Morgunblaðið - 03.11.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 19
Melaskóli 60 ára
Afmælisrit Melaskólans kemur út ummánaðamótin
nóv.-des. nk. Enn er hægt að panta bókina í forsölu
og skrá sig á heillaóskaskrána.
Þeir sem þess óska geta sent tölvupóst á
skrudda@skrudda.is eða hringt í síma 5528866.
Því miður tókst ekki að senda öllum gömlum nemendum
tilkynningu um útgáfuna og eru þeir sem ekki hefur náðst
í hvattir til að hafa samband, þó ekki síðar en
8. nóvember nk.
Efni bókarinnar:
Ágrip af sögu skólans.
Ljósmyndir úr skólalífinu í 60 ár.
Kennaratal.
Skrá yfir alla 12 ára bekki ásamt mynd.
Tugir greina eftir gamla nemendur um árin í skólanum.
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 – 101 Reykjavík
s. 5528866 – skrudda@skrudda.is
TILKYNNT var um tilnefningar til
Eddu 2006, íslensku kvikmynda- og
sjónvarpsverðlaunanna. Tilnefning-
arnar voru í ellefu flokkum. Verð-
launaafhending fer fram sunnudag-
inn 19. nóvember á Nordica hóteli.
Hér á eftir fara tilnefningarnar í
þessum ellefu flokkum og útdráttur
úr umsögn dómnefndar við einstaka
flokka.
Kvikmynd ársins
Blóðbönd. Framleiðandi Pegasus/
Snorri Þórisson. Leikstjóri Árni
Ólafur Ásgeirsson. Handrit Árni
Ólafur Ásgeirsson, Jón Atli Jón-
asson og Denijal Hasanovic. „Ljúf-
sár kvikmynd um erfitt umfjöllunar-
efni.“
Börn. Framleiðandi Vesturport.
Leikstjóri Ragnar Bragason. Hand-
rit Ragnar Bragason, Gísli Örn
Garðarsson, Nína Dögg Filipp-
usdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og
leikhópurinn. „Áralöng spuna-
samvinna skilar sér á frábæran hátt
í einkar trúverðugum og heil-
steyptum persónum.“
Mýrin. Framleiðandi Sögn/Agnes
Johansen, Lilja Pálmadóttir og
Baltasar Kormákur. Leikstjóri Balt-
asar Kormákur. Handrit Baltasar
Kormákur. „Í alla staði vel heppnuð
kvikmynd eftir vinsælustu spennu-
sögu Íslandssögunnar.“
Leikari ársins
Gísli Örn Garðarsson fyrir hlut-
verk sitt í Börnum. „Meðvitund-
arleysi siðblindrar persónu um eigin
tilfinningar og annarra og flóttinn
frá innri tómleika fær meitlaða birt-
ingarmynd í túlkun Gísla Arnar.“
Hilmar Jónsson fyrir hlutverk sitt
í Blóðböndum. „Með sparsömu lát-
bragði í leik sínum dregur Hilmar
áhorfandann með sér í innra ferða-
lag inn í mikinn sársauka manns
sem missir fótanna í lífi sínu.“
Ingvar E. Sigurðsson fyrir hlut-
verk sitt í Mýrinni. „Erkitýpan, hinn
íslenski bóndi, klakabrynjaður úr
hríðarveðrum lífsins er orðinn rann-
sóknarlögreglumaður í high-tech
umhverfi. Í meðförum Ingvars E.
Sigurðssonar öðlast þessi hugmynd
hold og blóð, hún verður að manni.“
Nína Dögg Filippusdóttir fyrir
hlutverk sitt í Börnum. „Nína Dögg
túlkar örvæntingu móðurinnar sem
berst fyrir hversdagslegri tilveru
sinni og barna sinna sterkt en þó af
svo miklu jafnvægi að aldrei er of
eða van.“
Ólafur Darri Ólafsson fyrir hlut-
verk sitt í Börnum. „Karakter Ólafs
Darra gengur ekki heill til skógar.
Án þess að gera lítið úr hryggilegu
hlutskipti persónunnar bregður
Ólafur Darri yfir það mildandi húm-
or.“
Leikari ársins
í aukahlutverki
Atli Rafn Sigurðsson fyrir hlut-
verk sitt í Mýrinni.
Halldór Gylfason fyrir hlutverk
sitt í Ævintýrum í Stundinni okkar.
Laufey Elíasdóttir fyrir hlutverk
sitt í Blóðböndum.
Margrét Helga Jóhannsdóttir
fyrir hlutverk sitt í Börnum.
Ólafía Hrönn Jónsdóttir fyrir
hlutverk sitt í Allir litir hafsins eru
kaldir.
Sjónvarpsþáttur ársins
Fyrstu skrefin. Framleiðandi er
FS production/Hlynur Sigurðsson.
