Morgunblaðið - 03.11.2006, Page 46
46 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Ingibjörg Gests-dóttir fæddist í
Reykjavík 14. des-
ember 1949. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi að
morgni 23. október
sl. Ingibjörg var
dóttir hjónanna
Ástu Marteins-
dóttur, f. 16. febr-
úar 1925, d. 1. maí
1988, og Gests Vig-
fússonar, f. 8. mars
1925. Áttu þau hjón-
in þrjá syni fyrir utan Ingibjörgu;
Svan Martein, f. 24. júní 1948,
Valgeir, f. 19. september 1954, og
Vilberg Vigfús, f. 12. ágúst 1964.
Samfeðra er Anna María Gests-
dóttir.
Ingibjörg kynntist eftirlifandi
eiginmanni sínum, Sævari Braga
Arnarsyni, árið 1967. Þau gengu í
hjónaband hinn 11. mars 1972.
Eignuðust þau fjögur börn, þau
eru: a) Ásta Ingunn, f. 15. júlí
1972, gift Garðari
Gunnari Ásgeirs-
syni, eiga þau tvær
dætur, Ingibjörgu
Erlu og Írisi Eddu.
b) María, f. 4. júní
1976, gift Jóni Ólafi
Kjartanssyni og
eiga þau þrjú börn,
Ástu Sigríði, Gunn-
ar Alexander og
Kjartan Braga. c)
Jónína Edda, f. 10.
ágúst 1979, gift
Guðlaugi Ottesen
Karlssyni og eiga
þau þrjár dætur, Eygló Önnu,
Elvu Sól og Agnesi Ingu. d) Gest-
ur Örn, f. 20. nóvember 1981, í
sambúð með Þórdísi Jóhanns-
dóttur og eiga þau son, Sævar Má.
Ingibjörg starfaði við ýmis
þjónustu- og verslunarstörf. Hún
tók virkan þátt í félagsstarfi
KFUM og K frá unga aldri.
Ingibjörg verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.00.
Elsku mamma. Takk fyrir að vera
mamma okkar. Við systkinin erum
mjög þakklát fyrir að hafa haft þig
sem hluta af okkar lífi. Þú varst okk-
ur ótrúlega mikil stoð og stytta í
gegnum árin. Það var alveg yndisleg
stund þegar þú varst viðstödd fæð-
ingu Ingibjargar Erlu nöfnu þinnar.
Þú varst yndisleg amma og varst
mjög stolt af þínum englum eins og
þú kallaðir þau. Þau tala mikið um
þig og segjast geyma þig í hjartanu
sínu. Þau munu fá að þekkja þig og
verðum við dugleg að viðhalda þín-
um hefðum og viðhalda minningu
þinni.
Við höfðum alltaf sömu trú og þú
sem var að þú myndir læknast og
geta verið viðstödd fermingar barna
okkar að minnsta kosti. Það hefur
alltaf verið mjög gott að tala við þig
mamma og þú hefur hjálpað okkur
að skilja hina ýmsu hluti og við get-
að treyst á þig 100%. Þú varst alveg
yndisleg í einu og öllu. Maður upp-
götvar það ekki fyrr en þú ert horfin
á braut hve mikið við treystum á þig
og þörfnumst þín. En við vitum að
þú fylgist með okkur og hjálpar okk-
ur í sorginni.
„Fel drottni vegu þínu og treyst honum,
hann mun vel fyrir sjá.“ (Sálmur 37,5.)
Þín börn að eilífu.
Ásta, María og Gestur Örn.
Elsku besta mamma mín. Í dag er
komið að kveðjustund. Eftir tæpleg
fimm ára hetjulega baráttu við
krabbamein varstu að þrotum kom-
in. En þú barðist fram til loka og
fékkst svo að fara í friði og ró, alger-
lega laus við sársauka umkringd
þeim sem þú elskaðir mest og elsk-
uðu þig mest.
