Morgunblaðið - 19.12.2006, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 19.12.2006, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is BRESKA lögreglan handtók í gær 37 ára karlmann sem grunaður er um að hafa myrt fimm vændiskonur í Ipswich. Maðurinn var handtekinn snemma í gærmorgun á heimili sínu í þorpinu Trimley St Martin, nálægt hafnarbænum Felixstowe. „Hann var handtekinn vegna gruns um að hann hefði myrt allar konurnar fimm,“ sagði Steward Gull sem stjórnar rannsókn lögreglunnar. Trimley St. Martin er þrettán kílómetra suðaustan við Ipswich. Lögreglan nafngreindi ekki manninn sem var handtekinn en breskir fjölmiðlar höfðu eftir heim- ildarmönnum sínum að hann héti Tom Stephens og starfaði í matvöru- verslun. Hermt er að hann hafi einn- ig ekið leigubíl í aukavinnu. Blaðið Sunday Mirror birti viðtal við Stephens á sunnudag. Hann kvaðst hafa þekkt konurnar vel og lögreglan hefði yfirheyrt hann fjór- um sinnum. „Ég var vinur allra stúlkn- anna … en ég er ekki með fjarvist- arsönnun,“ sagði Stephens. Hann kvaðst hafa orðið „verndari“ kvennanna. „Ég hafði tækifæri til að fremja morðin vegna þess að þær treystu mér svo mikið.“ Sunday Mirror hafði einnig eftir Stephens að hann hefði ekki áhyggj- ur af því að hann yrði ákærður vegna þess að hann væri saklaus. Stephens hefur búið einn í nýju íbúðarhúsi nálægt Felixstowe og fluttist þangað fyrir þremur mánuð- um. Lík tveggja síðustu fórnarlamba raðmorðingjans fundust um þrjá kílómetra frá heimili Stephens. Hann kvaðst hafa byrjað að venja komur sínar til vændiskvenna fyrir einu og hálfu ári eftir að það slitnaði upp úr átta ára hjónabandi hans. „Ekki hættulegur“ Fréttavefur Times hafði eftir vændiskonu, sem kynntist Stephens fyrir einu og hálfu ári, að hann hefði heimsótt hana á föstudaginn var og verið miður sín vegna morðanna. „Hann er ekki hættulegur eða of- beldishneigður og var vanur gæta stúlknanna, keyra þeim um til að út- vega þeim fíkniefni. Ég svaf nokkr- um sinnum í rúminu hans vegna þess að ég var á götunni og hann leyfði mér að gista í húsinu sínu en við höfðum aldrei kynmök.“ Fréttavefur The Daily Telegraph hafði eftir nágrönnum Stephens að hann væri „einfari“. Lögreglan hefði fyrst leitað í húsi hans 22. nóvember, eftir að tvö fyrstu fórnarlömbin hurfu, og meðal annars notað málm- leitartæki í garðinum. Nær 500 lögreglumenn hafa tekið þátt í rannsókn morðmálsins í Ips- wich og er hún ein af viðamestu morðrannsóknum í sögu Bretlands. Um 350 lögreglumenn voru sendir til Ipswich frá um það bil 30 lögreglu- stöðvum víða um landið. Rannsókn- arhópurinn hefur fengið nær 10.000 ábendingar frá almenningi. Lög- reglumennirnir hafa einnig skoðað um 10.000 klukkustunda upptökur úr eftirlitsmyndavélum til að grafast fyrir um síðustu ferðir allra kvennanna fimm. Trimley St. Martin var síðast í kastljósi breskra fjölmiðla þegar sautján ára stúlka, Vicky Hall, hvarf á leiðinni heim til sín af skemmtistað í Felixstowe árið 1999. Lík hennar fannst í skurði, fullum af vatni, um 40 km frá Felixstowe. Talið var að hún hefði verið kæfð en það var ekki staðfest við