Morgunblaðið - 26.01.2007, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
föstudagur 26. 1. 2007
bílar mbl.isbílar
Volvo C30 frumsýndur um helgina » 8
TÍUNDI ÆTTLIÐURINN
NÝR COROLLA-FJÖLSKYLDUMEÐLIMUR
REYNSLUEKINN Í BARCELONA >> 2
Einfalt og þægilegt
- Bílafjármögnun
Lýsingar
Einfalt ilegt
- Bílafj r nun
L r
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
s: 540 1500
www.lysing.is
Tengdu iPodinn í bílnum
iPod-tengi frá DENSION fyrir flestar gerðir
hljómflutningstækja í bílum.
N
ýlega luku starfsmenn Arctic Trucks
við að smíða 38" breytingu fyrir
Nissan Navara pickup-jeppann, sem
kynntur var á síðasta ári, og verður
afraksturinn til sýnis nú um helgina í
húsakynnum Arctic Trucks á Kletthálsi 3. Nissan
Navara hefur verið afar vinsæll bíll alveg frá kynn-
ingu og seldust um 220 bílar á fyrsta söluárinu. Nav-
ara pickup er fáanlegur með 5 þrepa sjálfskiptingu
en í nútíma jeppa af þessu tagi er það nánast orðið
staðalbúnaður. Þeir sem eru að ferðast um fjöll og
firnindi á 38" bílum kjósa nú orðið flestir sjálfskipta
bíla ef þess gefst kostur. Þessi fyrsti Navara pickup
sem Arctic Trucks breytir er einmitt sjálfskiptur.
Aksturseiginleikar
Vélin í þessum 38" bíl snýst liðlega 2000 snúninga
á mínútu á 90 km hraða og verður það að teljast
mjög þægilegur vinnsluhraði enda er hljóð frá vél í
algjöru lágmarki á þessum algenga ferðahraða.
Upptak er gott og er þá sérstaklega eftirtekt-
arvert hvernig sjálfskiptingin virðist
alltaf fá tækifæri til að skipta sér á
nokkurn veginn réttu augnabliki
miðað við snúning vélar þannig
að ökumaður finnur hvorki
fyrir að snúningur sé orðinn
of mikill né of lítill. Þetta
gerir að verkum að skipt-
ingar verða mjög áreynslu-
litlar og bíllinn líður átaks-
lítið á milli gíra á þessum
stóru hjólum. Það sama er
uppi á teningnum þegar
búið er að hleypa úr og
keyrt er í lága drifinu á
snjó, sjálfskiptingin virðist
alveg taka stór dekk og
lægri drif í fullkomna sátt.
Tæknileg útfærsla
Að öðru ólöstuðu virðist framdrifið hafa verið erf-
iðast viðfangsefnið að leysa en tæknimenn Arctic
Trucks nutu dyggrar aðstoðar bræðranna flinku á
Ljónsstöðum í Árnessýslu. Upprunalega fram-
drifið var ekki talið nægjanlega sterkt fyrir 38"
dekk og því var gripið til þess ráðs að skipta fram-
drifinu alveg út fyrir nýtt drif sem er af gerðinni
Dana44 en afturdrifið er einmitt af þeirri gerð
líka. Þessi lausn ekki sú einfaldasta en hún er
örugglega sú sterkasta og það sem meira er –
nýja framdrifið kemur alltaf með takkastýrðum
100% driflás og því eru 100% læsingar að framan
og aftan innfaldar í verðinu á þessari breytingu.
Drifhlutföllin eru 1:4,56.
Uppfærður Þeir sem ferðast
um fjöll og fyrnindi kjósa nú
orðið flestir sjálfskipta bíla ef
þess gefst kostur.
Arctic Trucks kynnir
breyttan Nissan Navara
Í þessum Nissan Navara SE er staðalbúnaður
nokkuð góður. Vélin er 174 hestöfl og 403Nm,
Loftræsting með sjálfstæðu hitakerfi fyrir öku-
mann og farþega, rafstýrðir og hitaðir úti-
speglar, læsing á afturhlera, NATS-þjófa-
varnakerfi og rafdrifnar rúður ásamt
fjarstýrðum hurðalæsingum stigbrettum og ál-
felgum. Innréttingin er hefðbundin með gráu
og svörtu plussáklæði.