Það sem hefur verið áberandi í
gegnum árin var að þú varst alltaf
svo sterk og gafst aldrei upp vonina
á því að þér myndi batna og leyfðir
okkur ekki að gera það heldur. En
við vitum þó að þú varst kraftaverk-
ið okkar eins og Sigurður læknir
kallaði þig alltaf.
Þegar kom að því að fá hjálp við
uppeldi dætranna varstu alltaf tilbú-
in að hjálpa mér og varst glöð að
gefa manni heilræði, þegar maður
þurfti á þeim að halda. Því veit ég,
að ömmustelpurnar þínar sakna þín
mikið, en ég veit að þú munt vaka yf-
ir okkur öllum og barnabörnunum á
góðum stað. Þú varst alltaf ákaflega
stolt af gullmolunum þínum níu og
fannst ekkert betra en að vera um-
kringd þeim öllum í einu, þó svo há-
vaðinn í þeim gat nú verið alveg
meira en nóg á tímum en það var
eitthvað sem þú lést aldrei fara í
taugarnar á þér og það vil ég þakka
þér.
Það skipti þig þó ávallt miklu að
við systkinin myndum mennta okkur
á einhvern hátt og því þykir mér það
leitt að þú getir ekki fylgt mér þegar
ég tek við skírteininu mínu frá KHÍ
næsta sumar, en ég veit að þú verð-
ur mér við hlið með bros á vör.
Að lokum vil bara þakka þér og
pabba fyrir að hafa verið bestu for-
eldrar sem nokkuð barn gæti óskað
sér, þið stóðuð ykkur eins og hetjur
og voruð ávallt samstíga í því sem
þið tókuð ykkur fyrir hendur, þann-
ig að ef ég er jafn gott foreldri til
hálfs eins og þið voruð tel ég mig
bara vera nokkuð góða.
Og, elsku mamma, ég lofaði þér
því að passa pabba fyrir þig og það
mun ég reyna að gera eins vel og ég
get.
Þangað til við hittumst á ný.
Góða nótt yndislegust, elska þig
ávallt.
Þín
Jónína Edda.
Elsku Inga mín. Það er erfitt að
hugsa til þess að fá aldrei að sjá þig
aftur, en það sem þú skildir eftir þig
situr fast í minningunni. En það er
gott að vita af traustum engli á
himni sem gætir litlu barna-
barnanna þinna, því ég veit að þú
gerir það af mikilli alúð líkt og þú
gerðir alltaf. Við sem eldri erum
verðum dugleg að segja þeim frá þér
og sýna þeim myndir af þér til að
minning þeirra verði sem sterkust.
Við Sævar Már tölum mikið um þig
og hann segir af einlægni að nú líði
ömmu Ingu vel á himnum og það
efast ég ekki um.
Það koma upp í hugann þær góðu
minningar um það sem við gerðum
saman og þegar við bjuggum hjá
ykkur. Þegar við sátum og prjón-
uðum saman, slíkar minningar sitja
eftir í huga mínum. Takk fyrir að
hafa leyft mér að njóta þess.
Guð geymi þig.
Þín
Þórdís.
Það var á Valentínusardaginn um
miðjan febrúar árið 1998 sem að ég
hitti hana Ingibjörgu fyrst. Þá höfð-
um við Ásta, elsta dóttir hennar,
verið ný byrjuð saman og fannst
Ástu vera kominn tími á að ég fengi
að kynnast foreldrum sínum. Frá
fyrstu stundu tóku hún og Sævar vel
á móti mér. Alltaf þegar ég hef kom-
ið í Engjaselið hefur mér verið tekið
rosalega vel, alltaf fundið mikla
hlýju og mér hefur alltaf fundist ég
eiga samastað hjá þeim. Mér hefur
alltaf fundist Inga vera mjög sérstök
kona. Hún var fjögurra barna móðir
og alltaf mikið tengd sínum börnum
og hafa þau öll verið bestu vinir.
