Morgunblaðið - 19.12.2006, Side 52

Morgunblaðið - 19.12.2006, Side 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn HVERNIG VARÐST ÞÚ MINNISLAUS ELLEN? HÚN MAN ÞAÐ EKKI? ÉG HEF HEYRT AÐ ÞAÐ FYLGI HEIMSKI FLUGDREKI! ÉG KREM ÞIG! ÉG TÆTI ÞIG! ÉG SPARKA ÞÉR Í BURTU!! HANN FLÝGUR! EKKI SKÝ Á LOFTI. SJÁÐU ALLAR STJÖRNURNAR! JÁ, VIÐ ERUM BARA LITLIR DEPLAR Á SMÁUM HNETTI SEM ER UMVAFINN AF MYRKRI DRÍFUM OKKUR INN OG KVEIKJUM ÖLL LJÓSIN HEIMA HVERT ERT ÞÚ AÐ FARA? ÉG ER AÐ FARA TIL ENGLANDS AÐ RUPLA OG RÆNA!! GÓÐA FERÐ! TAKK! HONUM ÞYKIR SVO GAMAN AÐ FERÐAST HUNDARNIR Í HVERFINU VORU AÐ BJÓÐA OKKUR Í BRÆÐRALAG FYRIR HUNDA OG HVAÐ ÆTLIÐ ÞIÐ AÐ GERA Í ÞESSU FÉLAGI? ELTA Á YKKUR SKOTTIÐ? NEI, VIÐ ÆTLUM AÐ BORÐA KEX! KEX? ÉG VILDIFREKAR FÁ AÐ NAGA BEIN, EN ÞEIR LOFUÐU AÐ HUNDAKEXIÐ VÆRI Í LAGINU EINS OG BEIN AAAAAAH!! DAGURINN HEFUR EKKI VERIÐ GÓÐUR HJÁ J. JONAH... SÍÐAN AÐ PARKER FÓR ÞÁ HÖFUM VIÐ EKKI FENGIÐ EINA GÓÐA MYND Í BLAÐIÐ VERST AÐ ÞÚ GAFST HONUM EKKI ÞAÐ SEM HANN ÁTTI SKILIÐ ÞÚ FÆRÐ TÆKIFÆRI TIL ÞESS AÐ BÆTA MÉR ÞAÐ PARKER! EINS OG GJÖF FRÁ HIMNUM Frá árinu 2000 hefur Land-spítali –háskólasjúkrahúsboðið ófaglærðum erlend-um starfsmönnum upp á starfstengd íslenskunámskeið. Námskeiðin hafa gefið mjög góða raun að sögn Þórleifar Drífu Jóns- dóttur, deildarstjóra deildar starfsþróunar og fræðslu á skrif- stofu starfsmannamála LSH: „Upp- haflega var um að ræða til- raunaverkefni í samstarfi við félagsmálaráðuneyti og mennta- málaráðuneyti. Það kom í ljós að nám af þessu tagi var mjög þarft og mikil ánægja meðal starfsfólks með námskeiðin,“ segir Þórleif Drífa, en námskeiðin fara fram á launuðum vinnutíma og er námskostnaður greiddur af menntamálaráðuneyti og stéttarfélögum. Kennt er í þremur hópum: einum fyrir byrjendur og tveimur fyrir lengra komna. Hver hópur sækir námskeið í 60 kennslustundir í senn, tvo daga í viku, tvo klukkutíma í hvert skipti. „Námstíma er hagað þannig að falli vel að starfsemi spít- alans, og þannig hentar ræst- ingafólkinu iðulega betur að sitja námskeið að morgni til, frá 9 til 11, á meðan aðrir starfsmenn eiga auð- veldara með að sækja námskeið í lok vinnudags,“ segir Þórleif Drífa. „Eins og við er að búast er mæting mjög góð og góður andi í tímum.“ Námið er starfstengt þannig að lögð er rík áhersla á málþekkingu sem nýtist í vinnuumhverfi starfs- manna á Landspítalanum til við- bótar við almennt samræðumál. Í dag starfa rösklega 250 erlendir starfsmenn frá 39 þjóðlöndum við LSH: „Þessi tala segir þó ekki alla söguna um þann fjölda sem hefur takmarkað vald á íslensku því fjöldi starfsmanna hefur íslenskan rík- isborgararétt þótt þeir eigi erfitt með að nota málið,“ segir Þórleif Drífa og tekur undir að Landspítali – háskólasjúkrahús standi sann- arlega undir nafni sem fjölþjóðlegur vinnustaður: „Þó að tungumálið geti stundum verið hindrun kemur óneit- anlega