. Mælt er með því að hafa tölvurnar mið- lægt á heimilinu, ekki í svefn- herbergjum barnanna. Foreldrum er jafnframt bent á að fara á heima- síðu www.saft.is þar sem leiðbein- ingar eru um öruggari tölvunotkun barna. Til að aðstoða foreldra í að bregð- ast við þessari vaxandi fíkn barna og ungmenna, eru þrír meginþættir nauðsynlegir: 1. Upplýsingamiðstöð er lýtur að heilbrigði barna, þar sem for- eldrar fá allar upplýsingar er varða þennan vanda og önnur sambærileg málefni.. 2. Stöðugt sé upplýst um forvarnir á þessu sviði. 3. Meðferðarúrræði verði fyrir hendi. Tölvufíkn er vaxandi vandamál meðal barna og ungmenna Steinunn Guðnadóttir fjallar um tölvufíkn » Þegar einstaklingurer langt leiddur í tölvufíkn er erfitt að snúa honum til baka. Hann afneitar fíkninni en er í tölvunni nánast allan sólarhringinn … Steinunn Guðnadóttir Höfundur er fyrrverandi bæjar- fulltrúi í Hafnarfirði gefur kost á sér í 6. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. TENGLAR .............................................. www.steinunn.is                                                       !      "               # $            %    %    &                         '    ( ) *++   )   ,*+ *-++    .      %   %          "              /   01+ 2  "       #   3    3        4- 2 /3              "     5         04- 2             $ !                         6    $   ,*+ 74++ 8889   $                                                    !  SKYLT er skeggið hökunni, seg- ir í málshættinum. Það er eins með skeggið og hökuna og slagorðin stétt með stétt og mannúð og mildi. Hvoru tveggja er samofið sögu og hugmyndafræði okk- ar ágæta flokks. Í slagorðunum felst skuldbinding okkar gagnvart þeim sem standa höllum fæti í samfélaginu, þeim hafa ekki aðstæður til að vera sinnar eigin gæfu smiðir. Þeim þurfum við að rétta hjálparhönd af því saga okkar og flokksmenning kennir okkur að við eigum að bera virðingu fyrir þessum hugsjónum. Við eigum hins vegar ekki að hjálpa þeim sem geta hjálpað sér sjálfir. Sú hjálp, sá skerfur, er oft tekinn frá þeim sem sannarlega þurfa á hjálpinni að halda. Þetta gildir gagnvart ákveðnum öldruðum og þetta gildir gagnvart ákveðnum öryrkjum hvað svo sem hver segir. Þessi hópar eru efnahagslega jafn misjafnir og aðrir hópar samfélagsins en það eru líka til hópar innan um sem hafa það verulega skítt. Við eigum að einbeita okkur að þeim til að gera vel við þá. Þetta rökstyð ég með því að ekkert þjóðfélag getur gengið út frá því að geta tryggt öllum sama rétt, til dæmis frá Trygg- ingastofnun. Við Íslendingar eig- um að taka höndum saman og styðja þá sem standa höllum fæti. Grettistak í þeirra þágu þarf ekki að auka útgjöld úr al- mannatryggingunum sem dæmi. Við flytjum fjármagn til innan kerfisins frá efnuðum eignamönnum til þeirra sem ekkert eiga. Menn þurfa að hafa kjark og þora að taka á málinu strax – vilji er allt sem þarf, sagði ástsæll leiðtogi okkar og það á svo sannarlega við í þessu máli. Það er sögulegt skylda okkar sjálf- stæðismanna að fara þessa leið, því okkar er ábyrgðin að hér verði ekki slitinn sundur friðurinn um mannúð og mildi eða stétt með stétt. Mannúð, mildi og stéttarsátt Jóhann Páll Símonarson fjallar um mannleg samskipti og stéttarsátt Jóhann Páll Símonarson » Við Íslend-ingar eigum að taka höndum saman og styðja þá sem standa höllum fæti. Höfundur er sjómaður og tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.