Morgunblaðið - 19.12.2006, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 19.12.2006, Qupperneq 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Anna Sigurðar-dóttir Strange fæddist í Hafnar- firði 13. nóvember 1931. Hún andaðist á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 12. desember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru þau Sigurður Þor- láksson húsasmið- ur og Ólöf Rós- mundsdóttir hús- móðir. Hún var næstyngst níu systkina. Anna giftist 9. desember 1950 Agli Ólafi Strange módelsmið, f. 22. september 1927. Þau hjónin eignuðust sex börn. Þau eru: 1) Greta, f. 1951, gift George Hunter Young. Börn þeirra eru Gunnar Sv., f. 1969, Davíð Kristófer, f. 1980, og Gerorge Kristófer, f. 1984. 2) Sæunn, f. 1954, gift Brian Doc- herty, f. 1944. 3) Victor, f. 1956, kvæntur Önnu Berglindi Arnar- dóttur, f. 1964. Börn þeirra eru Anna Sigríður, f. 1985, Erna, f. 1992, og Örn Óli, f. 1995. 4) Egill, f. 1959, kvæntur Svein- björgu Bergs- dóttur, f. 1963. Börn þeirra eru Sæunn Hrund, f. 1985, og Atli Þór, f. 1989. 5) Ómar, f. 1960. Börn hans eru Birgitta, f. 1980, Egill Ólafur, f. 1986, og Finnbogi, f. 1996. 6) María, f. 1967. Útför Önnu verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Þú lást bara þarna hvít sem snjór köld sem klaki. Ég horfði bara á þig, þú lást þarna bara. Ég fékk tár í augun, sár í hjartað og ég hugsaði „þú ert komin í betri heim“. Ég kyssti þig á kinnina og ég vissi þá að þetta var tíminn til að segja bless. Ég elska þig. Elsku amma mín, hvíldu í friði. Ég sakna þín svo. Erna Strange. Ég kveð þig, elsku amma. Amma, þú sem alltaf varst svo kát og hress. Þú sem varst hrókur alls fagnaðar, hvar sem þú komst. Þú varst hin fullkomna amma og ekki hægt að óska sér betri. Ég minnist þess er þú tókst á móti okk- ur barnabörnunum, alltaf af svo mikilli hlýju og með opnum örmum, sama hversu mikið var að gera hjá þér. Þú gafst þér alltaf tíma til að sinna okkur og finna eitthvað skemmtilegt fyrir okkur að gera. Ég minnist þess þegar þú spilaðir við okkur barnabörnin fram á rauðar nætur, alltaf með bros á vör. Ég minnist allra góðu stundanna sem við áttum saman. Þú áttir þínar erf- iðu stundir, en yfirvannst þær með styrk þínum og góðri lundu. Nú ertu horfin okkur um stund en minning- arnar ljúfar lofa góðan endurfund. Þín, Birgitta. Amma, ég hef alltaf getað leitað til þín og þú hefur alltaf stutt mig í öllu sem ég hef tekið mér fyrir hend- ur. Ég gæti talið upp endalaust af ánægjustundum sem við höfum átt saman og ég mun varðveita alla tíð. Þú hefur kennt mér svo margt og verið mér svo góð að ég trúi ekki ennþá hvernig ein kona getur gefið svona mikið af sér. Ég vona bara að ég geti gefið mínum börnum og barnabörnum jafn mikið og þú hefur gefið mér. Minningu þína mun ég alltaf geyma og ef ég mætti tala við þig einu sinni enn mundi ég minna þig á hvað þú hefur verið mér mikils virði og hvað mér þykir ótrúlega vænt um þig. Amma, ég elska þig. Egill Ólafur Strange, yngri. Nú ertu heimsins laus úr leik því lokið stríði er. Ég veit þú hugi allra átt sem eitthvað kynntust þér. En kærleiksgeislar krýna þig við kvöldsins sólarlag og barni sínu er moldin mild, við minnumst þess í dag. (Elías Þórarinsson.) Mig langar að minnast Önnu föð- ursystur minnar sem lést 12. des. sl. Það er erfitt