Morgunblaðið - 16.02.2007, Síða 20

Morgunblaðið - 16.02.2007, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING HLJÓMSVEITIN NilFisk frá Stokkseyri og Eyrarbakka efnir til tónleika í kvöld á skemmtistaðnum Tony’s county sem er nýopnaður og er staðsettur í Ölfushöll, milli Sel- foss og Hveragerðis. Félagar NilFisk frá Jótlandi í Dan- mörku eru í heimsókn á Suður- landi og munu þeir taka lagið með hljómsveitinni. Einnig koma fram Von Estenbergs and the Heartbeaters, Audio Psycho fonologi, Maja, Niki, Pind, Íslenzka, Rocking children og Beat Master C-Lows and the 7 Dwarfs. Tónleik- arnir hefjast kl. 22 og aðgangseyrir er 800 kr. Tónleikar Stórtónleikar í Ölfushöll í kvöld NilFisk JÓN Laxdal Halldórsson verð- ur kynntur á bókmenntakvöldi Populus tremula í Listagili á Akureyri. Jón hefur lengi verið áberandi og virtur myndlist- armaður, en skáldið góða ef til vill fallið um of í skuggann. Segir í tilkynningu að nú sé mál til komið að lyfta fram skáldinu og rifja upp mikilvægt framlag þess til ljóðasjóðs okk- ar. Sigurður Ólafsson heim- spekingur mun fjalla um skáldið, sem sjálft mun lesa upp úr verkum sínum. Um leið kemur út á vegum Populus tremula ljóðakver með úrvali kvæða eftir Jón Laxdal. Bókmenntir Jón Laxdal í Populus tremula Jón Laxdal Halldórsson FYRSTA hefti Tímarits Máls og menningar árið 2007 er komið út. Aðaltíðindin í heftinu eru þau að þar birtist áður ókunn „fluga“ eftir Jón Thor- oddsen sem lést af slysförum í Kaupmannahöfn fyrir rúmum áttatíu árum. Greinar í heftinu eru fjölmargar og þar má nefna „Sagðirðu gubb?“ eftir Ármann Jakobsson um Svövu Jakobsdóttur og Gunnlað- arsögu, „Maddaman með kýrhausinn og Völuspá“ eftir Véstein Ólason og „Hvað er að sjá og skilja?“ þar sem Jónas Sen spyr hvort tónlistarheimsendir sé í nánd. Bókmenntir Nýtt hefti TMM komið út Tímarit Máls og menningar Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is ÞEIR Kristján Kristjánsson, Magnús Eiríksson og Óttar Felix Hauksson eru á leið til Kína á þriðjudaginn kemur þar sem þeir munu taka upp plötu sem gefin verður út þar í landi sem og á Ís- landi. Þá munu þeir einnig halda tónleika í Shanghai Grand Theatre í miðborg Sjanghæ. „Mér tókst að opna dyrnar fyrir íslenska listamenn þegar ég var að gera samninga um útgáfu á Robert- ino í Kína, og hef verið iðinn við að kynna íslenska tónlist þar,“ segir Óttar, sem hefur alltaf verið með íslenska tónlist í fórum sínum á ferðalögum sínum í Kína. „Ég hef verið að ota þessu að þeim og verið að reyna að kveikja áhuga þeirra. Ég verð að segja að ég varð mjög hissa þegar þeir sögð- ust hafa hug á að gefa út KK og Magga vegna þess að ég taldi þetta svo séríslenskt. En það er kannski einmitt þess vegna sem þeir sjá þetta sem athyglisverða heimstón- list, bara eins og við sem hrífumst af búlgörskum strengjasveitum þá hrífast þeir af KK og Magga.