Morgunblaðið - 03.11.2006, Page 39

Morgunblaðið - 03.11.2006, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 39 PRJÓFKJÖR stjórnmálaflokkana standa nú yfir og þar gefst fólki tækifæri á að hafa áhrif á uppröðun framboðslista fyrir al- þingiskosningarnar í vor. Í síðustu alþing- iskosningum lækkaði hlutfall kvenna á þingi úr 35% í 30% sem er mikið bakslag. Það vekur líka athygli að Ísland er talsvert á eft- ir hinum Norðurlönd- unum hvað varðar hlut kvenna á þingi. Á lista alþjóðaþingmanna- sambandsins (www.ipu.org) raða Norðurlöndin sér í efstu sætin fyrir utan Ísland sem skipar 19. sætið en þess má geta að lönd eins og Írak, Mósambík og Kúba eru fyrir ofan Ísland á list- anum. Þessar tölur sýna okkur að það þarf lítið út af að bera til þess að myndin skekkist enn frekar konum í óhag. Jafnréttisvaktin er ei- lífðar verkefni og mik- ilvægt að kjósendur í prófkjörum taki alvar- lega, það er í gegnum þá sem konur komast í pólitískar stöður. Það er skylda okkar allra, bæði kvenna og karla að taka höndum saman og ein- beita okkur að því að fjölga konum á þingi til jafns við karla. Ekki er vöntun á áhugasömum konum til að gera þá stöðu að veruleika. Margar dug- miklar konur hafa nú gefið sig fram í for- ystusæti í prófkjörum allra stjórnmálaflokka. Nú er því lag. Fólk hvatt til að taka þátt í próf- kjörum og tryggja hlut kvenna í efstu sætum framboðslistana. Kjós- endur! það er til mikils að vinna, því konur vant- ar á þing! Konur óskast á þing Ragnhildur Helga- dóttir fjallar um hlut kvenna í stjórnmálum Ragnhildur Helgadóttir » Jafnrétt-isvaktin er eilífðarverkefni og mikilvægt að kjósendur í prófkjörum taki alvarlega, það er í gegnum þá sem konur kom- ast í pólitískar stöður. Höfundur er formaður Kvennahreyf- ingar Samfylkingarinnar. Sagt var: Hluti verksins var unnið í fyrra. RÉTT VÆRI: Hluti verksins var unninn í fyrra. Gætum tungunnar ÞINGMANNINUM Merði Árnasyni er margt hulið, enda hefur hann við flest annað að sýsla en kynna sér staðreyndir. Hann skilur ekki að spár eða öllu heldur vangaveltur í svo- kallaðri Stern-skýrslu, um 5– 20% minnkun einkaneyslu á næstu 100–200 árum vegna loftslagsbreytinga, séu sem dropi í hafið miðað við vænt- anlegan hagvöxt á sama tíma- bili. Hagvöxtur undanfarna öld hefur verið 2–3% árlega. Ekk- ert bendir til annars, ekki síst gríðarlegur hagvöxtur í risaríkj- um Austur-Asíu, en hann haldi áfram með a.m.k. sama hraða. Þetta þýðir nálægt sjöföldun landsframleiðslu á næstu 100 árum og aðra sjöföldun á næstu 100 árum eftir það. Í sam- anburði við þessar stærðir er hið hugsanlega tjón vegna lofts- lagsbreytinga, sem Stern- skýrslan og Mörður gera svo mikið úr, auðvitað hverfandi. Mörður skilur heldur ekki hvaðan þessi hagvöxtur eigi að koma. Í því sambandi má benda honum á að í svartsýnisspám Stern-skýrslunnar er einmitt gert ráð fyrir stórauknum út- blæstri gróðurhúsaloftegunda. Sú aukning getur auðvitað ekki átt sér stað nema með hagvexti eftir svipuðum farvegum og í fortíðinni. Hitt er annað mál, að hagvöxtur þróaðra ríkja í seinni tíð hefur að nokkru snúið af þessari gömlu braut og leiðir nú af sé miklu minni umhverf- isspjöll en áður var. Vonandi er að sú þróun haldi áfram. Mengun andrúmsloftsins og hugsanleg hitnun jarðar