Morgunblaðið - 16.02.2007, Síða 60
60 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ALPHA DOG kl. 8 B.i. 16 ára
BLOOD DIAMOND kl. 10:20 B.i. 16 ára
ROCKY BALBOA kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 5:50 LEYFÐ
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5:45 LEYFÐ
/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
eeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
B.S. FRÉTTABLAÐIÐ
eeee
B.B.A. PANAMA.IS
eeee
RÁS 2
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
HANNIBAL RISING kl. 8 -10 B.i. 16 ára
PERFUME kl. 10 B.i. 12 ára
MAN OF THE YEAR kl. 6 - 8 LEYFÐ
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
LETTERS FROM IWO JIMA kl. 6 - 9 B.i. 16 ára
PERFUME kl. 6 - 9 B.i. 12 ára
DREAMGIRLS kl. 6 - 9 LEYFÐ
BLOOD DIAMOND kl. 6 - 9 B.i. 16 ára
FORELDRAR kl. 7:50 LEYFÐ
BABEL kl. 9:30 B.i. 16 ára
STRANGER THAN FICTION kl. 5:50 B.i. 16 ára
FORELDRAR
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
eeee
H.J. MBL.
eeee
LIB - TOPP5.IS
eeee
FRÉTTABLAÐIÐ
GÆTI ÞESSI MAÐUR ORÐIÐ
NÆSTI FORSETI?
ÓSKARSTILNEFNING
besta teiknimynd ársins1
HEIMSFRUMSÝNING
SVALASTA
SPENNUMYND
ÁRSINS
NICOLAS CAGE EVA MENDES
SÝND Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
ÞIÐ VITIÐ HVER HANN ER....
...SVONA BYRJAÐI ÞAÐ
urinn við hina aumu
flugstöð Flugfélags Ís-
lands ekki svo erfiður.
x x x
Annað dæmi umfurðulegan grát í
fjölmiðlum: Lúðvík
Gústafsson, deild-
arstjóri hjá umhverf-
issviði Reykjavík-
urborgar, segir frá því í
Morgunblaðinu í gær
að starfsmenn sviðsins
biðji fólk stundum að
drepa á bílunum sínum,
t.d. utan við leikskóla.
„Við höfum bent öku-
mönnum á að þetta
væri ólöglegt,“ segir Lúðvík. „Við
höfum fengið yfir okkur fúkyrði sem
geta haft áhrif á andlega heilsu
manna. Menn gera þetta því ekki
oft. Það þarf að liggja mikið við
vegna þess að við fáum viðbrögð sem
geta haft áhrif á andlega líðan.“
Vá. Ætli lögreglumenn séu ekki
bara í stöðugri áfallahjálp af því að
krimmarnir hreyta í þá ónotum þeg-
ar þeir eru handteknir? Eiga þeir
ekki bara að hætta að handtaka fólk,
og stöðumælaverðir að sekta bíleig-
endur? Eiga menn að trúa því að
fullorðið fólk missi sína andlegu
heilsu af því að einhver umhverfis-
kjánaprik mótmæli því?
Er viðhorf fólks tilvinnunnar sinnar
farið að einkennast af
tómu væli yfir heima-
tilbúnum vanda-
málum? Víkverji veltir
því stundum fyrir sér
þegar hann les frétt-
irnar.
Á dögunum lýsti Ice-
land Express því til
dæmis yfir að fyr-
irtækið ætlaði að hefja
innanlandsflug frá
Reykjavíkurflugvelli.
Svo lýsti fyrirtækið því
yfir skömmu síðar að
því miður yrði líklega
ekkert úr því, af því að
Flugfélag Íslands vildi ekki hleypa
keppinautnum inn í flugstöðina, sem
er einkaeign félagsins.
Aumingja Iceland Express og
vonda Flugfélagið, áttu menn sjálf-
sagt að hugsa. En hafa ekki aðrir
komizt framhjá því vandamáli að
keppinautarnir hleypi þeim ekki inn
í húsnæðið hjá sér? Ef Víkverji man
rétt rak Íslandsflug t.d. myndarlegt
innanlandsflug úr hálfgerðum skúr á
bak við Hótel Loftleiðir. Ætli skúr-
inn sé þar ekki enn, eða þá hægt að
koma með nýjan á bílpalli? Lág-
gjaldaflugfélagi myndi áreiðanlega
fyrirgefast að reka innanlandsflug
úr skúr og raunar er samanburð-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Orð dagsins: Og orð hans býr ekki
í yður, því að þér trúið ekki þeim,
sem hann sendi. (Jóh. 5, 38.)