“ Miklir möguleikar Platan, sem hefur ekki enn feng- ið nafn, verður gefin út af Shanghai Audio and Video Publishing House sem er ríkisrekið fyrirtæki. „Þetta er þriðja platan í ferða- lagaflokknum, og gæti þess vegna heitið langferðalög,“ segir Óttar í léttum dúr, en áður höfðu þeir KK og Magnús sent frá sér plöturnar 22 ferðalög og Fleiri ferðalög. Óttar segir nýju plötuna verða í svipuðum dúr. „Þarna eru lög eins og „Bíddu við“, fyrsta lagið með Geirmundi, „Minning um mann“, og svo eru þarna lög eftir Ingimar Eydal og fleiri,“ segir hann, og bætir því við að allt verði að sjálfsögðu tekið upp á íslensku. Upptökurnar munu standa yfir í 12 daga, en þeim lýkur svo með fyrrnefndum tónleikum 3. mars. Óttar segir mikla möguleika á þessum fjarlæga markaði. „Kína er sá markaður í tónlist- inni sem vex hraðast og þetta eru mjög spennandi tímar,“ segir Óttar og bætir því við að Jazzkvartett Sigurðar Flosasonar & Jóels Páls- sonar hafi riðið á vaðið og gefið út fyrstu íslensku plötuna þar í landi fyrr í þessum mánuði. Aðspurður segist KK hafa spilað í Kína í tvígang; í fyrra og fyrir um það bil átta árum. Þetta séu því bæði fornar og framandi slóðir fyrir hann. Hann segir ferðina leggjast mjög vel í sig. „Við erum að fara að taka upp íslensk rútubílalög, en ég held að þeir sjái engan mun á því og rokki, blús og djassi. Þetta hljómar allt eins og „kínverska“ fyrir þeim, þetta er eins framandi fyrir þá og kínverska er fyrir okk- ur,“ segir KK sem hefur lítinn tíma fyrir spjall, enda að undirbúa lang- ferð. Kristján Kristjánsson og Magnús Eiríksson gefa út plötu á framandi slóðum KK og Maggi til Kína Í HNOTSKURN » Óttar Felix Hauksson hefurverið töluvert í Kína á und- anförnum árum þar sem hann hefur meðal annars verið að kynna Robertino. »Fyrsta íslenska platan komút þar í landi í byrjun þessa mánaðar, en þar var um að ræða plötu með Jazzkvartett Sigurðar Flosasonar & Jóels Pálssonar. »Kínverskir útgefendur heill-uðust af KK og Magnúsi Ei- ríkssyni og ríkisrekið fyrirtæki ætlar að gefa nýjustu plötu þeirra út þar í landi. »Um er að ræða þriðju og síð-ustu plötuna í ferðalaga- flokki þeirra félaga. »Þeir munu svo halda tónleikaí miðborg Sjanghæ 3. mars. Morgunblaðið/RAX Kínafarar „Við erum að fara að taka upp íslensk rútubílalög, en ég held að þeir sjái engan mun á því og rokki, blús og djassi,“ segir Kristján. AL GORE, fyrr- um varaforseti Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að tónleikar yrðu haldnir í öllum heims- álfum í sumar til að vekja at- hygli á lofts- lagsbreytingum á jörðinni. Meðal tónlistarmanna sem þar munu troða upp eru Red Hot Chili Peppers, Snoop Dogg, Lenny Kravitz, John Mayer, Korn, Black Eyed Peas og fleiri. Tónleikarnir verða haldnir 7. júlí næstkomandi undir yfirskriftinni „Live Earth“. Tónleikarnir munu standa yfir í sólarhring. Tilgangurinn er að vekja heimsbyggðina til meðvit- undar um að loftslagshlýnun ógni lífríki jarðar en Gore hefur verið einn helsti talsmaður þessa á al- þjóðavettvangi og haldið fyr- irlestra um loftslagshlýnun víða um lönd. Fleiri en 100 hljómsveitir og tónlistarmenn munu koma fram á tónleikunum sem verða að öllum líkindum haldnir í Sjanghæ, Jó- hannesarborg, Sydney og London auk borga í Japan, Brasilíu og Bandaríkjunum. Tónleikar vegna lofts- lagsbreytinga Live Earth í fjölda borga hinn 7. júlí Al Gore KVIKMYNDIN Eldflaugin (The Rocket) hlaut alls níu Genie- verðlaun á þriðjudaginn en þau eru eftirsóttust allra kanadískra kvik- myndaverðlauna. Eldflaugin fjallar um lífshlaup íshokkístjörnunnar Maurice Richard (1921–2000), sem gerði garðinn frægan með liði sínu Montreal Canadiens. Þrátt fyrir að Eldflaugin, sem var tilnefnd til þrettán verðlauna, hafi borið höfuð og herðar