Morgunblaðið - 16.02.2007, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 11
FRÉTTIR
VATNSBORÐ Hálslóns, meginlóns
Kárahnjúkavirkjunar, er komið í
um 569 metra hæð yfir sjávarmáli
og hefur einungis hækkað um 2,5
sentímetra á sólarhring að með-
altali undanfarna viku. Þetta er
minnsta innstreymi í lónið á einni
viku „frá því mælingar hófust“ en
fylling lónsins hófst 29. september á
síðasta ári. Lónið verður um 622 m
y.s.
Í janúarmánuði hækkaði vatns-
borðið að jafnaði um 7 cm á sólar-
hring. Í fyrstu hækkaði vatnsborðið
mun hraðar, en nú er meðalrennsli
Jöklu minna og því hækkar Hálslón
hægt.
Lónið verður að flatarmáli 57 fer-
kílómetrar og 2.350 milljónir rúm-
metra þegar það er fullt. Mesta
vatnsdýpi næst stíflunni verður um
180 metrar. Hálslón tekur vatn af
vatnasviði sem spannar 1.806 fer-
kílómetra og áætlað meðalrennsli í
lónið nemur um 107 rúmmetrum á
sekúndu.
Á því svæði sem Hálslón mun
þekja eru auk gróðurlendis þekkt
burðar- og farsvæði hreindýra og
fornminjar frá því um 950, sem hafa
verið rannsakaðar og skrásettar.
Núverandi aurburður í Jöklu
mun að mestu leyti setjast til í lón-
inu og miðað við núverandi fram-
burð mun lónið fyllast á um 400 ár-
um.
Skerðing á lónrýmd mun ekki
hafa nein teljanleg áhrif á rekstur
virkjunarinnar a.m.k. fyrstu 100 ár-
in.
Morgunblaðið/RAX
Vetrarríki Hálslón við Kárahnjúka er óðum að fyllast af vatni Jöklu en
byrjað var að fylla lónið í lok september á síðasta ári.
Hálslón fyllist smám saman
Í NÆSTU viku taka hundruð ung-
linga þátt í verkefni sem er skipu-
lagt af Samfés, samtökum fé-
lagsmiðstöðva, til að vekja athygli á
mikilvægi vináttu í lífinu. Um er að
ræða leynivinaviku sem fer þannig
fram að þátttakendur fá í hend-
urnar upplýsingar um annan þátt-
takanda í leiknum og einbeita sér
svo að því í vikunni að vera góður
vinur þess aðila með ýmsum hætti.
Allar póstsendingar innan verk-
efnisins fara í gegnum félagsmið-
stöðvarnar og verða þær gjald-
frjálsar. Íslandspóstur hf. sér til
þess að allir sem taka þátt fái frí-
merki sérmerkt Leynivinaleiknum.
Til að vekja athygli á verkefninu
hefur Samfés sent áskorun til al-
þingismanna um að taka þátt í
leynivinaleik. Eftir að vikunni lýk-
ur verður birtur listi yfir hver var
leynivinur hvers á hinu háa Al-
þingi. Það verður spennandi að sjá
hvaða góðverk verða gerð á Al-
þingi, þvert á flokkslínur og pólitík,
segir í frétt frá Samfés.
Morgunblaðið/Kristinn
Á þingi Að Samfés-vikunni lokinni
ur verður birtur listi yfir hver var
leynivinur hvers á Alþingi.
Vinátta er
mikilvæg
BÆJARSTJÓRN Seltjarnarness hefur samþykkt að
hækka afslátt af fasteignagjöldum elli- og örorkulífeyr-
isþega um ríflega 20% frá og með 1. janúar 2007.
Hækkun afsláttarins er annars vegar ætlað að taka
mið af verðlagsbreytingum síðasta árs, hækka árlegan
afslátt þeirra er njóta og jafnframt stækka hóp þeirra
sem njóta afsláttar Seltjarnarnesbæjar af fasteigna-
gjöldum.
Jafnframt er sú nýbreytni tekin upp að ekki er lengur
þörf á sérstakri umsókn um afsláttinn heldur reiknast
hann sjálfkrafa út við álagningu fasteignagjalda í nýju
álagningarkerfi bæjarins, segir í frétt frá bænum.
Aukinn afsláttur á Nesinu
Gróttuviti á
Seltjarnarnesi.
HÁÞRÝSTIDÆLA hefur verið tek-
in í notkun til að hreinsa veggja-
krot af eignum borgarinnar. Tveir
starfsmenn Framkvæmdasviðs
verða í verkefnum með dæluna
næstu vikur og mánuði því verk-
efnalistinn er langur.
Háþrýstingur
VINNUMIÐLUN ungs fólks (VUF)
opnar fyrir umsóknir vegna sum-
arstarfa hjá borginni á mánudag.
