Morgunblaðið - 16.02.2007, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 17
ÚR VERINU
SJÁVARÚTVEGURINN er að
dragast aftur úr. Það kemur meðal
annars fram þegar skoðuð er
verðþróun varanlegrar aflahlut-
deildar í þorski annars vegar og hins
vegar hækkun úrvalsvísitölu Kaup-
hallarinnar. Munurinn þar er veru-
legur.
Um þetta er fjallað á vefsíðunni
200milur.is Er það gert í kjölfar
fréttar Morgunblaðsins um hækkun
á verði aflahlutdeildar, en þar segir
að verðið hafi tvöfaldast á tveimur
árum og meira en tífaldast frá árinu
1992
Úrvalsvístalan
hefur tvítugfaldast
„Að sumu leyti endurspeglar verð
varanlegra aflaheimilda stöðu grein-
arinnar. Einhverjum kann að finnast
vöxturinn mikill, en þegar litið er til
þróunar þeirra fyrirtækja sem skráð
eru í Kauphöll Íslands sést að sjáv-
arútvegurinn hefur frekar dregist
aftur úr en hitt,“ segir á vefsíðunni.
Þar er svo borin saman þróun
verðs varanlegra aflaheimilda í
þorski og þróun úrvalsvísitölu fyrir-
tækja í Kauphöll Íslands frá árinu
1993.
„Úrvalsvísitalan hinn 1. janúar
1993 stóð í 371 stigi og hefur hækkað
síðan þá í 7.255 stig eða næstum tví-
tugfaldast. (Vísitalan endurspeglar
verðþróun þeirra hlutabréfa sem
mynda vísitöluna hverju sinni.) Verð
á varanlegum þorskkvóta var í upp-
hafi árs 1993 um 200 kr. á kíló. Verð
er ekki sama og vísitala en viðmið-
unargildin í upphafi eru ekki svo
fjarri hvort öðru. Til samanburðar
mætti breyta verði þorsks í vísitölu
með gildinu 100 hinn 1. janúar 1993
og gera slíkt hið sama fyrir úrvals-
vísitölu Kauphallar Íslands.
Þá má sjá að töluverð fylgni er
milli vísitölu þorsks og úrvalsvísitöl-
unnar fram yfir síðustu aldamót en
þá skilur á milli. Í raun þarf engan að
undra að fylgnin sé mikil þar sem í
upphafi viðskipta í Kauphöllinni voru
sjávarútvegsfyrirtækin fyrirferðar-
mikil. En þau hurfu af markaði upp
úr aldamótunum og voru flest af-
skráð á árunum 2003 og 2004. Það er
athyglisvert að eftir það hækkar úr-
valsvísitalan langt umfram verð var-
anlegs þorskkvóta og er nú 68%
hærri en verð varanlegs þorskkvóta á
kvótamarkaði. Þessi lína endurspegl-
ar það sem áður sagði um að sjávar-
útvegurinn hefur dregist aftur úr
öðrum atvinnugreinum hér á landi,“
segir á vefsíðunni.
Sjávarútvegurinn
dregst aftur úr
&3 #=2 " ##
>3 3$
,88) ,88/ ,88*)??/ )??* )??< )???
)&&&
+&&&
(&&&
3&&&
%&&&
4&&&
5&&&
&
&3 #=2 " ##
2@3 3$ ")??/ ,88<
!"
"
Í HNOTSKURN
»Úrvalsvísitalan hinn 1. jan-úar 1993 stóð í 371 stigi og
hefur hækkað síðan þá í 7.255
stig eða næstum tvítugfaldast.
»Töluverð fylgni er millivísitölu þorsks og úrvals-
vísitölunnar fram yfir síðustu
aldamót en þá skilur á milli.
»Úrvalsvísitalan hækkarlangt umfram verð var-
anlegs þorskkvóta og er nú
68% hærri en verð varanlegs
þorskkvóta á kvótamarkaði.
Húsavík | Hann fór fimum höndum
um netanálina hann Jón Hermann
Óskarsson stýrimaður á Dalaröst-
inni þegar ljósmyndari hitti á
hann um borð í bátnum í Húsavík-
urhöfn á dögunum. Þeir höfðu rif-
ið nótina fyrr um daginn á
Breiðuvíkinni og var stýrimað-
urinn að bæta. Jón Hermann kvað
aflabrögð hafa verið með lélegra
móti hjá húsvískum dragnótabát-
um frá áramótum.
Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
Gert við dragnótina
Í FYRRA var fluttur út óunninn
botnfiskafli, gámafiskur, á erlenda
fiskmarkaði með veiðiskipum og
fragtskipum að verðmæti 10.560
milljónir króna. Árið 2005 var verð-
mæti þessa útflutnings 8.578 millj-
ónir króna. Verðmæti útflutts óunn-
ins afla jókst því um 23% milli ára,
samkvæmt samantekt Fiskistofu.
Að magni var útflutningurinn
nánast sá sami 2006 og árið áður
eða 52.811 tonn miðað við 52.984
tonn árið 2005 (slægður botnfiskur
annar en karfi). Meðalverð aflans
hækkaði um 24% milli ára sem staf-
ar að verulegu leyti af lækkun geng-
is íslensku krónunnar milli ára.