er al- varlegt vandamál. Það er hins vegar ekki líklegt til árangurs að rjúka upp til handa og fóta með kröfum um afskaplega dýr- ar og vanhugsaðar aðgerðir í hvert skipti er nægilega krass- andi skýrsla um málið kemur út. Væri nú ekki skynsamlegra að leyfa rykinu að setjast og gefa hinu vísindalega samfélagi tækifæri til að vega og meta innihald þessarar nýju skýrslu? Í umhverfismálum hefur oft áð- ur verið hrópað „Úlfur, úlfur“ sem við nánari athugun hefur ekki reynst vera til staðar. Með þessu er ekki verið að gera lítið úr umhverfisvand- anum. Öðru nær. Það má hins vegar ekki gleyma því að fyrir brotabrot af þeim upphæðum sem Mörður vill verja til að af- stýra hugsanlegri hitnun jarðar með mikilli óvissu um árangur og afleiðingar, væri með nánast fullri vissu og á örfáum árum unnt að bægja frá þróunarlönd- unum sjúkdómum og örbirgð, sem á degi hverjum leggja hundruð manna í valinn og valda miklum raunverulegum hörmungum. Kemur nú ekki til greina að leggja meira af mörk- um til þessa sannanlega brýna viðfangsefnis áður en ráðist er til atlögu við hugsanlega hitnun jarðar? Ragnar Árnason Merði Árnasyni svarað Höfundur er prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Í GREIN sem birt- ist í Morgunblaðinu 28. október fjallar Björn Davíðsson um margvísleg málefni sem lúta að Síman- um. Uppfærsla á ADSL-kerfi Símans og nýir áskriftaflokk- ar netþjónustu Sím- ans eru kveikjan að greininni og að Síminn skuli bjóða viðskiptavinum sínum mismunandi tengihraða. Síminn er einkafyrirtæki á sam- keppnismarkaði og þjónusta Símans hefur ávallt byggst upp í áföngum bæði fyrir og eftir einka- væðingu. Talsíminn var ekki byggður upp á einum degi, það sama á við um ADSL-þjónustuna. Það þýðir ekki að þeir sem hafa fengið aðgang megi ekki njóta hans fyrr en allt landið hefur verið uppfært. Síminn mun á næsta ári hefja annan áfanga í upp- færslu á ADSL-kerfi sínu. Það þýðir að fleiri við- skiptavinir á landsbyggðinni munu, miðað við núverandi forsendur, hafa aðgang að hraðara Neti og fleiri sjón- varpsstöðvum að því loknu. Ekki hef- ur verið tekin ákvörðun um í hvaða röð kerfið verður uppfært. Það er ekki nýtt að Síminn byrji með nýja þjónustu á einum stað og færi hana síðan yfir á önnur svæði. Þetta var t.d. gert þegar Síminn hóf sjónvarps- útsendingar um ADSL-kerfi sitt og þá var einmitt byrjað á Bolungarvík! Þjónusta Símans byggist upp í áföngum Eva Magnúsdóttir fjallar um málefni Símans » Síminn er einkafyr-irtæki á samkeppn- ismarkaði og þjónusta Símans hefur ávallt byggst upp í áföngum bæði fyrir og eftir einkavæðingu. Eva Magnúsdóttir Höfundur er upplýsingafulltrúi Símans. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn SUMIR gefa meira en aðrir. Og þeir gefa mest sem hafa af minnstu að taka. Láglaunafólk fær ekki sann- gjörn laun fyrir vinnu sína og er því sífellt að gefa. Það gefur allan mis- muninn sem er á sann- gjörnum launum og lágu laununum sem það fær fyrir vinnu sína. Segjum sem svo að meðallaun í samfélag- inu séu 350 þúsund krónur á mánuði, en láglaunamaður fái ein- ungis 200 þúsund krón- ur í laun, þá gefur hann eða (oftast) hún 150 þúsund krónur til sam- félagsins í hverjum ein- asta mánuði, eða 1,8 milljón króna á ári. Þetta eru óopinberir skattar