Morgunblaðið - 19.12.2006, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 345. TBL. 94. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
ÚR RAFDÚETT Í ROKK
ARNAR EGGERT RÆÐIR VIÐ KJARTAN F.
ÓLAFSSON HLJÓMBORÐSLEIKARA Í AMPOP >> 48
5
dagar
til jóla
Metsölulisti Mbl.
14. des.
1.
ÆVISÖGUR
4. prentun
komin í
verslanir
1. prentun
uppseld
2. prentun
uppseld
3. prentun
uppseld
1. sæti
„Litrík og vel
skrifuð saga
áhugaverðrar
baráttukonu.“
Súsanna Svavarsdóttir,
Fbl.
Jerúsalem. AFP.| Ehud Olmert, for-
sætisráðherra Ísraels, hvatti í gær
til þess að stutt yrði við bakið á
Mahmoud Abbas, forseta Palest-
ínu, í deilum hans við Hamas. Ísr-
aelar segjast þó ekki skipta sér af
innbyrðis deilum Palestínumanna.
„Ísrael á engan þátt í því sem er að
gerast og öll afskipti af okkar hálfu
myndu hafa neikvæð áhrif,“ sagði
Shimon Peres aðstoðarforsætisráð-
herra.
Reuters
Ísrael Ehud Olmert forsætisráð-
herra styður hinn hófsama Mahmo-
ud Abbas Palestínuforseta.
Abbas fái
stuðning
Efi um |31
AUGLJÓST er að vandað hafði verið til verks við fölsun mikils fjölda fimm þúsund króna seðla sem lög-
reglan í Reykjavík lagði nýlega hald á. Meðal annars voru seðlarnir upphleyptir, auk þess sem reynt var að
líkja eftir segulrönd ekta peningaseðla. Á myndinni sýna rannsóknarlögreglumenn fölsuðu seðlana.
Morgunblaðið/Júlíus
Vandað til verks við fölsunina
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
MAÐUR sem talið er að hafi myrt
fimm konur í Ipswich í Bretlandi er
nú í haldi lögreglunnar. Er um að
ræða 37 ára gamlan afgreiðslumann
í stórmarkaði, Tom Stephens. Hann
býr í þorpinu Trimley, nokkra kíló-
metra frá Ipswich.
Stephens sagðist í blaðaviðtali um
helgina ekki hafa fjarvistarsannanir
en hann væri samt óhræddur. „Ég
veit að ég er sak-
laus og ég er al-
gerlega sann-
færður um að ég
verð ekki ákærð-
ur,“ sagði hann.
Öll fimm fórn-
arlömb morðingj-
ans voru vændis-
konur en bannað
er að selja sig í Bretlandi. Harriet
Harman, ráðherra stjórnarskrár-
mála í bresku ríkisstjórninni, gaf í
skyn í gær að hún vildi að gert yrði
refsivert að kaupa sér vændisþjón-
ustu. Hún vísaði til þess að sá háttur
væri hafður á í Svíþjóð. „Þeir styðja
við bakið á ungum konum sem eiga
við fíkniefnavanda að stríða og eru á
annan hátt berskjaldaðar, þeir hafa
gert það refsivert athæfi að kaupa
sér kynlíf – þeir gera vændi ólöglegt
með því að taka hart á kaupendun-
um fremur en ungu konunum.“
Grunaður um raðmorðin
Breska lögreglan handtekur 37 ára gamlan afgreiðslumann
Tom Stephens
Meintur | 14
FIMM 19 ára einstaklingar voru í síðustu
viku handteknir í tengslum við peningaföls-
unarmál, en borið hafði á fölsuðum fimm þús.
kr. peningaseðlum í umferð nú í desember.
Við húsleit lagði lögreglan í Reykjavík hald á
um 200 þús. kr. í fölsuðum fimm þús. kr. seðl-
um auk búnaðar til fölsunar, þeirra á meðal
tölvu, skanna og prentara. Einnig var lagt
hald á nokkur grömm af ætluðu amfetamíni.
Að sögn lögreglunnar náðust peningafals-
ararnir vegna árvekni bensínafgreiðslu-
manns, sem þótti peningaseðill sem hann
fékk afhentan grunsamlegur og hringdi í lög-
regluna sem handtók tvo pilta á staðnum. Við
yfirheyrslu játaði annar þeirra peningaföls-
unina og var í framhaldinu gerð húsleit heima
hjá honum, þar sem tveir piltar til viðbótar og
stúlka voru handtekin. Að sögn lögreglunnar
hafði hópnum aðeins tekist að koma örfáum
seðlum í umferð.