Í dag er föstudagur
16. febrúar, 47. dagur
ársins 2007
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Lífeyrismál og fleira
NÚ líður að matarskattslækkuninni
sem er mikið fagnaðarefni fyrir
flesta því auk þess sem verð mat-
væla ætti að lækka töluvert mun
neysluvísitalan lækka um 2,6% og
þar af leiðandi skuldir heimilanna að
sama skapi. Ég fagna, því að þeir
sem hafa tekið okurlán, auk þess
sem 7% verðbólga síðasta árs leggst
á lánin, munu njóta lækkunar
neysluvísitölunnar. En það fagna
kannski ekki allir eins mikið. Allir
þeir lífeyrisþegar (aldraðir og ör-
yrkjar) sem fá laun úr lífeyrissjóðum
munu taka á sig kjaraskerðingu upp
á 2,6%. Þetta þýðir til dæmis að líf-
eyrisþegi sem fær 140 þúsund úr líf-
eyrissjóði mánaðarlega mun lækka í
tekjum um 3.700 kr. á mánuði. Engir
aðrir launþegar munu lækka í
tekjum við matarskattslækkunina.
Ég spyr forystumenn aldraðra og
öryrkja sem ætla að bjóða sig fram í
alþingiskosningum hvort þetta sé
verjandi. Ætla þessir kópar að beita
sér fyrir því að lífeyrissjóðstekjur
tengist launavísitölunni en ekki
hinni fáránlegu neysluvísitölu? Við
sem lögðum iðgjöld í lífeyrissjóði
lögðum þau af launum okkar en ekki
sem iðgjöld af neyslu okkar. Hver
fann það eiginlega upp að aftengja
lífeyristekjur við launavísitöluna fyr-
ir um 10 árum síðan? Þetta er einn af
stærstu þjófnuðum Íslandssögunnar
fyrir utan skyldusparnaðinn sem
brann upp í verðbólgunni í kringum
1980–1990. En að öðru, er það verj-
andi að 2 ráðherrar skuli hafa verið í
fríi að skemmta sér á HM í hand-
bolta á meðan þingfundir stóðu yfir?
Var ekki nóg að fá 38 daga jólaleyfi?
Og annað tengt Alþingi. Er ekki
þarfara og brýnna að ræða önnur
mál á Alþingi en notkun þjóðfána Ís-
lands í þingsal Alþingis og trjárækt-
arsetur í sjávarbyggðum? Að lokum,
getur það verið þjóð sem er meðal
efstu þjóða í heimi hvað varðar sjáv-
arafla hafi ekki efni á að allir þegnar
þjóðfélagsins hafi það verulega gott
á öllum sviðum? Það er til dæmis til
skammar að launþegar þurfi að
vinna 60 klukkustundir á viku til að
ná endum saman. Og að ein ríkasta
þjóð í heimi, að sögn stjórnvalda,
skuli ekki hafa ráð á því að leggja
tvöfalda vegi út frá stærstu byggða-
kjörnum landsins er hrein hneisa.
Lífeyrisþegi.
Þakkir til Byko
ÉG vil þakka Guðmundi, sem vinnur
í lagnadeild Byko, fyrir frábæra
þjónustu.
GB.
Áfram Versló
VERSLINGAR sýna um þessar
mundir verkið Sextán og er það af-
burðagóð sýning að öllu leyti. Ég
hvet alla sem vilja skemmta sér vel
eina kvöldstund til að sjá sýninguna
þeirra. Áfram VÍ.
Steinunn.
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
50 ára af-mæli.
Fimmtíu ára er í
dag Jón Æg-
isson fram-
kvæmdastjóri,
Marbakkabraut
22, Kópavogi.
50 ára af-mæli. Í
tilefni af 50 ára
afmæli mínu
þann 18. febrúar
nk., býð ég til
veislu í sam-
komuhúsi
Grundarfjarðar
laugardaginn 17.
febrúar kl. 20.
Gjafir eru vinsamlegast afþakkaðar, en
mér þætti vænt um að sjá sem flesta
gleðjast með mér á þessum tímamót-
um. Guðmundur Smári Guðmundsson
og fjölskylda.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynn-
ingar um afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa
að berast með tveggja daga fyr-
irvara virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudags- og
mánudagsblað. Samþykki afmæl-
isbarns þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/ eða nafn
ábyrgðarmanns og símanúmer.
Hægt er að hringja í síma 569-1100,
senda tilkynningu og mynd á net-
fangið ritstjorn@mbl.is, eða senda
tilkynningu og mynd í gegnum vef-
síðu Morgunblaðsins, www.mbl.is,
og velja liðinn „Senda inn efni“.
Einnig er hægt að senda vélritaða
tilkynningu og mynd í pósti. Bréfið
skal stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.