Þeir sem eru fæddir 1990 eða fyrr
og eiga lögheimili í Reykjavík geta
sótt um. Einungis er tekið á móti
rafrænum umsóknum, sjá nánar á
www.vuf.is
Vinnumiðlun
BESTU nemendur Háskólans í
Reykjavík voru heiðraðir í vik-
unni. Að þessu sinni hlutu 59
nemendur viðurkenningu fyrir
frábæran árangur á síðustu önn.
Þessir nemendur komast þar með
á svokallaðan forsetalista HR. 31
kona er á forsetalistanum og 28
karlmenn. Straumur-Burðarás
fjárfestingarbanki hf. greiðir
skólagjöld þessara nemenda á
þessari önn.
Forsetalisti
STJÓRN Heim-
ilis og skóla hef-
ur samþykkt að
ráða Björk Ein-
isdóttur í starf
framkvæmda-
stjóra. Hún hefur
lokið diplóma-
námi í náms- og
starfsráðgjöf,
kennslufræðum
og er með BA-próf í íslensku. Björk
stundar nú MA-nám við HÍ, í upp-
eldis- og menntunarfræðum með
áherslu á fræðslustarf og stjórnun.
Heimili og skóli
Björk Einisdóttir
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
TALSMAÐUR neytenda, Gísli
Tryggvason, sendi í gær tilmæli til
Icelandair og Iceland Express þar
sem hann mæltist til þess að flug-
félögin hættu, frá og með 1. mars
næstkomandi, að nefna hluta heild-
arverðs fyrir flugferðir „gjöld“
nema að uppfylltum ákveðnum
skilyrðum.
Í tilmælunum sem birt eru á
heimasíðu talsmanns neytenda
(www.tn.is) segir m.a.: „Sé til-
greint að hluti heildarverðs sé
vegna „gjalda“ séu eftirgreind skil-
yrði uppfyllt: Um sé að ræða
greiðslur (1.) vegna afmarkaðrar
og valkvæðrar aukaþjónustu eða
(2.) vegna gjalda sem skylt er á
hverjum tíma að greiða í hlutfalli
við fjölda farþega samkvæmt
reglum opinbers réttar eða sam-
kvæmt samningi við ótengda
þriðju aðila.“
Erlendum flugfélögum sem
fljúga hingað til lands verða send
tilmæli talsmanns neytenda. Er
það gert til að gæta jafnræðis milli
flugfélaga og einnig til að fyrir-
byggja að gengið verði á hagsmuni
og réttindi viðskiptavina erlendu
flugfélaganna.
Talsmaður neytenda óskaði 27.
desember sl. eftir upplýsingum frá
Icelandair og Iceland Express um
heildartekjur og heildargjöld hvors
félags síðustu 18 mánuði af skött-
um og svonefndum „gjöldum“. Er-
indin voru ítrekuð 18. janúar sl. og
bárust skrifleg svör frá báðum fé-
lögum um meirihluta þessa tíma-
bils síðdegis í fyrradag og fyrir há-
degi í gær.
„Að þessu loknu hefst næsti
þáttur: Var brotið gegn neytend-
um með því að taka þessi gjöld?“
spurði Gísli Tryggvason, talsmaður
neytenda.
Flugfélögin bregðast við
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Icelandair, sagði að til-
mæli talsmanns neytenda kæmu í
framhaldi af samskiptum félagsins
við embættið. Hann sagði að Ice-
landair myndi breyta framsetningu
kostnaðarliðaðarins „skattar og
gjöld“ við farmiðakaup á Netinu á
næstu dögum eða vikum. Þegar er
hafin vinna við undirbúning þess,
en ekki ljóst hvenær henni lýkur.
Búið er að gera slíkar breytingar í
netsölukerfi Icelandair í Banda-
ríkjunum og unnið að þeim á
Norðurlöndunum.
Guðjón lagði áherslu á að breyt-
ingin myndi ekki hafa áhrif á end-
anlegt verð til neytenda, heldur
væri um tæknilega breytingu á
framsetningu verðs að ræða.
Guðjón sagði að Icelandair hefði
farið að dæmi flugfélaga um allan
heim sem brugðust við eldsneyt-
ishækkunum með sama hætti og
bættu við sérstöku eldsneytis-
gjaldi. Af samkeppnisástæðum
hefðu flugfélögin elt hvert annað.
Þetta væri ekki sá birtingarmáti
sem félagið vildi helst nota, hvað
þá neytendur.
Enginn munur er á því í hvora
áttina farþegi flýgur milli Banda-
ríkjanna og Íslands eða í hvoru
landinu farmiðinn er keyptur, hvað
varðar kostnaðarliðinn „skatta og
gjöld“ að sögn Guðjóns. Hann
sagði framsetningarmáta far-
gjaldaverðs ólíkan eftir löndum
vegna mismundandi reglna. Mögu-
legur verðmunur á sambærilegum
sætum á sömu leið skýrðist af öðr-
um ástæðum.