Samkvæmt 16. kafla almennra hegningar-
laga skal hver sem falsar peninga í því skyni
að koma þeim í umferð sem ósviknum gjald-
eyri sæta fangelsi allt að 12 árum, en sá sem
lætur af hendi peninga sem hann hefur grun
um að séu falsaðir sæta allt að 2 ára fangelsi.
Ungmenni
handtekin
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
STRAUMUR-BURÐARÁS fjár-
festingarbanki mun frá og með
næstu áramótum gera upp í evrum í
stað íslensku krónunnar og verður
þannig fyrsti íslenski bankinn sem
gerir upp í erlendri mynt sem jafn-
framt þýðir að eigið fé bankans verð-
ur fært yfir í evrur. Þetta var ákveð-
ið á stjórnarfundi bankans í gær.
Friðrik Jóhannsson, forstjóri
Straums-Burðaráss, segir tvær
meginástæður búa að baki þessari
ákvörðun. Í fyrsta lagi hafi bankinn
náð því marki að vera með meira en
helming tekna og eigna í erlendum
myntum. Menn telji að færsla reikn-
inga í evrum gefi gleggri mynd af
starfseminni og endurspegli betur
raunverulegu afkomu bankans og
minnki um leið sveiflur, m.a. á eig-
infjárhlutfalli bankans.
Opnar fleiri möguleika
„En við teljum líka að þetta opni
meiri möguleika á því að laða er-
lenda fjárfesta að bankanum. Þetta
gefur okkur líka ákveðin tækifæri í
sambandi við ytri vöxt. Ef við hefð-
um t.d. áhuga á að sameinast erlendu
fjármálafyrirtæki opnast frekari
möguleikar á því að greiða fyrir með
bréfum í bankanum. Þannig getur
þessi breyting stutt við ytri vöxt
bankans. Og við erum alltaf að skoða
möguleika í þeim efnum.“ Friðrik
leggur áherslu á að þessi ákvörðun
sé tekin með langtímahagsmuni
bankans og hluthafa hans í huga og
ekki sé um að ræða stökkbreytingu
þar sem bankinn hafi fyrir haft sér-
stakt leyfi frá Seðlabanka Íslands til
þess að vera með meira en 30% af
eigin fé í erlendri mynt og hafi nýtt
sér þá heimild.
Aðspurður segir Friðrik að menn
sjái fyrir sér að framtíðarvöxtur
bankans verði að langmestu leyti á
erlendum mörkuðum. „Evran er
stærsti gjaldmiðill Norður-Evrópu
sem er okkar markaðssvæði og því
var eðlilegt að sú mynt væri valin.“
Straumur-Burðarás skipt-
ir út krónunni fyrir evru
Í HNOTSKURN
» Nokkur íslensk fyrirtæki,eins og t.d. Össur, Marel
og Bakkavör, gera upp í er-
lendum myntum en Straumur-
Burðarás er fyrsti íslenski
bankinn sem það gerir.
» Straumur-Burðarás hefurmarkað sér þá stefnu að
vera leiðandi norrænn fjár-
festingarbanki en með höf-
uðstöðvar á Íslandi. Hlutfall
íslensku krónunnar í við-
skiptum bankans minnkar
jafnt og þétt.
KARDÍNÁLINN Tarcisio Bertone
vonar að einhvern tíma verði stofn-
að svo gott knattspyrnulið á vegum
Páfagarðs að það geti keppt við
bestu lið Ítalíu, að sögn breska rík-
isútvarpsins, BBC.
Bertone er sjálfur eitilharður
stuðningsmaður Juventus. Þegar
hann var erkibiskup í Genúa var
hann oft fenginn í sjónvarpið til að
tjá sig um leiki Sampdoria. Hann
segir að í prestaskólum og kaþ-
ólskum æskulýðsfélögum um alla
Ítalíu sé fjöldi knattspyrnumanna
sem myndu vilja klæðast hvítum og
gulum litum Páfagarðs.
Páfagarður er hins vegar sjálf-
stætt ríki og því spurning hvaða er-
indi liðið ætti í ítölsku deildina. Og
myndi það leika á sunnudögum?
Víti á páfann?
♦♦♦