Morgunblaðið - 19.12.2006, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 19.12.2006, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Jæja, viðskiptafræðingar, nú er lag. Auglýst hefur verið staða sviðsstjóra menntasviðs hjá Reykjavíkurborg. Menntun á sviði menntamála er örugglega ekki skilyrði, sérstaklega ef þið hafið reynslu af því að vera fjár- málastjórar á mennta- sviði hjá sveitarfélagi. Kannski sömu mögu- leikar séu fyrir hendi er varðar stöðu fram- kvæmdastjóra Barna- verndar Reykjavíkur sem einnig var aug- lýst nýlega. Það er aldrei að vita! Virðast þetta ekki einkennilegar fullyrð- ingar? Hvaða rök geta legið á bak við slíkar fullyrðingar sem einhver skynsemi er í? Í september síðastliðnum var ráðið í stöðu sviðsstjóra Velferð- arsviðs hjá Reykjavíkurborg. Var ég einn umsækjenda og kaus að tjá mig ekki opinberlega um þetta mál á þeim tíma, en get nú ekki lengur orða bundist. Af fimmtán umsækj- endum voru fimm boðaðir í viðtal. Sá sem var ráðinn í starfið var við- skiptafræðingur með framhalds- menntun í stjórnun og stefnu- mörkun. Sá umsækjandi sem ráðinn var hafði starfað sem fjár- málastjóri á Velferðarsviði Reykja- víkurborgar og verið um tíma stað- gengill sviðsstjórans. Þessi aðili hafði enga menntun á sviði velferð- armála. Af hinum fjórum umsækj- endunum sem boðaðir voru í viðtal er eftirfarandi að segja. Tveir um- sækjendur hafa lokið meistara- gráðu, annar þeirra er fé- lagsráðgjafi með meistaragráðu í stjórnun og hinn félagsfræðingur. Báðir þessir aðilar hafa starfað hjá stofnuninni um langa hríð sem stjórnendur og verið staðgenglar þáverandi félagsmálastjóra um tíma. Hinir tveir umsækjendurnir eru félagsráðgjafar og hafa lokið doktorsnámi, annar í opinberri stjórnsýslu og hinn í félagsráð- gjöf. Sá sem hafði lokið dokt- orsnámi í stjórnsýslu hafði um- talsverða stjórnunarreynslu á sviði velferðarmála. Hinn aðilinn hafði lokið doktorsgráðu sem und- irbýr fólk sérstaklega fyrir stjórnun og stefnu- mótun á sviði velferð- armála annars vegar og fyrir rannsóknir og kennslu hins veg- ar. Sá aðili var einnig með nokkra stjórn- unarreynslu. Það er því augljóst að þessir fjórir aðilar voru allir hæfari til að sinna starfi sviðsstjóra á velferðarsviði en sá aðili sem ráðinn var í starfið. Fáfræði getur ver- ið mjög skaðleg en hún getur haft ennþá verri afleið- ingar ef fólk er ekki meðvitað um hana. Þegar borgarfulltrúinn Gísli Marteinn svaraði fyrir ráðn- inguna sló hann ryki í augum fólks með fullyrðingum um að hæfasti aðilinn hefði verið ráðinn, án þess að fjalla nokkuð um for- sendur ráðningarinnar. En afleið- ingarnar eru rétt að byrja að koma í ljós. Nú hefur verið aug- lýst staða framkvæmdastjóra Barnaverndar Reykjavíkur. Þar var gerð krafa um háskóla- menntun sem nýttist í starfi – hljómar kunnuglega. Skyldi annar viðskiptafræðingur verða ráðinn? Um er að ræða stöðu sem krefst mikillar faglegrar þekkingar á einum viðkvæmasta málaflokki velferðarmála sem snertir marga þá sem eiga hvað sárast um að binda, og það getur hreinlega skipt sköpum um líf viðkomandi barna og foreldra þeirra hvernig unnið er í málum þeirra. Í rann- sóknum mínum hefur ítrekað komið í ljós að skráningu mála hjá Reykjavíkurborg hefur verið al- varlega ábótavant og svo virðist sem afar lítil greiningarvinna sé unnin til að undirbyggja ákvarð- anir um framgang mála. Dæmi eru um að lítið sem ekkert hafi verið aðhafst í mjög alvarlegum málum. Ljóst er að mikið álag er á stofnuninni, en það er einnig í nágrannasveitarfélögunum, þar sem skráning og greining hefur verið mun ítarlegri