Morgunblaðið - 27.10.2006, Síða 57

Morgunblaðið - 27.10.2006, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 57 Er þetta hún Birna litla? Svona hljóma ævin- lega móttökurnar þeg- ar ég hitti Dísu föð- ursystur mína, og svo segir hún mér að ég sé sæt og ég trúi henni, því ekki er hætta á að hún fari með rangt mál. Frænka mín, ljúfling- urinn, svo góð og hrekklaus og leggur ávallt þeim lið sem eiga undir högg að sækja. Hún hefur alla tíð haft óþrjótandi áhuga á okkur systkinabörnum sínum og afkom- endum okkar. Hún vissi alltaf fyrst af flutningum, trúlofunum, óléttum, barnsfæðingum, náms- ferli og yfirleitt öllu því sem mik- ilvægast er í lífinu og við höfum öll orðið betri manneskjur af kynnum okkar við hana. Ég var svo ljónheppin að fá að skríða upp í til Dísu á morgnana, þegar hún til nokkurra ára leigði herbergi hjá foreldrum mínum í nýbyggðri blokk inni í Laugarnesi. Hún sagði mér sögur úr sveitinni og við gáfum hvor annarri skip og fórum í frúna í Hamborg. Skemmtum okkur. Á vorin gaf hún mér nýjar gallabuxur og strigaskó og við fórum í sveitina til ömmu og Andrésar. Þar var nafna hennar Pálma- dóttir, jafnaldra mín, sem kynnti mig fyrir undrum leggs og skeljar og við áttum bú í gömlum hænsna- kofa með torfþaki. Þar spiluðum við á gamla olíubrúsa, sem okkur þóttu vera gítarar, og sungum undir. Buðum Dísu og Rönku í kaffi. Stundum ömmu. Alltaf gam- an. Góðar minningar, eins og allt sem tengist Dísu. Mestan part af sínum starfsferli vann Dísa í Farsóttarhúsinu. Það fannst mér upplagður áningarstað- ur þegar ég átti leið á Borgar- bókasafnið, sem í þá daga var í höllinni hvítu við Þingholtsstræti. Á „Farsótt“ var mér alltaf vel tek- ið. Ég var sett niður við feikna- mikið borð í eldhúsinu og í minn- ingunni finnst mér eins og allar eldhúskonurnar hafi snúist í kring um mig og sýnt áhuga þessum unga bókhneigða gesti. Mér voru bornar kræsingar og kökur, sem mér finnst eins og alltaf hafi komið beint úr ofninum stóra. Seinna, þegar amma fór að gamlast, flutti Dísa austur á bernskuslóðirnar í Laugardal og annað- ist hana þar til hún dó árið 1971. Hún bjó síðan með Andrési bróður sínum á Hjálmsstöðum þar til hann lést sumarið 1999. Til Dísu og Andrés- ar var gott að koma. Og hjá þeim gest- kvæmt mjög. Alltaf opið hús og faðmur. Dísa töfraði fram góðgerðir. Heimabakkelsi að íslenzkum sið, pönnsur, skonsur og piparkökurn- ar hennar! Þær allra beztu í heimi. Andrés glettist við börnin og sagði þeim spennandi og taugatrekkj- andi trölla- og svaðilfarasögur af sjálfum sér og öðrum hetjum Ís- landssögunnar. Dísa kunni spilagaldra og hún var líka alltaf til í að spila. Það kunnu dætur mínar vel að meta og þegar við dvöldumst í sumarhús- inu í túnjaðrinum þurftu þær oft að bregða sér á bæ og taka í spil með Dísu eða líta til með Andési í fjósi eða heyskap. Og eins og ég áður lærðu þær í umgengni við þau systkini dulítið um hin sönnu verðmæti lífsins. Verðmæti sem mölur og ryð vinna ekki svo glatt á. Þegar lagt var úr hlaði stóðu þau á hellunni og báðu okkur guðsfylgdar og blessunar. Ekki ónýtt veganesti það. Eftir lát Andrésar fluttist Dísa að dvalarheimili aldraðra í Hvera- gerði, og tveimur árum síðar á Grund í Reykjavík, þar sem allur ættboginn kemur að finna hana. Enginn á því heimili fær tíðari heimsóknir. Hjá henni hittir mað- ur fólk af öllum kynslóðum og þeg- ar fjöldskyldumeðlimir hittast kemur Dísa oftar en ekki til tals. Þetta