Morgunblaðið - 16.02.2007, Síða 53

Morgunblaðið - 16.02.2007, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 53 menning 13:00 Hádegisverður í Gullteig B, Grand Hótel Þorsteinn J. flytur erindi sitt: Frumkvæði! SKRÁNING 14:15 Skráning við Gullteig A, Grand Hótel FUNDARSETNING 14:30 Ræða formanns FÍS Pétur Björnsson RÆÐUMENN 14:50 Ávarp: Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra 15:00 Finn Mortensen aðalritstjóri viðskiptablaðs Berlingske Tidende „The Emperor's New Clothes?“ 15:20 Berglind Ásgeirsdóttir sendiherra Hvernig gagnast fríverslunarsamningar? Umræður og fyrirspurnir Kaffihlé 16:15 ALMENN AÐALFUNDARSTÖRF Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 588 8910 eða á netfang: linda@fis.is Aðalfundur Gullteigur, Grand Hótel, í dag föstudaginn 16. febrúar 2007, kl. 13:00 FJÖLBREYTT DAGSKRÁ Í ÍSLENSKU ÓPERUNNI ÓPERUDAGAR Í EVRÓPU 16.18. FEBRÚAR 2007 O P E R A  O P E R A . I S O P E R A . I S FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR Hlaupanótan – Bein útsending frá ÍÓ á Rás 1 . . . . . . . . Kl. 16.13 Flagari í Framsókn – 3. sýning. Bein útsending á Rás 1 . . . Kl. 20.00 LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR Óperusöngur í Sundhöll Reykjavíkur . . . . . . . . . . . . . Kl. 11.30 Opin æfing á óperunni Suor Angelica eftir Puccini. . . . . . Kl. 11.00 Skoðunarferð með leiðsögn um Íslensku óperuna . . . . . . Kl. 13.00 Markaður – Sala á munum úr geymslu Óperunnar . . . . . Kl. 12.00 Afmælistónleikar Árnesingakórsins . . . . . . . . . . . . . . Kl. 17.00 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR Skoðunarferð með leiðsögn um Íslensku óperuna . . . . . . Kl. 13.00 Markaður – Sala á munum úr geymslu Óperunnar . . . . . Kl. 12.00 Raddir framtíðarinnar – Tónleikar ungra óperusöngvara. . . Kl. 15.00 Flagari í Framsókn – 4. sýning . . . . . . . . . . . . . . . . Kl. 20.00 W W W . O P E R A D A Y S . E U BIRTA Guðjónsdóttir ríður á vaðið í nýrri sýningarröð Listasafns Reykja- víkur í Hafnarhúsi kölluð D- sýningarröðin. Hún hefur komið að myndlistinni í fleiri en einni mynd, rekið sýningarrýmið Gallerí dverg um nokkurt skeið og í leikhúsvinnu og sýndi í Gallerí suðsuðvestri ekki fyrir löngu. Viðfangsefni Birtu á sýn- ingunni í Hafnarhúsi er sjálfsmyndin í nokkuð víðum skilningi, í takt við samtímann er sviðsetning stór þáttur sýningarinnar. Sjálfsmyndin er auð- vitað klassískt fyrirbæri, flestir lista- menn, a.m.k. fígúratífir málarar, hafa reynt við sjálfsmyndina. Margir þekkja myndir eins og teikningu Leonardos af sér í ellinni, eða sjálfs- myndir van Gogh. Myndir Fridu Kahlo sem málaði sjálfa sig ítrekað eru einnig mjög kunnar. Hér á landi er það kannski Louisa Matthíasdóttir sem hvað gagngerast hefur skrásett sjálfsmynd sína á léreftið. Þetta er spennandi hefð og forvitnilegt að sjá hvernig samtímalistakona af yngri kynslóðinni tekst á við efnið. Nálgun Birtu er þó opnari en í þeim dæmum sem talin eru upp hér að framan. Það má kannski segja að Birta vinni í anda Velazquez þegar hann málaði Las Meninas árið 1656. Michel Foucault skrifaði innblásinn kafla um málverkið í bók sína Les Mots et les Choses á sjöunda ára- tugnum. Þar fjallar hann um við- fangsefnið og áhorfandann, hvernig áhorfandinn er dreginn inn í mál- verkið og hvernig myndin sem Velz- quez er að mála á málverkinu sést ekki, heldur bakhlið hennar. Speglar, gler og linsur hafa eðlilega lengi verið hluti af listasögunni og líkt og í inn- setningu Birtu leikur spegill stórt hlutverk í málverki Velazques, en myndefni málarans í málverkinu, konungshjónin, speglast þar. Einn frægasti spegill sem birst hefur í mál- verki