Morgunblaðið - 26.01.2007, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
LEIKFÉLAG Reykjavíkur og
Íslenski dansflokkurinn hafa
stofnað sameiginlegt dansleik-
hús. Þar gefst framúrskarandi
þátttakendum í Dansleikhús-
samkeppni LR og íd kostur á
að vinna áfram að sínum hug-
myndum með hópi listafólks úr
röðum leikfélagsins og dans-
flokksins. Marta Nordal og
Peter Anderson leiða fyrsta
verkefni dansleikhússins.
Nú er efnt til samkeppni um nafn á hið nýstofn-
aða dansleikhús og geta þeir sem hafa áhuga nálg-
ast allar upplýsingar á heimasíðu Borgarleikhúss-
ins, www.borgarleikhus.is.
Nafnasamkeppni
Auglýst eftir nafni
á nýtt dansleikhús
Peter Anderson
HILMAR Örn Hilmarsson er
tilnefndur til Genie-kvik-
myndaverðlaunanna. Hilmar
Örn fær tilnefningu fyrir tón-
list við kvikmyndina Bjólfs-
kviðu eftir Sturlu Gunnarsson
og keppir við tónskáldin Jean
Robitaille, Michel Cusson,
Pierre Desrochers og Norm-
and Corbeil. Bjólfskviða hlýtur
einnig tilnefningar fyrir kvik-
myndatöku (Jan Kiesser) og
hljóðvinnslu (Jane Tattersall, Barry Gilmore,
David McCallum, Donna Powell, Dave Rose).
Verðlaunaafhendingin fer fram í Toronto 13.
febrúar næstkomandi.
Kvikmyndir
Hilmar Örn
tilnefndur til Genie
Hilmar Örn
Hilmarsson
PÓLSKI rithöfundurinn
Ryszard Kapuscinski lést sl.
þriðjudag, 74 ára að aldri.
Kapuscinski var oft orðaður
við nóbelsverðlaunin, hvað
sterkast árið 2005, en hann
skrifaði bækur sem eru á
mörkum skáldskapar og
blaðamennsku.
Frægasta bók hans er
Keisarinn sem fjallar um
hnignunarskeið hinnar tíma-
skekktu stjórnar Haile Selassie í Eþíópíu. Bæk-
ur um fall Mohammad Reza Pahlavi, síðasta Ír-
anskeisara, og síðustu daga Sovétríkjanna hafa
notið viðlíka vinsælda.
Bókmenntir
Ryszard Kapusc-
inski látinn
Ryszard
Kapuscinski
Sjónræn veisla frá þjóðsagnakenndum vídeólistamanni á „Guggenheim heima-manna.““ Á þessum jákvæðu orðum hefst um-
fjöllun um sýningu listakonunnar Steinu Vasulka,
sem fædd er á Íslandi, en sýningin stendur nú yfir
í Pixel Gallery í Búdapest í Ungverjalandi.
Það er vefsíða dagblaðsins The Budapest Sun
sem fjallar um sýningu Steinu á fimmtudaginn og
er fyrirsögnin „Steina’s spheres out of this world“.
Greinarhöfundurinn, Beáta Hock, heldur áfram
og spyr lesendur hvort þeir hafi vitað að í Búda-
pest megi finna litla útgáfu af Guggenheim-
safninu í New York borg. „Þetta skemmtilega
leyndarmál inniheldur nú sýningu Steinu Vasulka
í Pixel Gallery í Húsi framtíðarinnar í höfuðborg
Ungverjalands.
Eftir að settar hafa verið upp sýningar með
nokkrum frumkvöðlum og merkustu vídeó-
listamönnum heims, eins og Peter Callas, Ulrike
Rosenbach og Tamás Waliczky má nú sjá sýningu
Steinu, sem fædd er á Íslandi,“ skrifar Hock.
Tuttugu skjáir
Vídeóserían á sýningunni ber titilinn Spheres
og var þróuð frá eldri verkum til að laga að rým-
inu í Pixel Gallery segir í greininni.
„Á sýningunni má sjá tuttugu flatskjái sem
fylgja hringlaga og hallandi braut. Á hverjum skjá
er hnattlaga flötur sem hringsnýst.
