Morgunblaðið - 26.01.2007, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2007 47
menning
Miðasala í síma 4 600 200 og á netinu www.leikfelag.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Athugið!
Tryggðu þér miða í tíma!
Sem fyrr: stuttur
og þéttur sýningartími.
Aðeins sýnt á Akureyri!
Fim 25.jan ........................ UPPSELT
Fös 26.jan ........................ UPPSELT
Lau 27.jan ........................ UPPSELT
Sun 28.jan ........................ UPPSELT
Fim 1.feb ........................ örfá sæti laus
Fös 2.feb ........................ UPPSELT
Lau 3.feb ........................ UPPSELT
Sun 4.feb ........................ UPPSELT
Næstu sýn: 9., 10., 16., 17. febrúar.
Ath: Sýningin er ekki við hæfi barna!
SÝNINGUNNI sem staðið hefur yf-
ir í Kling og Bang síðan í desember,
Ljósaskipti, fylgir skemmtilegur
texti. Hér er ekki aðeins um að ræða
texta um list sýnendanna fjögurra
heldur einnig eins konar persónulýs-
ingar, á skapgerð og lífssýn lista-
mannanna. Hér segir af hugs-
unarhætti þeirra og um leið án efa
margra af þeirra kynslóð sem oft
hefur verið nefnd krútt. Ef til vill
mætti líka kalla hana álfakynslóðina,
að minnsta kosti er ekki hikað við að
kalla listamennina ljósálfa í upphafi
textans, en hann skrifa Ásdís Sif
Gunnarsdóttir sem er einn af sýn-
endum og Gunnhildur Hauksdóttir
myndlistarkona. Í upphöfnum stíl
sem einkennist af því sérstaka sam-
blandi af kaldhæðni og einlægni sem
einkennir marga íslenska listamenn
af yngri kynslóðinni er áhorfand-
anum gefin áhugaverð innsýn í
hugsunarhátt listamannnanna.
Áhersla er lögð á að sjá töfra hvers-
dagsins, en einnig á hjálpsemi, nær-
gætni, næmi, viðkvæmni, réttlæt-
iskennd og trú á lífið.
Listamennirnir fjórir, Ásdís Sif
Gunnarsdóttir, Daníel Björnsson,
Hekla Dögg Jónsdóttir og Sirra –
Sigrún Sigurðardóttir, sýna öll inn-
setningar í húsnæði Kling og Bang
undir nafninu Ljósaskipti, í
tengslum við árstímann. Þegar inn
kemur er það verk Ásdísar sem tek-
ur á móti áhorfendum, flöktandi
mynd er varpað á vegg og á gólfi eru
hlutir eins og lítil diskókúla og pýra-
mídar sem hleypa ljósi og birtu i
gegnum sig. Litríkum einingum er
fyrir komið hist og her svo virðist
sem af kæruleysi en heildin skapar
líkt og nútímalegt landslag, samspil
tækni og náttúru, einkalífs og op-
inbers rýmis og verkið breytist stöð-
ugt eftir staðsetningu áhorfandans.
Í veggverki Heklu Daggar Jóns-
dóttur þar sem filma hreyfist í sífellu
og spilar með form og ljós er unnið
með áhrif fortíðar, verk op- og pop-
listamanna koma upp í hugann.
Sirra – Sigrún Sigurðardóttir vinnur
hér á ný með þunna plastfilmu sem
skapar aflokað rými líkt og hún
gerði á sýningunni Pakkhús post-
ulanna fyrir skömmu, nema hér er
áhorfandinn staðsettur inni í rými
hennar. Þetta er spennandi hráefni
og eins og raunin var í Hafnarhúsinu
verður einnig hér til áhugavert rými
sem vekur forvitni og heldur áhorf-
andanum föngnum. Úr kjallara
berst síðan þung rotnunarlykt, hér
eru það jólaeplin sem er farið að slá
í, en Daníel Björnsson hefur skapað
innsetningu úr eplum, kandíflosi og
sykri, þar sem ofgnótt og tilfinning
um hverfulleika er ríkjandi.
