Morgunblaðið - 03.11.2006, Side 61

Morgunblaðið - 03.11.2006, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 61 H á g æ ð a fra m le ið sla A ll ta f ó d ýr ir GÓÐ HEILSA GULLI BETRI C-1000 FRÁ www.nowfoods.com NNFA QUALITY APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR Pistill þessi stökk alskapaðurúr hausnum á mér eftir aðég hafði því miður horft á eitt innslag í Innlit/Útlit, í þætti sem sýndur var nú á þriðjudaginn (31. október). Sjónvarpsdagskráin í Þýskalandi, þaðan sem ég er ný- fluttur, er það slæm að maður „datt“ ekki inn í eitt né neitt þar. Alltaf er maður þó að detta inn í þætti hér, eitthvað sem virðist bæði til bölvunar og blessunar. Maður spyr oftast sjálfan sig af hverju maður sé að horfa; ástæð- an virðist oftar en ekki vera frumstæð þörf til að hneykslast á einhverju og pústa þannig ræki- lega út með því að velta sér upp úr því sem fram fer, og þá helst með einhverjum samáhorfanda. Blessunin er þó falin í því, að oft verða þessir þættir til að kveikja á verðugum vangaveltum um lífið og tilveruna. Svo var með umrætt innslag.    Þarna voru þeir saman komnir,nafni minn Gauti og hinn kunni útvarps- og sjónvarpsmaður Ásgeir Kolbeinsson. Málið var, að Ásgeir hafði keypt sér íbúð, og hafði, eins og lög gera ráð fyrir í dag, tekið hana algerlega í gegn. Gott og vel, en þeir félagar virt- ust hins vegar pikkfastir í Innlits/ Útlitsvæðingu þessa blessaða sam- félags eins og svo margir aðrir. Það er engu líkara en fólk sé ekki með sjálfu sér lengur í þessu til- liti. Nafni minn tönglaðist á því hversu viðbjóðsleg þessi sakleys- islega íbúð væri, og Ásgeir tiltók að félagi sinn hefði kastað upp á gólfið er hann sá það, svo forljótt var það. Ég ætla innilega að vona að fyrri eigendur hafi ekki þurft að berja þessar svívirðingar aug- um. Innslagið var annars öðrum þræði lítt dulbúin Byko-auglýsing. Þetta er orðið svo augljóst – svo yfirgengilegt – þessi auglýs- ingavæðing að fólk er hætt að nenna að breiða eitthvað sér- staklega yfir hana. Sem er auðvit- að mun heiðarlegra, ef út í það er farið. Svo fóru menn mikinn yfir því að lýsa öllu veseninu í kringum framkvæmdirnar. Valkvíða við að finna gólfefni, hinni stóru spurn- ingu um hvar ætti að koma græj- usnúrum fyrir og öllu brasinu við það að fræsa gólfið. Já, þetta er hrikalegt. Og á meðan deyja börnin í Afríku.    Hvað er eiginlega að gerasthérna? Einhvern tíma byggði fólk sér annaðhvort hús, eða keypti sér íbúð/hús. Þetta gengur ekki í dag. Nú kaupir þú íbúð, og engu skiptir hvort hún er í fínu standi eður ei. Þú „rífur allt út úr henni, þar til hún er fok- held“ og umturnar henni svo. Því meira sem þú rústar, því meiri peningum sem þú eyðir í „yf- irhalninguna“, því betra. Ég verð að viðurkenna, að ég hættur að botna í þessum ósköpum. Það er eins og þetta sé eingöngu í tísku, praktíska hliðin er hætt að skipta máli. Fólk rífur allt út, því að það á að rífa allt út. Ég keypti mér íbúð fyrir stuttu, og breytti ENGU, ég endurtek ENGU. Mér finnst hún stórfín eins og hún er. En auðvitað myndi mér ekki detta í hug að bjóða þeim Arnari og Ás- geiri inn í viðbjóðinn.    