Morgunblaðið - 26.01.2007, Side 56
Morgunblaðið/Ómar
Birgjar verðlaunaðir Athygli viðskiptavina verslanakeðjunnar Bónuss
er vakin á vörum sem ekki hafa verið hækkaðar í verði.
Fá áberandi hillupláss
Bónus verðlaunar birgja sem ekki hafa hækkað verð á vörum
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
VERSLANAKEÐJAN Bónus hef-
ur tekið upp á því að verðlauna þá
birgja sem ekki hafa hækkað verð
á vörum sínum til verslunarinnar,
með því að vekja sérstaka athygli
viðskiptavina á þessum vörum, að
sögn Guðmundar Marteinssonar,
framkvæmdastjóra Bónuss.
„Við erum að benda viðskipta-
vinum okkar á vörur frá birgjum
sem ekki hafa hækkað. Til dæmis
byrjuðum við í morgun [í gær] að
auglýsa allt lambakjöt frá Kaup-
félagi Skagfirðinga en það er engin
hækkun þar,“ segir Guðmundur og
bætir við að jákvæð viðbrögð hafi
fengist við þessu. Bónus muni
halda áfram að reyna að verðlauna
þá birgja sem ekki hafi boðað
hækkun og athuga hvort það hafi
hugsanlega þau áhrif á aðra birgja
að þeir dragi hækkanir til baka.
Guðmundur segir að töluvert
hafi verið um hækkanir frá birgj-
um undanfarið og fleiri hækkanir
hafi verið boðaðar á næstunni.
Hækkanir birgja til verslana séu
frá 3% og upp í nokkra tugi pró-
senta. „Sem dæmi má nefna að all-
ur ávaxtasafi hækkar um 20–30%
vegna hráefnishækkana,“ segir
hann og vísar til uppskerubrests á
appelsínum. Algengustu skýringar
birgja á hærra verði til verslana
séu launahækkanir 1. janúar sl.
Beðnir að sýna hófsemi
„En við erum að reyna að biðja
birgja að sýna hófsemi í þessum
hækkunum og athuga hvort ekki sé
hægt að hliðra til og gera sparnað-
arráðstafanir.“
Guðmundur segir ennfremur að
þótt birgjar hækki verð sitt sé ekki
þar með sagt að verð varningsins
hækki út úr búð.
„Eins og staðan er núna tökum
við á okkur stóran hluta af þessum
hækkunum,“ segir Guðmundur.
Verslunin meti það í hverju tilviki
fyrir sig hvort ástæða sé talin til
þess að hækka verð á vörunni út úr
búð.
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 26. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
5
7
6
1
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Hægviðri, þurrt
og svalt á NA-
landi. SV 3–8 m/s,
slydda eða súld S-
og V-lands. Svo vestlægari,
þykknar upp A-lands. » 8
Heitast Kaldast
6°C -1°C
MIKIÐ hvassviðri gekk yfir austanvert
landið í gær og olli tjóni a.m.k. í Öræfum
og á Seyðisfirði.
Í Öræfasveit var ekkert ferðaveður
fyrripart gærdagsins þegar vindhviður
fóru í 40–50 m/sek. Þar flettist klæðning
af þjóðveginum við Kvísker, eins og með-
fylgjandi mynd fréttaritara Morgunblaðs-
ins sýnir.
Víðar var mjög hvasst og óveður á fjall-
vegum á Austur- og Norðausturlandi sam-
kvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.
Auk hvassviðrisins var einnig hálka á
þessum leiðum og því viðsjárvert ferða-
veður. Þá var varað við miklu hvassviðri
með grjóthruni og sandfoki við Hvalsnes.
Gömul söltunarskemma á svæði Norður-
síldar við Seyðisfjörð fauk að hluta í gær-
morgun. Skemman var ekki lengur í notk-
un. Einnig fauk þar stór aftanívagn á
hliðina.
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
Óveður Hvassviðrið fletti klæðningunni af
þjóðveginum við Kvísker í Öræfum.