og faglegri. Hjá Reykjavíkurborg hefur tals- vert verið um að ráðið hafi verið fólk til að sinna starfi á sviði barnaverndar sem ekki hefur ver- ið með þá menntun sem eðlilegt er að gera kröfu um, sem ekki hefur viðgengist hjá nágranna- sveitarfélögunum. Og nú virðist vera opnað fyrir ýmsa möguleika með sjálfa yfirmannsstöðuna hjá Barnavernd Reykjavíkur. Eins og fyrri reynsla sýnir er hægt að túlka „háskólamenntun sem nýtist í starfi“ afar vítt. Það er því full ástæða til þess að vera uggandi yfir framtíð þessara málaflokka hjá Reykjavíkurborg, velferð- armálum almennt sem og barna- verndarmálunum sérstaklega. Kannski sér í lagi þar sem svo virðist sem hægt sé að komast upp með að ráða í svo mikilvægar stöður sem hér um ræðir með eitthvað allt annað í huga en þekkingu umsækjenda á viðkom- andi málaflokki. Í ljósi ráðningar sviðsstjóra velferðarsviðs Reykja- víkurborgar verður fróðlegt að fylgjast með ráðningu í stöðu yf- irmanns Barnaverndar Reykja- víkur sem og í stöðu sviðsstjóra hjá Menntasviði Reykjavík- urborgar. Í hvaða átt er Reykja- víkurborg að stefna? Hvert stefnir Reykjavíkurborg? Freydís Jóna Freysteinsdóttir skrifar um stöðuveitingar hjá Reykjavíkurborg » Það er því fullástæða til þess að vera uggandi yfir fram- tíð þessara málaflokka hjá Reykjavíkur- borg … Freydís Jóna Freysteinsdóttir Höfundur er lektor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfarandi greinargerð frá Jóni Þ. Hilmarssyni endurskoðanda: „Að gefnu tilefni vegna einhliða og rangsnúins fréttaflutnings af máli Gunnars Arnars Kristjánssonar end- urskoðanda í fjölmiðlum þykir verða að gera eftirfarandi athugasemdir. Ég hef unnið fyrir Gunnar í sam- bandi við vörn hans gegn ákæru vegna starfa hans sem endurskoð- andi Tryggingasjóðs lækna. Með reglulegu millibili, en alltof oft fyrir heilbrigt réttarkerfi, er að finna í fjölmiðlum afsakanir og yf- irklór ríkislögreglustjórans varðandi „töpuð“ sakamál sem rekin hafa ver- ið á vegum embættisins. Í Blaðinu 15/12 er viðtal við Jón Snorrason saksóknara um mál vegna endur- skoðunar Tryggingasjóðs lækna. Þar kvartar Jón yfir pattstöðu í mál- inu þar sem endurskoðendur hafi ekki viljað koma að því til rann- sóknar. Má ráða af fréttinni að þetta sé það sem málarekstur ríkislög- reglustjórans líði einna helst fyrir, þ.e. tregðu endurskoðenda til að rannsaka mál kollega síns. Rannsókn ríkislögreglustjóra Ástæða fyrir þeim málalyktum sem nú eru uppi í máli Gunnars er af- ar einföld. Rannsókn ríkislög- reglustjóraembættisins var frá upp- hafi því marki brennd að rannsakarar höfðu fyrirfram tekið afstöðu í málinu um sekt Gunnars og málsatvik aðlöguð eftir þörfum að ákæruatriðum en ekki öfugt. Þessari fyrirfram gefnu afstöðu varð ekki haggað þrátt fyrir framlögð gögn og skýringar og sterk rök væru leidd að því að rannsókn málsins væri veru- lega áfátt og á villigötum. Nið- urstaða undirréttar og Hæstaréttar var að vonum sú að allur málatilbún- aður ríkislögreglustjóra væri óá- sættanlegur og féll sýknudómur í undirrétti en Hæstiréttur vísaði mál- inu frá dómi vegna þess að rannsókn og ákæra voru með þeim hætti að málið væri ótækt fyrir dóm. Þessa niðurstöðu tveggja dóm- stiga virðist ríkislögreglustjóranum og öðrum sem að komu mega túlka svo að Gunnar hafi sloppið við dóm vegna tæknilegra mistaka. Enn virð- ist litið svo á að enga sök vegna nið- urstöðunnar sé að finna hjá embætt- inu þótt ótvírætt sé að lagalega ábyrgðin liggur þar fyrst og síðast. Niðurstaðan í málinu er óásætt- anleg fyrir alla aðila og ekki síst fyrir Gunnar sem ekki fékk tækifæri til