Morgunblaðið - 26.01.2007, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2007 45
menning
Ef einhver segir þá við yður:„Hér er Kristur“ eða „þar,“þá trúið því ekki. Því að
fram munu koma falskristar og
falsspámenn, og þeir munu gjöra
stór tákn og undur til að leiða af-
vega jafnvel hina útvöldu, [...].“
Þessi orð eru höfð eftir Jesú frá
Nasaret í Matteusarguðspjalli
(Matt. 24, 23) þegar lærisveinarnir
spyrja meistara sinn út í end-
urkomu Krists.
Þessi orð – og önnur sem finna
má í Biblíunni um endurkomu
Krists – öðluðust að einhverju leyti
nýtt líf í vikunni þegar þær fréttir
bárust frá Bandaríkjunum að kvik-
myndaleikarinn Tom Cruise væri
„hinn útvaldi“ spámaður Vísinda-
kirkjunnar sem breiða myndi út
fagnaðarerindið.
Í fréttinni var haft eftir David
Miscavige, hæstráðanda kirkjunnar
að í framtíðinni yrði Cruise tilbeð-
inn líkt og Jesús um víða veröld og
að hann myndi taka að sér hlutverk
spámanns kirkjunnar.
Stórkostlegt,“ hugsaði ég meðmér þegar ég las fréttina á
þriðjudag. „Nú er kvikmyndaferill
þessa ofmetna leikara loksins far-
inn í vaskinn, og ekki seinna
vænna!“
En svo leitaði önnur hugsun á
mig; „Af hverju er það ekki stór-
frétt þegar einn frægasti kvik-
myndaleikari heims er sagður vera
hinn útvaldi.“ Cruise er í söfnuði
sem í eru mörg hundruð þúsund
manns um allan heim? Hvað voru
fylgjendur Jesú frá Nasaret annars
margir þegar hann hóf að predika í
eyðimörkinni fyrir 2000 árum? 12?
20? Varla fleiri en það!
Í því ljósi mætti halda því fram að
Cruise væri með nokkuð gott
„start“ til Krists-embættisins, eins
og sagt er á íþróttamáli. Og á þeim
sömu nótum mætti spyrja sig, á
hvorn yrði veðjað í dag, óþekktan
trésmið frá Galíleu eða kvikmynda-
stjörnu sem milljarðar þekkja jafn
vel og sumir systkini sín?
Ef litið er yfir sögu „hinna út-völdu“ (eða „hinna smurðu“
svo notuð séu viðeigandi hugtök)
innan gyðingdómsins, þá má í orðs-
ins fyllstu merkingu segja að hún
hafi verið skrifuð af sigurveg-
urunum. Eða hver þekkir til spá-
mannsins Júdasar sem var sonur
Hezekia (ekki Ískaríots), Símons
frá Perea, Anþrongus smala og
Júdasar frá Galíleu en þeir voru af
fylgjendum sínum allir taldir Krist-
ur, á undan Jesú. Þessa menn þekk-
ir enginn í dag. Og ekki heldur þá
spámenn sem áttu sér allnokkra
fylgjendur eftir daga Jesú. Þeudas
kallaðist einn, annar gekk einfald-
lega undir nafninu „Egyptinn“ og
svo komu þeir hver af öðrum,
Manaheim, Jóhannes frá Gischala,
Simon og Jónatan vefari. Síðastur
hinna „minni“ spámanna var Shab-
betai Zevi frá Smyrnu en talið er að
hann hafi átt sér meira en hundrað
þúsund fylgjendur þegar best lét.
Shabbetai var uppi fyrir um þrjú
hundruð árum. Ættum við ekki að
hafa heyrt um hann? Komum við til
með að muna eftir Tom Cruise eftir
þrjú hundruð ár? Þökk sé kvik-
myndunum eru allar líkur á því.
Taki Tom Cruise við nýja djobb-inu er eitt morgunljóst; þeir
Jóhannes, Lúkas, Matteus og Mark-
ús, eiga lítið í þá guðspjallamenn
sem finna má í draumasmiðju
Hollywood.
Í 27. versi í sama kafla Matteus-
arguðspjalls og vitnað er í að ofan,
segir: „Eins og elding sem leiftrar
frá austri til vesturs, svo mun verða
koma Mannssonarins.“
Ég veit ekki með ykkur hin en
þetta minnir mig svolítið á atriði úr
Top Gun?
Tom Kristur eða falskristur?
Hinn útvaldi Ætli Jesús Kristur yrði ekki líka beðinn um eiginhandaráritun af fylgjendum sínum í dag?
AF LISTUM
Höskuldur Ólafsson
» „Stórkostlegt! Nú erkvikmyndaferill
þessa ofmetna leikara
loksins farinn í vaskinn,
og ekki seinna vænna!“
ELÍSABET Eyþórsdóttir hefur
verið umlukin tónlist frá blautu
barnsbeini. Foreldar hennar eru
báðir tónlistarmenn (Eyþór Gunn-
arsson og Ellen Kristjánsdóttir) og
systur hennar tvær, þær Sigríður
og Elín einnig. Yngsta systkinið,
níu ára strákur að nafni Eyþór, ku
þá afar efnilegur á því sviðinu.
Elísabet er nú í söngnámi við
Tónlistarskóla FÍH og samkvæmt
viðtali sem við hana birtist í blaði
þessu síðastliðinn desember hyggst
hún einhenda sér í tónlistina, eins
og hún á kyn til. Fyrstu þreifing-
arnar í þá áttina má heyra á þess-
ari sólóplötu hennar, ef svo mætti
kalla. Tónlistin er nefnilega eftir
Börk Hrafn Birgisson (þekktastur
fyrir veru sína í fönksveitinni Jagú-
ar) og texta á Einar Már Guð-
mundsson, eitt helsta samtímaskáld
og rithöfundur landsins. Þau þrjú
eru enda titluð fyrir plötunni á um-
slagi.