yfir aðr- ar myndir á verðlaunaathöfninni var hún ekki valin besta myndin. Sá heiður féll í skaut myndarinnar Góð lögga, slæm lögga (Bon Cop, Bad Cop). Tónskáldið Himar Örn Hilm- arsson var tilnefnt fyrir tónlist sína við Bjólfskviðu en hlaut ekki verð- laun. Eldflaugin sigursæl Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is MENNINGARHÁTÍÐIN Pourquoi pas? – Franskt vor á Íslandi hefst í næstu viku og stendur til 12. maí. Há- tíðin er haldin í framhaldi af veglegri kynningu á íslenskri menningu sem fram fór í Frakklandi haustið 2004 og vakti verðskuldaða athygli m.a. fyrir frægan ísjaka sem var þar til sýnis. Dagskrá Pourquoi pas? – Fransks vors á Íslandi var kynnt í Ráð- herrabústaðnum í gær af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur mennta- málaráðherra og Nicole Michelang- eli, sendiherra Frakklands á Íslandi, sem sagðist hafa verið mjög hrifin af hátíðinni í Frakklandi fyrir þremur árum og var ákveðin í að slík hátíð yrði forgangsverkefni hennar hér á landi. „Ég vil að þessi menning- arhátíð stuðli að enn betri vináttu milli landanna og að henni lokinni verði Frakkland betur þekkt á Ís- landi og þá allt Frakkland, ekki að- eins París,“ sagði hún. Vísindi og viðskipti með Þorgerður Katrín tók fram að hún væri mjög ánægð með að Frakkar skyldu hafa átt frumkvæðið að þess- ari menningarhátíð. „Þetta er í fyrsta sinn sem við Ís- lendingar bjóðum erlendri þjóð að kynna menningu sína með jafn- viðamiklum hætti og á sér stað núna. Við erum ekki að tala um þessar stuttu kynningar sem hafa verið hingað til heldur hátíð sem spannar hartnær þrjá mánuði, þess vegna er mjög skemmtilegt að fá að taka þátt í þessu öllu,“ sagði Þorgerður Katrín og bætti við að sendiherra Frakk- lands hefði haft óendanlegan áhuga á því að koma franskri menningu að á Íslandi. Pourquoi pas? – Franskt vor á Ís- landi verður í samstarfi við aðrar há- tíðir sem fara fram á sama tíma. Há- tíðin hefst í samvinnu við Vetrarhátíð í Reykjavík, vinnur með Franskri kvikmyndahátíð, Viku bókarinnar og tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður, og henni lýkur síðan á sama tíma og Listahátíð í Reykjavík hefst. En að sögn Þorgerðar Katrínar er það ekki aðeins menningarlífið sem fær at- hygli því sjónum verður líka beint að vísindum og viðskiptum. Sem dæmi má nefna að Háskóli Íslands býður til sín frönskum fyrirlesurum sem flytja erindi um loftlagsbreytingar og þró- unarmannfræði og svo kemur fransk- ur lýtalæknir sem gerðist svo frægur, ekki fyrir löngu, að græða andlit á konu en hún hafði misst stóran hluta af því vegna hundsbits. „Boðið verður upp á tugi viðburða af öllu tagi sem munu auðga menn- ingarlíf landsmanna á útmánuðum og fram á vor og gefa okkur Íslend- ingum betra tækifæri en nokkru sinni fyrr til að efla vitund okkar um franska menningu,“ sagði Þorgerður Katrín. Pourquoi pas? – Franskt vor á Íslandi er að frumkvæði Frakka sem vilja efla vináttusamband þjóðanna Vegleg frönsk menningarveisla fram á vor Morgunblaðið/RAX Veisla Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Nicole Michelangeli, sendi- herra Frakklands á Íslandi, kynntu Pourquoi pas? – Franskt vor á Íslandi. Dagskrá Pourquoi pas? – Fransks vors á Íslandi má sjá á www.fransktvor.is. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.