er líklega frá fimmtándu öld í málverki Jans van Eyck af brúðkaupi Arnolfini-hjónanna. Þar sjáum við íhvolfan spegil á veggnum fyrir aftan brúðhjónin og í honum má sjá mál- arann sjálfan og vitni að brúðkaup- inu. Annað fyrirbæri í málverki sem tengist speglun eða öllu heldur sjón- rænni brenglun gegnum gler er spor- öskjulega Claude-glerið sem var vin- sælt á 18. öld, en þegar horft var í gegnum það birtist náttúran líkt og á málverki eftir Claude. Innsetning Birtu leitast við að skapa rými þar sem áhorfandinn sér sjálfsmynd listakonunnar en um leið sjálfan sig sjá hana, í tíma og rúmi, speglar og speglun leika þar stóran þátt. Silfurlitað efni sem minnir á sýningartjald þekur endavegg og í því birtist spegilmynd áhorfandans óljóst eins og skuggi. Ljósmyndir af Birtu sýna leik með frystingu tímans þar sem yfirborð vatns í glasi hallar upp á ská, myndin er tekin í miðri handarsveiflu, sama má segja um aðra mynd þar sem platkristall í bandi stígur upp líkt og um prik væri að ræða. Myndbönd sýna vatns- yfirborð hækka hægt í glasi og plat- kristal snúast hægt. Þriðja ljós- myndin sýnir hinar tvær eins og þær hanga í salnum en súlan hylur aðra þeirra eins og í leik í anda Velazquez. Loks er myndband á vegg sem sýnir listakonuna í endalausri nálgun en án snertingar við eigin spegilmynd, hugsanleg athugasemd við sjálf- hverfu og sjálfsdýrkun. Í innsetningu sinni tekst Birta á við rýmið, hlutverk áhorfandans og þemað sjálfsmynd á máta sem end- urspeglar strauma og stefnur í sam- tímalistum auk þess að innihalda vís- anir í listasöguna. Hún dansar á mörkum þess að myndskreyta hug- myndir en verk eins og myndbandið af glasinu með hækkandi vatns- yfirborði ná að stíga yfir þröskuldinn og skapa innri tíma og heim sem dregur áhorfandann til sín og heillar hann. Herm þú mér MYNDLIST Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús Til 18. mars. Opið daglega 10–17. Aðgangur fullorðinna 500 kr., 250 kr. eldri borgarar og öryrkjar, börn yngri en 18 ókeypis. Miðinn gildir á Kjarvalsstaði og í Ásmundarsafn í 3 daga. Ókeypis að- gangur á fimmtudögum. D1- Birta Guðjónsdóttir, Ragna Sigurðardóttir Morgunblaðið/Sverrir Speglun Viðfangsefni sýningarinnar er sjálfsmyndin í víðum skilningi. MÖRGUM kvikmyndaleikstjórum þykir eflaust nóg að ráðast í gerð stórmyndar um atburði í síðari heimsstyrjöldinni. Clint Eastwood lét sér hinsvegar ekki muna um að hrista tvær slíkar framúr erminni á sama árinu. Í fyrra var Flags of our Fathers frumsýnd og í dag fá Íslendingar að sjá framhaldið, Letters From Iwo Jima. Fram- hald er kannski ekki rétta orðið en myndirnar eru þó tengdar. Í þeirri síðarnefndu er fjallað um baráttu Japana við Bandaríkja- menn um eyjuna Iwo Jima, sem skildi að Japan og herflota Banda- ríkjamanna. Letters From Iwo Jima er sögð frá sjónarhóli Japananna og er á japönsku. Myndin hefur fengið mjög góða dóma víðast hvar og var meðal annars valin besta er- lenda myndin á nýafstaðinni Gol- den Globe-verðlaunahátíð. Myndin er einnig tilnefnd sem besta myndin á Óskarsverð- launahátíðinni, sem fram fer 25. febrúar, auk þess sem Eastwood er tilnefndur sem besti leikstjór- inn. Með aðalhlutverk fer Ken Wat- anabe (The Last Samurai, Memo- irs of a Geisha). Letters From Iwo Jima verður frumsýnd í dag í Sam-bíóunum. Frumsýning | Letters From Iwo Jima Hershöfðinginn Ken Watanabe fer með hlutverk Tadamichi Kuribayashi í Letters From Iwo Jima. Baráttan um Iwo Jima Erlendir dómar: Metacritic: 89/100 New York Times: 100/100 Premiere: 100/100 Hollywood Reporter: 90/100 Variety: 90/100 Allt skv. Metacritic.com Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.