Stjórnandi er Haukur Hauksson
sem jafnframt gerði handritið ásamt
Guðrúnu Gunnarsdóttur og Hlyni
Sigurðssyni.
Græna herbergið. Framleiðandi
er Ríkisútvarpið-Sjónvarp og
stjórnandi Egill Eðvarðsson.
Innlit/útlit. Framleiðandi Skjár
einn. Stjórnandi Hjördís Ýr Jo-
hnsson.
Kompás. Framleiðandi NFS/Stöð
2. Stjórnandi Marteinn Þórsson.
Ritstjóri Jóhannes Kr. Krist-
jánsson.
Sjálfstætt fólk. Framleiðandi
Sagafilm. Stjórnendur Steingrímur
Jón Þórðarson og Jón Ársæll Þórð-
arson.
Heimildamynd ársins
Act Normal. Framleiðandi Pop-
poli/Ólafur Jóhannesson, Ragnar
Santos og Helgi Sverrisson. Leik-
stjóri Ólafur Jóhannesson.
Ekkert mál. Framleiðandi Goð-
sögn. Leikstjóri Steingrímur Jón
Þórðarson. Handrit Hjalti Árnason
og Steingrímur Þórðarson.
Skuggabörn. Framleiðandi Í
einni sæng. Leikstjórn Lýður Árna-
son og Jóakim Reynisson. Handrit
Þórhallur Gunnarsson og Lýður
Árnason.
Hljóð og tónlist
Kjartan Kjartansson fyrir hljóð-
vinnslu í Allir litir hafsins eru kald-
ir.
Mugison fyrir tónlist í Mýrinni og
A Little Trip to Heaven.
Pétur Þór Benediktsson fyrir
tónlist í Börnum.
Handrit ársins
Anna og skapsveiflurnar. Höf-
undur Sjón.
Blóðbönd. Höfundar Árni Ólafur
Ásgeirsson, Jón Atli Jónasson og
Denijal Hasanovic.
Börn. Höfundar Ragnar Braga-
son, Gísli Örn Garðarsson, Nína
Dögg Filippusdóttir, Ólafur Darri
Ólafsson og leikhópurinn.
Skemmtiþáttur ársins
Jón Ólafs. Framleiðandi Ríkisút-
varpið-Sjónvarp. Stjórnandi Jón
Egill Bergþórsson. Umsjón Jón
Ólafsson.
KF Nörd. Framleiðandi Sagafilm/
Anna Katrín Guðmundsdóttir.
Stjórn og handrit Bjarni Haukur
Þórsson.
Strákarnir. Framleiðandi Saga-
film. Stjórnandi Kristófer Dignus.
Handrit Strákarnir og Kristófer
Dignus.
Leikið sjónvarpsefni ársins
Allir litir hafsins eru kaldir.
Framleiðandi Ax/Ólafur Rögnvalds-
son. Leikstjóri Anna Rögnvalds-
dóttir. Handrit Anna Rögnvalds-
dóttir.
Sigtið. Framleiðandi Sigtið. Leik-
stjóri Ragnar Hansson. Handrit
Friðrik Friðriksson, Gunnar Hans-
son, Halldór Gylfason og Ragnar
Hansson.
Stelpurnar. Framleiðandi Saga-
film, Magnús Viðar Sigurðsson,
Kristinn Þórðarson og Harpa Elísa
Þórsdóttir. Leikstjóri Ragnar
Bragason. Handrit Sigurjón Kjart-
ansson og fleiri.
Stuttmynd ársins
Anna og skapsveiflurnar. Fram-
leiðandi Chaoz/Hilmar Sigurðsson
og Arnar Þórisson. Leikstjóri Gunn-
ar Karlsson. Handrit Sjón.
Góðir gestir. Framleiðandi No 9
Production/Ísold Uggadóttir, Fura
Ösp Jóhannesdóttir og Stephanie
Perdomo. Leikstjóri og handrit Ís-
old Uggadóttir.
Midnight. Framleiðandi, leikstjóri
og handritshöfundur Eyrún Eyjólfs-
dóttir.
Útlit myndar
Gunnar Karlsson fyrir hönnun/
útlit myndarinnar Anna og skap-
sveiflurnar.
Karl Júlíusson fyrir leikmynd í A
Little Trip to Heaven.
Óttar Guðnason fyrir kvikmynda-
töku í A Little Trip to Heaven.
Leikstjóri ársins
Árni Ólafur Ásgeirsson fyrir
Blóðbönd.
Baltasar Kormákur fyrir Mýrina.
Ragnar Bragason fyrir Börn.
Morgunblaðið/ÞÖK
Tilnefndur Ragnar Bragason, leikstjóri kvikmyndarinnar Börn, er til-
nefndur leikstjóri ársins og kvikmyndin er tilnefnd sem kvikmynd ársins.
Tilnefningar til Eddunnar 2006
Börn, Blóðbönd
og Mýrin tilnefnd