Sýningin er nokkuð dæmigerð
fyrir ákveðna strauma í íslensku
listalífi nú um stundir, þar sem sam-
an vinna nútíma tækni, aðskiljanleg-
ustu fundnir hlutir úr hversdagslíf-
inu, tilvísanir í listasögu, hlutverk
áhorfandans og persónu listamanns-
ins, allt í einum graut. Vísun í sam-
tíma og samfélag má finna í epla-
verki Daníels, sem hugsanlega
athugasemd við jólaofgnótt landans.
Í heild kemur vel fram það frelsi
sem listamenn dagsins nýta sér vel,
að því er virðist án þess að það
íþyngi þeim hið minnsta. Útlit verk-
anna einkennist af áhyggjuleysi en
lestur textans sem fylgir verkunum
segir okkur líka að yfirborðið er ekki
allt.
Myrkrið lýst upp
Dæmigert „Sýningin er nokkuð
dæmigerð fyrir ákveðna strauma í
íslensku listalífi nú um stundir“.
MYNDLIST
Kling og Bang
Til 28. janúar. Opið fim. til sun. frá kl. 14–
18. Aðgangur ókeypis.
Ljósaskipti, Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Daní-
el Björnsson, Hekla Dögg Jónsdóttir, Sirra
– Sigrún Sigurðardóttir
Ragna Sigurðardóttir
ÞAÐ stefnir í bráðfjöruga músík-
helgi, nú þegar Myrkir músíkdagar
standa í hásuðri.
Þeir sem hrífast af góðum píanóleik
ættu ekki að missa af tónleikum Sus-
anne Kessel í Salnum á laugardags-
kvöld kl. átta. Kessel er þýsk og þekkt
fyrir að fara ótroðnar slóðir í efnisvali
á tónleikum sínum og geisladiskum.
Hún þykir hafa afar persónulegan og
glæsilegan stíl, sem hefur fært henni
margvíslegar viðurkenningar, þar á
meðal alþjóðlegu Schubertverðlaunin
árið 1993.
Hér frumflytur hún verk eftir Atla
Heimi Sveinsson og Kjartan Ólafs-
son. Önnur tónskáld sem eiga verk á
efnisskrá hennar nú eru Haukur
Tómasson, Þorkell Sigurbjörnsson,
Árni Egilsson, John Cage, Ulrike
Haage, Peter Feuchtwanger, Michael
Denhoff, Leon Milo og Katharina
Binder sem hlýtur að vera eitt yngsta
tónskáld dagsins í dag, eða 13 ára,
fædd 1994.
Á þessu ári mun Susanne Kessel
taka upp geisladisk fyrir Oehms Clas-
sics með íslenskri píanótónlist.
Tónleikarnir verða endurteknir í
Laugarborg í Eyjafirði á sunnudag
kl. 15.
Norræn raftónlist í Salnum
Það er hægt að reiða sig á að Myrk-
ir músíkdagar bjóði upp á raftónlist,
ef raftónleikar hátíðarinnar nú verða í
Salnum í kvöld kl. 20. Norræn tón-
skáld verða þar í öndvegi, Hans Peter
Stubbe Teglbjaerg, Fredric Bergs-
tröm, Ríkharður H. Friðriksson,
Kjartan Ólafsson og Hilmar Þórðar-
son og fleiri.
Úr saungbók Garðars Hólm
Í Laugarborg verða söngtónleikar
á morgun kl. 15. Michael Clarke bari-
tón og Þórarinn Stefánsson píanóleik-
ari verða þar að verki, frumflytja
Ferðalög eftir Óliver Kentish, en
flytja líka lag eftir Jón Hlöðver Ás-
kelsson og svo ljóðaflokk eftir Mich-
ael sjálfan, Úr saungbók Garðars
Hólm, við ljóð Halldórs Laxness.
Það er hægt að sameina myndlist
og tónlist í menningarupplifun helg-
arinnar, því þær Þórunn Ósk Mar-
inósdóttir víóluleikari og Steinunn
Birna Ragnardóttir píanóleikari
halda myrkratónleika sína í Lista-
safni Íslands á morgun kl. 17.30 og
spila þar verk eftir Þórð Magnússon,
Kjartan Ólafsson og Hafliða Hall-
grímsson.
