Morgunblaðið - 16.02.2007, Side 27
arhús í eigu fjölskyldu og er rekið
af fjórðu kynslóðinni sem stendur.
Ekki einungis er þetta eitt allra
besta víngerðarhús Suður-Afríku
heldur heimsklassahús. Þess má
geta að Kanonkop-ekrurnar voru
eitt sinn hluti af Uitkyk-búgarð-
inum.
Kanonkop framleiðir einungis
rauðvín og er Pinotage-vínið lík-
lega það þekktasta, en sú þrúga er
suður-afrískt „spesíalítet“ – blend-
ingur úr þrúgunum Pinot Noir og
Cinsault sem hvergi annars staðar
er ræktaður svo einhverju nemi.
Kanonkop Pinotage 2003 er
dæmi um hversu góð þessi vín frá
Kanonkop eru, Pinotage-vín gerast
ekki mikið betri. Villt angan með
leðri, tóbaki, svita og reyk í bland
við þungan og heitan kirsuberja-
ávöxt. Stórt í munni og dökkt, með
töluverðu tanníni og kryddi. 2.690
krónur. 90/100
Kanonkop Cabernet Sauvignon
2002 er litlu síðra, þarna er í nefi
brennt eða að minnsta kosti ansi
heitt hjólbarðagúmmí, þroskaður
kirsuberja- og sólberjaávöxtur í
bland við vanillu. Í munni dökk ber
og bananar. 2.690 krónur. 88/100
Kanonkop Paul Sauer 2003 er
flaggskip Kanonkop og ekki úr
Pinotage. Þetta er Bordeaux-
blanda, þ.e. Cabernet og Merlot,
og það verður að segjast eins og er
að það mætti hæglega ruglast á
þessu víni og Bordeaux-víni í
blindsmakki. Tóbak, tjara, sólber
og sviðin eik. Stórt og mikið, með
dýpt og breidd. Hitinn á ekrum
Stellenbosch kemur hins vegar í
ljós í munni með krydduðum ávexti
og kemur þannig upp um upprun-
ann. 2.980 krónur. 92/100
„Svartur“ rekstur
í „hvítum“ iðnaði
Það er sláandi þegar maður
heimsækir suður-afrísk vínfyr-
irtæki að víniðnaðurinn er að nær
öllu leyti „hvítur iðnaður“, að
minnsta kosti þegar kemur að efri
stjórnunarstöðum. Á því eru þó
nokkrar undantekningar og fer
þeim raunar fjölgandi.
Vínbúgarðurinn Tukulu er dæmi
um vínhús sem er í „svörtum“
rekstri ef þannig má að orði kom-
ast. Tukulu-vínin koma frá Papku-
ilsfontein-búgarðinum í vínhér-
aðinu Darling og eru
samstarfsverkefni stórfyrirtæk-
isins Distel og hóps svartra at-
hafnamanna. Þessi vín hafa vakið
töluverða athygli, ekki bara út af
rekstrarforminu heldur ekki síður
vegna gæða.
Tukulu Pinotage 2003 er vínið
sem hér er nú í boði í vínbúðunum.
Kóngabrjóstsykur, vanilla og jafn-
vel mjólkurkaramella ásamt svört-
um berjum, allþroskuðum, ein-
kenna angan en jörð og þroskaður
ávöxtur í munni. Hreint og bjart.
1.990 krónur. 84/100
Jacobsdal Estate er loks vín-
gerðarhús í suðvesturjaðri Stellen-
bosch-héraðsins í einungis nokk-
urra kílómetra fjarlægð frá
flóanum False Bay sem hefur
temprandi áhrif á loftslagið. Bú-
garðurinn er í eigu fjölskyldu af
frönskum uppruna, húsið var
stofnað árið 1916 og er nú rekið af
þriðju kynslóð.
Jacobsdal Cabernet Sauvignon
2002 er eitt af Jacobsdal-vínunum
sem nú eru í sölu. Rósir, rauð ber
og vottur af lakkrís í nefi. Hefur
góða þykkt og töluverða sýru í
munni með örlitlum reyk. 2.100
krónur. 86/100
sts@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 27
PLÚSFERÐIR – Lágmúla 4 – 105 Reykjavík - Sími 535 2100
Sól, sól, skín á mig.
Verð, verð, burt með þig.
Innifalið í verði: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn.
Mallorca
39.307 kr.
á mann miðað við að 2 að fullorðnir og 2 börn, 2ja–11ára,
ferðist saman. Innifalið er flug, gisting í 7 nætur á Pil
Lari Playa og flugvallarskattar.
Netverð 20. ágúst
og 2. september
Portúgal
39.974 kr.
Netverð 21. og 28. ágúst,
3. og 10. september
á mann miðað við að 2 að fullorðnir og 2 börn, 2ja–11ára,
ferðist saman. Innifalið er flug, gisting í 7 nætur á
Alagoamar og flugvallarskattar.
Verð á mann miðað við 2 Alagoamar 50.788 kr
Verð á mann miðað við 2 í stúdíó á Pil Lari Playa 46.293 kr
Marmaris
49.690 kr.
á mann miðað við að 2 að fullorðnir og 2 börn, 2ja–11ára,
ferðist saman. Innifalið er flug, gisting í 7 nætur á Ece
apartments og flugvallarskattar.
Ece apartments
Verð á mann miðað við 2 fullorðna 49.690 kr
Benidorm
39.571 kr.
Buenavista
á mann miðað við að 2 að fullorðnir og 2 börn, 2ja–11ára,
ferðist saman. Innifalið er flug, gisting í 7 nætur á
Skala og flugvallarskattar.
Verð á mann miðað við 2 fullorðna 48.875 kr
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111