Ýsan vegur þyngst
Af einstökum tegundum vó ýsan
þyngst í útfluttum óunnum botn-
fiskafla síðasta árs. Útfluttur ýsuafli
var 18.567 tonn að verðmæti 3.309
milljónir króna. 2005 var magn út-
fluttrar ýsu 17.850 tonn að verð-
mæti 2.730 milljónir króna. Það vek-
ur athygli að meðalverð útflutts
ísaðs þorsks hækkar um 29% milli
ára en meðalverð karfa hækkar að-
eins um 14% og meðalverð ýsu um
17%.
Vestmannaeyjar liggja best ís-
lenskra hafna við erlendu ferskfisk-
mörkuðunum að því er varðar flutn-
ing óunnins afla með fragtskipum.
Þaðan kemur líka stór hluti útflutts
afla á erlenda fiskmarkaði. Frá
Vestmannaeyjum voru þannig flutt
út á árinu 2006 17.827 tonn af afla
Vestmannaeyjaskipa að verðmæti
3.287 milljónir króna. Árið áður var
útflutt magn óunnins afla frá Vest-
mannaeyjum 13.135 tonn að verð-
mæti 2.228 milljónir króna. Jókst
því útflutningur afla Eyjaskipa tals-
vert frá fyrra ári en útfluttur ísaður
afli hafði minnkað verulega milli ár-
anna 2004 og 2005.
Mikil hlutdeild í Eyjum
Hlutdeild skipa með heimahöfn í
Vestmannaeyjum í heildarútflutn-
ingi óunnins afla frá Íslandi miðað
við verðmæti jókst í 31% á árinu
2006 en hlutdeildin var 26% 2005.
Árið 2004 var hlutdeild Vestmanna-
eyjaskipa í útflutningi óunnins afla á
erlenda ferskfiskmarkaði 29% og
2003 var hlutdeildin 36% af heild-
arverðmæti útflutts óunnins botn-
fiskafla frá Íslandi.
Verðmæti gáma-
fisks jókst um 23%
Í HNOTSKURN
»Meðalverð útflutts ísaðsþorsks hækkar um 29% milli
ára en meðalverð karfa hækkar
aðeins um 14% og meðalverð ýsu
um 17%.
»Af einstökum tegundum vóýsan þyngst í útfluttum óunn-
um botnfiskafla síðasta árs.
»Hlutdeild skipa með heima-höfn í Vestmannaeyjum í
heildarútflutningi óunnins afla
miðað við verðmæti jókst í 31% á
árinu
- 7 2
*,(?A0
> " $ " " " # &
- 23&#B ,88*2,88C
D$ % E%#&# F"
$ # G:#&#(7#:H (
- 7 2 &#B 7
#:H H
*,(A))
)/()/*
)<(A,<
Af einstökum verstöðvum fer mest
af óunnum fiski utan frá Eyjum
N Ý E F N A L Ö G G J Ö F E S B
- áhrif REACH á íslenskt atvinnulíf
A T V I N N U L Í F
O G U M H V E R F I
F U N D A R Ö Ð S A M T A K A A T V I N N U L Í F S I N S
2 0 0 6 - 2 0 0 7
Miðvikudaginn 21. febrúar kl. 8:30-10:00
Húsi atvinnulífsins - Borgartúni 35 - 6. hæð
Hverju breytir REACH?
Bryndís Skúladóttir,
efnaverkfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins
Fyrirspurnir og umræður
Allir velkomnir - skráning á www.sa.is
eða í síma 591 0000
BOTNVARPAN er mikilvægasta
veiðarfæri íslenskra skipa og í hana
tekin 45,0% aflans fiskveiðiárið 2005/
2006 mælt í þorskígildum og verð-
mætum. Þetta kemur fram í nýjasta
aflahefti Fiskistofu. Af þeim 14,3%
sem fengust í önnur veiðarfæri var
flotvarpan með stærstan hluta, eða
11,8% af heildaraflanum umreiknuð-
um í þorskígildi.
Mikill hluti afla uppsjávartegunda
og mestallur afli úthafskarfa er
veiddur í flotvörpu. Umtalsverður
afli var veiddur í önnur togveiðar-
færi eins og rækju- og humartroll.
Togveiðar vega því afgerandi þyngst
í aflaverðmæti íslenskra skipa.
Hlutfall afla sem veiddur er á línu
hefur aukist verulega síðustu 5 fisk-
veiðiár, eða úr 12,2% í 22,1%. Um
leið hefur afli á handfæri og í net far-
ið minnkandi. Talsverðar sveiflur
hafa verið í hlutdeild veiðarfæra í
afla síðustu ár. Sveiflurnar stafa að
nokkru af breytingum þorskígildis-
stuðla milli ára. Aflinn er reiknaður
til þorskígilda samkvæmt þorsk-
ígildisstuðlum hvers fiskveiðiárs.
Þorskígildi tegundar lýsir í megin-
dráttum aflaverðmæti hennar.
Botnvarpan mikilvægust