að sætta sig við að hitta ekki þessa glaðværu og glæsilegu konu framar. Anna var ein af þess- um frábæru perlum sem ég hef kynnst, það var sama hvar hún var, það geislaði alltaf af henni. Ég man þegar ég var lítil og fékk að vera hjá þér og Agli smátíma þegar foreldrar mínir voru erlendis. Ég geymi þenn- an tíma alltaf í minningunni, þið ný- farin að búa og allt svo flott og fínt hjá ykkur. Alltaf var gott að koma í heimsókn á ykkar fallega heimili þar sem snyrtimennska og reglu- semi voru í fyrirrúmi. Þú varst ekki bara frænka í mín- um huga, einnig líka mikil vinkona. Það var alltaf hægt að koma til þín og spjalla um alla hluti. Það er margt sem þú hefur kennt mér og verður í minningunni vel varðveitt. Þú þekktir vel Pollýönnu og fórst oft í hlutverk hennar, það er eitt af því sem ég lærði af þér og nýti mér það gjarnan. Það er mér ómetanlegt að hafa fengið að tilheyra og umgang- ast þessa frábæru föðurfjölskyldu mína sem einkennist af mikilli sam- heldni og kærleika. Ég sendi Agli, fjölskyldu og systkinum Önnu samúðarkveðju. Megi minningin um dýrmæta perlu veita ykkur styrk og létta ykkur þungbær skref. Kæra frænka. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Guðrún Júlíusdóttir (Rúrý). Það er mikil eftirsjá að konu eins og Önnu. Ég hef þekkt Önnu alla mína ævi. Hún passaði mig og bróð- ur minn þegar við vorum smá og var hún einnig hjálparhönd foreldra minna við hin ýmsu störf á heim- ilinu. Anna var falleg, góð kona, björt yfirlitum og hafði mikla reisn. Hún giftist ung Agli sínum. Voru þau samstíga við hvert fótmál og samhent hjón. Þau höfðu verið gift í 56 ár. Það var alltaf gaman að heim- sækja þau á þeirra fallega og list- ræna heimili. Ég var í miklu návígi við Önnu alla tíð. Um nokkurra ára skeið bjuggu þau hjónin ásamt Grétu, elstu dótturinni, á Álfaskeiðinu, niðri hjá okkur fjölskyldunni. Á þeim tíma fæddust þeim Sæunn og Victor. Eins og gefur að skilja var mikill og góður samgangur milli hæða. Síðan fluttu þau í fjölskyldu- húsið við Skerseyrarveg, þar sem heiðurshjónin Ólöf og Sigurður, for- eldrar Önnu, bjuggu ásamt börnum og fjölskyldum þeirra. Á þeim ár- unum bættust í hópinn synirnir Egill og Ómar. Þar á bæ var mikið um börn og var alltaf gam- an að koma á Skerseyrarveginn. Þótt fjarlægðin væri meiri voru allt- af sömu sterku tengslin, órjúfanleg bönd, milli fjölskyldnanna. Síðan byggðu þau fallegt hús við Þrast- arhraun, sem Egill nánast byggði frá grunni. Þá kom að því að María, sjötta barnið, fæddist. Anna var sú mesta reglumann- eskja, sem ég hef kynnst. Hún hafði röð og reglu á öllum hlutum og ber fallega heimilið þess merki, enda hjónin miklir fagurkerar. Margt hef ég lært af Önnu og eru margar upp- skriftirnar nefndar í höfuðið á henni. Anna var mjög trygg við móður mína og vitjaði hennar oft. Við systkinin þökkum Önnu fyrir alla tryggðina, sem hún sýndi móður okkar alla tíð. Anna vann á Sólvangi í 25 ár við umönnunarstörf, var hún mikils metin við störf sín þar. Hún gekk alltaf til vinnu. Það var eitt af mörgu, sem hún hafði að leiðarljósi, að hugsa vel um sál og líkama. Reglulegir göngu- túrar, jóga, sund og gufubað var lífs- munstur, sem ekki var brugðið út af. Hún var hreinlega upptekin. Mikill er missir systranna Ingu og Röggu. Þær hafa alla tíð verið mjög sam- heldnar og miklar