að verja hendur sínar undir rannsókn málsins vegna ófagmannlegra og óá- sættanlegra vinnubragða ríkislög- reglustjórans. Með því að láta undir höfuð leggjast að rannsaka það sem mátti verða Gunnari til sýknu jafnt því sem mátti vera til sektar, var vegið að grundvallaratriðum rétt- arkerfisins. Ríkislögreglustjórinn lét undir höfuð leggjast að rannsaka atriði sem skipta máttu höfuðmáli við úr- lausn málsins fyrir dómi, þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar þar að lútandi. Þar má nefna tvær útgáfur af fjár- hagsbókhaldi Tryggingasjóðsins og stórfellt skjalafals sem ríkislög- reglustjóra var ítrekað bent á án ár- angurs og önnur framlögð gögn sem ekki hlutu þá skoðun sem þeim bar. Niðurstaða ríkissaksóknara Að lokum komst ríkissaksóknari að þeirri niðurstöðu að brotin hefðu verið á Gunnari ákvæði mannrétt- indasáttmála Evrópu sem og stjórn- arskrá íslenska lýðveldisins. Eitt og sér er hér um grafalvarlegt mál að ræða. Eftir tilraun ríkilögreglustjóra til að réttlæta fyrri gjörðir sínar með nýrri rannsókn, liggur fyrir það álit ríkissaksóknara að hann telur að rík- islögreglustjórinn hafi á sama tíma gerst sekur um mjög alvarleg mann- réttindabrot. Er ríkislögreglustjóra, sem gerist sekur um slík lögbrot, sætt í starfi? Þáttur formanns FLE Í Blaðinu hinn 14/12 sl., er haft eft- ir Lárusi Finnbogasyni, formanni Félags löggiltra endurskoðenda, svohljóðandi: „Stéttin er ekki fjölmenn og erfitt að finna menn sem telja sig hæfa til að fara yfir svona mál. Menn eru ekkert í þægilegri stöðu að meta verk aðila innan sama geira vegna persónulegra tengsla og fámennis í greininni. … Það verður að vera óumdeilt að mat sé hlutlaust og það hefur gert lögreglunni erfitt fyrir að finna menn. Endurskoðendur hafa líklega ekki treyst sér í að vinna verkið og töldu sig ekki hæfa til að dæma hlutlaust.“ Þessi ummæli formanns FLE eru athygli verð fyrir margar sakir:  Ekki síst fyrir þann samhljóm, sem er að finna við afsakanir og yfirklór ríkislögreglustjórans og tala tveir einni tungu.  Í þessu tilfelli var alls ekki um að ræða „mat“ á verkum lög- gilts endurskoðanda, heldur áttu löggiltir endurskoðendur að taka að sér lögreglustörf. Rannsókn ríkislögreglustjór- ans var klúður frá upphafi og áttu endurskoðendur í kjölfarið að taka að sér „gjörónýtt“ mál- ið og þar með stunda lög- reglustörf tímabundið en end- urskoðendur hafa hvorki starfsreynslu eða þjálfun til slíkra starfa né tilsvarandi rétt- arfarslega stöðu eða reynslu sem lögreglumenn þurfa eðli máls samkvæmt að hafa. Eng- um sögum fer af því hvort end- urskoðendur geti tekið að sér umferðarstjórn á götum borg- arinnar með sama hætti.  Formaður FLE lætur þess ekki getið að a.m.k. þrír löggilt- ir endurskoðendur komu að rannsókn málsins í upphafi svo ekki skorti endurskoðendur til að leggja „mat“ á störf annars endurskoðanda. Dómstólar hafa fellt úrskurð um störf þessara endurskoðenda eins og lesa má í dómsúrskurðum. Að- koma annarra endurskoðenda að málinu var því ekki fýsileg eftir það allsherjar klúður sem málið er og ekki að undra þótt endurskoðendur vildu ekki koma að máli sem rekið var á þessum nótum. Má ætla að hroðvirknisleg skoðun endur- skoðendanna við frumrann- sókn hafi einnig ráðið mestu um fyrirfram gefna niðurstöðu ríkislögreglustjórans. Þeim endurskoðendum sem til boða stóð að gerast lögreglumenn í afleysingum mátti vera ljóst að þeir voru að ganga gegn „elít- unni“ í stétt endurskoðenda og mátti að sama skapi vera ljóst að þeim yrðu enga þakkir goldnar fyrir öndverða nið- urstöðu.  