Morgunblaðið - 16.02.2007, Qupperneq 52
|föstudagur|16. 2. 2007| mbl.is
staðurstund
Nicolas Cage fer með aðal-
hlutverkið í kvikmyndinni
Ghost Rider sem er heims-
frumsýnd í dag. » 54
kvikmyndir
Margir hafa orðið til að tjá sig
um Önnu Nicole Smith eftir
sviplegt fráfall hennar í síðustu
viku. » 54
fólk
Arnar Eggert Thoroddsen
fjallar um nýja plötu þar sem
hinir og þessir listamenn leika
sér með lög Yoko Ono. » 55
af listum
Myrk fortíð sjálfs Hannibals
Lecters er viðfangsefni mynd-
arinnar Hannibal Rising sem
frumsýnd er í dag. » 55
kvikmyndir
Helga Margrét Þorsteinsdóttir
getur verið rosalega löt og
stundum dómhörð. Hún er ekki
lengur með bloggsíðu. » 61
íslenskur aðall
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Það fór fram tiltekt í húsinuog ákveðið var að seljaákveðna muni úr leikmuna-og búningageymslu óper-
unnar,“ segir Freyja Dögg Frí-
mannsdóttir hjá Íslensku óperunni
um tildrög markaðarins. „Þarna
verða til sölu glös, karöflur, diskar og
bollar, leikmunir og búningar.“
Freyja segir samt aðalhlutina vera
loftskip úr Brottnámi úr kvenna-
búrinu og mannhæðarhá skeið sem
var gerð fyrir Flagara í framsókn en
aldrei notuð.
„Það verða heilmargir hlutir en
það verða ekki seldir neinir stórkost-
legir búningar með sögulegt gildi,
þeim höldum við eftir.“
Á markaðnum mun Davíð Ólafs-
son óperusöngvari sjá um skemmti-
dagskrá og Eyjólfur Eyjólfsson, sem
syngur hlutverk uppboðshaldarans í
Flagara í framsókn, mun koma og
bjóða upp á ýmislegt á léttu nót-
unum.
Opna óperuna almenningi
Markaðurinn er haldinn í tilefni af
Óperudögum í Evrópu sem eru
haldnir í óperuhúsum um alla Evr-
ópu um helgina til að halda upp á
fjögurra alda óperuhefð í álfunni. Að-
aldagskráin er í París þar sem Sam-
tök evrópskra óperuhúsa halda ráð-
stefnu um stöðu óperulistarinnar í
samfélaginu.
Ásamt markaðnum verður því
mikið um að vera hjá óperunni um
helgina. „Við opnum óperuna fyrir
almenningi, t.d með því að halda tón-
leika í Sundhöll Reykjavíkur á laug-
ardaginn kl. 11:30, verðum með opna
æfingu og beina útsendingu í útvarp-
inu. Óperan er fyrir alla og við von-
umst til að sjá sem flesta,“ segir
Freyja og bætir við að markaðurinn
sé á morgun og hinn frá kl. 12 til 16 í
anddyri óperunnar.
Jákvæður draugagangur
Einn liðurinn í að opna óperuna er
skoðunarferð undir leiðsögn Ingólfs
Níels Árnasonar um hús Íslensku
óperunnar kl. 13 á laugardag og
sunnudag. „Í ferðinni um húsið mun
ég aðallega tala um þau tvö mismun-
andi hlutverk þess sem bíó og óperu-
hús, um þá starfsemi sem fer nú
fram í húsinu og hvernig þurfti að
laga það að því að verða óperuhús,“
segir Ingólfur.
Gamla bíó var byggt af „Bíó-
Pedersen“ árið 1926 og var talið eitt
glæsilegasta hús landsins. Íslenska
óperan eignaðist það svo fyrir 25 ár-
um og hefur starfað þar síðan.
Spurður hvort einhver drauga-
gangur leynist í þessu gamla húsi
svarar Ingólfur játandi. „Áður fyrr
var íbúð fyrir ofan bíóið þar sem
Pedersen-fjölskyldan bjó. Þar eru nú
skrifstofur og saumastofa óperunnar
og þau kvöld sem ég hef verið að
vinna fram eftir hef ég orðið var við
mjög jákvæða strauma, þetta er ekki
neikvæður draugagangur. Það heyr-
ist oft umgangur í húsinu þó enginn
sé þar, það er alltaf fólk á sveimi,“
segir Ingólfur og tekur fram að í hús-
inu sé samt mjög góður andi.
Morgunblaðið/Sverrir
Namminamm Stór skeið, sem var búin til fyrir uppfærslu á óperunni Flag-
ari í framsókn og aldrei notuð, er meðal þess sem verður á markaðnum.
Markaður og merkileg saga
Mannhæðarhá skeið,
loftfar, ljósakrónur og
hagnýtur heimilisbún-
aður er meðal þess sem
verður til sölu á mark-
aði í Íslensku óperunni
um helgina auk þess
sem boðið verður upp á
skoðunarferð um húsið,
allt í tilefni af Evrópsk-
um óperudögum.
Í gamladaga Úr uppfærslu Íslensku óperunnar á Il Travatore eftir Verdi
árið 1986. Þarna má sjá Garðar Cortes sem Maurico og Ólöfu Kolbrúnu
Harðardóttur í hlutverki Leonoru.
Evrópskir óperudagar hefjast á Ís-
landi í dag og dagskrána má sjá á
www.opera.is.
ÁRLEG ljósmyndasýning Blaða-
ljósmyndarafélags Íslands verður
opnuð á morgun klukkan 15 í Gerð-
arsafni í Kópavogi. Í kjölfar þess að
Geir H. Haarde opnar sýninguna
mun formaður dómnefndar, Ari
Sigvaldsson, tilkynna hverjir verða
sigurvegarar en verðlaun eru veitt
í tíu flokkum.
Hér getur að líta annars vegar
mynd Ragnars Axelssonar af smöl-
un í Landmannalaugum og hins
vegar mynd Valgarðs Gíslasonar af
fólki í sundi á Grensásdeild en þær
eru meðal rúmlega 200 mynda sem
prýða veggi Gerðarsafns.
Ljósmynda-
sýning í
Gerðarsafni
Ljósmynd/Valgarður GíslasonLjósmynd/RAX