fjölskrúðugra yfirbragð á mannlífið á spítalanum með erlendu starfsmönnunum. Hins vegar er ár- íðandi að veita erlendum starfs- mönnum sem mestan og bestan stuðning við að læra íslensku,“ segir Þórleif. „Því stærsti hlutinn af skjól- stæðingum spítalans er íslenskur og rétt að þeim starfsmönnum sem ekki tala málið sé gert kleift að bæta þekkingu sína í íslensku. Bæði verða einstaklingarnir öruggari í þeim störfum sem þeir fást við ef þeir geta tjáð sig á íslensku, öll samskipti batna og við fyrirbyggjum hættu á óhöppum eða misskilningi sem orðið getur vegna samskiptaörðugleika,“ segir Þórleif Drífa. „Hins vegar er þetta hópur fólks sem oft, eftir lang- an og erfiðan vinnudag, hefur ekki tíma eða þrek til að stunda nám auk- reitis við fulla vinnu, eða á hreinlega erfitt með að standa straum af námskostnaði. Með námskeiðunum höfum við komið til móts við þennan hóp og er óhætt að fullyrða að ár- angurinn hefur skilað sér í ham- ingjusamara starfsfólki og betri þjónustu.“ Menntun | Landspítalinn býður starfsmönn- um upp á starfstengd íslenskunámskeið Þarft nám og árangursríkt  Þórleif Drífa Jónsdóttir fædd- ist í Reykjavík 1951. Hún lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Ís- lands 1972, námi í handlistum frá framhaldsdeild KHÍ 1983, námi í uppeldis- og kennslufræði frá KHÍ 1984, stundaði nám við MHÍ 1994– 1995 og lauk árið 2001 diplóm- anámi í uppeldis- og mennt- unarfræði með áherslu á stjórnun. Þórleif Drífa var kennari um langt skeið, starfaði á Fræðsluskrifstofu Reykjaness og síðar Skólaskrif- stofu Hafnarfjarðar. Hún hóf störf hjá LSH árið 2000. Þórleif Drífa er gift Finnboga B. Ólasyni tækni- manni og eiga þau þrjá syni. Kvikmyndin Jingle All The Wayþykir versta jólamynd allra tíma, en í henni fór vöðvatröllið og ríkisstjórinn Arnold Schwarzeneg- ger með aðalhlutverkið. Schwarze- negger leikur þar föður í leit að jóla- gjöf handa syni sínum en leitin reynist honum hreinasta martröð. Könnun um hvaða jólamynd væri verst fór fram á síðu fyrirtækisins Pearl and Dean sem sér um auglýs- ingar í kvikmyndahúsum og tóku 3.000 kvikmyndaáhugamenn þátt í henni. Næstversta myndin þótti B- myndin Santa Conquers The Marti- ans, eða Jóli sigrar Marsbúana. Þar er jólasveininum rænt og hann flutt- ur til Mars þar sem hann hittir ung- viði plánetunnar. Leikarinn Tim Al- len afrekaði það að hafa leikið í tveimur kvikmyndum á lista yfir þær tíu verstu, Christmas With The Kranks og The Santa Clause. List- inn er á þessa leið: 1. Jingle All The Way (1996) 2. Santa Conquers The Martians (1964) 3. Christmas With The Kranks (2004) 4. National Lampoon’s Christmas Vacation (1987) 5. Santa Claus: The Movie (1985) 6. Miracle on 34th Street (1994) 7. Home Alone (1990) 8. Bad Santa (2003) 9. The Santa Clause (1994) 10. The Family Man (2000) Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.