Morgunblaðið - 26.01.2007, Qupperneq 24
vín
24 FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Garðfuglaskoðun
Um helgina stendur Fuglavernd fyrir garð-
fuglaskoðun. Markmiðið er að fá sem flesta til
að skoða fugla í görðum sínum og vekja athygli
á hversu auðvelt er að stunda fuglaskoðun. Nú
er um að gera fyrir alla að kíkja út í garð og
skoða fuglana. Nánari upplýsingar á http://
www.fuglavernd.is/.
Nýtt íslenskt verk í Borgarleikhúsi
Ungir og upprennandi leikarar frumsýna á
sunnudaginn verkið Eilífa hamingju eftir Þor-
leif Örn Arnarson, sem jafnframt er leikstjóri,
og Andra Snæ Magnason. Leikarar eru Orri
Huginn, Sara Dögg, Jóhannes Haukur og Guð-
jón Þorsteinn. Þá er bara að finna sparifötin og
skella sér í leikhús.
Mýramaðurinn í Landnámssetrinu
Um helgina verður fjör í Borgarnesi því Gísli
Einarsson mun hvorki meira né minna en
heimsfrumsýna verkið Mýramanninn á Sögu-
loftinu á Landnámssetrinu. Í verkinu rekur
hann þróunarsögu Mýramannsins allt frá stein-
öld að Mýraeldunum 2006. Þetta gerir hann í
eigin persónu með hjálp hreyfimynda. Meðal
gestaleikara á hvíta tjaldinu eru Ilmur Krist-
jánsdóttir leikkona, Hallgrímur Ólafsson, for-
menn stjórnmálaflokkanna og fjöldi annarra.
Gísli sjálfur er höfundur verksins.
Nýdönsk á Nasa
Árið 1987 gaf hljómsveitin Nýdönsk út sína
fyrstu hljómplötu og fagnar því tuttugu ára af-
mæli í ár. Í tilefni þess blása þeir til ærlegrar
veislu á Nasa laugardagskvöldið 27. janúar.
Húsið verður opnað klukkan 23.00 en hljóm-
sveitin byrjar að spila klukkan 00.30. Aldurs-
takmark er tuttugu ár. Hvernig væri nú að
grafa upp dansskóna og skella sér á ball á Nasa?
Synt alla helgina og strákarnir
okkar spila handbolta
Í nýju lauginni í Laugardalnum hefst al-
þjóðlegt sundmót í dag. 240 keppendur taka
þátt í mótinu, þar af 55 erlendir.
Ekki má heldur gleyma HM þar sem ís-
lenska landsliðið leikur við Slóveníu og Þýska-
land á laugardag og sunnudag. Þó að strákarnir
okkar hafi tapað í gærkvöldi þurfa þeir ekki
nema einn sigur eða tvö jafntefli til að komast í
8 liða úrslit.
Þeir þurfa því á stuðningi að halda og þjóðin
er hvött til að setjast við sjónvarpið og senda
þeim hlýja strauma.
Göngutúr í drullunni
Nú þegar snjóinn hefur að mestu tekið upp í
byggð er ekki úr vegi að finna góða gönguskó,
nú eða bara stígvél, og láta sig hafa það að fara í
góðan göngutúr í drullunni. Auðvitað eru víða
góðir göngustígar sem má feta. Þó er alltaf
gaman að fara aðeins út fyrir bæinn og finna
ótroðnar slóðir og þar er kannski ekki eins
margt um manninn og á merktum gönguleið-
um.
mælt með . . .
Þ
etta eru vín sem að
mínu mati auðguðu
vínúrvalið í vínbúð-
unum og eru verðugir
fulltrúar sinna heima-
svæða. Hvert og eitt þeirra frá-
bær kaup. Allt eru þetta vín sem
eiga skilið einkunnina 18–20/20
samkvæmt þeim kvarða sem not-
aður hefur verið síðustu ár og tek-
ur mið af því hvað vínið kostar
samhliða hreinum gæðum. Hér
verður til gamans notaður svokall-
aður 100 punkta skali og þá ein-
ungis horft til þess hvað vínið á
skilið óháð verði.
Quinta do Crasto Reserva Old
Vines 2003 er þykkt og feitt vín,
frábært dæmi um hvers Portúgal-
ar eru megnugir í öðru en púrt-
vínsgerð. Í nefi krydd og svartur
ávöxtur, þroskaður og heitur, ör-
lítið anís, kaffi og þurr vanilla og
eik. Í lokin situr eftir í munni
þægilegur keimur af súkkulaði og
eik. 1.980 krónur. 90/100
Morties Pic St. Loup „jamais
content“ er toppurinn frá vínhús-
inu Mas de Morties í Suður-
Frakklandi en heitið jamais con-
tent þýðir „aldrei ánægður“. Þetta
er vín sem byggist að mestu á Sy-
rah-þrúgunni eða 80%. Það var ár-
gangurinn 2002 sem lengst af var í
sölu á árinu, þungt og mikið, lokað
alllengi og maður skynjar í fyrstu
einungis kraftinn sem þarna
leynist. Þegar það opnar sig kem-
ur fram eik og dökkur ávöxtur í
miklu magni, kryddaður, þurr og
heitur. Nú hefur hins vegar ár-
gangurinn 2004 tekið við og það
mun um þessi tvö ár. Vínið er
bjartara, með ferskum og hreinum
rauðum berjasafa, kryddi, skarpri
sýru og áberandi en mildum tann-
ínum. 1.960 krónur. 90/100 fyrir
2002 og 89/100 fyrir 2004.