vinkonur. Um leið og ég þakka þér sam- fylgdina, elsku Anna mín, sendi ég kærar kveðjur og þakklæti frá fjöl- skyldu minni, einnig frá bróður mín- um Kristjáni og fjölskyldu. Megi Guð styrkja Egil, börn og fjölskyldur þeirra. Hvíl þú í friði, elsku vinkona. Birna Loftsdóttir. Fyrir 34 árum stofnuðu konurnar í St. Georgsgildinu í Hafnarfirði saumaklúbb sem hefur starfað af miklum krafti síðan, bæði til gagns og gamans, nýir félagar bæst við og aðrir horfið eins og gengur. Í annað sinn á þessu hausti kom skarð í hópinn okkar þegar hún Anna Sigurðardóttir vinkona okkar og skátasystir lést hinn 12. desem- ber sl. eftir erfið veikindi sem hún tókst á við af kjarki og æðruleysi, studd af sinni stóru góðu fjölskyldu. Anna var góður félagi, glaðleg og fús til starfa og oft glögg að finna ráð sem dugðu ef á þurfti að halda. Við vorum talsvert margar í þessum hópi og höfðum oft talað um að gam- an væri nú að fara saman í alvöru ferðalag og gista á góðum stað og í haust í byrjun september fórum við svo 23 saman í þetta fyrirhugaða ferðalag, fengum hið besta veður og nutum þess að stoppa og skoða okk- ur um á leiðinni. Við gistum á Hótel Heklu og eftir kvöldverðinn fengum við afnot af litlum notalegum sal þar sem við vorum með okkar eigin kvöldvöku og höfðum allar mikla ánægju af. Á heimleiðinni daginn eftir skoðuðum við ýmislegt, meðal annars sérstaka rósaræktarstöð og fórum því allar heim með yndislegar rósir í farangr- inum. Já, hún er eftirminnileg þessi ferð og við eigum eftir að muna hana lengi og fagna því að hafa farið hana. Nú eru tvær af þessum hópi „farnar heim“. Við söknum þeirra en gleðjumst við minningarnar um þær. Elsku Egill og fjölskylda, ykkar missir er mikill. Við biðjum þess að allar góðu minningarnar um hana Önnu, brosmilda og glaða sem henni var svo eiginlegt, verði ykkur hugg- un í harmi og gleðji ykkur. Við fé- lagar hennar kveðjum hana með virðingu og þökkum fyrir liðna tíð. Saumaklúbburinn. Elsku Anna. Nú er komið að kveðjustund, stund sem er svo sár og endanleg. Þú háðir þína baráttu við hinn illvíga sjúkdóm á sama hátt og þú lifðir lífi þínu, af æðruleysi og með mikilli reisn. Það er sárt til þess að hugsa að heyra ekki lengur hlát- ur þinn eða þín skemmtilegu og hnyttnu tilsvör sem aldrei vöfðust fyrir þér. Á svona stundu er ómet- anlegt að eiga góðar minningar að ylja sér við. Það hefur verið ómet- anlegt og forréttindi að fá að alast upp í návist þinni og deila með þér og fjölskyldu þinni gleði og sorg. Minningabrotin eru mörg, hvort heldur það er dvöl með ykkur í sum- arbústað sem barn, fjölskylduferða- lög, kaffibolli á Þrastó eða samvera í sólinni á Spáni. Sú minning sem er skærust og ég þakka Guði fyrir að eiga er „stelpu“ferðin okkar fjög- urra til Ítalíu í vor. Í þeirri ferð var mikið hlegið, talað og spilað á spil – ekki alveg á hreinu hvaða spil var í gangi hverju sinni en það var auka- atriði, við nutum hverrar mínútu sem við áttum – við hefðum bara átt að gera þetta fyrr. Elsku Anna mín, ég bið góðan Guð að halda utan um Eila þinn, börnin þín, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn og veita þeim styrk á þessari erfiðu stundu. Hvíl þú í friði og takk fyrir að vera besta ská-mamma sem hægt er að hugsa sér. Sigríður V. Nú kveðjum við hana Önnu okkar. Við systurnar höfum ávallt verið