Morgunblaðið - 03.11.2006, Side 4

Morgunblaðið - 03.11.2006, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hjónarúm Barnarúm RÚM Í ÚRVALI OPIÐ: Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud. 12-18 12-18 12-18 12-21 10-18 10-18 12-18 Unglingarúm Komið og gerið góð kaup Varnarliðssala Geymslusvæðisins - Sigtúni 40 Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is STARFSEMI Þróunarsamvinnu- stofnunar Íslands (ÞSSÍ) í Ník- aragva í Mið-Ameríku er í uppnámi eftir að þing landsins samþykkti lög sem banna fóstureyðingar með öllu. Þetta stangast á við jafnréttisáætlun ÞSSÍ, sem hefur nýlega hafið starf- semi í Níkaragva. „Þetta hefur enn ekki haft áhrif á starfsemi okkar, þetta er svo nýskeð. Við erum hins vegar aðilar að því með öðrum þróunarsamvinnustofn- unum sem starfa í landinu að senda mjög harkaleg mótmæli,“ segir Sig- hvatur Björgvinsson, framkvæmda- stjóri ÞSSÍ. „Umdæmisstjóri okkar í Ník- aragva hefur komið þessum málum á framfæri við utanríkisráðuneytið og honum hefur verið falið að fylgjast mjög náið með framvindunni og gefa um það skýrslur heim. Svo verður væntanlega tekin ákvörðun um framhaldið ef þetta verður niður- staðan,“ segir Sighvatur. Ákvörðun um frekari viðbrögð verður tekin í náinni samvinnu við utanríkisráðuneytið, enda pólitísk ákvörðun og því á forræði ráðherra. Í jafnréttisáætlun ÞSSÍ kemur fram að séu alþjóðlegir sáttmálar um kynjajafnrétti að engu hafðir í sam- starfslöndum muni stofnunin hvetja til aukins vægis jafnréttissjónar- miða. Ef slík viðleitni beri ekki ár- angur þýði það að ÞSSÍ dragi sig út úr samstarfinu nema í vel rökstudd- um undantekningartilvikum. Forsetakosningar á sunnudag Sighvatur bendir á að pólitískt ástand í Níkaragva sé mjög erfitt, þingið og ríkisstjórnin hafi ekki verið samstiga. Forsetakosningar verða í landinu á sunnudaginn. Starfsemi ÞSSÍ í Níkaragva er ný- hafin, þar er einn starfsmaður á veg- um stofnunarinnar. Eina verkefnið sem hefur þegar verið sett af stað tengist vinnslu jarðhita og haldin ráðstefna með íslenskum vísinda- mönnum um það málefni. Einnig hefur verið í burðarliðnum stofnun heimilis fyrir konur sem eiga í vanda meðan á meðgöngu stendur en ólíklegt er að það verði að veru- leika við óbreytt ástand. Þróunaraðstoð við Níkaragva í uppnámi Alvarlegar afleið- ingar banns við fóstureyðingum Í HNOTSKURN » Þing Níkaragva bannaði ísíðustu viku fóstureyð- ingar með öllu, jafnvel þótt konur hafi orðið fyrir nauðg- un eða líf þeirra sé í hættu. » Læknar sem framkvæmafóstureyðingu og konur sem gangast undir hana eiga fjögurra til átta ára fangels- isdóm yfir höfði sér. » Talsmenn mannréttinda-samtaka fordæma bannið. BORGARRÁÐ Reykjavíkur sam- þykkti í gær fyrirheit um lóðir til trúfélaga, annars vegar Ásatrúar- félagsins og hins vegar Trúfélags rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi (Safnaðar Moskvu- Patríarksins). Að sögn Björns Inga Hrafns- sonar, formanns borgarráðs, fékk Söfnuður Moskvu-Patríarksins fyr- irheit um lóð á svonefndum Ný- lendureit, milli Nýlendugötu og nýrrar Mýrargötu. Hugmyndin er að lóðin verði nálægt gatnamótum Mýrargötu og fyrirhugaðrar fram- lengingar Bræðraborgarstígs. Fyrirheitið er bundið fyrirvara um að deiliskipulag sem gerir ráð fyrir slíkri kirkjubyggingu verði samþykkt og öðlist gildi. Þegar það liggur fyrir verður lóðinni úthlutað formlega. Söfnuður Moskvu-Patríarksins hefur leitað eftir lóð til kirkjubygg- ingar í Reykjavík um alllangt skeið. Ýmsir möguleikar hafa verið kann- aðir í því skyni og fékk trúfélagið tímabundið fyrirheit í desember 2004 um lóð í Leynimýri, en ekki kom til út- hlutunar þar. Ásatrúarmenn í Leynimýri Ásatrúarsöfn- uðurinn fékk fyr- irheit um lóð fyr- ir hof, með eða án safnaðarheim- ilis, í Leynimýri í sunnanverðri Öskjuhlíð, ofan við fyrirhugaðan duftkirkjugarð. Aðkoma að lóðinni verður um veginn að Perlunni. Fyr- irheitið, sem gildir í tvö ár, er bund- ið því að deiliskipulag sem gerir ráð fyrir slíkri starfsemi og bygg- ingu verði samþykkt. Fulltrúar Samfylkingar í borg- arráði spurðu hvað liði vinnu sem hófst á síðasta kjörtímabili við að útvega Félagi múslíma lóð undir mosku. Björn Ingi sagði í samtali við Morgunblaðið að unnið væri að því máli innan borgarinnar. Tvö trúfélög fá