Morgunblaðið - 19.12.2006, Page 43

Morgunblaðið - 19.12.2006, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2006 43 ✝ Guðlaug Klem-enzdóttir fædd- ist 5. janúar 1918. Hún andaðist á Hjúkrunarheimilinu Víðinesi aðfaranótt 9. desember síðast- liðins. Foreldrar hennar voru Auð- björg Jónsdóttir húsfreyja, f. 5.5. 1888, d. 14.12. 1977, og Klemenz Jónsson bóndi, skólastjóri og oddviti Vestri- Skógtjörn, f. 1.4. 1876, d. 16.8. 1955. Systkini Guð- laugar eru: Jón sjómaður í Reykja- vík, f. 31.12. 1907, d. 23.6. 1936, Eggert skipstjóri á Skógtjörn, f. 19.9. 1909, d. 24.5. 1987, Guðjón læknir í Keflavíkurhéraði, f. 4.1. 1911, d. 26.8. 1987, Guðný Þor- björg húsfreyja á Hofi á Álftanesi, f. 8.2. 1912, d. 23.9. 1991, Svein- björn vélstjóri á Sólbarði á Álfta- nesi, f. 1.10. 1913, d. 14.9. 1978, Sigurfinnur bóndi, f. 9.10. 1914, d. 22.1. 1998, Gunnar stýrimaður í Bjarni Jóhannsson, f. 4.3. 1971, börn þeirra eru: Sophie Hanna Goring, f. 11.7. 2000, Svanhvít Líf, f. 17.2. 2005, 2) Jón Gunnar, f. 9.8. 1949, d. 10.2. 1960, 3) Ólafur Rún- ar Gunnarsson, f. 20.11. 1953, maki Steingerður Steingrímsdóttir, f. 16.9. 1955, börn: a) Guðrún Lauga Ólafsdóttir, f. 27.6. 1976, sambýlis- maður Guðmundur Hannesson, f. 9.8. 1973, barn þeirra: Bjartur Gabríel, f. 13.4. 2002, b) Ásta Birna Ólafsdóttir, f. 29.7. 1979, maki Örn Eyjólfsson, f. 4.5. 1974, börn þeirra eru: Arnór Freyr, f. 23.4. 1999, Aníta Ósk, f. 18.12. 2003, c) Ingi- björg, f. 22.2. 1984, d) Gerður Rún, f. 10.1. 1989, sambýlismaður Matt- hías Örn Friðriksson f. 9.9. 1986, e) Ingunn Vilhelmína, f. 26.7. 1991, 4) Guðlaugur Gunnarsson, sambýlis- kona Guðný Rósa Magnúsdóttir, f. 27.12. 1963, börn: a) Edda Eir, f. 12.9. 1994, Jón Gunnar, f. 8.12. 1995, börn Guðnýjar: Jóna Björg Ólafsdóttir, f. 9.5. 1983, sambýlis- maður Birgir Kristján Guðmunds- son f. 31.3. 1978, börn þeirra eru: Hafdís Björg, f. 12.9. 2003, Sandra Ósk, f. 1.1. 2005, Arna Rut Ragn- arsdóttir, f. 12.9. 1987, sambýlis- maður Davíð Freyr Kristjánsson, f. 11.1. 1982. Útför Guðlaugar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Reykjavík, f. 28.1. 1916, d. 2.12. 1941, Sveinn Helgi bóndi á Tjarnarbakka á Álftanesi, f. 29.11. 1921, og Sigurður múrari á Búðarflöt á Álftanesi, f. 31.8. 1926. Guðlaug giftist Gunnari Kristjáns- syni tækniteiknara, f. 14.7. 1913, d. 21.2. 1986. Foreldrar hans voru Kristján Jóhannesson skó- smiður, f. 4.2. 1878, d. 18.12. 1967, og Ingibjörg Jóns- dóttir húsfreyja, f. 2.12. 1885, d. 8.7. 1955. Börn Guðlaugar og Gunnars eru: 1) Kristján, f. 11.12. 1947, maki Áslaug Jóhanna Guð- jónsdóttir, f. 10.6. 1950, börn: a) Elsa Dögg Gunnarsdóttir, f. 13.3. 1969, maki Jósef Gunnar Sigþórs- son, f. 5.5. 1964, börn þeirra eru: Guðjón Þór, f. 18.6. 2000, Sólrún Dögg, f. 12.4. 2003, b) Guðlaug Helga, f. 10.7. 1974, c) Sæunn Harpa, f. 4.6. 1977, sambýlismaður Ótrúlega þótti okkur systrum skemmtilegt að ferðast til Reykja- víkur. Við lágum andvaka langt fram eftir nóttu því spenningurinn var svo mikill. Loks, þegar á áfangastað var komið beið þarna kunnuleg kona með bros á vör og tók á móti okkur, opnum örmum. Allt mátti nú gera heima hjá ömmu, hún skammaði mann sárasjaldan, þá kannski mest fyrir að káma út píanóið sem við vor- um duglegar að glamra á. En á gang- inum máttum við leika allskonar list- ir og hlaupa okkur til skemmtunar. Svo var alltaf til eitthvað gott að borða heima hjá ömmu, út úr því húsi fór maður aldrei svangur. Kókó- maltið, kókópuffsið, og að ekki sé nú talað um sjálfan kandísinn sem mað- ur var alltaf að stelast í. Eftir að þú fluttir í Víðines var öðruvísi að koma til Reykjavíkur. Enginn Bjössi til að príla á eða stór garður til að leika sér í. Það var samt alltaf sama góða