Og hvernig leit íbúðin svo úteftir allar þessar stórkost- legu breytingar? Öll hlýja horfin, eftir stóð svört/hvít skurðstofa, nákvæmlega eins og önnur hver íbúð virðist vera í dag. Já, annar hver maður dansar í dag meðvit- undarlaus eftir taktföstu inn- gangsstefi Innlits/Útlits. Firring segi ég, tandurhrein firring. Veruleikafirring Innlit/Útlit Innslag í þættinum síðastliðinn þriðjudag vakti Arnar Eggert til umhugsunar. AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen »Nafni minn töngl-aðist á því hversu viðbjóðsleg þessi sak- leysislega íbúð væri, og Ásgeir tiltók að félagi sinn hefði kastað upp á gólfið er hann sá það, svo forljótt var það. Ég ætla innilega að vona að fyrri eigendur hafi ekki þurft að berja þessar svívirðingar augum. arnareggert@gmail.com SVOKALLAÐIR krimmar hafa margvíslegar birtingarmyndir. Glæpasögurnar sem hafa orðið mest áberandi hér á landi á undanförnum árum eiga þó flestar það sammerkt að gera annaðhvort lögreglumenn að söguhetjum eða einhvern sem á óbeinan hátt heldur uppi merkjum réttvísinnar. Í nýjustu bók Jökuls Valssonar, Skuldadögum, horfir þó annars konar veruleiki við. Í bók þessari eru það glæpamenn og alls kyns óþjóðalýður sem skiptast á um að vera vitundarmiðjur frásagn- arinnar og lífinu í undirheimum Reykjavíkur er lýst frá sjónarhorni þeirra sem lifa og hrærast þar. Þetta er svo sem ekki nýtt. Stefán Máni lék ekki ósvipaðan leik í Svartur á leik sem kom út árið 2004 en hún var ein- mitt tilnefnd fyrir hönd Íslands til Glerlykilsins, verðlauna norrænna glæpasagnahöfunda. Skáldsögur eins og Svartur á leik og Skuldadagar eru þó að mörgu leyti ólíkar hinum hefð- bundna rannsóknarreyfara og er í raun óhætt að segja að allt öðruvísi heimssýn einkenni þessar bækur. Því hefur verið haldið fram að lesa megi íslensku glæpasögurnar sem nýjustu birtingarmynd raunsæis- stefnunnar. Verkin sem hvað vinsæl- ust hafa verið undanfarin ár hafa jú gjarnan beint sjónum að skuggahlið- um mannlífsins og gera það jafnan á nokkuð beinskeyttan hátt. Viðfangs- efnin eru í vissum skilningi jarð- bundin, enda þótt Ísland hafi nú lengst af ekki þótt mikið glæpaland, og ákveðin tegund af raunsæi er nauðsynleg áhrifamætti bókanna, einkum raunsæi sem lýtur að um- hverfi, persónu- sköpun og sam- tölum. Sú einsleita söguúr- vinnsla sem gerir þó jafnan vart við sig, þ.e. að glæpa- mál eru leyst og sökudólgum er komið fyrir á bak við lás og slá, á þó meira skylt við fantasíur um vel smurt og auðskiljanlegt samfélags- gangvirki en raunsæi í bókmenntum eins og það hugtak er almennt skilið. Slíkar sögur eru hughreystandi og bjóða lesendum að staðfesta trú sína og traust á þeim stofnunum sem samfélagið gerir út af örkinni til að hafa stjórn á óþægilegum fé- lagslegum frávikum. Það sem Jökull sýnir hins vegar ágætlega fram á í sinni bók er að glæpahugtakið sjálft getur verið ansi flókið, stigskipt og uppfullt af gráum svæðum, og að glæpir eru aldrei afmarkað fyrirbæri heldur eiga sér stað í flóknu sam- skipta- og samfélagsneti þar sem ein- staklingurinn skiptir sjaldnast öllu máli. En hér segir sem sagt frá Matta, „vinalega fíkniefnadjöflinum“, rétt rúmlega tvítugum strák sem er á kafi í dópsölu og neyslu en er þó ansi klár, vel máli farinn og strangheiðarlegur innan þeirra marka sem viðgangast í bransanum. Sagan á sér stað frá föstudegi til sunnudags og lýsir, má segja, algjörri martraðarhelgi í lífi dópsalans þar sem hröð atburðarás hleður hverju óhappinu á fætur öðru inn í líf hins unga manns. Matti reyn- ist hornsteinn og miðja verksins þar sem lesendur kynnast söguveröldinni fyrst og fremst í gegnum reynslu hans, hugsanir og skynjun á um- hverfi sínu. Drjúgan þátt í áreynslu- lausu flæði sögunnar á síðan sú stað- reynd að Matti reynist hinn mætasti