Hún hefur séð um manninn sinn,
pabba sinn, heimilið og unnið með
þessu öllu. Samt hafði hún einhvern
veginn alltaf tíma til að sinna börn-
unum sínum, þó þau væru flogin úr
hreiðrinu. Var alltaf til í að hjálpa
þegar mann vantaði hjálpina og
þurfti maður oft ekki að leita til
hennar heldur kom hún að fyrra
bragði og bauð fram aðstoð sína. Of-
an á þetta allt saman hefur hún eign-
ast níu barnabörn og hefur hún ver-
ið þeim öllum afar góð amma. Var
greinilegt á henni að henni líkaði
ömmuhlutverkið ákaflega vel enda
var hún mjög góð í því.
Það var sárt að sjá hana veikjast,
að kona sem hafði aldrei bragðað
dropa af áfengi og aldrei reykt
skyldi fá krabbamein í lungað er
mjög sorglegt. Hún barðist við það
og manni fannst hún vera að hafa
betur þegar hún veiktist aftur og
meira. Það var mjög erfitt að horfa
upp á hana síðustu dagana berjast
fyrir lífi sínu. En hún á svo marga
góða að, að það voru margir sem
voru tilbúnir, þó erfitt væri, að
fylgja henni síðustu andartökin. En
það er alveg ljóst að hún er kominn á
einhvern betri stað og mun fylgja
okkur og passa í þeirri ferð sem við
eigum eftir ólifað. Við munum alltaf
sakna þín og þá sérstaklega á jól-
unum því þú unnir þeim svo mikið.
Elsku Sævar, Ásta, María, Jónína,
Gestur, Gestur afi, tengdabörn og
barnabörn og öll systkini hennar, ég
votta ykkur samúð mína því ég veit
hversu mikill missirinn er.
En, Inga, þeir deyja ungir sem
guðirnir elska. 56 ára er enginn ald-
ur, ég var að vonast til þess að hafa
þig hjá okkur næstu 40 ár að
minnsta kosti. En þú ert komin á
góðan stað og hafðu það sem best.
Saknaðarkveðja.
Garðar Gunnar Ásgeirsson.
Elsku amma. Þú varst besta
amma í heimi, þú varst skemmtileg
við okkur og gerðir margt skemmti-
legt með okkur. Við vitum að þú
saknar okkar og við krakkarnir þínir
elskum þig og þú varst langbesta
amma í heimi.
Ástarkveðja
Eygló Anna, Elva Sól og
Agnes Inga.
Fallin er frá elskuleg frænka mín
Ingibjörg Gestsdóttir sem barðist
svo hetjulega við sjúkdóm sinn fram
á síðasta dag.
Í þessum töluðu orðum var ég að
horfa viðtal við þig í sjónvarpinu
sem var tekið við þig örfáum dögum
áður en þú lést og var engan bilbug
að sjá á þér og hafðir þú trú á því all-
an tímann að þér myndi batna með
hjálp Guðs og trú þín hefur hjálpað
þér mikið í veikindum þínum.
Þú varst mjög trúuð og tókst virk-
an þátt í starfi KFUM og K og varst
þar starfsmaður í seinni tíð.
Ávallt var skemmtilegt að koma á
heimili ykkar Sævars í Engjaselið
og var þar ávallt tekið vel á móti
manni.
Nú seinast kom ég þangað í mars
þar sem við samglöddumst afa sem
var áttræður og áttir þú stærstan
þátt í því enda hugsaðir þú vel um
afa og er mér minnisstætt að í veik-
indum þínum hafðir þú meiri
áhyggjur af þeim gamla heldur en
eigin heilsu. Það sýndi hversu ynd-
islega manneskju þú hafðir að
geyma.
Fjölskyldan var þér kærust eins
og hjá ömmu Ástu og lagðir þú hart
að þér að fjölskyldan væri sem nán-
ust og núna í seinni tíð var gaman að
sjá þig í kringum barnabörnin þín
þar sem það sást langa leið hvað þú
varst stolt amma og er missir þeirra
mikill að fá ekki að hafa ömmu sína
lengur hjá sér.
En, elsku Ingibjörg, nú ertu farin
og er erfitt að kveðja þig en ég
hugga mér við það að amma mun
taka vel á móti þér og veit ég að þér
er ætlað annað stærra hlutverk hjá
Guði.