amman okkar sem tók á móti okkur með fallega brosinu sínu. En við héldum góðu sambandi í gegnum bréfaskriftir sem Gerður var dugleg að pára niður og segja hvað við vær- um að gera af okkur hérna fyrir austan. Amma var dugleg að spyrja okkur hvernig okkur gengi í skólan- um og svo var hún alltaf að spyrja Ingunni hvort hún færi nú ekki að birtast í Idol Stjörnuleitinni. Í okkar sterkustu minningum um ömmu einkennir hana mikið bros og gleði í kringum hana, enda ein af bestu ömmum þar á ferð. Við kveðjum þig, elsku amma, og hittumst þegar okkar tími kemur. Gerður Rún og Ingunn Vilhelmína. Elsku amma, ein af fyrstu minn- ingunum mínum um þig er þegar þú hossaðir mér á hné þér þegar ég var lítil og raulaðir fyrir mig á þinn ein- staka hátt Stígur hún við stokkinn, stuttan á hún sokkinn, ljósan ber hún lokkinn litli telpuhnokkinn. (Jónas Hallgrímsson.) Hjá þér var alltaf hlýju og öryggi að finna. Ég naut þeirra forréttinda að fá að búa með þér síðustu sex árin sem þú bjóst heima í Langagerðinu. Þú hugsaðir ofsalega vel um mig og var mikið umhugað um að ég fengi holl- an og góðan mat að borða og það færi vel um mig hjá þér. Skarst oft niður fyrir mig epli, gulrætur eða rófur og passaðir alltaf að ég fengi nóg af grænmeti með öllum mat. Þú varst líka alveg til í að læra að gera mat sem mér fannst góður eins og ýmsa pastarétti, pizzur og fleira sem þú hafðir sjaldan eða aldrei eldað áð- ur en ég kom til þín. Ég man líka hvað þér fannst gaman þegar ég kom og horfði með þér á uppáhalds þátt- inn þinn Guiding light eða þegar við keyptum okkur smá nammi um helg- ar og horfðum á eitthvað skemmti- legt í sjónvarpinu saman. Eftir að þú fluttir í Víðines þá sáumst við því miður ekki eins oft, þó ég reyndi að koma til þín eins oft og ég gat. Fyrir jólin kom ég alltaf til þín með pip- arkökur og öl eins og þú kallaðir malt og appelsín og við gerðum jóla- kortin þín saman. Það voru mjög góðar stundir hjá okkur. Síðasta árið hjá þér er búið að vera mjög erfitt. Þó ég sakni þín mikið þá veit ég að þér líður vel núna og þú ert komin á góðan stað. Þín Guðrún Lauga. Ég grét í drauma dúrum, í draumi þú varst mér hjá. Þá hrökk ég upp og aldrei mér aftur þornar brá. Guð blessi þig, elsku amma mín. Þinn Jón Gunnar. Endurminningin merlar æ í mánasilfri hvað sem var, yfir hið liðna bregður blæ blikandi fjarlægðar, gleðina jafnar, sefar sorg; svipþyrping sækir þing í sinnis hljóðri borg. Lágt þótt þeir hafi, heyri eg allt sem hvísla þeir í eyra mér; segja þeir: „Verða svipur skalt þú sjálfur líkt og vér. Kvöldroði lífsins kenni þér að kemur skjótt en svala nótt og svefn í skauti ber.“ Í æsku fram á lífsins leið vér lítum, en ei annað neitt, vonandi að breiða gatan greið grænum sé blómum skreytt; en – aftur horfir ellin grá. Sólarlag liðinn dag laugar í gulli þá. (Grímur Thomsen.) Ég sendi stjúpa mínum, Kristjáni, bræðrum hans, tengdadætrum Laugu, barnabörnunum og barna- barnabörnum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Megi minning Guðlaugar Klem- enzdóttur lifa. Elsa Dögg Gunnarsdóttir. Með þessum orðum langar mig að minnast ömmu minnar Guðlaugar Klemenzdóttur. Amma eða amma í Langagerði, var mér alltaf einstak- lega kær og þær eru ófáar góðu minningarnar sem nú fylla hugann. Það var mikið tilhlökkunarefni að heimsækja ömmu til Reykjavíkur. Eftir margra klukkutíma akstur frá Vopnafirði magnaðist spennan sem náði hámarki á bílastæðinu í Langa- gerðinu. Amma var þá ýmist komin út í glugga eða mætti okkur í dyra- gættinni með opinn faðminn. Ég gleymi aldrei brosinu og gleðinni hjá ömmu þegar við komum og það fór aldrei á milli mála hvað henni þótti gaman að sjá okkur. Amma átti fallegt heimili í Langa- gerðinu og þar var alltaf