leiðsögumaður. Þrátt fyrir að vera stöðugt að „fá sér í nebbann“ á hann í sæmilegum tengslum við veruleikann og á það til að horfa á samfélagið úr óvæntum áttum og koma með athygl- isverðar athugasemdir, sbr. þessar hugleiðingar um ímynd dópsalans í þjóðfélaginu: „Fíkniefnaneysla er staðreynd sem samfélagið neitar að horfast í augu við og þá þarf að finna einhvern blóraböggul, og það liggur beint við að skella skuldinni á götu- salana. Við erum útmálaðir sem rót alls ills þegar við erum í rauninni bara að gefa fólki það sem það vill. Í áróðursmyndunum sem sýndar eru í skólum keyrir svartklæddur gaur með sólgleraugu upp að saklausum skólakrökkum og býður þeim fíkni- efni, en í veruleikanum er það díler- inn sjálfur sem er hundeltur af fólki allan liðlangan daginn og má ekki vera að því að leita að nýjum kúnn- um.“ Þetta segir Matti í aðdragand- anum að föstudagsgósentíðinni en við fylgjumst með honum annasamt kvöld þar sem keyrt er út um allan bæ og svo á milli partía. Þegar fram í sækir og frásögnin tekur að verða ansi æsileg á köflum á höfundur heilmikið hrós skilið fyrir að halda atburðarásinni innan ramma þess sem lesandi getur ímyndað sér að myndi geta átt sér stað ef allt fer á versta veg í lífi smá- peðs í dópheiminum, þ.e.a.s. ef maður týnir kókinu sem maður á að selja, ef maður er síðan böstaður af löggunni og peningarnir sem maður ætlaði að nota til að borga fyrir týnda dópið eru gerðir upptækir, ef maður lendir svo í því að vera að djamma með kol- rangri stelpu að ekki sé talað um ef æskuvinirnir snúast gegn manni o.s.frv. Þetta eru í öllu falli nokkur af kennileitum söguþráðar sem vindur sífellt upp á sig og verður æ flóknari, einkum þegar frásögnin hverfur frá Matta og fleiri persónur taka að sér hlutverk vitundarmiðju, án þess þó að krafturinn sem einkennir söguna tapist nokkru sinni. Þetta er nefni- lega bráðskemmtileg bók sem heldur fínu jafnvægi milli tilgerðarleysis og húmors en gerir samt aldrei lítið úr hrottaskapnum og siðleysinu sem einkennir veruleika fíkniefnaheims- ins. Raunar má nefna nokkur bestu atriði bókarinnar sem dæmi um þann alvöruþunga sem höfundur nær að framkalla þegar hann lýsir bláköld- um veruleika og vonleysi dópistans sem er búinn að brenna allar brýr að baki sér, t.d. atvikinu þegar Matti sit- ur í bíl á milli tveggja handrukkara og reynir í örvæntingu að galdra fram einhvers konar lausnir á sínum málum úr gemsanum. Þetta er vel út- fært atriði vegna þess að neyðin verður bókstaflega áþreifanleg þar sem Matti reynir árangurslaust að hringja í hvern skuldunautinn og svo- kallaðan vininn á fætur öðrum en jafnframt er lesanda ljóst að tilraunir hans eru vonlausar. Bæði Matta og lesandanum er síðan fulljóst að þeir, sitjandi fastir í bíl með ótömdum geð- sjúklingum, eru í verulega vondum málum. Það er síðan einn af kostum sögunnar að höfundur lætur persón- urnar horfast í augu við afleiðingar gjörða sinna, enda verður bókin ansi hrottaleg á köflum, en honum hefur líka tekist að búa til það margslung- inn heim sem er búinn það mörgum minnisstæðum persónum að lesandi á sér eiginlega engra annarra kosta völ en taka þátt í lífi og líferni á helj- arþröm og, þótt það sé næstum synd að segja það, njóta þess til hins ýtr- asta. Vinalegi fíkniefnadjöfullinn BÆKUR Skáldsaga Jökull Valsson Bjartur. Reykjavík 2006. 314 bls. Skuldadagar Björn Þór Vilhjálmsson Jökull Valsson Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.