Hvassviðri
austanlands
Vegklæðning flettist af
og skemma fauk að hluta
FRUMFLUTT verður
nýtt íslenskt leikrit
næstkomandi sunnudag
á vegum leikhópsins
Hins lifandi leikhúss í
Borgarleikhúsinu.
Verkið heitir Eilíf ham-
ingja og er eftir þá
Þorleif Arnarsson, sem
einnig leikstýrir verk-
inu, og Andra Snæ
Magnason. Í kjölfarið
verður farið með verkið til Þýskalands.
Maxím Gorkí-leikhúsið í Berlín ákvað
fyrir skömmu að hefja sýningar með
leikhópum frá öðrum Evrópulöndum sem
gerðu nútímann að efniviði sínum. Þor-
leifur nemur leikstjórn í Berlín og bentu
skólayfirvöld á hann sem verðugan þátt-
takanda í hinu nýja verkefni.
Það varð úr að hópnum var boðið til
Berlínar þar sem Eilíf hamingja verður
sýnd a.m.k. tvisvar sinnum í febrúar og
að sögn Þorleifs er nú þegar nánast
uppselt á báðar sýningarnar, þótt verkið
hafi ekki enn verið frumsýnt hér á
landi. | 43
Leikritið Eilíf hamingja
Þorleifur
Arnarsson
Frumsýnt
í tveimur löndum
♦♦♦
MIKIL mildi þykir að ekki varð stórslys þegar
andlega vanheill maður tók stóran tíu hjóla
dráttarbíl ófrjálsri hendi seint í gærkvöldi og ók
honum á miklum hraða um austurhluta höfuð-
borgarsvæðisins. Sinnti hann hvorki stöðvunar-
merkjum lögreglu né rauðum umferðarljósum.
Fjöldi lögreglubíla tók þátt í eftirförinni þar til
tókst að stöðva dráttarbílinn við Vífilsstaðaveg.
Að sögn lögreglunnar var maðurinn vistaður
á geðheilbrigðisstofnun en hafði farið þaðan.
Hann hafði unnið hjá Samskipum og vissi hvar
nýjar, ótollafgreiddar bifreiðar voru oft geymd-
ar ólæstar og með lyklunum í. Maðurinn mun
hafa notað sér þá vitneskju, sótti sér dráttarbíl
og fór í ökuferð um borgina.
Stefndi sér og öðrum í mikla hættu
Lögreglumenn sem voru í eftirlitsferð í aust-
urborginni sáu númerslausan bílinn á ferð og
gáfu stöðvunarmerki. Ökumaðurinn sinnti því
engu en jók hraðann og ók suður Reykjanes-
braut þar sem hann brunaði gegn rauðum um-
ferðarljósum á fernum gatnamótum á allt að 100
km hraða. Með þessari háttsemi stefndi hann
sjálfum sér og öðrum vegfarendum í mikla
hættu, enda getur dráttarbíll af þessari gerð
verið á annan tug tonna að þyngd, að sögn lög-
reglunnar.
Lögreglunni tókst að koma einum sinna bíla
fram fyrir dráttarbílinn og ók hann með neyð-
arljósum og sírenuvæli til að bægja annarri um-
ferð frá. Á síðustu tvennum gatnamótunum sem
dráttarbíllinn brunaði yfir á fullri ferð höfðu
lögreglumenn tekið sér stöðu til að hleypa hon-
um í gegn og stöðva aðra umferð.
Loks gafst ökumaður dráttarbílsins upp og
lét af háskaakstrinum þegar komið var suður í
Garðabæ.
„Þetta er þvílík Guðs mildi að ekki varð stór-
slys,“ sagði varðstjóri lögreglu höfuðborgar-
svæðisins.
„Þvílík Guðs mildi
að ekki varð stórslys“
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Ofsaakstur Lögreglan veitti stórum dráttarbíl eftirför á Reykjanesbraut. Brunaði hann gegn
rauðum umferðarljósum á fernum gatnamótum áður en hann var stöðvaður við Vífilsstaðaveg.
Vanheill maður tók ólæstan
dráttarbíl á geymslusvæði
og ók honum á ofsahraða
um austurborgina