Morgunblaðið - 27.10.2006, Side 72

Morgunblaðið - 27.10.2006, Side 72
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 300. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Austan 15–20 m/s sunnanlands, annars 8–13 m/s. Rigning eða slydda, úrkomulítið norðan- og austanlands. » 8 Heitast Kaldast 8°C 0°C ÞJÓÐSKJALASAFN Íslands hefur birt skjöl sem varða símhleranir á ár- unum 1949–1968 en safnið hafði áður afmáð persónugreinanlegar upplýs- ingar um þá sem hlerað var hjá. Gögnin voru birt í gær á vef safnsins. Alls er um að ræða um 60 blaðsíður og er drjúgur hluti þeirra handskrif- aðar síður úr sakadómsbók Saka- dóms Reykjavíkur. Guðni Th. Jóhannesson sagnfræð- ingur hafði áður fengið aðgang að um- ræddum skjölum vegna rannsóknar sem hann kynnti á Söguþingi í maí sl. Kjartan Ólafsson, fyrrverandi þing- maður og ritstjóri Þjóðviljans, óskaði í kjölfarið eftir að fá aðgang að öllum gögnum um símhleranir á þessum ár- um og með úrskurði menntamála- ráðuneytisins fékk hann fyrir skömmu aðgang að gögnum sem ein- göngu vörðuðu hann. Í tilkynningu á vef safnsins segir að í framhaldi af úrskurði menntamála- ráðuneytisins og vegna „hins mikla áhuga almennings á aðgangi að skjöl- unum“ hafi safnið nú ákveðið að birta þessi skjöl í heild sinni. Í skjalabunkanum sem birtur var í gær er einkum að finna beiðnir og úr- skurði um símhleranir, auk þess sem forsíður Þjóðviljans eru tvívegis lagð- ar fram, beiðnunum til stuðnings. Fram kemur að heimildir voru veittar til að hlera síma vegna inngöngu Ís- lands í Atlantshafsbandalagið árið 1949, heimsóknar Dwight D. Ei- senhower, yfirhershöfðingja banda- lagsins árið 1951 og komu Banda- ríkjahers sama ár. Einnig voru veittar heimildir til símhlerana þegar verið var að semja um landhelgi Ís- lands við Breta árið 1961 og þegar Lyndon B. Johnson, þáverandi vara- forseti Bandaríkjanna, heimsótti landið árið 1963 og að síðustu vegna utanríkisráðherrafundar Atlantshafs- bandalagsins árið 1968. Birtir skjöl um hleranir Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Í HNOTSKURN » Skjöl um símhleranir áárunum 1949–1968 voru birt síðdegis í gær á vefnum www.skjalasafn.is. » Ekki eru birtar „persónu-greinanlegar“ upplýs- ingar í skjölunum og vísað í ákvæði 71. gr. stjórnarskrár- innar. » Í greininni segir að allirskuli njóta friðhelgi einka- lífs, heimilis og fjölskyldu. SAMÞYKKT var á sérstökum auka- fundi bæjarstjórnar Grindavík- urbæjar í gær að bærinn legði fram tilboð í rúmlega 5.500 hektara land sem kennt er við Járngerðarstaði og Hópstorfu og umlykur bæinn. For- stjóri Bláa lónsins hf. segir fyrirtækið hafa gert bindandi samning við land- eigendur um sölu á meirihluta lands- ins og lýsir furðu sinni á ákvörðun bæjarstjórnar. Að sögn Hallgríms Bogasonar, bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins í Grindavík, var samstaða í bæj- arstjórn um að leggja fram tilboð sem er ögn hærra en þær 715 milljónir sem Bláa lónið hf. hefur boðið í landið. „Grindavíkurbær á tiltölulega lítið land og Bláa lónið hf. hefur gert tilboð í allt land umhverfis okkur ef svo má segja,“ segir Hallgrímur. „Grindavík þarf sárlega á þessu landi að halda og við erum að reyna að fá landeigendur til að selja okkur landið frekar en Bláa lóninu hf.“ Hann bætir við að einhugur sé í bænum um þetta. Landið er afar víðfeðmt en það er óskipt í eigu tæplega 80 einstaklinga. Þetta gerir sölu landsins afar erfiða þar sem ekki er hægt að selja hluta úr því nema með samþykki allra eig- enda. Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins hf., segir að þess vegna hafi landeigendur óskað eftir að fyr- irtækið gerði tilboð í landið allt en Grindavíkurbær hafi engan áhuga sýnt á landinu fyrr en skyndilega nú. Hann segir fyrirtækið hafa áhuga á að reisa heilsulindarhótel við Bláa lónið og treysta stöðu fyrirtækisins nærri lóninu. „Við höfum engan vilja til að standa í illdeilum við neinn. Við fórum út í þetta svona [að kaupa allt landið] af því að landeigendur vildu það og bærinn hafði ekki sýnt neinn áhuga á að eignast landið.“ Bláa lónið hf. hafi því engar fyrirætlanir um það land sem liggur næst þéttbýli Grinda- víkur og ekkert sé því til fyrirstöðu að bærinn kaupi það land af Bláa lóninu hf. og öðrum landeigendum jarð- arinnar, verði samstaða um slíkt. Þessum vilja fyrirtækisins hafi verið komið á framfæri við bæjarstjórn Grindavíkurbæjar fyrir fundinn í gær og því veki samþykkt hennar nú nokkra furðu. Grindavíkurbær og Bláa lónið keppa um land             .  41                        .   * ) '* ) > # =  P I!    Q 5  $ %*  !"      #$MA (  %  ""& '"  ! $ !"$  ! $ ># = J  I   # ) 7??  5%      !( "  $  ( * ) 3 %  6 7 %   $%& 7 % 5%   61  ÞRIÐJU langreyðinni var landað í gær og er hún jafnframt sú stærsta sem veiðst hefur til þessa, um 70 fet að sögn Gunn- laugs Fjólars Gunnlaugssonar, starfsmanns Hvals hf. Hvalur 9 hélt aftur á miðin út af Reykjanesi í gær og er búist við að hann komi með fjórðu lang- reyðina að landi á morgun, tefji bræla ekki för skips- ins. Fyrsta langreyðin sem veiddist var 68,2 fet en þótti fremur rýr. Það á ekki við um þá sem landað var í gær. „Feitur og pattaralegur,“ sagði Gunnlaugur Fjólar um hvalinn þann. Morgunblaðinu höfðu í gærkvöldi borist um 13.300 tölvupóstskeyti með mótmælum gegn hvalveiðum en þau voru um 12.000 í fyrrakvöld. Bréfin eru send að undirlagi dýra- verndarsamtakanna IFAW. Stærsta lang- reyðin til þessa Búið er að flensa þrjá hvali. MIKIL hálka var á Hellisheiði í gær og lentu nokkrir ökumenn í vand- ræðum. Einn ók á víravirki sem skilur akreinar í sundur fyrir ofan Litlu-Kaffistofuna og annar missti bifreið sína út af veginum við Hveradalabrekku. Nokkrir til við- bótar urðu að yfirgefa bifreiðar sínar. Að sögn lögreglunnar á Sel- fossi var um 15 sentimetra jafnfall- inn snjór á heiðinni í gær, slabb og hálka. Lögregla sagði að fullt til- efni væri fyrir ökumenn að skipta yfir á vetrardekkin og hætta að flækjast um á sumardekkjunum. Víðar um land bárust fregnir af hálku, m.a. af Vatnaleið á Snæfells- nesi, Holtavörðuheiði og Öxnadals- heiði. Raunar er víða hált og sum- staðar mjög hált á Norður- og Austurlandi. Ökumenn í vand- ræðum í hálku Í NÝRRI skoðanakönnun sem Norð- urlandaráð hefur látið gera kemur fram að Íslendingar telja mögu- leikann til náms og rannsókna í öðr- um norrænum ríkjum mikilvægasta þátt Norðurlandasamstarfs. Þegar íslenskir þátttakendur voru beðnir að nefna lönd og samtök sem mik- ilvægt væri að land þeirra starfaði með á alþjóðavettvangi nefndu 69% Norðurlönd, 52% Evrópusambandið, 23% Bandaríkin og 22% Kína. Skipt- ar skoðanir eru um mikilvægi sam- starfs við Bandaríkin. Stór hluti danskra þátttakenda, eða 44%, taldi það mikilvægt. Meðal Norðmanna voru 36% sömu skoðunar og 23% ís- lensku þátttakendanna. Aðeins 17% Finnanna og 10% Svíanna nefndu Bandaríkin sem mikilvægan sam- starfsaðila. Nokkur munur er á því hvaða málaflokka þjóðirnar telja mikilvægasta í norrænu samstarfi. Íslendingar leggja langmesta áherslu á möguleika til náms og rannsókna og viðurkenningu prófa í öðrum norrænum ríkjum. Vilja samstarf við Norðurlöndin Morgunblaðið/Ómar Votviðri Margir vegfarendur í Reykjavík máttu hugga sig við það í gær að enginn er verri þótt hann vökni. Þessir voru þó séðir og hafa væntanlega frekar þurft að hafa hugfast að vera sáttir þrátt fyrir þrengslin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.