Staðalbúnaður
föstudagur 26. 1. 2007
íþróttir mbl.is
íþróttir
SERENA STEFNIR Á GULL
SÉRFRÆÐINGAR SPÁÐU HENNI EKKI GÓÐU GENGI -
TÖLDU HANA Í SLÆMU LÍK AMLEGU ÁSTANDI >> 8
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Eftir Ívar Benediktsson í Halle
ben@ mbl.is
„Þetta var viðureign tveggja góðra
liða. Við erum með betra lið og þess
vegna er enn verra að sætta sig við
þessi úrslit,“ sagði Róbert.
Með sigri í gær hefði íslenska
landsliðið tryggt sér sæti í 8-liða úr-
slitum HM en þess í stað er það jafnt
Pólverjum og Þjóðverjum með 4 stig
í efsta sæti.
„Undir lokin misstum við Pólverj-
ana út úr höndunum á mjög klaufa-
lega hátt, þegar það varð röng skipt-
ing hjá okkur, með þeim afleiðingum
að við verðum einum færri. Þá töp-
uðum við Pólverjunum endanlega
framúr okkur,“ sagði Róbert sem
var afar vonsvikinn með úrslitin eins
og allt íslenska liðið, því möguleikinn
á sigri var svo sannarlega fyrir
hendi allt fram á síðustu mínútu.
Róbert segir að brestir hafi komið
í sóknarleikinn á síðustu 20 mínút-
unum. Menn hafi ekki vandað skot
sín og einnig tekið rangar ákvarð-
anir þegar ákveðið var að skjóta á
markið. Þá hafi varnarleikurinn
brugðist.
„Við vorum ekki nógu duglegir við
að ganga út í skyttur pólska liðsins
og þeir fengu fyrir vikið alltof mikið
af opnum skotfærum,“ sagði Róbert
ennfremur.
„Þetta er hundfúl niðurstaða, það
veit ég, þótt enn geti ég ekki gefið
fullkomnar skýringar á því hvað fór
úrskeiðis, enda leiknum nýlokið.
Þrátt fyrir þetta erum við alls ekki
úr leik, eigum enn góðan möguleika
á átta liða úrslitum sem við vorum
staðráðnir í að tryggja okkur að
þessu sinni.“
Næsti leikur Íslands verður á
laugardag, á móti Slóveníu, og þá
verður að nást sigur til þess að ís-
lenska liðið komist í 8-liða úrslit.
„Það lánaðist ekki og núna verð-
um við að nýta næsta möguleika sem
gefst,“ sagði Róbert Gunnarsson.
Íslendingar misstu vænlega stöðu niður tap gegn Pólverjum á heimsmeistaramótinu í handknattleik
„Hundfúl niðurstaða“
Reuters
Svekktur Róbert Gunnarsson, línumaðurinn sterki, sem á hér í höggi við Pólverjann Gregorz Tkaczyk, var ekki sáttur við tapið fyrir Póllandi.
„ÚRSLITIN eru gríðarleg von-
brigði,“ sagði Róbert Gunnarsson,
einn íslensku landsliðsmannanna í
handknattleik, eftir tap íslenska
landsliðsins fyrir því pólska í milli-
riðlakeppni heimsmeistaramótsins
í handknattleik í Gary Weber
íþróttahöllinni í Halle í gærkvöldi,
33:35. „Við vorum klárlega komnir
í góða stöðu nokkrum sinnum í síð-
ari hálfleik, en þá tókst okkur ekki
að fylgja stöðunni eftir og hrein-
lega keyra yfir Pólverjana.“
AÐEINS sú þjóð sem verður heims-
meistari í handknattleik karla í
Þýskalandi tryggir sér keppnisrétt
á Ólympíuleikunum sem fram fara í
Peking í ágúst á næsta ári, en hing-
að til hafa allt að sjö efstu þjóðirnar
á næsta heimsmeistaramóti á und-
an Ólympíuleikum tryggt sér far-
seðil á leika. Þessi breyting er gerð
til þess, að sögn Alþjóðahandknatt-
leikssambandsins (IHF) vegna óska
sem komu frá Alþjóðaólymp-
íunefndinni. Af þessu leiðir að þær
þjóðir sem verða í öðru til sjöunda
sæti á HM í Þýskalandi fara í sér-
staka forkeppni fyrir Ólympíu-
leikana í Peking.
