Morgunblaðið - 16.02.2007, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÞRÁTT fyrir mikla hækkun á gengi
bréfa Hf. Eimskipafélagsins í Kaup-
höllinni í gær varð lítils háttar lækk-
un á Úrvalsvísitölunni, eða um 0,8%.
Endaði vísitalan í 7.312 stigum. Bréf
Össurar hækkuðu um 3,49%,
Straumur-Burðarás fór upp um
2,56% og FL Group um 2,28%. Mest
lækkun varð á bréfum Atlantic Petrol-
um, 1,59%, og bréf Kaupþings fóru
niður um 1,1%.
Lækkun í kauphöll
● STÓRU viðskiptabankarnir; Kaup-
þing, Glitnir og Landsbankinn, munu
í næsta mánuði fara inn í Dow Jones
Stoxx 600-vísitöluna. Íslensk félög
hafa ekki verið þar inni áður en bank-
arnir eru meðal 14 nýrra félaga sem
fara þarna inn. Frá þessu var greint í
Hálffimmfréttum Kaupþings og Veg-
vísi Landsbankans.
Umrædd vísitala samanstendur af
600 stórum, meðalstórum og litlum
fyrirtækjum í 18 löndum Evrópu og
var sett á laggirnar árið 1991. Hefur
vísitalan hækkað um 17% síðasta
árið en þyngst vegur HSBC-bankinn
innan hennar. Meðal þeirra félaga
sem detta út úr vísitölunni nú er hol-
lenska tæknifyrirtækið Stork, sem
Marel hefur sýnt áhuga á að kaupa
að hluta.
Bankarnir í Dow Jones
● EYRIR Invest
heldur áfram að
styrkja stöðuna í
helstu fjárfest-
ingum sínum. Nú
er félagið komið
með yfir 30% hlut
í Marel, síðast
með kaupum á
1,16% hlut fyrir
um 318 milljónir
króna. Eyrir hefur
einnig verið að styrkja stöðu sína í
Össuri sem næststærsti hluthafinn.
Eyrir er hins vegar stærsti hluthafinn
í Marel en forstjóri Eyris, Árni Oddur
Þórðarson, er stjórnarformaður Mar-
els. Fram kom hjá Árna á afkomuf-
undi Marels í vikunni að lagt yrði til
við aðalfund félagsins í næsta mán-
uði að færa hlutaféð úr krónum yfir í
evrur.
Eyrir enn á ferðinni
Árni Oddur
Þórðarson
SJÁLFKJÖRIÐ er í stjórn Glitnis,
en sjö hafa gefið kost á sér í stjórnina
sem kjörin verður á aðalfundi 20.
febrúar næstkomandi. Eftirtaldir
hafa gefið kost á sér: Einar Sveins-
son, Guðmundur Ólason, Hannes
Smárason, Jón Sigurðsson, Karl
Wernersson, Skarphéðinn Berg
Steinarsson og Þórarinn V. Þórar-
insson. Þeir Hannes og Þórarinn
verða nýir í stjórninni en þeir koma í
stað Jóns Snorrasonar og Edwards
Allen Holmes. Í varastjórn gefa kost
á sér: Eiríkur S. Jóhannsson, Guð-
mundur Ásgeirsson, Gunnar Jóns-
son, Hlíf Sturludóttir, Paul Rich-
mond Davidson, Steingrímur
Wernersson og Þorsteinn M. Jóns-
son. Athygli vakti í fyrra þegar Ed-
ward Allen Holmes var kjörinn í
stjórn, en hann var áður m.a. einn
stjórnenda Citibank. Þótti Glitni
mikill fengur í stjórnarsetu Holmes.
Holmes fer úr
stjórn Glitnis
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
BRÉF Hf. Eimskipafélags Íslands,
áður Avion Group, hækkuðu um
8,39% í kauphöll OMX á Íslandi í
gær, sem var langmesta einstaka
hækkun dagsins. Upphafsgengi
dagsins var 31, hæst fór það í 34,10 en
lokagengið var 33,60. Upphæð við-
skiptanna var í sjálfu sér ekki mikil,
eða fyrir 589 milljónir króna, en
færslurnar yfir daginn voru alls 120
sem að telst dágóður fjöldi. Verðmæti
félagsins hækkaði í gær um 4,7 millj-
arða króna, fór úr 55,6 milljörðum í
60,3 milljarða.