nánar og miklar vinkonur. Við eig- um eftir að sakna Önnu mjög mikið en við erum þakklátar fyrir að hafa átt hana að. Elsku Anna systir, guð geymi þig og gefi Agli, börnum ykkar og fjöl- skyldu styrk á þessari stundu. Með klökkum hug á kveðju stund ég kyssi minnig þína. Þú bauðst mér varma vinar mund, það vermdi sálu mína. Í ættarhóp er höggvið skarð, því hrynja tár um vanga. Að kveðja mæta móður varð svo mörgum erfið ganga, og vinafjöld og frænda lið þér fylgja og sakna því langa tryggð um lífsins svið þú lést af hendi rakna. (Ingibj. Sumarliðad. frá Valshamri.) Systrakveðja. Ingibjörg og Ragnheiður Sigurðardætur. Anna Sigurðardóttir Strange ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, JÓN NORÐMANN, Barðaströnd 37, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Neskirkju fimmtudaginn 21. desember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabba- meinsfélag Íslands. Oddbjörg Jóhannsdóttir Norðmann, Sigríður Norðmann, Óskar Norðmann, Elín Norðmann, Börkur Hrafnsson, Snædís, Tinna, Jón Hrafn og Óskar Árni. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, BERGÞÓRA VÍGLUNDSDÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn 10. desember, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 19. desember kl. 11.00. Sólveig Þórisdóttir, Jan Arneberg, Snorri Þórisson, Anna Snædís Sigmarsdóttir, Edda Jansdóttir Arneberg, Egill Jansson Arneberg, Þóra Eir Jansdóttir Arneberg, Anna Sólveig Snorradóttir, Rebekka Flink Arneberg. Við kynntumst Magga og Sellu fyrir tæpum 10 ár- um þegar við hjónin hófum bygg- ingu á sumarbústað okkar. Maggi og Sella höfðu þá nýlokið byggingu á Sesselja Björg Helgadóttir ✝ Sesselja BjörgHelgadóttir fæddist á Hjallhóli á Borgarfirði eystri 18. júní 1944. Hún lést á heimili sínu, Vesturvangi 38 í Hafnarfirði, hinn 13. desember síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði 18. des- ember. sumarbústað sínum. Strax við fyrstu kynni sáum við hversu sam- hent þau hjónin voru. Einu sinni þegar við komum í heimsókn, sat Sella við að prjóna sokka, og sögðum við þá að Fjóla Ósk ætti ekki ömmu sem gæti prjónað á hana. Sella sagði þá að hún skyldi vera „Amma á ská“ og stóð hún svo sannar- lega við það. Um jólin kom alltaf pakki merktur frá „Ömmu á ská“. Þar sem það þróaðist svo að við fórum að safna beljum í sumarbústaðinn, kom Sella margar ferðir færandi hendi með beljur sem bæði hún og Maggi höfðu keypt innan- og utanlands. Þegar Sella fór svo einnig að safna í búið sitt, sem var blandað bú, gáfum við henni einnig dýr í búið alls staðar að. Þegar Sella greindist með ill- kynja sjúkdóm í vor stóð hún sig eins og hetja með Magga sinn sér við hlið. Í síðustu ferðinni sinni austur í bústað, þá orðin sárlasin, dró Sella upp pakka sem hún vildi endilega færa okkur. Þannig er Sellu rétt lýst, alltaf að hugsa um aðra en sjálfa sig. Margt skemmtilegt var brallað í sveitinni og munum við minnast þess um ókomna tíð. Þetta er búinn að vera yndislegur tími, að vera sam- ferða þér og Magga. Elsku Sella okkar, hafðu hjartans þökk fyrir að leyfa okkur að kynnast jafn yndis- legri manneskju og þú varst. Einnig sendum við þér Maggi minn og allri fjölskyldunni þinni innilegar samúð- arkveðjur. Hafðu þökk fyrir allt. Fjóla, Guðmundur og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.