Til stendur að sú keppni fari
fram í lok maí 2008. Auk sex efstu
þjóðanna frá HM mæta þjóðir til
leiks í þessa forkeppni frá hinum
heimsálfunum.
HM 2009 í Króatíu
Næsta heimsmeistaramót karla í
handknattleik fer fram í Króatíu
frá 16. janúar til 1. febrúar 2009.
Hvaða Evrópuþjóðir taka þátt í
þeirri keppni kemur ekki í ljós fyrr
en að lokinni forkeppni sem haldin
verður aðra og þriðju helgi júní
2008, rétt eftir að forkeppni Ólymp-
íuleikanna verður lokið. Eina þjóð-
in fyrir utan gestgjafa Króata sem
vinnur sér keppnisrétt á HM 2009
er sú sem stendur uppi sem sig-
urvegari á HM í Þýskalandi. Ekki
er ljóst enn hvar HM 2011 verður
haldið og vel kann að fara svo að
HM verði ekki haldið fyrr en 2013.
HM gefur aðeins
eitt sæti á ÓL
55 erlendir keppendur taka þátt í sundmóti Ægis í Laugardal >> 6
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 28
Staksteinar 8 Umræðan 31
Veður 8 Minningar 32/40
Viðskipti 14 Brids 40
Úr verinu 15 Leikhús 46
Erlent 16/17 Myndasögur 48
Menning 18/19, 44/48 Dagbók 49/53
Höfuðborgin 20 Staður og stund 50
Akureyri 20 Víkverji 52
Austurland 21 Velvakandi 52
Landið 21 Bíó 50/53
Daglegt líf 22/27 Ljósvakamiðlar 54
* * *
Innlent
Hæstiréttur sýknaði í gær fjóra
sakborninga í Baugsmálinu svo-
nefnda af sex ákæruliðum sem stóðu
eftir af upphaflegri ákæru í málinu.
Staðfesti dómurinn þannig nið-
urstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur. Í
málinu voru systkinin Jón Ásgeir og
Kristín Jóhannesdóttir ákærð og
endurskoðendurnir Stefán Hilmar
Hilmarsson og Anna Þórðardóttir.
Ákæruatriðin lutu annars vegar að
meintum lögbrotum við gerð árs-
reikninga Baugs á árunum 1998–2001
og hins vegar við innflutning á tveim-
ur bílum til landsins á árunum 1999
og 2000. » Forsíða, 6, miðopna
Útflutningsskylda á lambakjöti
verður felld niður frá og með fram-
leiðsluárinu 2009 og framlög ríkisins
til sauðfjárræktar hækkuð um 300
milljónir á næsta ári, samkvæmt nýj-
um samningi ríkisins og bænda um
starfsskilyrði sauðfjárræktar, sem
undirritaður var í gær. » 4
Landssamtök landeigenda á Ís-
landi (LLÍ) voru stofnuð á fjölsóttum
fundi í Sunnusal Hótels Sögu í gær.
Aðstandendur fundarins segja að
hátt í 300 stofnfélagar hafi skráð sig í
samtökin, sem ætlað er að gæta hags-
muna landeigenda. Fundurinn mót-
mælti harðlega túlkun og fram-
kvæmd þjóðlendulaga af hálfu
ríkisins og sagði hana ganga gegn
þeim skilningi sem lagður var í til-
gang laganna við setningu þeirra,
innan þings sem utan. » 4
Erlent
Kínverjar hafa viðurkennt að þeir
hafi notað eldflaug til að eyða gervi-
hnetti fyrr í mánuðinum. Hefur þetta
valdið alþjóðlegri deilu um það hvort
stefna eigi að sáttmála er banni öll
geimvopn og setji reglur um hvað
megi gera til að stemma stigu við
aukningu rusls í geimnum.