The Slide Show Secret kallast tón-
leikar sem verða í Salnum kl. 14 á
sunnudag. Þar er heldur óvenjulegt
hljóðfæradúó á ferð, í þeim Kristjáni
Orra Sigurleifssyni kontrabassaleik-
ara og Evu Zöllner harmónikkuleik-
ara, en þau leika norræna tónlist.
Blásarasveit Reykjavíkur er einn
af fastagestum Myrkra músíkdaga og
spilar í Seltjarnarneskirkju á sunnu-
dag kl. 17. Þar verður frumflutt verk
eftir Eirík Árna Sigtryggsson sem
ber það kræsilega nafn Truflaður
tangó en önnur tónskáld sem eiga
verk þar eru Tróndur Bogason og
Tryggvi M. Baldvinsson, stjórnandi
blásarasveitarinnar. Einleikari í klar-
inettukonsert Tryggva er Helga
Björg Arnardóttir.
Á sunnudagskvöld kl. 20 verður
Salurinn á ný vettvangur hátíðarinn-
ar, en þar spilar ítalski píanóleikarinn
Sebastiano Brusco íslensk og ítölsk
verk frá ýmsum tímum og leiðir sam-
an tónskáld á borð við Clementi, Scar-
latti, Nino Rota og Atla Ingólfsson.
Nikka og bassi og 13 ára tónskáld á Myrkum músíkdögum
Víóluleikarinn Þórunn Ósk Mar-
inósdóttir stígur út úr myrkrinu í
Listasafni Íslands á morgun.
Nýr Truflaður tangó
TENGLAR
..............................................
www.listir.is
www.susanne-kessel.de
SILVÍA Nótt hefur ráðið sér nýjan
umboðsmann, en sá er breskur og
heitir Crisbin Thomas, sonur upp-
tökustjórans Ken Thomas sem hef-
ur starfað töluvert hér á landi og
unnið með sveitum á borð við Sigur
Rós. Crisbin hefur verið umboðs-
maður hennar í um það bil þrjá
mánuði. „Hún fangaði bara athygli
mína, enda ekki annað hægt,“ segir
Crisbin um tilefni þess að hann tók
starfið. Vinna stendur nú yfir að
fyrstu breiðskífu Silvíu sem stefnt
er að því að gefa út í apríl. Í byrjun
kemur hún út hér á landi en Crisbin
vonast til að koma henni að á er-
lendum mörkuðum. „Eins og er
stefnum við að Bandaríkjamarkaði,
en einnig að Bretlandi og Evrópu,“
segir Crisbin, sem er sannfærður
um að Silvía geti slegið í gegn á er-
lendri grundu. „Hún er bara svo
öðruvísi, sviðsframkoma hennar er
engu öðru lík, það er að segja þessi
kabarett-stíll og þessi persóna sem
hún hefur skapað. Fólk þarf á þessu
að halda núna og það eru margir
sem eru að reyna eitthvað í þessa
átt, til dæmis Robbie Williams,“
segir hann. „En hún minnir mig á
David Bowie í hlutverki Ziggy Star-
dust, hún er að búa til einhvern
karakter og fara með hann eins
langt og hún getur. Það má líka
nefna Marilyn Manson og Adam
and The Ants í þessu sambandi.“
Náist samkomulag um útgáfu plöt-
unnar í Bretlandi og Bandaríkj-
unum telur Crisbin öruggt að tón-
leikaferð fylgi í kjölfarið.
Aðspurður segist hann ekki vita
hvort Silvía geti náð viðlíka vin-
sældum í Bretlandi og vinkonur
hennar í Nylon. „Ég heyrði um Ny-
lon þegar ég kom hingað en ég hef
aldrei heyrt á þær minnst í Bret-
landi. Það eru allir hér að segja að
þær séu stórt nafn í Bretlandi en ég
hef aldrei heyrt á það minnst þar,“
segir Crisbin að lokum.
Morgunblaðið/Eggert
Töff Sölvi Blöndal, Silvía Nótt og Crisbin á hlustendaverðlaunum FM957.
Með nýjan umboðsmann