Tónlistin er lágstemmd, þar sem
kassagítarleikur Barkar er í for-
grunni. Léttdjössuð á köflum, og
einkennist af þægilegheitum og ró-
semd. Lögin eru haglega samin og
snotur, en eiga það til að skilja
ekki of mikið við sig.
Söngrödd Elísabetar er þá ekki
fyllilega mótuð enn, henni hættir til
að vera óörugg, eins og heyra má
t.d. í „Páskaliljan mín“. Röddin
sjálf er þó áheyrileg, lágvær og
seyðandi og ég efast ekki um að
Elísabet eigi eftir að temja hana á
næstu árum.
Textarnir eru þá upp og ofan.
Textinn við „Og öll þessi ef“ er t.d.
snjall en í „Ástarbirta“ má finna
eftirfarandi línu: „Þú ert mitt hold-
lega bál/þú ert mín andlega sál“.
Fremur ódýrt verður að segjast.
Platan er þá nokkuð lengi í gang,
hrekkur ekki almennilega í gír fyrr
en við sjöunda lag, titillagið, sem er
bráðgott. Sama má segja um hið
Getz/Gilberto-lega „Á morgun skín
sólin“ og „Úr tómleikans gjá“, sem
inniheldur fantagott gítarspil.
Frambærilegasta lagið er svo það
síðasta, hið þjóðlagaskotna „Ást-
arbirta“.
Það besta við plötuna er hljóm-
urinn; heildaráferðin er lagleg og
þekkileg. Umslagið fellur og í
þennan flokk, það er fallega hannað
og eigulegt. Þessir þættir eru að
gera plötuna fremur en einstakir
þættir í innihaldinu sem eiga það
til að fljóta fulltilþrifalítið fram hjá
manni.
Áferð
ofar
innihaldi
TÓNLIST
Geisladiskur
Elísabet Eyþórsdóttir syngur, Börkur
Hrafn Birgisson á lög og Einar Már Guð-
mundsson texta. Elísabet, Sigríður Ey-
þórsdóttir og Gunnar Þórðarsson koma
að samningu nokkurra laga. Hljóðfæra-
leikarar eru þeir Eyþór Gunnarsson (pí-
anó, Rhodes, Hammond, slagverk), Börk-
ur (gítarar), Scott McLemore (trommur)
og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson
(kontrabassi). Ellen Kristjánsdóttir syng-
ur í tveimur lögum. Sigurður Flosason
(sópransaxófónn), Kjartan Hákonarson
(flugelhorn) og Sigurgeir Agnarsson
(selló) leggja lið í nokkrum lögum. Eyþór
Gunnarsson stýrði upptökum. 12 tónar
gefa út.
Elísabet Eyþórsdóttir – Þriðja leiðin
Arnar Eggert Thoroddsen
KVIKMYNDIN Blood Diamond
verður frumsýnd hér á landi í dag.
Myndin gerist í Síerra Leóne á tí-
unda áratug síðustu aldar og segir
sögu tveggja ólíkra Afríkubúa. Ann-
ar er málaliðinn Danny Archer
(Leonardo DiCaprio) og hinn sjó-
maðurinn Solomon Vandy (Djimon
Hounsou). Þessir ólíku menn öðlast
smám saman sameiginlegan tilgang í
lífinu, að hafa uppá afar verðmætum
bleikum demanti.
Amnesty International á Íslandi
hyggst notast við kvikmyndina til að
upplýsa landsmenn um hinn svokall-
aða Kimberley-sáttmála. Hann
greinir frá uppruna hvers demants
þ.e. með hvaða hætti skartgripasal-
inn hefur fengið hann en vitað er að
demantar fjármagna ýmsan ófögnuð
í þriðja heiminum; vopnasölu, styrj-
aldir, barnahermennsku og þræl-
dóm. Blood Diamond verður frum-
sýnd í Sambíóunum og Háskólabíói.
Barátta Leonardo DiCaprio og Djimon Hounsou í kröppum dansi.
Frumsýning | Blood Diamond
Blóðug barátta
um demanta
Erlendir dómar:
Metacritic: 63/100
The Hollywood Reporter: 70/100
Variety: 60/100
The New York Times: 50/100
Allt skv. Metacritic.
GRÆNA ljósið frumsýnir í dag
kvikmyndina Little Children eftir
Todd Field (In the Bedroom), í
Laugarásbíói og Regnboganum.
Sem fyrr lúta sýningar Græna
ljóssins sínum eigin lögmálum, ekk-
ert hlé er gert á sýningu mynd-
arinnar og auglýsingar fyrir hana
hafðar í lágmarki.
Í myndinni skoðar Todd Field þá
bresti sem liggja undir spegilsléttu
yfirborðinu í úthverfum millistétt-
arinnar. Sagðar eru nokkrar sam-
hliða sögur úr velmegandi litlu
hverfi þar sem líf nokkurra ein-
staklinga skarast á leikvöllum,
sundlaugum og götum þeirra smá-
vaxna samfélags, á óvæntan og
jafnvel hættulegan hátt.
Þess má geta að þau Kate Winslet
og Jackie Earle Haley voru bæði til-
nefnd til Óskarsverðlauna fyrir
hlutverk sín í myndinni á dögunum.
Lítil börn Patrick Wilson og Kate Winslet í hlutverkum sínum.
Frumsýning | Little Children
Brestir undir
fáguðu yfirborði
Erlendir dómar:
Metacritic: 76/100
The Hollywood Reporter: 90/100
The New York Times: 90/100
Variety: 70/100
Allt skv. Metacritic.