Morgunblaðið - 16.02.2007, Síða 64
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 47. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Suðlæg átt,
8–15 m/s, og
skúrir sunnan og
vestan til en ann-
ars staðar þurrt að kalla.
Hiti 1 til 8 stig. » 8
Heitast Kaldast
8°C 1°C
„SÍÐAN þeir fóru að vesenast út af þessum
vökva eru þeir hættir að taka af manni prjón-
ana,“ segir Lilja Valdimarsdóttir, hornleikari
í Sinfóníuhljómsveit Íslands, en hún fékk að
valsa óáreitt upp í flugvél á leið til Þýska-
lands með oddhvassa prjóna í farteskinu. Á
sama tíma máttu hins vegar aðrir lúðrablás-
arar hljómsveitarinnar sjá á eftir vasilíni og
lúðraolíu í hendur tollvarða í Leifsstöð.
„Þetta eru prjónar númer tvö, sem sagt mjög
fínir og það væri vafalaust hægt að pota mjög
illa með þeim,“ fullyrðir Lilja sem telur aftur
á móti að vasilín sé harla skaðlaust efni. „Það
er bara alls engin athugasemd gerð við prjón-
ana.“
Þessa dagana er Sinfóníuhljómsveitin á
tónleikaferðlagi um þrjú Evrópulönd og seg-
ist Lilja nýta hverja lausa stund til að sinna
prjónaskap, hún hafi lært sem krakki í sveit
hjá gamalli ljósmóður að prjóna á leið milli
bæja. „Ég nota hverja stund. Ég var að fást
við einfalda ermi þarna í fríhöfninni, prjónaði
á leið upp tröppur og í biðröðum. Þetta geri
ég til að nota tímann. Annars hangir maður
bara og drekkur enn þá meira kaffi.“
Vasilín hættu-
legra en odd-
hvassir prjónar?
TÓNLISTARMENNIRNIR Kristján Krist-
jánsson og Magnús Eiríksson eru á leið til
Kína þar sem þeir munu taka upp þriðju og
síðustu „ferðalagaplötuna“. Platan verður
gefin út í Kína af ríkisreknu fyrirtæki sem
nefnist Shanghai Audio and Video Publishing
House. Í kjölfarið munu þeir KK og Maggi
svo halda tónleika í miðborg Sjanghæ. Óttar
Felix Hauksson hefur veg og vanda af verk-
efninu. „Mér tókst að opna dyrnar fyrir ís-
lenska listamenn þegar ég var að gera samn-
inga um útgáfu á Robertino í Kína, og hef
verið iðinn við að kynna íslenska tónlist þar,“
segir Óttar, sem skrifaði nýverið undir samn-
ing um dreifingu á plötum Robertino í Bene-
lux-löndunum, Þýskalandi, Austurríki og
Sviss.
Fyrsta íslenska platan kom út í Kína fyrir
skömmu en þar var um að ræða plötu með
Jazzkvartett Sigurðar Flosasonar & Jóels
Pálssonar. Að sögn Óttars eru fjölmörg sókn-
arfæri á kínverskum tónlistarmarkaði sem
vex með ógnarhraða. | 20
Morgunblaðið/RAX
Ferðalangar Magnús, KK og Óttar.
Kínverska ríkið
gefur plötuna út
MATARVERÐ á dýrari veitinga-
húsum ætti að lækka um allt að
10–12% um mánaðamót á meðan
matur á skyndibitastöðum lækkar
um 6%. Stafar það af lækkun virð-
isaukaskatts úr 24,5 í 7% um leið
og afnumið er flókið endur-
greiðslukerfi virðisaukaskatts.
Verðlagseftirlit Alþýðusam-
bands Íslands hefur gert yfirlit
um breytingar á virðisaukaskatti
um næstu mánaðamót og reiknað
dæmi um breytingar á nokkrum
liðum vöru og þjónustu. Ástæðan
fyrir því að lækkun álagning-
arprósentu virðisaukaskatts skil-
ar sér ekki til fulls í lækkun þjón-
ustu veitingastaðanna er að
staðirnir hafa fengið endur-
greiðslu á virðisaukaskatti sem
miðast við að þeir greiði sem svar-
ar til 14% skatts af matarhlutan-
um á meðan þjónustuhlutinn hef-
ur borið 24,5% vsk. Þetta hefur í
för með sér að matarverð á stöð-
um sem veita mikla þjónustu
lækkar meira en á öðrum, eða um
10–12% að mati Verðlagseftirlits-
ins. Á sama tíma lækkar verð veit-
ingastaða með minni þjónustu, til
dæmis skyndibitastaða, um 6%.