Annar Suður-Frakki er Cha-
teau de Flaugergues Coteaux
de Languedoc 2003. Þetta vín-
hús er staðsett skammt frá Mont-
pellier – einungis þrjá kílómetra
frá miðbænum – og þrúgublandan
er dæmigerð fyrir Miðjarðarhafs-
svæðið, Mourvédre og Syrah með
40% hvor og Grenache loks 20%.
Dökk sæt ber, ilmolíur/reykelsi,
lavender. Vín til að smjatta á,
yndislegt frá fyrsta sopa, þykkt,
mjúkt og djúpt með sætum og
óneitanlega nokkuð áfengum
ávexti. Vín til að bera fram með
grilluðu nautakjöti, krydduðu með
engu öðru en sjávarsalti og ný-
muldum pipar eða grilluðu lamba-
læri. 1.750 krónur. 90/100
Við höldum okkur áfram við
suðurhluta Frakklands. Chapou-
tier Belleruche Cotes du Rhone
2005 er flottur, klassískur Cotes
du Rhone, sá besti sem ég smakk-
að af þessum árgangi. Ber og
blóm mynda uppistöðuna. Maður
fær vínið í glasið og hugsar, já ná-
kvæmlega svona eiga klassa Cotes
du Rhone að vera, mikið vín og
flókið þótt það sé ódýrt. Kirsuber,
hindber og sveskjur, rósir, fjólur,
örlítil vanilla og bakaður pæ, tann-
ín sem bíta og segja manni að vín-
ið verði líklega á toppnum eftir ár
eða tvö. Vonandi hafa einhverjir
þolinmæði, þetta er ekki dýrt vín
til að kaupa nokkrar flöskur af og
leggja til hliðar.1.490 krónur. 86/
100
Það er erfitt að setja saman
lista sem þennan án Bordeaux-
víns. Þar koma nokkur til greina.
Niðurstaðan varð Chateau Cante-
nac Brown 2001, eitt af stóru
víngerðarhúsunum í Margaux, sem
ég smakkaði á ný nú fyrir áramót-
in innan um nokkur stór Bor-
deaux-vín. Og það hreinlega brill-
eraði. Klassískt í uppbyggingu
með meðaltannínum og farið að
sýna þroska, berjávöxturinn
(kirsuber og sólber) og blóm
smám saman að víkja fyrir jarð-
bundnari ilm og reyk. Langt og
slípað í lokin. Árangurinn 2001 er
alveg hreint yndislegur þessa
stundina og gefur mikið af sér
þótt vínið muni einnig þola ára-
langa geymslu. 3.790 krónur. 92/
100
Frá Búrgund kemur rauðvínið
Domaine Pierre Guillemot Sa-
vigny-Les-Beaune Les Grands
Picotons. Þetta er vel gerður og
dæmigerður Búrgundari með
rauðum og svörtum skógarberjum,
kryddjurtum og rósum í bland við
vanillu. Sýrumikið með ágætum
þéttleika og lengd. 2.190 krónur.
89/100
Síðasti Frakkinn er svo hvítur.
Chanson Chassagne-Montrac-
het 2004 er hreint út sagt magn-
að hvítvín. Ungt og öflugt og með
gífurlega dýpt. Aðgengilegt en
samt með allt sem þarf til að
þroskast vel og lengi næsta ára-
tuginn eða svo. Eikað og smjör-
kennt með mikilli vanillu en jafn-
framt þykkum hnetu- og
steinefnamassa í bland við hvít
ber. Vín sem er í senn algjört sæl-
gæti en sömuleiðis heimspekilegt
hugleiðingavín. Og það á fínu
verði miðað við gæði. 3.190 krón-
ur. 94/100
Þá yfir til Ítalíu. Cantina Terl-
ano Porphyr Riserva 2003 er vín
úr þrúgunni Lagrein, sem á upp-
runa sinn að rekja til þessa svæðis
og er nær algjörlega óþekkt utan
þess. Vínið er dökkt, svarblátt og
liturinn ekkert farinn að gefa eftir
þótt að um þrjú ár séu liðin frá
því þrúgurnar voru pressaðar.