Sala á eigin bréfum
Eina flöggun gærdagsins tengd fé-
laginu var sala eigin bréfa vegna
kaupa Eimskipa á hollenska frysti-
geymslufyrirtækinu Daalimpex fyrir
um mánuði. Voru 15 milljónir hluta
seldar á genginu 33,1 og andvirðið því
um 496 milljónir króna.
Hækkun hlutabréfanna í gær er
rakin til nýs verðmats sem greining-
ardeild Landsbankans skilaði af sér á
miðvikudag og fór til valinna við-
skiptavina bankans. Hafði verðmatið
ekki verið gefið formlega út í gær.
Samkvæmt matinu er mælt með
yfirvogun á bréfunum, þ.e. að bréfin
muni hækka á næstunni, og því mælt
með því við fjárfesta að þeir kaupi
bréf félagsins. Leggur greiningar-
deildin til verðmatsgengi til næstu 12
mánaða upp á 45,2, eða 34,5% hærra
en lokagengið á markaðnum í gær.
Verður þessi munur milli verðmats
og markaðsgengis að teljast í hærri
kantinum miðað við það sem gengur
og gerist. Samkvæmt matinu ætti
markaðsvirði félagsins að vera ríf-
lega 80 milljarðar króna.
Markmiðum verði náð
Í greinargerð greiningardeildar
bankans segir m.a. að rekstur dótt-
urfélagsins Eimskips á síðasta ári
hafi verið í takt við væntingar en önn-
ur félög innan samstæðunnar valdið
vonbrigðum. Eftir miklar breytingar
á eignasamsetningu félagsins muni
það að mestu ná metnaðarfullum
markmiðum sínum á þessu ári, sér í
lagi vegna Eimskipa og Air Atlanta.
Síðasta ár hafi verið forveranum, Av-
ion Group, einkar erfitt framan af.
Stærstu einstöku eigendur Hf.
Eimskipafélagsins eru Frontline
Holding, félag í eigu Magnúsar Þor-
steinssonar, og Fjárfestingafélagið
Grettir, með vel yfir 30% hlut hvort
félag. Þar næst á hluthafalistanum
koma Landsbankinn og Straumur-
Burðarás.
Nýtt verðmat olli 8,4%
hækkun á hlutabréfum
Verðmæti bréfa Eimskipafélagsins jókst um 4,7 milljarða í gær
!"#
$# % "!
$&
'#(
)*+,
- (
),+,
.(
)/+,
%&'(&
!
"
"!
#
#!
$
$!
-&(
)0+,
%&')& %&'*&
%%'+&
12 3
45 3&# 60*7,8
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
TEYMI hf. var rekið með 1,25 millj-
arða króna tapi á fjórða ársfjórðungi
2006, en tímabilið október til desem-
ber 2006 er fyrsta tímabilið sem
Teymi hf. birtir afkomu eftir skipt-
ingu Dagsbrúnar hf. í Teymi hf. og
365 hf. þar sem rekstrarlegur að-
skilnaður átti sér stað 1. okt. sl.
Sala á tímabilinu nam 5,4 milljörð-
um króna, EBITDA hagnaður 1,5
milljörðum og söluhagnaður fast-
eigna nam 735 milljónum. Fjár-
magnsgjöld umfram fjármunatekjur
námu um 1,6 milljörðum. Handbært
fé til rekstrar nam um 140 milljónum
króna og hefur stjórn félagsins gert
tillögu um að ekki verði greiddur
arður af hlutafé vegna ársins 2006.
„Höfuðverkefni okkar á fyrsta
ársfjórðungi í sögu Teymis var að
ljúka við aðskilnað við forvera okkar,
endurfjármögnun félagsins, sölu
eigna, samþættingu rekstrareininga
og skipulagsbreytingar sem miða að
því að skerpa línur í okkar rekstri. Í
ljósi þessa erum við sátt við
EBITDA afkomu félagsins á þessum
fyrsta ársfjórðungi,“ segir Árni Pét-
ur Jónsson, forstjóri Teymis, í til-
kynningu.
Krónan hafði áhrif
Segir Árni að gengisþróun krón-
unnar hafi gert fyrirtækinu erfitt
fyrir rekstrarlega, en gengisvísital-
an hafi hækkað mikið á ársfjórð-
ungnum með tilheyrandi áhrifum.
