Morgunblaðið - 03.11.2006, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2006 69
/ ÁLFABAKKA
THE DEPARTED kl. 5:45 - 7 - 8:45 - 10:10 - 10:30 B.i. 16
THE DEPARTED VIP kl. 5:45 - 8:45
THE LAST KISS kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:30 B.i. 12
THE GUARDIAN kl. 8 B.i. 12
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
BARNYARD m/ensku tali kl. 6 - 10:10 LEYFÐ
JACKASS NUMBER 2 kl. 4 - 8 B.i. 12
ÓBYGGÐIRNAR m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
/ KRINGLUNNI
BORAT kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 12
THE DEPARTED kl. 8 - 10:45 B.i. 16 DIGITAL
BÆJARHLAÐIÐ kl. 4 LEYFÐ m/ísl. tali
THE GUARDIAN kl. 10 B.i. 12
MATERIAL GIRLS kl. 4 - 6 - 8 LEYFÐ
BEERFEST kl. 6 B.i. 12
/ AKUREYRI
THE DEPARTED kl. 8 - 10:40 b.i. 16
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
MATERIAL GIRLS kl. 6 LEYFÐ
THE GUARDIAN kl. 8 b.i. 12
JACKASS NUMBER 2 kl. 10:30 b.i. 12
/ KEFLAVÍK
BORAT kl. 6 - 8 - 10 B.I. 12
MÝRIN kl. 8 B.I. 12
THE DEPARTED kl. 10:10 B.I. 12
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
BESTA MYND MARTINS
SCORSESE TIL ÞESSA
SJÁIÐ EINA BESTU MYND ÁRSINS.
BETRI LEIKHÓPUR HEFUR EKKI
SÉST Í KVIKMYND Í LANGAN TÍMA
„THE DEPARTED ER EÐAL GLÆPAMYND EINS
OG ÞÆR GERAST BESTAR OG ER ENN EIN
RÓSIN Í HNAPPAGAT SCORSESES.“
eeeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
T.V. KVIKMYNDIR.IS
Munið afsláttinn
Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
SÝND MEÐATH! NÝJU DIGITAL TÆKNINNI
eee
H.J. MBL
eeee
H.Ó. MBL
eee
LIB Topp5.is
Þú átt eftir
að skemmta
þér sjúklega
vel.
eee
EMPIRE
KEVIN COSTNER ASHTON KUTCHER
Þegar hættan
steðjar að ...
fórna þeir öllu
FRÁ HANDRITSHÖFUNDI
„MILLION DOLLAR BABY“ OG „CRASH“
Vel gerð og rómantísk með
þeim Zach Braff („Scrubs“,
„Garden State“), Rachel
Bilson („The O.C.“
þættirnir) ofl.
UPPRUNALEGU PARTÝ-DÝRIN ERU MÆTT
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
Eruð þið tilbúin fyrir eina
fyndnustu mynd allra tíma?
eeeee
Svo fyndin að helmin-
gurinn af æðunum
í andlitinu á þér
munu springa!"
EMPIRE
„...groddalegur og
beinskeyttur húmor...
þannig að maður ælir
nánast af hlátri“
Þ.Þ. - FRÉTTABLAÐIÐ
eeeee
„Það fyndnasta sem þú
munt nokkurn tíman sjá“
THE MIRROR
eeeee
„Ég set Borat í raðir
fyndnustu mynda sem ég hef
séð. Borat er tvímælalaust
fyndnasta mynd ársins,
ef ekki sú frumlegasta.“
V.J.V. - Topp5.is
Sýnd í Sambíóunum í Kringlunni og Keflavík
“Tvímælalaust einhver
grófasta, djarfasta, lákúrule-
gasta og óþægilegasta
vitleysa sem að ég hef borið
augum á. klárlega fyndnasta
mynd ársins!”
T.V. - Kvikmyndir.com
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Ástvinir hrútsins kunna vel að meta
sjálfstæði hans en í augnablikinu er best
að standa saman. Reiddu þig á liðsheild-
ina. Hallaðu þér að ástvinum þínum og
biddu um hjálp, þó að þér finnist þú ekki
þurfa á henni að halda.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Njóttu þeirra vísbendinga um samhljóm
sem sýna að lífið vinnur með þér í augna-
blikinu. Ókunnugir brosa við þér og bíla-
stæði losna á elleftu stundu. Eitthvað
sem var týnt finnst með óvenjulegum
hætti.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn hefur ekkert að fela. Hegðun
hans út á við er sú sama og í einrúmi.
Hóparnir sem þú tilheyrir eru hluti af
þínum atkvæðamikla persónuleika. Það
verður skálað í kvöld.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er alltaf ástæða fyrir öllu, þótt hún
liggi ekki alltaf í augum uppi. Eitthvað
kemur í veg fyrir að krabbinn geri nokk-
uð sem hann ætlaði sér og svo kemst
hann að því, að það reynist blessun í dul-
argervi.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Reynslunni fylgir þroski. Maður þarf
ekki að reyna að vera betri, heldur bara
láta sjá sig þar sem ný reynsla er í boði
og þannig batnar maður af sjálfsdáðum.