Elsku Sævar, börn og barnabörn,
ég votta ykkur mína dýpstu samúð.
Þinn frændi
Gestur Valur.
Elsku Ingibjörg, þú varst kona
með stórt hjarta og hafðir mikið að
gefa. Við viljum þakka þér fyrir allt
og þá sérstaklega fyrir alla þá
umönnun sem þú veittir afa. Við er-
um lánsöm að hafa átt þig hér að en
við trúum því að þín bíði æðri verk-
efni.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Elsku Sævar, afi, Ásta, María,
Jónína, Gestur, tengdabörn og
barnabörn, megi guð vaka yfir ykk-
ur og veita ykkur styrk til að takast
á við þessa miklu sorg. Minning þín
mun lifa í hjörtum okkar um alla
framtíð.
Megi ljós og friður fylgja þér,
elsku Ingibjörg.
Thelma, Guðrún Benný og
Elvar Már.
Látin er Ingibjörg Gestsdóttir.
Við höfum notið ljúfra og fagurra
haustdaga undanfarnar vikur. Þær
eru einnig ljúfar og fagrar minning-
arnar sem við eigum um vinkonu
okkar er við kveðjum nú hér í dag.
Elskulegheit og jafnvægi einkenndu
Ingibjörgu okkar. Hún fóstraði og
gætti elstu sona okkar. Yndisleg ung
stúlka, full af ábyrgð og elsku. Við
urðum einnig vináttu allrar fjöl-
skyldu Ingibjargar aðnjótandi, sem
nágranna um tíma. Samband okkar
hélst í áratugi. Tryggð Ingibjargar
verður seint fullþökkuð. Öldruðum
föður hennar og fjölskyldunni allri
vottum við einlæga samúð og biðjum
Guð að blessa þau öll.
Edda Sigrún og fjölskylda.
Þegar hringt var í mig og mér
sögð þau hræðilegu tíðindi að hún
Ingibjörg væri farin þá ætlaði ég
ekki að trúa því. Það streymdi alltaf
svo mikil hlýja frá þér. Nú fæ ég
aldrei að sjá þig framar, elsku Ingi-
björg mín. Þú varst alltaf svo glöð að
sjá. Ég hafði ekki séð þig í langan
tíma. Og ég vissi ekki af þessum
veikindum þínum. Ég hafði reyndar
heyrt að þú værir með krabbamein
en eitthvað hefði gengið til baka. Og
því komu þessi tíðindi á óvart.
Ég á eftir að sakna þín svo mikið.
Allar stundirnar sem við áttum sam-
an. Þú áttir þetta ekki skilið. Ég
bjóst ekki við því að skrifa þér
hinstu kveðju strax, ekki fyrr en eft-
ir mörg ár. Lífið er svo óréttlátt. Ég
veit að þér líður betur núna. Það er
svo sárt að þurfa að kveðja þig strax.
Þú varst mér svo kær. Þetta er
hræðilegur sjúkdómur. Þú varst
alltaf brosandi og það var allavega
sama hvað kom upp á, alltaf tókstu á
móti nýjum degi með hlýju, gleði, já-
kvæðni og bjartsýnni.
Elsku hjartans Ingibjörg mín, ég
veit ekki hvað ég get sagt. Ég veit að
þín er sárt saknað af svo mörgum.
Ég vil votta aðstandendum henn-
ar mína dýpstu samúð.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson)
Ég sakna þín, Ingibjörg.
Jenný Bára Sigurðardóttir.
Ingibjörg vinkona okkar er fallin
frá langt fyrir aldur fram. Hún laut
loks í lægra haldi fyrir hinum illvíga
sjúkdómi, krabbameini, eftir hetju-
lega baráttu. Við kynntumst í Kristi-
legum skólasamtökum á unglingsár-
um og vinátta okkar hefur haldist
allar götur síðan. Ingibjörg var mjög
virk í KFUK og sat meðal annars í
stjórn félagsins. Við stöllurnar tók-
um að okkur að sjá um unglinga-
deild KFUK á Maríubakka þegar
það starf stóð sem hæst. Margt var
brallað í þá daga. Fórum við tvær
ferðir með 40 unglingsstelpur bæði
til Danmerkur og Finnlands á mót,
auk annarra ferða innanlands. Þar
kom persónuleiki Ingibjargar vel í
ljós. Hún bar velferð stelpnanna fyr-
ir brjósti.