Rekstri Teymis er skipt upp í þrjá
starfsþætti; fjarskipti, öryggi og
upplýsingatækni. Undir fjarskipta-
hlutann falla Vodafone, Kall í Fær-
eyjum, Mamma og SKO. Undir ör-
yggishlutann fellur Securitas og
undir upplýsingatæknihlutann falla
Kögun, Skýrr og EJS ásamt dótt-
urfélögum þeirra félaga.
Teymi tapaði 1,2 milljörð-
um á þremur mánuðum
Samstæða Vodafone er eitt
fyrirtækjanna innan Teymis.
TAP samstæðu Atorku Group á
árinu 2006 nam 485 milljónum
króna samanborið við 1,5 milljarða
hagnað árið áður. Móðurfélag
Atorku hagnaðist hins vegar um 6,7
milljarða í fyrra samanborið við 1,5
milljarða hagnað árið 2005.
Í tilkynningu frá Atorku segir að
félagið telji að fjárfestar verði að
kynna sér bæði móðurfélags- og
samstæðuuppgjörið til að fá rétta
mynd af stöðu félagsins.
Þá segir í tilkynningunni að fjár-
fest hafi verið í endurskipulagn-
ingu á árinu 2006, sem hafi haft í
för með sér einskiptiskostnað í
samstæðunni sem nemi samtals 499
milljónum. Þá hafi veruleg veiking
krónunnar haft umtalsverð áhrif á
fjármagnskostnað samstæðunnar.
Þetta skýri m.a. tap ársins.
Tap hjá
samstæðu
Atorku
♦♦♦
HINN 14. febr-
úar staðfesti
matsfyrirtækið
Moody’s Invest-
ors Service láns-
hæfiseinkunnir
ríkissjóðs Íslands
í reglubundnu
mati sínu (e.
credit opinion).
Staðfestar voru
einkunnirnar Aaa
fyrir langtímaskuldbindingar í er-
lendri mynt og íslenskum krónum
og P-1 fyrir skammtímaskuld-
bindingar í erlendri mynt og íslensk-
um krónum. Horfur eru taldar stöð-
ugar.
Meðal styrkleika íslenska hag-
kerfisins nefnir matsfyrirtækið
sveigjanleika þess, stöðugt stjórn-
málaumhverfi og litlar skuldir hins
opinbera. Smæð hagkerfisins er hins
vegar sögð geta aukið viðkvæmni
þess gagnvart ytri áhrifavöldum.
Moody’s
staðfestir
lánshæfi
Seðlabanki
Íslands
$"%"
&" '
(!)$
(!)*
!"
#$%
'"##
'% %
(!)$
+!)!
&$&
'(% )*
,$&
&$&$
+!)&
($)&
'(%+,-
.
"*"
&,*%,
(!),
(!)*
/&"% #)01)-.
,#&$
&$,'$
+!)&
(!)$
9 !" 3& % #& & !":-; 7)*(" (,88<
,- #
*
$2 3 45)67*
$. 2 *
$ - 2. 5).68
$ )5 45)67*
9 3,545)67*
:45)67*
4 -5; -*
<*" 7 = >? -
+ 67@->; -*
: - ; -? - *
( 5.*
() 2 )- *
5 665A965 5B CB5*;**
D 65*
.
- / "E *
> 45)67*
/2. - 545)67<)->*
/2. -245)67*
F.5C*
'(%$9
!.G*
!5G>>-> , -*
-- 6 , -*
0
B 65= >6 65 - 3*
,
1
2
<945 -*
< 7 C -*
$0
#)%'
'%)"!
")*!
'$!)!!
'),
',)!!
#&)"!
$')'!
##)'!
%* )!!
#&) !
, )!!
&")#!
$!)!!
&&*) !
$,)%!
$)#"
$,),!
,)#!
),%
##)*!
!
<. 5A
3 7
> -
!;)
) > H
+ 67
**
*
* * *
* * *
** ** *
*
*
* * *
** *
* *
** ** **
*
* *
** * *
*
** A
A
*
* * A
A
A
A
A
A
A
A
A
A
A
7
5I-6
$!<*J$ 6>6- 5 C,
3 7
A
A
A
A
A
A
3 *3.5
Tryggðu
þér áskrift!