Verð á bókum, blöðum og tíma-
ritum, afnotagjald RÚV og áskrift
að Stöð 2 eiga að geta lækkað um
6%. Þannig ætti almenn áskrift að
Stöð 2 að lækka úr 5.450 í 5.115
kr., eða um 335 kr. á mánuði og
áskrift að Morgunblaðinu úr 2.800
í 2.628 kr., eða um 172 krónur.
Kilja sem kostar 1.990 ætti sam-
kvæmt þessu að lækka í 1.868 kr.
Verð á tónlist lækkar meira, eða
um 14%. Þannig myndi hljómdisk-
ur sem nú kostar 2.199 kr. kosta
1.890 frá 1. mars, lækka um 309
kr.
Svo dæmi séu tekin af annarri
þjónustu sem Verðlagseftirlitið
hefur reiknað út, þá lækkar kostn-
aður við húshitun um 6% við lækk-
un virðisaukaskatts. Hins vegar
er ber rafmagn til almennra nota
áfram 24,5% virðisaukaskatt og
breytist ekki. | 12
Veitingar lækka um 12%
Verð á fjölmiðlum lækkar um 6% en tónlist um 14% vegna vsk.-breytinga
Í HNOTSKURN
» Matarverð á veitinga-húsum lækkar um 6 til
12%, bækur, blöð og áskrift-
argjald sjónvarps um 6%,
hljómdiskar um 14% og hús-
hitun, gisting og jarðganga-
gjald um 6%.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
1
4
2
Nú færðu Gouda 26% í sérmerktum kílóastykkjum
með 20% afslætti í næstu verslun!
www.ostur.is
Gouda 26%
á tilboði
UNNIÐ er að nýju landnámi út í sjó við Kárs-
nes í Kópavogi þar sem skipulagt hefur verið
nýtt bryggjuhverfi. Stórt sanddæluskip Björg-
unar sækir möl út á Faxaflóa og gengur oft
mikið á þegar dælur skipsins skila efninu á
nýjan stað, í uppfyllinguna í Kópavogi.
Fyllt upp fyrir bryggjuhverfi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HLUTABRÉF Hf. Eimskipafélagsins, áð-
ur Avion Group, hækkuðu um 8,4% í Kaup-
höllinni í gær í alls 120 viðskiptum fyrir 589
milljónir króna. Telst þetta óvenjumikil
hækkun á einum degi en hún er fyrst og
fremst rakin til nýs verðmats greiningar-
deildar Landsbankans sem sent var völdum
fjárfestum á miðvikudag en hafði ekki verið
kynnt opinberlega í gær.
Lokagengi bréfa félagsins var 33,6 eftir
viðskipti gærdagsins en greiningardeildin
metur það á 34% hærra gengi, eða 45,2, og
mælti því með að fjárfestar keyptu hluta-
bréf í Hf. Eimskipafélaginu, móðurfélagi
Eimskipa, Air Atlanta og fleiri félaga. | 16
Bréf ruku
upp eftir
verðmat
HNETUSMJÖR af tegundinni Peter Pan,
sem heildsalan Innnes flytur inn, var í gær
innkallað úr verslunum hér á landi. Ástæð-
an er sú að salmonellusmit tæplega 300
Bandaríkjamanna hefur m.a. verið rakið til
hnetusmjörs af þeirri tegund.
Um er að ræða Peter Pan og Great Value
hnetusmjör með lotunúmeri sem hefst á
2111 en þar til í gær fengust krukkur af
fyrrnefndu tegundinni og með umræddu
númeri í verslunum hérlendis.
Í fréttatilkynningu sem Innnes sendi frá
sér í gær vegna málsins eru þeir sem eiga
krukkur af Peter Pan-hnetusmjöri með
framleiðslunúmeri sem hefst á 2111 og
keypt hefur verið í maí 2006 eða síðar, beðn-
ir um að farga vörunni eða skila henni í við-
komandi verslun. Ekki er vitað um smit af
völdum hnetusmjörsins hérlendis, að því er
segir í tilkynningunni.
Salmonellufaraldurinn í Bandaríkjunum
hefur verið hægfara og aðeins verið tilkynnt
um eitt til tvö tilfelli daglega frá því í ágúst
þegar bera fór á smitinu. Því var það fyrst í
þessari viku sem sýkingin var rakin til
hnetusmjörsins. | 26
Hnetusmjör
innkallað
♦♦♦