Morgunblaðið - 26.01.2007, Side 15
Fréttir
í tölvupósti
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2007 15
ÚR VERINU
HÆSTIRÉTTUR hefur ómerkt dóm
héraðsdóms Reykjavíkur, sem sýkn-
að hafði tvo fyrrverandi starfsmenn
Ískerfa af kröfu Optimar Ísland ehf.
þess efnis að þeim yrði bannað með
dómi að framleiða og eða selja ís-
strokka í ísþykknivélar. Optimar
áfrýjaði þeirri niðurstöðu til Hæsta-
réttar.
Saga þessa máls er á þann veg að
Optimar krafðist þess að lagt yrði
bann við því að tveir menn, sem höfðu
verið starfsmenn Ískerfa, framleiddu
eða seldu ísstrokka af tiltekinni teg-
und eða sambærilega vélarhluti. Í
maí 2003 keypti Optimar birgðir og
rekstrarfjármuni Ískerfa og var tekið
fram í samningnum að Optimar fengi
framseldan rétt Ískerfa til að fram-
fylgja og fullnusta ákvæði ráðningar-
samninga núverandi og fyrrverandi
starfsmanna Ískerfa um trúnaðar-
skyldur. Optimar byggði m.a. á því að
mennirnir hefðu nýtt sér trúnaðar-
upplýsingar, sem þeir hefðu komist
yfir í störfum hjá Ískerfum, við fram-
leiðslu ísvéla. Krafa Optimar var
einkum reist á því að starfsmennirnir
væru bundnir trúnaði og þagnar-
skyldu samkvæmt ákvæðum ráðn-
ingarsamninga þeirra við Ískerfi.
Í héraðsdómi var ekki talið á færi
Optimar að byggja á þessum samn-
ingum og voru starfsmennirnir þegar
af þeirri ástæðu sýknaðir vegna aðild-
arskorts Optimar. Á hinn bóginn
byggði Optimar sjálfstætt á því að
háttsemi mannanna væri í andstöðu
við 2. og 3. mgr. 27. gr. þágildandi
samkeppnislaga nr. 8/1993. Ekki var
tekin afstaða til þessarar málsástæðu
í héraðsdómi og var án þess ekki talið
unnt að sýkna þá vegna aðildarskorts
Optimar.
Af þessum ástæðum og þar sem
bersýnilega var talin þörf á kunnáttu
sérfróðra meðdómsmanna til að leysa
úr öðrum málsástæðum, sem vörðuðu
tæknileg atriði, taldi Hæstiréttur að
ekki yrði komist hjá því að ómerkja
héraðsdóm ásamt meðferð málsins
frá upphafi aðalmeðferðar.
Mál Optimar Íslands
aftur fyrir héraðsdóm
LAGAGRUNDVÖLLUR kvóta-
kerfisins 1984–1985 var veikur.
Munur var gerður á úthlutun kvót-
ans milli skipa sem aðallega höfðu
veitt botnfisk á viðmiðunartíma-
bilinu og þeirra sem gerðu það ekki.
Sú mismunun gat verið réttlætan-
leg en studdist ekki við næga laga-
stoð. Aðferðin sem mælt var fyrir
um í lögunum var ekki beitt í reglu-
gerð.
Þetta er hluti af niðurstöðum
Helga Áss Grétarssonar lögfræð-
ings sem kannað hefur lagalega hlið
kvótakerfisins á árunum 1984 til
1990.
Helgi kynnti niðurstöður sínar í
erindi nú í vikunni. Hann segir að
niðurstaðan sé sú að greinarmun-
urinn sem var þarna gerður byggð-
ist á hæpnum lagagrundvelli og
óvíst að það hafi mátt mismuna með
þeim hætti sem gert var.
Of mörg skip að
eltast við of fáa fiska
„Alvarlegir erfiðleikar voru við
stjórn botnfiskveiða í lok árs 1983.
Of mörg skip voru að eltast við of
fáa fiska. Það var því fyllilega lög-
mæt ráðstöfun á þessum árum að
takmarka þann hóp sem kom til
greina við að stunda botnfiskveiðar
með því að setja á fót veiðileyfa-
kerfi. Þegar búið var að takmarka
aðganginn þurfti að skipta veiði-
réttinum á milli
skipa.