gott að vera. Alltaf var nóg að gera, ýmist inni eða úti í garði. Amma átti marga fallega hluti sem við lékum okkur gjarnan með og síðan var glamrað á píanóið daginn út og inn, þá var nú amma heppin að vera farin að heyra illa. Á sumrin tjölduðum við með teppum og dýnum úti á veröndinni og amma færði okkur hressingu. Það var klifrað í trjánum og uppi á hon- um Bjössa, ísbirninum sem afi bjó til. Ég man þegar við sátum við sjón- varpið á kvöldin og amma var búin að útbúa kvöldkaffi sem borið var fram á bakka og sett á þar til gerð lítil borð í gömlu stofunni. Það var svo sniðugt að horfa á textaðar myndir með ömmu því hún hafði þann vana að þylja textann upp í hálfum hljóðum, sem kom sér vel þegar ég var ekki farin að lesa text- ann sjálf. Ég minnist búðarferðanna með ömmu, við röltum ýmist í Kron eða Hagkaup í Skeifunni. Það var alltaf gaman að versla með ömmu. Það var ekki bara það að úrvalið væri betra og meira spennandi en ég þekkti frá Vopnafirði, heldur var amma sér- staklega örlát og keypti alltaf eitt- hvað gott og spennandi. Það var alltaf svo gott að tala við ömmu og hún var vel að sér um margt. Þegar ég var orðin fullorðin gátum við spjallað um allt milli him- ins og jarðar, gleði og sorgir. Amma samgladdist með mér á stórum stundum í lífinu og tók það nærri sér ef á móti blés. Mér hefur alltaf þótt hún amma stórmerkileg manneskja. Hún var hógvær, stundum skemmtilega sér- vitur og vildi ekki láta mikið á sér bera. Ég dáðist oft að myndum af ömmu minni þegar hún var ung því mér fannst hún svo falleg. Amma var nú fljót að eyða því og sagði að hún hefði verið ósköp ófríð. Ég óskaði mér þess samt alltaf að líkjast henni. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, því veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Elsku amma, með þessu orðum kveð ég þig, minningin um þig mun alltaf lifa með mér. Ásta Birna Ólafsdóttir. Guðlaug Klemenzdóttir Guðmundur Jóhannsson f. 10. 6. 1932 d. 8. 3. 1989 Minning þín lifir Hvíl í friði LEGSTEINAR SteinsmiðjanMOSAIK Hamarshöfða 4 – sími 587 1960 www.mosaik.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, JÓHANNA SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudag- inn 20. desember kl. 11.00. Fyrir hönd aðstandenda, Stefán R. Jónsson, Anna Þ. Bjarnadóttir, Ragnhildur Jónsdóttir, Lárus Kjartansson, Anna Björk Jónsdóttir, Ólafur Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BJÖRG HÓLMFRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, áður Safamýri 11, er lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð mánudaginn 4. desember sl., verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 21. desember kl. 15.00. Ólafur Pálsson, Sigríður Ásthildur Pálsdóttir, Leifur Benediktsson, Lovísa Leifsdóttir, Ársæll K. Ársælsson, María Leifsdóttir, Sigurður Guðmarsson, Fríða Björg Leifsdóttir, Viktor Már Sigurðsson. ✝ Elskuleg eiginkona mín, RAGNHILDUR INGVARSDÓTTIR, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, laugar- daginn 16. desember. Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 22. desember kl. 11.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Hafsteinn Þorvaldsson. ✝ Ástkær sambýlismaður minn, faðir og tengdafaðir, ALMAR GUÐLAUGUR JÓNSSON, dvalarheimilinu Dalbæ, Dalvík, lést fimmtudaginn 14. desember. Jarðsett verður frá Dalvíkurkirkju miðvikudaginn 20. desember kl. 13.30. Valrós Árnadóttir, Alfreð Almarsson, Helga Haraldsdóttir, Halldór Almarsson, Helena Jónasdóttir, Sigfús Almarsson, Sigrún Sigurðardóttir, Pálmi Almarsson, Vilborg Sverrisdóttir, Sveindís Almarsdóttir, Kjartan Snorrason, Vignir Almarsson, Inga Yngvadóttir, Dagbjört Almarsdóttir, Gunnar Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.