Morgunblaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ fólk Fjársterkir kaupendur óska eftir einbýlishúsum á sunnanverðu Seltjarnarnesi. Verðhugmyndir eru 80-150 millj. Góðar greiðslur í boði. Nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali og Hákon Jónsson lögg. fasteignasali. Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali EINBÝLISHÚS Á SELTJARNARNESI Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI AÐ ÉG OG LÍSA SÉUM ORÐIN PAR GRETTIR, VEISTU HVAÐ ÞETTA ÞÝÐIR? ÉG ÞARF EKKI AÐ VERA EINN NÆSTU ÁRAMÓT VERTU ALVEG RÓLEGUR, FÉLAGI ÉG HEF ALDREI VERIÐ SVONA REIÐUR Á ÆVINNI! ÉG FÓR ÚT Í BÚÐ TIL ÞESS AÐ FÁ MÉR BÚNING FYRIR ÖSKUDAGINN, EN ÞAÐ VAR ALLT UPPSELT! ÆTLA ÞEIR EKKI AÐ PANTA FLEIRI? ERTU EKKI AÐ GRÍNAST? ÞEIR ERU OF UPPTEKNIR VIÐ AÐ PANTA INN SKRAUT FYRIR PÁSKANA FLJÓT SOLLA, ÞÚ VERÐUR AÐ HJÁLPA MÉR! ÞAÐ HEFUR EINHVER SETT KVIKSYNDI Í SANDKASSANN MINN!! ÞÚ VERÐUR AÐ DRÍFA ÞIG AÐ SÆKJA HJÁLP! ÆI, LÁTTU EKKI EINS OG SMÁBARN STELPUR VÆRU MIKLU SKEMMTILEGRI EF ÞÆR VÆRU EKKI ALLTAF SVONA LEIÐINLEGAR!! HVAÐ HEITIR ÞÚ? DÍSA ÉG ER HREINRÆKTAÐUR VÍKINGAHUNDUR ÞÚ GETUR SKRÚFAÐ NIÐUR Í PERSÓNUTÖFRUNUM, ÉG ER ÓNÆM HEFUR ÞÚ TEKIÐ EFTIR ÞVÍ AÐ ÞAÐ ERU ENGAR ALVÖRU HETJUR SEM ERU KETTIR? KALLI, HVAÐ SEGIR ÞÚ UM AÐ FARA Í BETRI SKÓLA EN ÞÚ ERTU Í NÚNA? HVERNIG BETRI? ALLIR KENNARARNIR VÆRU BETUR MENNTAÐIR OG ÖLL AÐSTAÐAN TIL NÁMS VÆRI MIKLU BETRI HVAÐ MEÐ ALLA VINI MÍNA? ÞÚ EIGNAST NÝJA VINI ÞAÐ VERÐA ENNÞÁ KENNARAR OG TÍMAR, EN ENGIR VINIR ÞÚ ÆTTIR AÐ ENDURSKOÐA HUGTAKIÐ „BETRI“ EN ÞAÐ ERU HESTAR ÞARNA JÆJA, ÞÁ ERU ALLAR RANNSÓKNIR BÚNAR. ÞÚ MÁTT FARA ÞÚ HEF EKKI HEYRT BETRI FRÉTTIR FRÁ ÞVÍ AÐ ÉG FÉKK ENDURGREITT FRÁ SKATTINUM EINS GOTT AÐ ÉG NÁÐI AÐ FELA BÚININGINN MINN ÉG VONA AÐ ENGINN ÞEKKI HANN SVONA SAMAN KRUMPAÐAN Kvenréttindafélag Íslandsfagnar 100 ára afmæli ámorgun, laugardag. Mar-grét Kr. Gunnarsdóttir er ritari Kvenréttindafélagsins og einn af skipuleggjendum hátíða- halda í Ráðhúsi Reykjavíkur: „Kvenréttindafélagið var einkum stofnað til að berjast fyrir kosninga- rétti kvenna, en upp úr aldamótum hafði komist skriður á réttindabar- áttu kvenna um allan hinn vestræna heim,“ segir Margrét. „Um leið var þörf á að stofna formlegan fé- lagsskap svo íslenskar konur gætu tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi kvenréttindahreyfinga.“ Félagið var stofnað 27. janúar 1907 en konur 40 ára og eldri hlutu almennan kosningarétt hér á landi 1915, og voru aldursmörk afnumin með öllu 1925. „Kvenréttindafélagið hefur frá upphafi verið ankeri fyrir kvenfrelsis- og mannréttindabaráttu í brotsjóum þjóðfélagsþróunar á Ís- landi, og hefur á liðnum árum meðal annars beitt sér fyrir jafnrétt- islöggjöf og ýmsum málum sem snerta réttindi og hag kvenna og fjölskyldunnar,“ segir Margrét. „Alla síðustu öld hefur félagið skip- að sér sess sem félagsskapur sem stjórnvöld líta til í samstarfi. Í dag er Kvenréttindafélagið þverpólitískt félag sem á m.a. fulltrúa í Jafnrétt- isráði, Mannréttindaskrifstofu Ís- lands og er eitt af aðildarfélögum Mæðrastyrksnefndar, en iðulega hafa valist í stjórn félagsins konur sem hafa látið mikið að sér kveða á opinberum vettvangi.