Í kvöld tekurðu þátt í meiriháttar sam-
ræðum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan hefur fengið frábæra sjálfs-
stjórn í vöggugjöf. Ef einhver reynir að
fá hana til þess að bregðast við, stillir
hún sig um það og hugsar um alla mögu-
leika sína. Þeir eru fleiri en hún getur
talið.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er engu líkara en að skyldur vog-
arinnar stjórni lífi hennar og að hún hafi
ekkert val lengur. Það er reyndar blekk-
ing. Maður hefur alltaf val. Einhver ann-
ar í vogarmerki færir þér heim sanninn
um það.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Nú væri gott að geta skipt um umhverfi
en nýjar persónur og leikendur væru
enn betri. Nýtt blóð umbreytir gömlum
aðstæðum, ekki síst ef það rennur í æð-
um einhvers í hrútsmerkinu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn leitar sannleikans. Hann
finnst ekki í orðum. Hann verður ekki
sagður. Um helgina færðu allt í einu
tækifæri til þess að hagnast aukalega.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Í Japan þekkist viðurkenndur sjúkdóm-
ur sem nefnist karoshi – banvænn kvilli
sem orsakast af of mikilli vinnu.
Skemmtu þér sem mest þú mátt um
helgina, alveg eins og þú hefðir gert ef
þú hefðir verið að vinna.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Tilfinningaflækjur ergja aðra, en ekki
vatnsberann. Hann skilur að ekki þarf
endilega að leysa öll vandamál. Þú ert af-
slappaður gagnvart óvissu í samböndum
og nýtur þeirra dásemda sem þau bjóða
upp á núna.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Vinir keppast um hylli þína núna. Til
allrar hamingju er pláss fyrir fleiri en
eitt símanúmer í hraðvalinu. Það örugg-
asta í stöðunni er að láta hvern og einn
finna að hann sé í uppáhaldi.
Tungl í hrúti er eins og
árásargjarn og sjálfstæður
stríðsmaður. Snertum
þessa eiginleika innra með
okkur og nýtum á því sviði
lífsins þar sem mestan
veikleika er að finna. Sól og Neptúnus
eru að byrja að mynda afstöðu hvor við
aðra og þá komumst við að því að lífið
býður upp á ágreining svo maður fái
tækifæri til þess að þjálfa baráttugleði
sína.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
FRAMBOÐIÐ af fjölskylduvænum
tölvuteiknimyndum er alltaf að
aukast og er flóðið farið að bitna á
gæðunum. Það jákvæðasta er að bíó-
eigendur leggja mikinn metnað í að
talsetja textann á íslensku og hann
er fluttur af fagfólki sem er orðið
býsna hagvant á þessu sviði, en hóp-
urinn er þröngur.
Nýjasta afurðin nefnist Bæj-
arhlaðið, dálítið undarlegt fyr-
irbrigði um húsdýr á sveitabæ sem
vappa um á afturfótunum, tala,
dansa, syngja og haga sér almennt
eins og mennskar teiknimyndafíg-
úrur þegar bóndinn fer af bæ.
Forsvarsdýrið og verndari bú-
stofnsins er tuddinn Brjánn (Jóhann
Sigurðarson), hann fylgist grannt
með sléttuúlfunum sem leita færis
utan girðingarinnar að komast inn í
hænsnakofann. Meðfram gæslu-
störfum elur hann upp Odd (Þröstur
Leó), sem er algjör andstæða fóstra
síns; galgopi og dansfífl, enda ungur
að árum. Þegar Brjánn fellur frá er
Oddur valinn í umsjónarembættið,
en hann er frekar stuðtuddi en
stjórnandi og dýrin á bænum halda
áfram að skvetta úr klaufunum uns
allt er komið á ystu nöf.
Það er auðséð að höfundar mynda
á borð við Bæjarhlaðið eru komnir í
talsverða hugmyndakreppu, þær
best heppnuðu eru orðnar að fram-
haldsmyndabálkum, aðrar draga af
þeim dám eða lenda jafnvel á fram-
andi og óspennandi slóðum Bæj-
arhlaðsins. Handritshöfundurinn og
leikstjórinn Oedekerk, er kunnastur
fyrir bragðdauft léttmeti þar sem
Ace Ventura-myndirnar standa upp
úr. Hér er gamansemin á vafasöm-
um slóðum, Bæjarhlaðið er ætluð
yngstu áhorfendunum sem þurfa að
hlusta og horfa upp á vafasama sið-
fræði og heimskulega brandara.
Sem dæmi má nefna að tuddarnir
eru með júgur og þýðandinn leggur
sitt af mörkum og talar um „kálfs-
unga“, hvað svo sem það nú er.
Teiknifígúrurnar eru óvenjulegar
á frekar neikvæðan hátt, önnur en
sléttuúlfarnir sem líta út eins og vin-
ur vor, Wile E. Coyote, á berserkja-
sveppum.
Skvettur úr klaufunum
Kýr „Hér er gamansemin á vafasömum slóðum, Bæjarhlaðið er ætluð yngstu áhorfendunum sem þurfa að hlusta
og horfa upp á vafasama siðfræði og heimskulega brandara,“ segir m.a í dómnum.
Sæbjörn Valdimarsson
KVIKMYNDIR
Sambíóin og Laugarásbíó
Teiknimynd. Leikstjóri: Steve Oedekerk.
Leikstjórn ísl. talsetningar: Jakob Þór
Einarsson. Aðalraddir (enska): Kevin
James, Courteney Cox, Sam Elliott,
Danny Glover, Wanda Sykes. Aðalraddir
(íslenska): Þröstur Leó Gunnarsson, Jó-
hann Sigurðarson, Sigurður Sig-
urjónsson, Hallgrímur Ólafsson, Björgvin
Franz Gíslason, Hjálmar Hjálmarsson o.fl.
90 mín. Bandaríkin 2006.
Bæjarhlaðið (Barnyard)