Verkin bregðast við breytingum í umhverfinu
þar sem þau eru staðsett – í þessu tilviki í Pixel
Gallery.
Um er að ræða forritanlegan vélbúnað tengdan
linsu- og speglakerfi sem sækir „hráefnið“ í nátt-
úruna og býr til mjög sértaka og myndræna upp-
lifun. Eins og fljúgandi fugl, snjókomu eða glóandi
hluti. Þetta flyst á hringlaga fletina, þar sem það
öðlast stórkostlegan persónuleika – það er eins og
myndirnar breiði úr sér um allan hnöttinn.
Skjáirnir tuttugu líta út eins og jafnmargir
hnettir og staða þeirra í hringlaga salnum skapar
þá tilfinningu að þeir hreyfist á braut, snúist um
miðjutóm gallerísins.
Sýningin er uppfærð vikulega samkvæmt veð-
urspánni,“ segir Hock sem er á því að sýningin sé
mikil og óvenjuleg upplifun.
Stofnaði Eldhúsið
Steina Vasulka fæddist í Reykjavík árið 1940 og
er menntuð í fiðluleik og tónlistarfræðum. Árið
1959 fór hún í framhaldsnám í Tónlistarháskól-
anum í Prag. Þar kynntist hún Woody Vasulka og
fluttu þau til Bandaríkjanna 1965. Árið 1969 hóf
hún að vinna með myndbönd og upp frá því hafa
verk hennar og innsetningar verið sýnd víða. Hún
er einn stofnenda Eldhússins (The Kitchen) árið
1971, sem er sviðsvettvangur rafrænnar listsköp-
unar í New York.
Steina Vasulka sýnir í Búdapest og fær góða umfjöllun hjá þarlendum miðli
Hnattlaga myndbandsverk
Íslensk Steina Vasulka býr nú í Bandaríkjunum.
Frumkvöðull Vídeóverk eftir Steinu Vasulka sem nú sýnir í Pixal Gallery í Búdapest.
Í LEIÐARA sem birtist í Jyllands-
Posten í gær er fjallað um hugmynd
Ólafs Elíassonar um þakhæð Lista-
safnsins í Árós-
um sem nýlega
varð hlutskörp-
ust í samkeppni
um hönnun hæð-
arinnar. Sam-
kvæmt hug-
myndinni
markast hring-
laga hæðin m.a.
af gangi með lit-
uðu gleri sem
spannar allan litaskalann, sem leið-
arahöfundur telur að í daglegu tali
verði einfaldlega vísað til sem
Regnbogans.
Leiðarahöfundur segir m.a. að
ekki sé annað hægt en að hrífast af
innsetningu Ólafs, sem muni kóróna
þakið. Hún fullkomni safnið sem sé
hannað með Hinn guðdómlega
gleðileik Dantes í huga; kjallari
safnsins tákni helvíti og verk Ólafs
himnaríki. Þá segir að Regnboginn
muni ekki aðeins styrkja bæði há-
menningarlega og alþýðlega stöðu
safnsins heldur verða punkturinn
yfir i-ið. Að lokum segir að Regn-
boginn verði væntanlega eitt af ein-
kennistáknum Árósa í framtíðinni,
til jafns við eða jafnvel enn frekar
en dómkirkjan og ráðhúsið.
Regnboga
Ólafs fagnað
í leiðara JP
Segir verkið verða
einkennistákn Árósa
Ólafur Elíasson
BJÖRK verður meðal þeirra lista-
manna sem fram koma á Glaston-
bury-tónlistarhátíðinni í Englandi í
ár. Þátttaka Bjarkar var staðfest á
miðvikudaginn en þá var einnig
tilkynnt að hljómsveitirnar The
Who og The Arctic Monkeys yrðu
meðal flytjenda. Björk hefur
nokkrum sinnum áður tekið þátt í
Glastonbury.