“ Á afmælisráðstefnu Kvenrétt- indafélagsins á morgun verður hlut- verk KRFÍ í samfélagslegri þróun síðustu 100 ár í sviðsljósinu auk þess sem kynnt verða verkefni félagsins: „Verður m.a. fjallað um Menningar- og minningarsjóð kvenna, en Bríet Bjarnhéðinsdóttir var meðal þeirra sem beittu sér fyrir stofnun sjóðsins á sínum tíma til að styðja konur til náms,“ segir Margrét. „Sjóðurinn hefur verið misvirkur í gegnum tíð- ina, en vonir standa til að blása nýju lífi í starfsemi hans.“ Valgerður H. Bjarnadóttir fyrr- um forstöðukona Jafnréttisstofu stýrir fundinum en Siv Friðleifs- dóttir heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra flytur heiðursávarp afmælishátíðarinnar: „Í erindi sínu mun Siv meðal annars ræða um hvaða máli Kvenréttindafélagið og jafnréttisbaráttan hefur skipt fyrir konur í hennar stöðu, sem gegnt hafa áhrifastöðum í íslensku sam- félagi,“ segir Margrét. „Einnig má nefna þrjá fyrrum formenn Kven- réttindafélagsins, frá árunum 1977, 1987 og 1997, sem segja frá ástandi þjóðfélagsins í sinni stjórnartíð og helstu viðfangsefnum félagsins á hverjum tíma.“ Auk erinda verður boðið upp á fjölbreytt skemmtiatriði. Stúlkna- kór Kársnesskóla verður með tón- listaratriði og Ásgerður Júníusdótt- ir söngkona tekur lagið. Í lok dagskrár býður Reykjavíkurborg til veglegrar móttöku. Afmælisráðstefna Kvenréttinda- félags Íslands í Ráðhúsi Reykjavík- ur hefst kl. 14 á laugardag. Aðgang- ur er ókeypis og öllum heimill. Nánari upplýsingar um dag- skrána og starfsemi félagsins má finna á nýrri heimasíðu Kvenrétt- indafélagsins, www.krfi.is. Hátíð | Afmælisráðstefna Kvenréttindafélags Íslands í Ráðhúsi Reykjavíkur á laugardag Jafnréttisbar- átta í 100 ár  Margrét Kr. Gunnarsdóttir fæddist í Selja- tungu í Flóa 1958. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð 1984 og BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands 1994. Margrét hefur starfað sem sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun frá 1996. Hún er formaður Félags íslenskra fé- lagsvísindamanna, formaður jafn- réttisnefndar BHM frá árinu 2006 og ritari Kvenréttindafélags Ís- lands frá 2000. Sambýlismaður Margrétar er Gunnar Andersen forstöðumaður eftirlits TR, og eiga þau einn son. Leikkonan Nicole Kidman var fluttá sjúkrahús eftir að Jagúar- bifreið sem hún ók lenti í árekstri í miðborg Los Angeles í gær, en hún var við tökur á kvikmyndinni The Invasion þegar slysið varð, að sögn lögreglu. Kidman, sem er 39 ára gömul, var tekin til skoðunar á sjúkrahúsi en hún var útskrifuð tveimur tímum síðar, að sögn fjölmiðlafulltrúa hennar Cather- ine Olim. „Ég held að það sé í lagi með hana,“ sagði Olim en bætti því við að það lægi ekki fyr- ir hvort Kidman mundi fara heim til sín eða halda áfram við upp- tökur. Það var sérstakur kvikmyndatöku- pallur á hjólum sem dró Jagúarinn. Hann rann til þegar hann tók beygju og við það rakst bifreið Kidman á staur á yfir 70 km hraða. Kidman og ungur drengur sem var með henni í bílnum voru spennt með sætisólum. Talið er að ungi dreng- urinn hafi verið áhættuleikari. Fólk folk@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.