krufningu. Lögreglan hefur ekki tengt þetta mál við dauða vændiskvennanna í Ipswich og vildi ekki staðfesta að Stephens yrði einn- ig yfirheyrður um morðið á Hall. Meintur morðingi kvaðst hafa verið vinur kvennanna Handtekinn fyrir morð á vændis- konum í Ipswich Reuters Raðmorðingi? Tom Stephens á mynd sem birt var á vefsíðu. Hann neitaði því í viðtali við breskt blað að hann hefði myrt vændiskonurnar í Ipswich. Í HNOTSKURN » Raðmorðunum í Ipswich hef-ur verið líkt við mál Peters Sutcliffe, sem hefur verið nefnd- ur „Yorkshire Ripper“ og var dæmdur fyrir morð á þrettán konum á árunum 1975 til 1980. » Málinu hefur einnig veriðlíkt við morð „Kobba kvið- ristu“, eða „Jack the Ripper“, sem myrti fimm vændiskonur í London árið 1888. » Öll líkin fundust nakin ígrennd við Ipswich á tíu dög- um frá 2. desember. Konurnar fimm voru á aldrinum 19–29 ára. Washington. AP, AFP. | Robert Gates sór embættiseið sem nýr varnar- málaráðherra Bandaríkjanna við at- höfn í Hvíta húsinu í Washington í gær en opinber innsetningarathöfn var haldin síðar í bandaríska varn- armálaráðuneytinu, Pentagon. Don- ald Rumsfeld, fyrirrennari Gates, til- kynnti um afsögn sína í síðasta mánuði. Gates er 63 ára. Hann sagði er hann kom nýlega fyrir nefnd öld- ungadeildarþingmanna að hann teldi Bandaríkjamenn ekki vera að sigra í stríðinu í Írak og að hann væri opinn fyrir nýrri stefnu. Rumsfeld sagði af sér í kjölfar harðrar gagnrýni á stefnu Bandaríkjastjórnar í Írak. Þá hefur George W. Bush Bandaríkja- forseti, sagt að hann muni kynna breytingar á stefnu stjórnarinnar í Íraksmálinu í upphafi næsta árs. Gates var yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, á árunum 1991 til 1993. Gates sver embættiseið Opinn fyrir nýrri stefnu í Írak Hugsi Robert Gates, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna. Reuters SUÐUR-kóreskur vísindamaður, Lee Byeong-chun, fullyrti í gær að honum hefði tekist að klóna þrjár tíkur. Lee var áður samstarfs- maður Hwang Woo-suk en Hwang varð í fyrra uppvís að því að hafa logið því að honum hefði tekist að búa til stofnfrumulínu úr einrækt- uðum mannsfósturvísi. Allar helstu niðurstöður stofn- frumurannsókna Hwangs reyndust hreinn tilbúningur en honum tókst þó að einrækta hund á síðasta ári. Lee mun hafa haft forystu í því verkefni og nú segist hann hafa endurtekið afrekið. Bona, sem er af afgönsku kyni, var gotið 18. júní og tvær tíkur til viðbótar komu tveim- ur dögum síðar. Lee er fyrir miðju á myndinni og heldur hann á tíkinni Von. Tíkin Bona er til vinstri og Friður til hægri. AP Klónuðu þrjár tíkur Kaupmannahöfn. AP. | Danskur dóm- stóll dæmdi í gær þrjá menn í gæslu- varðhald vegna óeirðanna á Norð- urbrú í Kaupmannahöfn á laugardaginn var þegar lögreglan handtók um 270 manns. Þremenningarnir – 27 ára ítalskur karlmaður, 33 ára danskur karlmað- ur og 25 ára portúgölsk kona – voru dæmdir í fjögurra vikna fangelsi, að sögn talsmanns lögreglunnar. Hinir sem voru handteknir, þar af 84 útlendingar, verða látnir lausir en eiga samt ákæru yfir höfði sér. Mótmælendur köstuðu götustein- um, málmstöngum og flugeldum á