minnir á örlög ættmóðurinn- ar í „Hundrað ára einsemd“ eftir nóbelsskáldið Gabríel García, þeg- ar afkomendur hennar finna sér það til skemmtunar að kasta henni, háaldraðri, á milli sín. Blíð og góð eins og alltaf stend- ur nú Þórdís Pálsdóttir frænka mín á þröskuldi tíræðisaldursins. Við þau tímamót árna ég henni allra heilla og þakka af heilum hug allar góðu stundirnar. Árný Birna Hilmarsdóttir. Þórdís Pálsdóttir AFMÆLI Rúmgaflar Stólar Speglar ALLT FYRIR SVEFNHERBERGIÐ Komið og gerið góð kaup Varnarliðssala Geymslusvæðisins - Sigtúni 40 Fataskápar Dýnur Kommóður Náttborð OPIÐ: Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud. 12-18 12-18 12-18 12-21 10-18 10-18 12-18 VW Passat árg. '02, ek. 53 þús. km. V. 1.500 þús. Áhv. 1.150 þús. Vantar bíl á milli. Uppl. í s. 866 1441. Volvo árg. '93, ek. 173 þús. km. Volvo 850 GLE '93, ekinn 173 þ. Skoðaður 2007. Ssk. Mp3. Leður. Vel með farinn og mikið endur- nýjaður. Tveir dekkjagangar á felgum. Verð 300 þ. S. 898 2179. Mercedes Benz Sprinter 316 CDI sk. 06/2006. Ekinn 800 km. Sjálfskiptur, rafmagn í rúðum og speglum. Hraðastillir, fjarst. sam- læsingar ESP, ASR, ABS loftkæl. Með öllu. Sendibíll skráður 5-6 manna. Kaldasel ehf., Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, s. 544 4333 og 820 1070. Corolla 4WD til sölu árg. '96, 1,8 l, 5 gíra, ekinn 195 þús., sk. '07. Sumardekk á álfelgum, CD/MP3, ný tímareim, smurbók. Fínn bíll í góðu standi. Verð 295.000. Uppl. í síma 820 9080. Bílar til sölu Mercedes Benz 316 CDI Sprint- er Maxi dísel. Nýr. 156 hestöfl. Sjálfskiptur. ESP stöðugleikakefi, 225/75 R 16 hjólbarðar. Kaldasel ehf., Dalvegi 16b, Kópavogi, s. 544 4333 og 820 1070. Árg. '99, ek. 150 þús. km. Einn með öllu, 5 gíra, 200+HP, v/s-dekk á áfelgum, vél nýlega mikið end- urnýjuð, DVD, 5000W sound sys- tem, aukahlutir um milljón. Ásett 1.450 þ. Tilboð óskast. Sími 663 5538. Hjólbarðar Tilboð til 29.10. 195/65 R 15 nagla- dekk 4 stk. + vinna 27.900 kr. Kaldasel ehf., Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, s. 544 4333. Tilboð til 29.10. 175/65 R 14 nagla- dekk 4 stk. + vinna 25.900 kr. Kaldasel ehf., Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, s. 544 4333. Matador MP 58 ný vetrardekk tilboð 12 R 22.5 MP 460 33.900 kr. Kaldasel ehf., Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, s. 544 4333. Camac jeppadekk - tilboð 4 stk. 235/75 R 15 + vinna 49.000 kr. Kaldasel ehf., Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, s. 544 4333. Geymum hjólhýsi, fjallabíla og fleira. Húsnæðið er loftræst, upphitað og vaktað. Stafnhús ehf., símar 862 1936 - 8991128 GeymslurBílar Kerrur Fjölnotakerrur. Frábærar fjölnota galv. kerrur, 500 kg. Stærð á burðarfleti 1,55 mx2,80 m. Léttar og meðfærilegar. Verð aðeins 89.000 kr. Símar 896 9319 & 869 2688. www.topdrive.is Bílar aukahlutir HÖGGDEYFAR Fyrir bílinn: Gabriel höggdeyfar, gormar, stýrisliðir, vatnsdælur, sætaáklæði, sætahlífar fyrir hesta- og veiðimenn, burðarbog- ar, aðalljós, stefnuljós, ASIM kúplingssett. GS varahlutir, Bíldshöfða, sími 567 6744. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Smáauglýsingar sími 569 1100 FRÉTTIR RÁÐSTEFNA um lífstærðfræði, til minningar um Kjartan G. Magnús- son, verður haldin á morgun, laug- ardag, í Háskóla Íslands. Kjartan var prófessor í stærð- fræði við Háskóla Íslands þegar hann féll frá í jan- úar sl., 53 ára að aldri. Rannsóknir Kjartans frá því hann kom til starfa við háskól- ann voru að mestu á sviði líf- stærðfræði, en það er vísindasvið sem hefur vaxið mjög á síðustu ár- um, bæði að umfangi og mikilvægi. Viðfangsefni ráðstefnunnar er að kynna rannsóknir sem tengjast áhugasviðum Kjartans innan lífs- tærðfræði og hefur verið boðið til hennar sex innlendum og erlendum sérfræðingum. Fyrir hádegi mun Greg Donovan, yfirmaður vísinda hjá Alþjóðahval- veiðiráðinu, fjalla um aðferðafræði við að stjórna hvalveiðum þannig að varðveisla stofnanna sé tryggð. Síð- an mun Bjarte Bogstad, sérfræðing- ur hjá Hafrannsóknastofnuninni í Bergen, fjalla um líkanagerð til að lýsa viðgangi fisktegunda í Barents- hafi og samspili þeirra sl. 25 ár og Lorna Taylor, sérfræðingur hjá Haf- rannsóknastofnun, lýsir tölfræðileg- um álitamálum sem taka þarf á við mat á stikum í fiskveiðilíkönum. Eftir hádegi fjallar Ólafur Niel- sen, sérfræðingur við Náttúrufræði- stofnun, um líkön af tengslum fálk- ans og rjúpunnar. Björn Birnir, prófessor í stærðfræði við Kaliforn- íuháskólann í Santa Barbara, fjallar um stærðfræðilíkön þar sem leitast er við að greina þætti sem ráða göngumynstri fisktorfa og Gunnar Stefánsson, prófessor í stærðfræði við Háskóla íslands, fjallar um friðun svæða sem stjórnkerfi fiskveiða. Ráðstefnan er haldin í sal 132 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands við Sturlugötu. Hún hefst klukkan 9 með setningu Kristínar Ingólfsdóttur, háskólarektors. Fyr- irlestrarnir eftir hádegi hefjast kl. 14, en á undan fyrirlestri Ólafs verð- ur sýnt stutt myndskeið úr kvik- mynd sem Magnús Magnússon kvik- myndagerðarmaður vinnur að um fálkann og rjúpuna. Ráðstefnan er öllum opin. Nánari upplýsingar um hana er að finna á vefslóðinni www.raunvis.hi.is/KGM. Ráðstefna um lífstærðfræði Kjartan G. Magnússon SAMTÖK herstöðvaandstæðinga standa fyrir mánaðarlegum fjáröfl- unarmálsverði í Friðarhúsi, Njáls- götu 87 (á horni Njálsgötu og Snorrabrautar) í kvöld, föstudags- kvöldið 27. október, kl. 19. Sjá nán- ar: www.fridur.is. Í fréttatilkynningu er vakin at- hygli á því að Kjartan Ólafsson, fv. framkvæmdastjóri Samtaka her- námsandstæðinga, mætir á fundinn og ræðir um símhleranamálið sem hefur verið í fréttum upp á síðkast- ið. Allir eru velkomnir meðan hús- rúm leyfir. Fjáröflunarmáls- verður herstöðva- andstæðinga KYNNINGARFUNDUR fyrir ung- linga sem áhuga hafa á borgara- legri fermingu 2007 og aðstand- endur þeirra verður haldinn laugardaginn 28. október kl. 11–12 í Háskólabíói, sal 1. Næsta námskeið Siðmenntar til undirbúnings borgaralegri ferm- ingu verður kynnt, gerð grein fyrir umsjónarmönnum og væntanlegri athöfn næsta vor, segir í frétta- tilkynningu frá Siðmennt – félagi siðrænna húmanista. Borgaraleg ferming kynnt STAÐALÍMYNDAHÓPUR Femín- istafélags Íslands hefur opnað vef með fréttum og auglýsingum sem sýna kynin í úreltum kynhlutverk- um; www.stadalryni.blogspot.com. Síðan verður uppfærð út Femín- istavikuna sem nú stendur yfir. Staðalrýni femínista JAFNRÉTTISNEFND ÍTR stendur fyrir málþingi um jafnrétti og frí- tímann í dag, föstudaginn 27. októ- ber, kl. 13:00-16:00 í Kornhlöðunni við Lækjarbrekku. Málþingið er haldið í tilefni af 10 ára afmæli jafnréttisnefndar ÍTR og er öllum opið. Skráning fer fram á netfanginu jafnretti@itr.is. Dag- skrá málþings má sjá á heimasíðu ÍTR http://itr.is Málþing ÍTR um jafnrétti og frítíma

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.