fyrirheit um lóðir Björn Ingi Hrafns- son Tilbeiðsla í Öskjuhlíð og Nýlendureit ARI Edwald, forstjóri 365 miðla, segir að sameining Skjásins og 365 sé ekki í spilunum eins og málin standa. Þetta stangast á við fullyrð- ingar Steingríms Sævarrs Ólafsson- ar blaðamanns og fyrrverandi frétta- manns á Stöð 2, sem fullyrðir á bloggi sínu að leynilegar viðræður hafi átt sér stað á milli fyrirtækj- anna. Ari segir að engar slíkar viðræður hafi átt sér stað, en að sameining fyr- irtækjanna geti hins vegar verið mjög skynsamleg leið, þó örugglega séu mörg ljón í veginum. Hugmynd- in sé að mörgu leyti áhugaverð. Steingrímur svarar Ara á bloggi sínu, og segir þetta rangt, en Ari tali þó ekki gegn betri vitund af þeirri einföldu ástæðu að hann hafi ekki tekið þátt í þessum viðræðum, og hafi ekki fengið að heyra af þeim. Viðræðurnar hafi átt sér stað og sé ekki lokið, þó frekari fundir hafi ekki verið ákveðnir. Sameining stöðva skynsamleg ANNAR mótorhjólamaðurinn í röð var sýknaður af ákæru um utanvega- akstur í gær þegar héraðsdómur dæmdi í máli hans vegna aksturs í hlíðum Dyrfjalla í Ölfusafrétti. Mað- urinn var stöðvaður í þyrlueftirliti í byrjun júní og neitaði sök í málinu. Hann viðurkenndi að hafa ekið í um- rætt sinn á vegslóða og hélt því fram að slóðinn væri gamall og notaður af bifreiðum, vinnuvélum, fjórhjólum og torfærutækjum. Ákært var fyrir utanvegaakstur sem er brot á nátt- úruverndarlögum en dómurinn til- tók að engin skilgreining væri í lög- unum á hugtakinu „utan vega“ eða „vegur“. Í greinargerðinni með laga- frumvarpinu væri vísað til 2. gr. um- ferðarlaga en þar væri vegur skil- greindur sem vegur, gata, götuslóði, stígur, húsasund, brú, torg, bifreiða- stæði eða þess háttar, sem notað er til almennrar umferðar. Dómurinn skoðaði ljósmyndir af svæðinu og fór dómari einnig í vett- vangsgöngu. Segir í niðurstöðum dómsins að á myndunum megi greinilega sjá veg eða slóða sem öku- tæki hafi farið um í langan tíma. Möl keyrð í slóðann Greinilegt væri að ekki væri ein- göngu um að ræða slóða sem mynd- ast hefði eftir dýr, svo sem fjárgötu, heldur slóða sem sums staðar hefði verið keyrð möl í en sums staðar hefðu myndast för í jarðveginum eft- ir ökutæki og þá bifreiðar, traktora eða annars konar farartæki svo og væntanlega einnig dýr. Á hluta slóð- ans mætti einnig sjá að hann hefði verið ruddur að hluta. Að mati dóms- ins var um að ræða götuslóða eða veg og talið var að akstur á honum væri ekki utanvegaakstur. Segir í dóminum að hafi það verið tilgangur löggjafans að útiloka akst- ur á slíkum slóðum þá yrði verkn- aðarlýsing í náttúrverndarlögum og umferðarlögum að vera skýrari. Við fyrrgreindan slóða hafi engar merk- ingar verið sem bönnuðu akstur en full þörf væri á slíkum merkingum ef banna ætti akstur á honum. Ástríður Grímsdóttir, dómari við Héraðsdóm Suðurlands, dæmdi mál- ið. Verjandi ákærða var Björn Þorri Viktorsson hrl. og sækjandi var Gunnar Örn Jónsson, fulltrúi sýslu- mannsins á Selfossi. Sýknað enn á ný í utanvegaakstursmáli Tveir mótorhjólamenn sýknaðir eftir akstur á vegslóðum SÚ HÆTTA sem stafar af síend- urteknu grjóthruni úr Óshlíð varð tilefni til fjölmennrar bænastundar við Óshyrnu á Óshlíðarvegi síðast- liðið miðvikudagskvöld. Þar var beðið fyrir þeim sem fara þurfa um veginn, en ekki síður var beðið fyr- ir þeim sem taka þurfa ákvörðun um úrbætur. Sr. Skírnir Garðarsson, starfandi sóknarprestur í Bolungarvík, leiddi bænastundina og lýsti hann miklum áhyggjum vegna þess hversu hættulegur vegurinn um Óshlíðina væri. Hann sagði veginn raunar einn hættulegasta veg á Íslandi. Sr. Skírnir fór einnig með kvæði sem hann hafði ort á leið sinni um Óshlíðina sl. föstudag, en þá varð – einu sinni sem oftar – grjóthrun úr hlíðinni. Eftir að bænastundinni lauk dreifði sr. Skírnir miðum með bæn sem fólk var hvatt til að hafa í bílum sínum. Mikið hefur verið um grjóthrun úr Óshlíð undanfarið og lokaðist t.d. önnur akreinin af þeim sökum um síðustu helgi, þótt vegurinn sjálfur lokaðist ekki alveg. Fyrirbænir vegna grjóthruns Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Bænastund Sr. Skírnir Garðarsson leiddi á miðvikudagskvöld fyrirbænir fyrir þeim sem leið eiga um Óshlíð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.