lögreglumenn sem beitti táragasi til að reyna að dreifa mótmælendunum. Fjórir lögreglumenn urðu fyrir minniháttar meiðslum í átökunum. Einn mótmælendanna missti nokkra fingur þegar flugeldur sprakk í höndum hans og annar varð fyrir meiðslum í andliti. Mótmæltu útburðarúrskurði Óeirðirnar blossuðu upp eftir að hundruð manna söfnuðust saman í Kaupmannahöfn til að mótmæla dómsúrskurði um að bera ætti út hústökumenn í Ungdomshuset, fé- lagsmiðstöð í Kaupmannahöfn. Hús- tökumennirnir hafa búið þar frá árinu 1982 en borgin seldi kristnum söfnuði húsið árið 2001. Danskir dómstólar hafa fyrirskip- að hústökumönnunum að fara úr Ungdomshuset en þeir hafa neitað því og segja að borgin hafi ekki haft rétt til að selja húsið. Yfirvöld segja að húsið hafi oft verið notað til að hefja mótmæli sem endað hafi með átökum við lögreglu. Þrír í haldi vegna óeirðanna Aþena. AP. | Múslímar í ríkjum Evrópusambands- ins mega þola vaxandi fordóma og þeir taka á sig alls kyns birtingarmyndir, allt frá því að múslímar sæti árásum og til þess að þeim sé mismunað þeg- ar kemur að atvinnu- og húsnæðismálum. Þetta er niðurstaða skýrslu sem stofnun á veg- um Evrópusambandsins hefur gert. Er hvatt til þess í skýrslunni að meira kapp verði lagt á sam- ræður múslíma og þeirra samfélaga, sem þeir búa í, enda muni múslímar eiga erfitt með að finnast þeir vera hluti af þeim samfélögum sem þeir búa í ef þeir sæta þar sívaxandi fordómum. Í skýrslunni er hins vegar einnig vakin athygli á því að múslímar verði sjálfir að leggja meira kapp á að losa sig undan neikvæðri ímynd, sem ekki síst tengist ótta fólks um að múslímar hljóti að tengj- ast hryðjuverkastarfsemi eða séu líklegir til að vera öfgamenn, sbr. viðbrögðin við birtingu skop- myndanna af Múhameð spámanni fyrir tæpu ári. Eru nú um 3,5% þegna ESB Talið er að um þrettán milljónir múslíma búi í ESB-ríkjunum, þ.e. að þeir séu nú um 3,5% þegna ESB. Í skýrslu Evrópskrar eftirlitsstofnunar með rasisma og útlendingahatri (EUMC), sem starf- rækt er í Vínarborg, eru rakin mörg og marg- vísleg dæmi um fordóma gagnvart múslímum og íslam síðustu tvö ár. Þ.á m. ræðir um skemmd- arverk á moskum múslíma, konur sem nota hefð- bundna höfuðklúta múslímakvenna sæta ofsókn- um og einnig er rifjað upp að ráðist var á sómalska fjölskyldu í Danmörku, en árásarmenn- irnir beittu kylfum sem á höfðu verið teiknaðir hakakrossar. „Múslímum finnst sem í æ ríkari mæli sé gerð sú krafa að til að þeir verði viðurkenndir sem þegnar tiltekins samfélags verði þeir að „aðlag- ast“ og kasta sjálfsmynd sinni sem múslímar,“ segir Beate Winkler, framkvæmdastjóri EUMC, og bætir því við að eftir 11. september 2001 finnist mörgum múslímum sem þeir liggi í reynd allir undir grun um aðild að hryðjuverkum. Í skýrslunni er m.a. vitnað til rannsóknar sem gerð var við Parísarháskóla 2004 en hún leiddi í ljós að þegar sótt væri um atvinnu þá hefði um- sækjandi af norður-afrískum uppruna fimm sinn- um minni líkur á því að hljóta jákvætt svar en aðr- ir sem sendu inn umsókn. Múslímar sæta vaxandi fordómum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.