Bandaríkjamenn hafa fram til þessa
verið andvígir öllum hömlum í þeim
efnum. » 16
Stjórnvöld í Georgíu hafa fang-
elsað rússneskan ríkisborgara og
þrjá innfædda Georgíumenn í
tengslum við tilraun til að selja hópi
íslamista auðgað úran, efni sem nota
má til að smíða kjarnorkusprengju.
Umræddur maður gekk í fyrra í
gildru sem Georgíumenn settu upp í
samstarfi við Bandaríkjamenn,
meintur kaupandi var starfsmaður
lögreglu en ekki íslamisti. » 16
Breska stjórnin hyggst á næst-
unni leggja fram frumvarp til laga um
rétt samkynhneigðra para til að ætt-
leiða börn. Kaþólska kirkjan og bisk-
upakirkjan vilja að kristnar ættleið-
ingarstofnanir geti fengið undanþágu
frá lögunum. » 16
Ákveðið hefur verið að efna til allsherjar-
atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar og trúnaðar-
ráðs VR fyrir árið 2007.
Framboðslistum skal skila á skrifstofu félagsins,
Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 1. hæð, eigi
síðar en kl. 12:00 föstudaginn 9. febrúar.
Kjörstjórnin
Framboðsfrestur
Virðing
Réttlæti
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK
S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Í RÝMINGARÁÆTLUN, sem
unnin hefur verið vegna hugsanlegs
stíflurofs Hálslóns Kárahnjúka-
virkjunar, er gert ráð fyrir að m.v.
150 þúsund rúmmetra flóð myndi
vatnið ná efstu bæjum á skilgreindu
áhættusvæði á minnst tveimur
klukkustundum, sem gefur um 90
mínútna langan viðbragðstíma.
Staða viðbragðs- og rýmingar-
áætlunar var efni opins borgara-
fundar, sem haldinn var í Brúarási í
Jökulsárhlíð í gærkvöldi, og sóttu
um 100 manns fundinn.
Á fundinum voru m.a. fulltrúar
frá almannavarnarnefnd Héraðs-
svæðis, almannavarnardeild ríkis-
lögreglustjóra og Landsvirkjun.
Lárus Bjarnason, sýslumaður á
Seyðisfirði, sagði á fundinum að
rýmingaráætlun væri þegar fyrir-
liggjandi, en almannavarnardeild
ríkislögreglustjóra hefði falið yfir-
völdum í héraði að vinna svokallaða
sérstaka viðbragðsáætlun, sem
rýmingaráætlun yrði hluti af. Yrði
henni væntanlega lokið fyrir vorið.
Þá færi fram æfing samkvæmt
henni eftir ákveðnu boðunarkerfi og
áætlunin yrði svo endurskoðuð í
kjölfarið.
„Búið er að skapa hér ástand og
nú vinnum við með ykkur íbúum að
því að finna út hvernig við getum
brugðist við hættuástandi,“ sagði
Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæjar-
stjóri á Fljótsdalshéraði. Hann
sagði að eftir sérstöku boðunarkerfi
á hættutíma ættu íbúar að gefa sig
fram í fjöldahjálparstöð í Grunn-
skólanum á Egilsstöðum til skrán-
ingar.
Fundarmenn gagnrýndu að að-
eins skyldi horft til Egilsstaða sem
fjöldahjálparstöðvar og bentu m.a.
á að ef Jökla yrði ófær þyrftu menn
að hafa aðgang að svæði Jökuldals-
megin. Þá var gagnrýnt að enn
væru dauðir punktar í gsm-sam-
bandi frá Kárahnjúkum til sjávar,
sem ylli óvissu í boðunarkerfi rým-
ingaráætlunar.