Tveir löggiltir endurskoðendur sátu í héraðsdómi sem sér- fróðir meðdómendur og höfðu þar með alls fimm endurskoð- endur komið að því að fjalla um mál kollega síns. Þetta ber ekki vott um skort á endurskoð- endum til starfans.  Opinber andstaða við fyr- irframgefna niðurstöðu rík- islögreglustjórans var ekki fýsilegur kostur, enda hafa sér- fræðingar fengið bágt fyrir skoðanir sínar ef þær fóru í bága við opinberar útgáfur sannleikans. Þeir sérfræðingar sem deildu á embættið gátu sparað sér verkefnaleit hjá rík- islögreglustjóranum. Það er til Mál Gunnars Arnars Krist- jánsson endurskoðanda FJÖLMARGAR rannsóknir sýna sterk tengsl milli fátæktar og heilsuleysis. Þar verður ekki um villst: fátækt stuðlar að heilsuleysi. Ástæðurnar liggja í augum uppi þegar málum er þannig hátt- að að fólk á hvorki hnífs né skeiðar. Skorturinn veldur þá sjúkdómum. En þar með er ekki sagan öll. Á Vesturlöndum, þar sem sjaldgæft er að fólk eigi ekki fyrir brýnustu nauðsynjum, kemur undantekning- arlaust fram í öllum stórum rannsóknum, en þær skipta þús- undum, að heilsa fólks og efnahagur helst í hendur. Oft er fólki skipt í fjóra eða fimm hópa eftir ráðstöf- unartekjum. Þá lítur súluritið nánast alltaf út eins og tröppur: því hærri ráðstöf- unartekjur, því betri heilsa. Oftast er um þversniðsrannsóknir að ræða, sem sýna ein- ungis að samband er milli tekna og heilsu- fars, en ekki hver orsökin er, þ.e. hvort heilsuleysið valdi tekjumissi eða öfugt. Slíkt verður einungis fundið með því að fylgja eftir hópi fólks í mörg ár. Fáeinar slíkar rann- sóknir hafa verið gerðar og benda niðurstöður þeirra til þess, að í heild skiptir mestu máli að fátækt leiðir til heilsuleysis, þótt augljóslega geti verulegt heilsuleysi einnig valdið tekjumissi. Tengslin eru augljós, hvort sem mælikvarðinn á heilsu byggir á dánartölum, sjúkdómatíðni (með örfáum undantekningum) eða frásögn fólks af sjúkdómum eða ein- kennum í spurningakönnunum. Allir þekkja þann mun sem er á heilsufari fólks í fátækum löndum og ríkum. Landsframleiðsla á mann er sá mælikvarði sem hagfræðingar leggja gjarnan á ríkidæmi þjóða. Þjóðirnar sem búa í löndunum með lægstu landsframleiðsl- una búa jafnframt við versta heilsufarið. Heilsufar fer síðan skánandi í takt við aukna landsfram- leiðslu. Þetta gerist hratt upp að ákveðnu marki. Þegar því marki er náð (um það bil 5 þúsund kaupmátt- arleiðréttir dollarar á mann á ári) er eins og frekari aukning lands- framleiðslunnar hafi ekki veruleg áhrif til betra heilsufars. Þá virðist eitthvað annað koma til, sem þarf nán- ari rannsóknar við. Það er til dæmis betra heilsufar í Japan en í Bandaríkjunum og þeir lifa mun lengur en Bandaríkjamenn að jafnaði, þótt landsfram- leiðsla sé mun hærri í Bandaríkjunum og að Bandaríkjamenn verji tvöfalt hærri upphæð til heilbrigðisþjónustu en Japanar gera. Á Kostaríka er meðalævilengdin nær einu ári lengri en í Bandaríkjunum, en lands- framleiðslan á mann er þar er að- eins um þriðjungur af því sem gerist í Bandaríkjunum. Sumir telja að sá þáttur sem þarna skiptir máli sé jöfnuðurinn í samfélaginu, sam- kennd fólks, traust þess á stofn- unum samfélagsins og sú upplifun að maður geti haft áhrif á sam- félagið og stöðu sína innan þess. Höfum þetta í huga. Tengsl fátæktar og ójafnaðar við heilsuleysi Matthías Halldórsson skrifar um tengsl efnahags og heilsu Matthías Halldórsson » Sumir teljaað sá þáttur sem þarna skiptir máli sé jöfnuðurinn í samfélaginu, samkennd fólks, traust þess á stofnunum sam- félagsins … Höfundur er starfandi landlæknir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.