Valgeir Bjarnason, tekjustjóri
Iceland Express, sagði að tilmæli
talsmanns neytenda væru í sam-
ræmi við það sem rætt hefði verið
við félagið. Iceland Express inn-
heimti „skatta og gjöld“ af farþeg-
um og hefði birt sérstaklega á
heimasíðu sinni hvað við væri átt
með því. Þessi gjöld væru öll
greidd til opinberra þjónustuaðila
vegna flugsins. Einnig væri þar
sérstök eldsneytisálagning sem
væri mjög mismunandi eftir flug-
völlum og afgreiðsluaðilum og gæti
sveiflast talsvert.
Valgeir sagði að mikil umræða
væri innan fyrirtækisins um birt-
ingarhátt þessara gjalda og verið
að athuga hvað hægt væri að gera
í þeim efnum. Hann sagði að þessi
kostnaður birtist sundurliðaður á
fyrsta stigi bókunarvélar félagsins
á Netinu. Öll gjöld væru innifalin í
auglýstu heildarverði og á öðru
stigi bókunarvélarinnar birtist
heildarverð til farþega. Farþegar
ættu því að geta séð á auðveldan
hátt hvað farmiðinn kostaði. Val-
geir taldi Iceland Express skil-
greina „gjöld“ nú þegar samkvæmt
tilmælum talsmanns neytenda,
nema eldsneytisálagið væri erfitt
viðureignar því það þyrfti að áætla
samkvæmt gefnum forsendum.
Farið yrði yfir hvernig væri hægt
að nálgast tilmæli talsmanns neyt-
enda betur hvað það varðaði.
Í bága við lög
Talsvert hefur verið fjallað um
innheimtu flugfélaganna á „skött-
um og gjöldum“ frá því að grein
FÍB-blaðsins birtist á liðnu hausti.
Þessi umræða hefur verið í hefð-
bundnum fjölmiðlum og undanfarið
á bloggsíðu Friðjóns R. Friðjóns-
sonar (fridjon.blog.is. Kastljós
Sjónvarpsins tók málið upp í fyrra-
kvöld og ræddi Jóhanna Vilhjálms-
dóttir fréttamaður þar við Guðjón
Arngrímsson. Hann sagði m.a. að
framsetning farmiðaverðs á Netinu
væri ekki í lagi að mati þeirra hjá
Icelandair. Auglýst verð ætti að
vera það sem greitt væri og auk
þess væri kveðið á um þetta í lög-
um. Viðurkenndi hann að sennilega
væri félagið að brjóta lög.
„Ég nefndi að þessi framsetn-
ingarmáti kynni að stangast á við
lög til þess að koma málinu á
hreyfingu og viðbrögðin létu ekki á
sér standa,“ sagði Guðjón í samtali
við Morgunblaðið í gær. „Flug-
félögin fengu leiðbeiningu hér líkt
og annars staðar og nú fer þetta í
rétt horf.“
Engin kæra til Neytendastofu
Tryggvi Axelsson, forstjóri
Neytendastofu, sagði að stofnunin
hefði ekki skoðað álagningu
„skatta og gjalda“ á flugferðir með
formlegum hætti. Hann sagði að
rætt hefði verið um „netsölur“ inn-
anhúss hjá Neytendastofu og hvort
og þá hvernig mætti skoða þær
kerfisbundið. Aðstæður hefðu hins
vegar ekki leyft að taka þær til
skipulegrar rannsóknar þótt full
ástæða kynni að vera til.
„Við vinnum vegna kæru eða
ábendingar og úrskurðum í því
sambandi. Það má segja að slík
mál ráði ferðinni hjá okkur og að
við höfum minna svigrúm til að at-
huga mál að eigin frumkvæði,“
sagði Tryggvi. Hann sagði enga
beiðni eða ábendingu um álagn-
ingu „skatta og gjalda“ á flugferðir
hafa borist Neytendastofu. Ef slík
ábending bærist yrði það tekið til
sjálfstæðrar skoðunar og málið
fengi þá meiri forgang.
Morgunblaðið/Ómar
Fargjöld Flugfarþegum hefur oft komið á óvart hve „skattar og gjöld“
hafa reynst stór hluti af heildarfargjaldinu.
Heildarverð flugfar-
miða innifeli „gjöld“
Talsmaður neyt-
enda beinir
tilmælum til
Icelandair og
Iceland Express
Í HNOTSKURN
» FÍB-blaðið vakti athygli á þvíí nóvember sl. að Icelandair
og Iceland Express hefðu hækk-
að það sem kallað væri „skattar
og gjöld“ og bættist ofan á far-
gjaldaverð í netsölu, um allt að
147% á þáliðnum þremur árum.
» Þessi kostnaðarliður varsagður helgast að hluta af
gríðarmiklum eldsneytishækk-
unum og gripu mörg flugfélög til
þess ráðs að leggja á eldsneyt-
isgjald.