Ingibjörg var mjög félagslynd og
trygglynd kona. Ófáar stundir
dvöldum við saman í Vindáshlíð og
söknuðum hennar nú í októberbyrj-
un þegar fyrsti fundur KFUK var
haldinn þar. Hún vildi svo gjarnan
vera með en heilsan leyfði það ekki.
Fjölskyldan var henni allt. Yndislegt
heimili bjó hún manni sínum og
börnum og lifði fyrir þau. Á þessari
stundu sitjum við hnípnar en yljum
okkur við minningarnar, sem eru
margar, og allar góðar.
Við skiljum ekki alla hluti en við
vitum að nú er helstríðinu lokið og
hún hefur fengið hvíldina. Elsku
Sævar, Ásta, Maja, Jónína, Gestur
og fjölskyldur, við biðjum Guð að
blessa ykkur og styrkja í sorginni.
Hann blessi minninguna um góða
vinkonu.
Elín og María.
Kær félagskona í KFUM og
KFUK, Ingibjörg Gestsdóttir, er
fallin frá eftir langvarandi veikindi.
Ingibjörg kynnist starfi KFUK
snemma á ævinni og tók þátt í
barna- og unglingastarfi félagsins í
KFUK-deildinni í Langagerði 1. Á
unglingsárunum lá leiðin í Kristileg
skólasamtök. Ingibjörg var fús að
leggja hönd á plóg í félagsstarfinu
og var í mörg ár leiðtogi í öflugri
unglingadeild í Maríubakka í Breið-
holti. Fór hún meðal annars með
unglingana sína á Norræn unglinga-
mót KFUM og KFUK sem eru mik-
ið ævintýri að taka þátt í.
Þegar byggingarframkvæmdir
stóðu yfir við aðalstöðvar félagsins
við Holtaveg 28 var Ingibjörg í fjár-
öflunarnefnd og var í fararbroddi
fyrir kaffisölum á 17. júní meðan
húsið var í byggingu. Hún sat í
stjórn KFUK um tíma og þá naut
sín þjónustulund hennar og alúð við
þau verkefni sem hún tók að sér. Sá
hún meðal annars um sjúkrasjóð fé-
lagsins. Um tíma sinnti hún vinnu
fyrir Biblíuskólann við Holtaveg og
tók oft að sér eldamennsku fyrir
námskeið á vegum skólans. Frá
árinu 1998 var Ingibjörg launaður
starfsmaður félaganna þegar hún
sinnti afgreiðslu á sameiginlegri
skrifstofu KFUM og KFUK og
Kristniboðssambandsins. Síðustu
þrjú árin var hún meira og minna frá
vegna veikinda en kom eins og hún
gat meðan heilsa og kraftar leyfðu.
Fyrir rúmu ári var hún með okkur í
kvennaflokki í Vindáshlíð og naut
þess ríkulega að dvelja á þeim ynd-
islega stað í systrahópi. Við höfum
fylgst með hetjulegri baráttu henn-
ar við skæðan sjúkdóm og staðið
saman í bæn fyrir henni og fjöl-
skyldu hennar.
Ingibjörg Gestsdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
PÁLL G. GUÐJÓNSSON
fyrrverandi kaupmaður,
Hrafnistu Hafnarfirði,
áður til heimilis
á Miðvangi 16,
Hafnarfirði,
lést þriðjudaginn 31. október síðastliðinn.
Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 6. nóvember
kl. 15.00.
Sigurjón Pálsson, Þuríður Gunnarsdóttir,
Jóhanna I. Pálsdóttir Lund, Axel Lund,
Kjartan Pálsson, Ástrún Lilja Sveinbjarnardóttir,
Rannveig Pálsdóttir, Sumarliði Guðbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.