Haldið hefur
verið fram að
veiðireynsla á
þriggja ára tíma-
bili árin 1980–983
hafi verið eina
viðmiðið og skip
hafi verið föst í
þeirri viðmiðun
upp frá því. Það
er ekki rétt. Sóknarmark var val-
kostur við aflamark sem gerði að
verkum að menn gátu unnið sig
upp. Kvóti í lok tímabilsins gat
byggst á fjölbreytilegum grundvelli
en ekki einhæfum, það er veiði til
margra ára gat legið til grundvallar
þegar kvótanum var skipt árið 1991
samkvæmt lögum um stjórn
fiskveiða nr. 38/1990,“ segir Helgi
Áss.
Mörg önnur frávik
Hann bendir einnig á að á þess-
um árum hafi verið mörg önnur frá-
vik frá úthlutun, svo sem línutvö-
földun, skipstjórakvóti og lítt
takmarkaðar veiðar smábáta. Helgi
Áss nefnir einnig að þótt lagaheim-
ild til ýmissa þátta hafi verið hæpin,
megi segja að framkvæmd þeirra
hafi verið fyllilega réttlætanleg í
ljósi aðstæðna enda hafi verið bætt
úr þeim vanköntum síðar.
Byggt á hæpnum
lagagrundvelli
Helgi Áss
Grétarsson
FISKAFLI við Færeyjar fyrstu 11
mánuði síðasta árs var nánast sá
sami og á sama tímabili árið áður.
Alls var landað 122.000 tonnum,
sem er 360 tonnum meira en árið
2005. Verðmæti aflans jókst hins
vegar mikið, eða um tæpan millj-
arð, sem svarar til 8%. Alls var afla-
verðmætið umrætt tímabil 13,4
milljarðar íslenzkra króna, en var
12,4 milljarðar á sama tímabili
2005.
Það sem einkennir veiðina nú er
mjög lítill þorskafli og ufsaafli í há-
marki. Alls veiddust 54.000 tonn af
ufsa þetta tímabil, en aðeins
121.000 tonn af þorski. Þorskveiði
hefur ekki verið svona lítil síðan
1994. Þetta er líka í fyrsta sinn síð-
an þá, sem verðmæti ufsaaflans er
meira en þorskaflans.
Botnfiskafli var í heildina 6.000
tonnum minni árið 2006, en þar sem
afli annarra fiskitegunda jókst að
sama skapi varð aflinn þetta tímabil
jafnmikill og árið 2005.
)0 1 .20$ # !
% $
# $
2$.;
),
,
2 !
%?
"
%?
)!.B
,
Aukin aflaverðmæti
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1
105 Reykjavík
sími 515 1700
www.xd.is
13.15 Aðalfundur Varðar
– Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Venjuleg aðalfundarstörf
Ræða formanns Sjálfstæðisflokksins,
Geirs H. Haarde, forsætisráðherra
Þingforseti:
Erla Ósk Ásgeirsdóttir, stjórnmálafræðingur
14.30 Opinn fundur – allir velkomnir
Umhverfi og velferð
Framsöguræður flytja:
Ásta Möller, alþingismaður
Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður,
Illugi Gunnarsson, hagfræðingur og
Ragnar Árnason, prófessor.
Pallborðsumræður.
Stjórnandi: Sigríður Andersen, lögfræðingur.
20.00 Þorrablót sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
í Súlnasal Hótels Sögu. Húsið opnað kl. 19.00
Heiðursgestur: Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður.
Blótsstjóri: Illugi Gunnarsson, hagfræðingur.
Umhverfi og velferð
Kjördæmisþing reykvískra sjálfstæðismanna
á morgun, laugardaginn 27. janúar 2007
í Sunnusal Hótels Sögu.
U M H V E R F I S Á H R I F
Á L V E R S I N S Í S T R A U M S V Í K
- fyrir og eftir stækkun
A T V I N N U L Í F
O G U M H V E R F I
F U N D A R Ö Ð S A M T A K A A T V I N N U L Í F S I N S
2 0 0 6 - 2 0 0 7
Miðvikudaginn 31. janúar kl. 8:30-10:00
Húsi atvinnulífsins - Borgartúni 35 - 6. hæð
Erindi:
Guðrún Þóra Magnúsdóttir
leiðtogi umhverfismála hjá Alcan
Fyrirspurnir og umræður
Allir velkomnir - skráning á www.sa.is
eða í síma 591 0000
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hair play frá
Rakarastofan
Klapparstíg