Morgunblaðið - 27.10.2006, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 27.10.2006, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2006 61 edda.is Dag einn fæðist undurfögur og ljúf prinsessa í fjarlægu konungsríki. Eða hvað? Segja myndirnar eitthvað annað? Skemmtileg bók sem kemur lesandanum sífellt á óvart. Á vit kínverskra ævintýra Aron er fjórtán ára þegar honum býðst að fara til Kína með pabba sínum. Hann órar ekki fyrir því ævintýri sem bíður hans, kínversku borgirnar eru yfirþyrmandi, fljótin breið, mannmergðin mikil – svo ekki sé talað um matinn sem er býsna frábrugðinn því sem Aron er vanur ... Einu sinni var ... Kirkjukór frá Færeyjum í heimsókn Tónleikar í Breiðholtskirkju í Mjódd laugardaginn 28. október kl. 20.00. Kórinn syngur einnig í Færeyska Sjómannaheimilinu sunnudaginn 29. október kl. 17.00 og í Tómasarmessu í Breiðholtskirkju í Mjódd kl. 20.00. Ókeypis aðgangur. Allir hjartanlega velkomnir. Betesdakórinn frá Klaksvík 80 ára. Í LISTSKÖPUN sinni hefur Egill Sæbjörnsson starfað á mörkum myndlistar, tónlistar og sviðslista. Í innsetningum þar sem hann blandar saman skjálist, gjörn- ingum og efnislegum hlutum, sæk- ir hann m.a. til dægurmenningar, svo sem teiknimynda og popp- tónlistar en Egill er einnig tónlist- armaður og hefur gefið út hljóm- plötur. Verk hans nú í Safni við Laugaveg, „Ping Pong Dance“, er framlag til Sequences-myndlist- arviðburðarins en hann kemur einnig fram á tónleikum á Airwa- ves-tónlistarhátíðinni. Ping Pong vísar til íþróttar sem stundum er nefnd því nafni, en innsetningin samanstendur af stuttu tölvuunnu myndskeiði sem varpað hefur verið á vegg, þar sem standa tvær fötur, í aflokuðu og myrkvuðu rými safnsins. Þar sjást tvær borðtenniskúlur skoppa um á skjánum í laufléttum dansi. Hljóðsetningin leikur stórt hlut- verk en þar heyrist tónlist og ógreinilegt tal. Raddsetningin hef- ur yfir sér skondið yfirbragð þar sem kúlurnar virðast hafa öðlast mannlega eiginleika; þær eiga í samskiptum og sýna leikræna til- burði þar sem leikið er á þyngd- araflið líkt og um loftfimleikamenn væri að ræða. Verkið mætti túlka sem myndhverfingu fyrir vanga- veltur listamannsins um samskipti tveggja einstaklinga, sem á köflum eru nokkuð „blúsuð“ eða trega- blandin líkt og tónlistin gefur til kynna. Föturnar tvær gegna lykilhlut- verki í atburðarásinni og við sköp- un tengsla milli sýndarrýmis hins tvívíða flatar myndbandsverksins, safnrýmisins og ímyndunarafls sýningargesta þar sem borðtenn- iskúlurnar leika listir sínar á mörkum hinna ólíku rýma. Það er þessi leikur og einkum hljóðsetningin sem gefa verkinu gildi, en myndbandið sjálft hefur dálítið æfingarkennt yfirbragð. Egill útfærir hér skemmtilega en kannski ekki þungvæga hugdettu í verki sem er beintengt yfirskrift myndlistarhátíðarinnar. Þess má geta að þegar undirrit- aða bar að hafði „sviðsmynd“ verið stillt upp fyrir gjörning sem flytja átti þá um kvöldið (sem hluta af dagskrá Sequences-hátíðarinnar) en ég hafði ekki tækifæri til sjá. Auk trommusetts og nokkurs kon- ar „steinsteypuvörðu“ höfðu hlutir verið festir á vegg sem tengjast m.a. stöðum og minningum í lífi listamannsins. Hér virtist mynd og sviðsetning sjálfsins vera til um- fjöllunar í persónulegra og marg- brotnara verki en getur að líta í dansi borðtenniskúlnanna Kúludans MYNDLIST Safn Opið til 28. október 2006, miðvikudaga - föstudaga kl. 14–18 og laugardaga - sunnudaga kl. 14–17. Aðgangur ókeypis. Ping Pong Dance – Egill Sæbjörnsson Anna Jóa Morgunblaðið/Ásdís Ping Pong Dance „Raddsetningin hefur yfir sér skondið yfirbragð þar sem kúlurnar virðast hafa öðlast mannlega eiginleika.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.