Morgunblaðið - 03.11.2006, Side 33
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 33
EF STÆRÐIN Á ÍBÚÐINNI
ÞINNI KEMUR Í VEG FYRIR AÐ
ÞÚ GETIR BOÐIÐ GESTUM
HEIM
EKKI KENNA OKKUR UM
Hnota
Tilboð 89.000
Hæð 75 cm x lengd 183/263 x breidd 91,5
Ný gerð
Fáðu frían vörulista í verslun okkar
BoConcept®Íslandi
Faxafeni 8, 108 Reykjavík.
Sími 577 1170 - Faxnúmer 577 1172
www.boconcept.is
Hvar fást húsgögn sem sameina notagildi og frábæra hönnun?
Jú, hjá BoConcept® þar sem við leggjum metnað okkar í að ná fram því besta í öllum
framleiðsluvörum okkar - allt frá heildarhönnun til minnstu smáatriða.
Þú munt einnig sjá að verðið er jafn úthugsað og húsgögnin og aukahlutirnir.
Framinn var umdeildurgjörningur í kennslustund í
Listaháskólanum. Friðrik
Steingrímsson heyrði af því í
Sjónvarpinu og orti:
Sífellt klikkar sjónvarpið
sinnir kvöð ei neinni
því yfirmiguatriðið
átti að vera í beinni.
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
lagði til á fundi mann-
réttindanefndar að á fimm
áberandi stöðum í borginni yrðu
gangbrautarljós sem sýndu konu en
ekki karl. Sigrún Haraldsdóttir
segir það veita sér mikla
öryggistilfinningu að ungir
stjórnmálamenn kjósi sér svo
göfugt og áríðandi baráttumál og
yrkir:
Það létti ævi streðið stranga
og stryki úr mörgum fellingum
ef mæddur lýður mætti ganga
móti grænum kellingum.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir á
Sandi í Aðaldal bætir við í léttum
dúr:
Nú verður glatt hvert vinstrisinnað
hjarta
og vonarljós hjá femínistum skín.
Það verður engin þörf að væla og
kvarta
þegar rauða og græna konan skín.
VÍSNAHORNIÐ
Af grænum
kellingum
pebl@mbl.is
Svona hljóða svör nokkurra barna
við spurningum um mömmur:
Hvers vegna bjó Guð til
mömmur?
– Mamma er sú eina sem veit
hvar plásturinn er geymdur.
– Aðallega til að þrífa húsið.
– Til að hjálpa okkur að fæðast.
Úr hverju eru mömmur búnar
til?
– Guð bjó til mömmur úr skýj-
um, englahári og öllu góðu í heim-
inum og pínu slæmu.
– Það varð að byrja með rifbeini
úr manninum og svo fullt af garni.
Af hverju gaf Guð þér þína
mömmu en ekki einhverja aðra
mömmu?
– Af því við erum skyld.
– Guð vissi að henni líkaði miklu
betur við mig en annarra manna
mömmum.
Hvernig var mamma þín þegar
hún var lítil stelpa?
– Mamma var alltaf mamma mín
og ekkert annað bull.
– Ég veit það ekki af því ég var
ekki þar, en ég held hún hafi verið
ansi stjórnsöm.
Af hverju giftist mamma þín
pabba þínum?
– Pabbi býr til heimsins besta
spagettí og mamma borðar mikið!
– Hún varð of gömul til að gera
eitthvað annað við hann.
– Amma segir að mamma hafi
ekki hugsað.
Hver er munurinn á mömmum
og pöbbum?
– Mömmur kunna að tala við
kennara án þess að hræða þá, og
maður þarf að spyrja hana hvort
maður megi sofa heima hjá vinum
sínum.
– Mömmur eru næstum göldr-
óttar, því þær láta manni líða bet-
ur án lyfja.
Til hvers eru
mömmur?
Reuters
Mæðgur Skýringar barna á heiminum í kringum þau eru oft skemmtilegar.
vaxtaauki!
10%
Fréttir á SMS