Morgunblaðið - 26.01.2007, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Í HNOTSKURN
» Kína er þriðja ríkið sembeitt hefur vopnum til að
eyða gervihnöttum.
» Bandaríkin og Sovétríkinsálugu eyddu gömlum
gervihnöttum sínum með eld-
flaugum á níunda áratug ald-
arinnar sem leið.
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
KÍNVERJAR hafa viðurkennt að
þeir hafi eytt gervihnetti með eld-
flaug fyrr í mánuðinum og hefur það
vakið deilu um hvort stefna eigi að
alþjóðlegum sáttmála sem banni
geimvopn og setji reglur um hvað
gera megi í geimnum, meðal annars
til að stemma stigu við geimrusli.
Stjórn George W. Bush Banda-
ríkjaforseta hefur áskilið sér rétt til
að fara eigin leiðir í þessum efnum
hverju sem líður andmælum annarra
þjóða eða alþjóðastofnana.
Bush samþykkti í fyrra nýja geim-
áætlun og samkvæmt henni áskilja
Bandaríkin sér frelsi til aðgerða í
geimnum og rétt til að hindra að ríki,
sem teljast óvinveitt Bandaríkjun-
um, fái aðgang að honum.
Í þessari stefnu felst einnig að
Bandaríkjastjórn hafnar hvers kon-
ar sáttmálum um bann eða takmark-
anir við geimvopnum og hún áskilur
sér rétt til að þróa slík vopn. Bush
hefur beitt sér fyrir metnaðarfullri
áætlun um eldflaugavarnir, sem
byggjast á gervihnöttum, og banda-
ríska varnarmálaráðuneytið vinnur
að eldflaugum, leysibúnaði eða ann-
arri tækni til að granda gervihnött-
um.
Þessi stefna kann þó að koma
Bandaríkjamönnum í koll síðar því
Kínverjar hafa nú sýnt að þeir hafa
þróað vopn sem hægt er að beita í
geimnum. Þeir geta fræðilega skotið
niður njósnahnetti eða aðra gervi-
hnetti annarra þjóða, m.a. Banda-
ríkjamanna, blossi upp stríð í Asíu,
til að mynda vegna deilu um Taívan.
Vilja verja yfirburðina
Bandarískir hermálasérfræðingar
hafa sagt að kínversku geimvopnin,
sem hægt er að beita til að granda
gervihnöttum, ógni hernaðaryfir-
burðum Bandaríkjanna í Asíu.
Fréttastofan AFP hafði eftir John
Tkacik, fyrrverandi sérfræðingi
bandaríska utanríkisráðuneytisins í
málefnum Kína, að sá möguleiki að
Kínverjar eyddu mikilvægum gervi-
hnöttum Bandaríkjahers gæti orðið
til þess að bandarísk stjórnvöld yrðu
treg til að koma Taívan til varnar
ráðist kínverski herinn á eyjuna.
Kínversk stjórnvöld líta á Taívan
sem uppreisnarhérað, hafa sakað
Taívana um að stefna að því að lýsa
yfir sjálfstæði og hótað að beita her-
valdi til að koma í veg fyrir það.
Stuðningsmenn stefnu Bush segja
að bandaríski herinn sé orðinn svo
háður gervihnöttum að Bandaríkja-
menn verði að áskilja sér rétt til að
beita öllum ráðum til að verja yfir-
burði sína í geimnum.
Deilt um bann við
vopnum í geimnum
!
!"!# "
#
#$! #$! $%&&
%
'
$ %% '()
*'(+,)
,-+ #
&#
(&
2
34
. 5
0
/
.
3
!""
#""
$""
%""
&""
' '() *
+ ,"" )
-
#.
)
/
4*5
7*5
!
8*5
6
2367893':8;:7$<93:;3=9$6886
!"
#$ %&'()
*+$,#"
#$%-'()
.
/"
#$%/'()
!"
#$
0 +$,#"
#$
. &
>
>
,
&
.) /0
, 01- !
2'- + 0) 3+),+
+ ) ,""')4)
:;9?37%@
0
%""""
- )
#1. ) 2
- -
3)
)* +
*
)
+
Kína sýnir mátt
sinn í geimnum
KÍNVERSKIR hjúkrunarfræðingar
í borginni Anqing halda á fimm-
burum í fanginu á torgi fyrir fram-
an rauðan borða þar sem á stendur
„Til hamingju: Fimmburarnir fara
heim í dag“. Kínversk stjórnvöld
ítrekuðu fyrir skömmu að þau
myndu ekki hvika frá þeirri stefnu
að heimila foreldrum að eignast að-
eins eitt barn. Ítrekunin kom í kjöl-
far þess að hátt settur opinber emb-
ættismaður viðurkenndi að þessi
stefna hefði átt þátt í því vandamáli
að nú fæðast hlutfallslega of fáar
stúlkur miðað við drengi í landinu.
AP
Fagna fæðingu fimmburanna
Tbilisi. AFP. | Stjórnvöld í Georgíu
hafa fangelsað rússneskan borgara,
Oleg Kíltsagov, fyrir að hafa reynt
að smygla auðguðu úrani frá Rúss-
landi til landsins og selja það.
Kaupandinn þóttist vera fulltrúi
herskárra íslamista en í reynd var
um að ræða gildru sem Georgíu-
menn settu upp í samvinnu við
bandarísku alríkislögregluna, FBI.