Auk Bjarkar, The Who og The
Arctic Monkeys sagði Michael Eav-
is, skipuleggjandi hátíðarinnar, að
„stærsta hljómsveit í heimi“ hefði
lýst yfir áhuga á að vera með. Að-
spurður neitaði hann því hins vegar
að um væri að ræða U2 eða Cold-
play. „Þið fáið ekki að vita það fyrr
en eftir 1. apríl,“ sagði hann við
fréttamenn, en þá verður byrjað að
selja miða á hátíðina.
Björk á
Glastonbury
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
KRISTÍN Helga Káradóttir, Hye
Joung Park og Darri Lorenzen
hlutu í gær styrk úr Listasjóði
Dungals. Þetta er í fimmtánda sinn
sem styrkir eru veittir úr sjóðnum
en tilgangurinn er að styrkja ungt
myndlistarfólk og eignast eftir það
verk.
Það var formaður dómnefndar,
Kristján Steingrímur Jónsson,
deildarforseti myndlistardeildar
LHÍ, sem kunngjörði ákvörðun
dómnefndar. Í máli hans kom fram
að dómnefnd hefðu borist fjölmarg-
ar áhugaverðar umsóknir og að ljóst
væri að ungum efnilegum listamönn-
um fjölgaði ört. Um styrkhafana
sagði hann að list þeirra allra end-
urspeglaði vel þær hræringar sem
ættu sér stað meðal yngstu kyn-
slóðar listamanna um þessar mundir
og kvað hann það von dómnefndar
að styrkirnir yrðu þeim hvatning til
frekari dáða.
Ævintýri myndlistarinnar
Gunnar B. Dungal, sem einnig á
sæti í dómnefnd, ávarpaði samkom-
una og hvatti m.a. íslenskt athafna-
fólk til að styðja við bakið á ungu
listafólki og kaupa framsækna
myndlist. Hann fullyrti að því fylgdi
ánægjan ein að leita sér þekkingar á
myndlist og „gerast þátttakendur í
því ævintýri sem þar á sér stað“. Að
lokum sagði hann að ákveðið hefði
verið að brjóta reglur sjóðsins annað
árið í röð og veita þrjá styrki og
kaupa þrjú verk í stað tveggja. Þá
hefðu hann og Þórdís eiginkona hans
ákveðið að hér eftir yrði reglan sú.
Skiptir mjög miklu máli
Darri hlaut hæsta styrkinn, 500
þúsund krónur. Hann segir styrkinn
skipta mjög miklu máli og vera nota-
lega viðurkenningu, ekki síst í ljósi
góðs hóps fyrri styrkþega. Þá kveð-
ur hann fyrirheit um kaup á verki
eftir sig, sem styrknum fylgi, skipta
máli fyrir ungan listamann.
Darri lauk BA gráðu í myndlist
frá LHÍ árið 2000 en er nú við fram-
haldsnám í myndlist við Kunst-
hochschule Weissensee í Berlín. Í
millitíðinni stundaði hann nám í raf-
tónlist við Tónlistarskólann í Kópa-
vogi og myndlistarnám við Royal
Academy of Art og Royal Con-
servatorie í Haag.
Kristín Helga og Hye hlutu 300
þúsund krónur hvor. Hye, sem er
fædd í Suður Kóreu, stundaði nám
við Myndlistarskólann í Reykjavík
árið 2002 og útskrifaðist þremur ár-
um síðar með BA-gráðu í myndlist
frá LHÍ. Hún býr og starfar í Lond-
on og Reykjavík.
Kristín Helga lagði stund á mynd-
list og leiklist í listalýðháskóla í Dan-
mörku. Í framhaldinu stundaði hún
fornám við Myndlistarskólann í
Reykjavík og Fjölbrautaskólann í
Breiðholti. Hún stefnir á framhalds-
nám erlendis.
Þriðji dómnefndarmeðlimur er
Guðrún Einarsdóttir.
Þrír ungir myndlistarmenn hlutu styrk úr Listasjóði Dungals í gær við hátíðlega athöfn
Endurspegla
hræringar yngstu
kynslóðarinnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Myndlistarfólk Hye Joung Park, Kristín Helga Káradóttir og Darri Lor-
enzen hlutu í gær styrk úr Listasjóði Dungals.
♦♦♦