Gert ráð fyrir 90 mín-
útna viðbragðstíma
Fundur um viðbrögð við hugsanlegu stíflurofi Hálslóns
Í HNOTSKURN
» Í endurskoðuðu áhættu-mati Landsvirkjunar segir
afar ólíklegt að stíflurof geti
orðið og að aðdragandi slíkrar
atburðarásar væri þá langur.
» Áhættan sé metin minnien samþykkt ásættanleg
áhætta vegna snjóflóða. Þær
hættur sem lagðar eru til
grundvallar matinu eru flóð,
jarðskjálftar, lónfyllingin
sjálf, gallar á mannvirkjum og
skemmdarverk.
UM eitt hundrað manns sóttu í gær opinn borgarafund
sem haldinn var í Brúarási í Jökulsárhlíð. Á fundinum
var staða viðbragðs- og rýmingaráætlunar vegna hugs-
anlegs stíflurofs í Hálslóni rædd, en á fundinum voru
meðal annars fulltrúar lögreglu, almannavarnar-
nefndar Héraðssvæðis og Borgarfjarðar, almannavarn-
arnefndar og Landsvirkjunar.
Í áætluninni er gert ráð fyrir því að komi til stíflurofs
gefist yfirvöldum um níutíu mínútna langur viðbragðs-
tími.
Morgunblaðið/Steinunn
Fundað um almannavarnarmál
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt 23
ára karlmann, Daníel Þór Gunnars-
son, í fimm ára fangelsi fyrir tilraun
til manndráps og til greiðslu 680 þús-
und króna í miskabætur til fórnar-
lambs síns. Til frádráttar kemur
gæsluvarðhald sem Daníel hefur
sætt síðan í mars á sl. ári.
Atvik málsins voru þau að
snemma morguns hinn 4. mars á síð-
asta ári var lögreglu tilkynnt að
maður hefði verið stunginn með hnífi
á skemmtistaðnum Gauki á Stöng.
Greindi maðurinn frá því að hann
hefði verið staddur á staðnum þegar
ákærði reyndi að egna hann til slags-
mála. Maðurinn vildi ekki slást við
manninn og sneri sér að vinum sín-
um. Hefði þá verið ráðist á hann fyr-
irvaralaust og slagsmál hafist. Mað-
urinn kvaðst ekki hafa áttað sig á að
hann hefði verið stunginn fyrr en
hann fór að missa mátt.
Daníel játaði við skýrslutöku að
hafa stungið manninn en sagðist
ekki hafa ætlað að skaða hann.
Samkvæmt vottorði læknis voru
tveir skurðir á brjóstholi mannsins
vinstra megin og aftan til. Hefði hníf-
urinn stungist aðeins nær hryggsúlu
hefði hjarta eða stórar æðar orðið
fyrir alvarlegum áverka sem hefði
hæglega getað leitt til dauða.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Gunnlaugur Claessen, Garðar
Gíslason, Hrafn Bragason, Ingibjörg
Benediktsdóttir og Markús Sigur-
björnsson.
Stakk mann tví-
vegis í brjósthol LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-inu handtók í fyrradag og í fyrrinóttnokkra þjófa, þ.á m. tvo karlmenn
og unglingsstúlku sem óku um á
stolnum bíl. Í Breiðholti voru tveir
unglingspiltar handteknir í fyrri-
nótt vegna innbrots í leikskóla og
um miðjan dag voru þrír unglingar
staðnir að hnupli í verslunum.
Nokkrir þjófar
handteknir
ÖKUMAÐUR á höfuðborgarsvæð-
inu var að tala í farsíma á rauðu
ljósi í fyrradag og tók ekki eftir því
þegar græna ljósið kviknaði. Hann
varð hálfhvumsa þegar lögreglan
skipti sér af honum. Sér til máls-
bóta sagði maðurinn að hann hefði
ekki hringt úr símanum heldur
hefði verið hringt í sig!
Hringdi ekki
sjálfur