Gildran var sett upp í fyrra eftir
langan undirbúning og auk Kíltsa-
govs voru þrír Georgíumenn fang-
elsaðir. Um var að ræða 100 grömm
af efninu og hugðist Kíltsagov fá
fyrir það eina milljón dollara, um
70 milljónir króna. Talið er að mun
meira magn, 15–20 kíló, þurfi til að
smíða raunverulega sprengju. En
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin,
IAEA, segir að málið bendi til þess
að auðvelt sé að komast yfir auðgað
úran á svörtum markaði. Rúss-
neskir embættismenn segja að
magnið af efninu sé of lítið til að
hægt sé að rekja uppruna þess.
Rússi reyndi að selja íslamist-
um auðgað úran í Georgíu
Reuters
Handtekinn Oleg Kíntsagov reyndi
að selja íslamistum auðgað úran.
RISAVAXNAR kengúrur, pokaljón og vambar, poka-
birnir á stærð við bíl, lifðu af allar loftslagsbreytingar í
Ástralíu en lutu síðan í lægra haldi fyrir manninum er
hann kom fyrst til Eyjaálfunnar.
Er þetta niðurstaðan af rannsóknum á ótrúlegum
fjölda dýrabeina, 400.000 til 800.000 ára gömlum, í hella-
kerfi í Suður-Ástralíu en þriðjungur dýranna er nú út-
dauður. Talið var í fyrstu, að loftslagið hlyti að hafa ver-
ið rakara en ljóst er nú, að svo var ekki. Gróðurinn var
samt sem áður miklu meiri. Það breyttist hins vegar fyr-
ir um 50.000 árum eða þegar maðurinn kom. Honum
fylgdi eldurinn og miklir skógar- og runnaeldar, sem
breyttu gróðurfarinu svo mikið, að stóru skepnurnar dóu út.
Talið er víst að dýrin hafi í tímans rás fallið niður í hellana um jarðföll og
ekki komist út aftur. Fundust fyrstu beinin 2002 og búist er við að mjög
mikið af þeim eigi eftir að finnast á komandi árum. Er hellunum líkt við
safn sem endurspegli dýra- og náttúrulíf næstum í tvær milljónir ára.
Manninum fylgdi eldur og
stórkostleg eyðilegging
Pokaljón Svona
leit það út.
BANDARÍSKI herinn hefur í fyrsta
sinn sýnt nýtt vopn, svokallaða hita-
byssu, en hana má nota gegn óvin-
um í hernaði og einnig til að tvístra
fjandsamlegum mannfjölda.
Byssan, sem er kölluð Þögli vörð-
urinn, gefur frá sér ósýnilegan
orkugeisla sem veldur skyndilegri
hitatilfinningu án þess þó að vera
hættulegur. Unnt er beita byssunni
úr allt að hálfs km fjarlægð.
Stefnt er að því að því að byssan
verði tilbúin til notkunar eftir þrjú
ár. Smýgur orkugeislinn í gegnum
föt og veldur því að hörund þess,
sem fyrir verður, hitnar upp í 50
gráður á celsíus.
AP
Nýja vopnið Geislabyssan eins og
hún lítur út uppi á Humvee-jeppa.
Geislabyssan
er nýtt vopn
London. AP, AFP. | Breska stjórnin mun í næstu viku kynna
tillögur um ný lög sem kaþólska kirkjan er mjög andvíg
en þar er kveðið á um að samkynhneigðum pörum verði
leyft að ættleiða börn. Sjálfur vill Tony Blair forsætis-
ráðherra að samkynhneigðir hafi þennan rétt ekki síður
en annað fólk.
Ráðherrann tjáði sig ekkert um það í yfirlýsingu sinni
í gær hvort hann myndi heimila ættleiðingarstofnunum
á vegum kaþólsku kirkjunnar að fá undanþágu frá lög-
unum og meina samkynhneigðum að ættleiða. Alan
Johnson menntamálaráðherra sagði hins vegar ólíklegt
að slík heimild yrði veitt en bæði kaþólska kirkjan og biskupakirkjan vilja
undanþágu. Sagði hann að þá væri gengið gegn anda sjálfra laganna um að
tryggja öllum jafnrétti án tillits til kynhneigðar.
Samkynhneigðir geti ættleitt
Tony Blair
MAZDA kemur best út í könnun
sem óháð stofnun, Waranty Direct,
hefur gert á bilanatíðni í um
450.000 bílum af 33 tegundum í
Bandaríkjunum og Bretlandi. Af tíu
efstu voru sjö japanskir.
Bilar minnst
ALLS létu 315 Danir lífið í umferð-
arslysum í fyrra sem er lægsta tala
látinna síðan 1946. Manntjónið var
331 árið 2005. Stefnt er að því að
koma tölunni niður í 300 árið 2012.
Færri dauðaslys
NÆRRI fjórðungur Ísraela býr við
fátækt. Kemur það fram í miss-
erisskýrslu ísraelsku trygginga-
stofnunarinnar. Um er að ræða 1,63
milljónir manna og þar af eru börn
og unglingar 775.000.
Fátækt í Ísrael
YFIRMAÐUR hjá Channel 4-sjón-
varpsstöðinni segir að hneykslið
vegna meints rasisma gagnvart
leikkonunni Shilpa Shetty hafi
„bjargað“ Stóra bróður-þáttunum
frá því að verða leiðindum að bráð.
Hneyksli bjargaði