Angan vínsins er kraftmikil með
krækiberja- og sólberjasaft í bland
við dökkt súkkulaði og örlítið
krydd. Vínið er tannískt mjög, en
þau eru mjúk og yfirbragð vínsins
í munni er lagskipt þar sem hver
hjúpurinn af öðrum tekur við. Vín
til að geyma í 3–5 ár en gefa ella
einhverja klukkutíma í karöflu áð-
ur en það er borið fram. 2.860
krónur. 91/100
Fontodi Chianti Classico 2002
er hreint Sangiovese-vín og koma
þrúgurnar af nokkrum mismun-
andi ekrum á landareigninni. Vínið
er látið liggja á frönskum eik-
artunnum í ár áður því er tappað
á flöskur. Eikin er enn nokkuð
áberandi í nefi með miklu dökku
súkkulaði, vanillu og kaffi í nefi.
Það hefur yfir sér þykkt og feitt
yfirbragð jafnt í nefi sem munni
með djúpum og góðum svörtum
berjaávexti. Hefur allmassíva upp-
byggingu og góða lengd. Vín til að
smjatta á. 1.890 krónur. 90/100
Fulltrúi Veneto á Ítalíu er Te-
nuta Sant Antonio La Bandina
2001 sem mætti flokka sem „of-
ur“-valpolicella-vín. Þetta er vín
úr smiðju Castagneda-fjölskyld-
unnar líkt og Monte Ceriani og
eina Valpolicella-vínið sem fékk
þrjú glös hjá ítölsku vínbiblíunni
Gambero Rosso á þessu ári. Dökkt
og öflugt með þungri angan af
þurrkuðum berjum, sveskjum og
rúsínum ásamt leðri og reyk. Gæl-
ir við Amarone-einkenni (við erum
að tala um 14,5%) en heldur þó
léttleika í munni og hreinum
ávexti, greina má vindlakassa –
sedrusvið – og nokkurn krydd-
keim í lokin. Fantagott vín og
mun batna enn meir ef það fær að
hvíla í kjallaranum í 3–5 ár. 2.190
krónur. 92/100
Baron de Ley Reserva 2001 er
nútímalegt og pottþétt Rioja-vín
frá Spáni. Rauður berjaávöxtur,
þroskaður og jaðrar við að fara út
í sultu, kjötmikið með vindlareyk
og nokkurri vanillu og þykkri og
feitri eik. Yndislegt með rauðu
nautakjöti. 1.490 krónur. 89/100
Kollwentz Eichkogel 2002 er
fulltrúi Austurríkis á þessum lista,
blanda af þrúgunum Blaufränkisch
og Zweigelt, stórt, samþjappað og
mikið vín. Dökk og þroskuð ber og
súkkulaði eru ríkjandi í nefinu í
bland við sæta eik, ilmur vínsins
djúpur og margslungin. Þétt og
feitt í munni, vel gert vín með öfl-
ugum tannínum og góðri lengd.
Vín sem sýnir vel hvers aust-
urrískir rauðvínsgerðarmenn eru
megnugir. Má geyma í nokkur ár.
2.490 krónur. 92/100
La Chamiza Syrah „Polo Pro-
fessional Reserve“ 2004 er
verðugur fulltrúi Chile á listanum.
Yndisleg og flókin angan, brennd
og krydduð, með karamellu, van-
illu og kaffi í blandi við dökkan,
þroskaðan berjaávöxt. Mikið en
mjúkt, með löngu og þéttu bragði,
sambræðingur af nýjaheims-shiraz
og frönsku Syrah-Rónar-víni í
stílnum. Brandarakaup á 1.190
krónur. 88/100
Frá Suður-Afríku kemur Le
Bonheur Merlot-Cabernet Sau-
vignon sem er vel gert og athygl-
isvert rauðvín. Byrjar með mikilli
angan af sólberjum og krækiberj-
um, það er eins og hellt hafi verið
Ribena-safa í glasið. Fljótlega
bætist þó meira við, vanilla og við-
ur, súkkulaði og púðursykur. Upp-
bygging öll góð, lengd yfir með-
allagi. 1.890 krónur. 87/100
Og loks einn Ástrali, Philip
Shaw no. 11 Koomooloo Vi-
neyard Chardonnay 2005 rjómi
og vanillusykur, sætur ávöxtur,
ferskjur og ananas, feitt og milt í
munni með hóflegri sýru. Ein-
staklega aðlaðandi og þægilegt vín
í alla staði. 2.490 krónur. 90/100
Fimmtán
frækin
Það getur verið forvitnilegt að horfa um öxl og setja
hluti í samhengi, segir Steingrímur Sigurgeirsson.
Eftir að hafa rennt yfir þau vín sem fjallað var um í
fyrra eru nokkur sem standa upp úr. Hér eru fimmtán
þeirra rifjuð upp þótt vissulega hefði mátt nefna fleiri.
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
B
ry
nj
ar
G
au
ti