sem samfélagið leggur á láglaunafólk og færir í vasa hinna efnameiri. Ofan á þetta bætast svo opinberu skattarnir sem leggjast þyngst á láglaunafólk, öryrkja og aldraða. Sú ríkisstjórn sem nú situr hefur tekið skattleys- ismörkin úr sambandi við launa- vísitöluna, þannig að þau eru nú lægri en nokkur rök eru fyrir. Það kemur sér verst fyrir þá sem hafa lægstu tekjurnar og er óþolandi. Á meðan þessu vindur fram hefur sama ríkisstjórn lækkað skatta á há- tekjufólk og fjármagnseigendur þannig að það fólk greiðir nú mun minna af tekjum sínum til samfélags- ins en áður. En stundum stígur fram einn og einn auðmaður og „gefur“ einhverja fjárhæð til einhvers ákveð- ins málefnis eða líkn- arfélags. Og þá er gjarnan hringt í fjöl- miðla sem koma og taka ljósmyndir og birta síð- an frétt um hina miklu gjafmildi auðmannsins. Og það er jafnvel hróp- að húrra fyrir ölm- usugjöfinni. Í því samfélagi sem ég vil búa í er ekki hróp- að húrra fyrir ölm- usugjöfum. Þar eru ölmusugjafir ekki til vegna þess að jöfnuður ríkir og fólk hefur réttindi og þarf því ekki á þeim að halda. Þar greiðir auð- maðurinn skatta eins og annað fólk. Þar fær fólk greidd sanngjörn laun fyrir vinnu sína og þar er skattkerfið réttlátt. Þar tekur samfélagið ábyrgð á því að enginn falli niður á botninn og liggi þar afskiptur. Þar á fólk rétt á greiðslum úr sameiginlegum sjóð- um, ef þær aðstæður skapast að það þurfi á þeim að halda. Það eru ekki birtar myndir í blöð- unum af fólkinu sem gefur mest til samfélagsins. Það þykir sjálfsagt mál að það fólk gefi og gefi. Mér finnst það ekki sjálfsagt mál og það er held- ur ekki náttúrulögmál að það sé alltaf sama fólkið sem gefur mest. Við jafn- aðarmenn viljum breyta þessu ástandi. Við viljum að allir fái sann- gjörn laun fyrir vinnu sína og við vilj- um að það verði sjálfsagt mál að auð- maðurinn leggi sinn skerf til samfélagsins þegjandi og hljóðalaust eins og aðrir. Nú eru prófkjörin hafin og þau halda áfram næstu vikur. Á morgun verður prófkjör Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Tökum öll þátt í að breyta samfélaginu til betri vegar. Auðmenn og ölmusugjafir Sonja B. Jónsdóttir fjallar um misskiptingu og launamun » Sú ríkisstjórn semnú situr hefur tekið skattleysismörkin úr sambandi við launa- vísitöluna, þannig að þau eru nú lægri en nokkur rök eru fyrir. Sonja B. Jónsdóttir Höfundur sækist eftir 4.–5. sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. TENGLAR .............................................. www.123.is/sonjab H L U T H A F A F U N D U R C C P h f . Hluthafafundur CCP hf., kt. 450697-3469, Grandagarði 8, 101 Reykjavík, verður haldinn að Grandagarði 8, 101 Reykjavík, þann 10. nóvember 2006 og hefst hann kl. 17:00. D A G S K R Á Tillaga stjórnar CCP hf. um að veita stjórn félagsins heimild í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um allt að kr. 200.000 að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta. Heimildin gildi í 1 ár og má einungis nota í tengslum við kaup á fyrirtækjum. Hluthafar skulu ekki hafa forgangsrétt til áskriftar að þessum nýju hlutum. Kosning eins varamanns í stjórn félagsins. Önnur mál löglega upp borin. Stjórn CCP hf. I. II. III.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.