Morgunblaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR STARFSFÓLK vantar í 35 stöðu- gildi hjá leikskólum í Reykjavík, samkvæmt könnun sem gerð var 1. mars sl. fyrir leikskólaráð. Þar af er óráðið í rúm 30 stöðugildi leik- skólakennara. Hjá leikskólum í Reykjavík eru um 1.800 stöðugildi. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður leikskólaráðs, sagði skort á leikskólakennurum í störf vissulega áhyggjuefni en faghópur ynni nú að aðgerðum í bráð og lengd til að fjölga fagfólki í leik- skólunum. Hún sagði fagfólk nú vera 35–40% starfsfólks í leik- skólum á höfuðborgarsvæðinu. „Það vantar fagmenntaða kennara á markaðinn,“ sagði Þorbjörg Helga. „Það þarf að vinna að því í samvinnu við ríkið og Kennarahá- skóla Íslands og það erum við að gera.“ Nú eru 48 leikskólar af 78 full- mannaðir, en þegar staðan í ráðn- ingarmálum var könnuð 1. febrúar sl. voru 50 leikskólar fullmannaðir. Best er staðan í leikskólum í Árbæ, Grafarholti og Vesturbæ, en í Laugardal og Háaleitishverfi er óráðið í 11 stöðugildi. Á sama tíma í fyrra var óráðið í um 17 stöðugildi hjá leikskólunum. Morgunblaðið/Júlíus Skólastarf Leikskólabörn í lögreglufylgd við upphaf vetrarhátíðar. Enn er nokkur skortur á leikskólakennurum í borginni RANNSÓKNAMIÐSTÖÐ um sam- félags- og efnahagsmál hefur gefið út ritgerðasafnið Þjóðareign – þýð- ing og áhrif stjórnarskrárákvæðis um þjóðareign á auðlindum sjávar. Höfundar eru fimm, þau Davíð Þor- láksson, Guðrún Gauksdóttir, Ragn- ar Árnason, Sigurður Líndal og Sig- urgeir Brynjar Kristgeirsson. Í ritgerðasafninu er leitazt við að svara spurningum um eignarrétt- arlega stöðu auðlinda sjávar. Enn- fremur er fjallað um tillögur sem fram hafa komið um slíkt stjórn- arskrárákvæði og áhrif þeirra á rétt- arframkvæmd og atvinnu- og efna- hagslíf. Spurt er hvort aflaheimildir séu eign í skilningi stjórnarskrár- innar og njóti verndar hennar eins og aðrar eignir landsmanna. Varpað er ljósi á mikilvægi eignarréttarins og hvaða áhrif skerðing á eign- arrétti hefur á efnahagslega hag- sæld. Loks er staða íslenzkra sjávar- útvegsfyrirtækja metin og hvort ákvæði um þjóðareign á auðlindum sjávar leiði til verri rekstrarskilyrða og afkomu fyrirtækjanna. Morgunblaðið/G.Rúnar Bækur Þrír af höfundum ritsins, Sigurgeir B. Kristgeirsson, Ragnar Árnason og Sigurður Líndal. Safn ritgerða um þjóðareign RÁÐSTEFNA um þátttöku og móttöku innflytjenda í dreifbýli verður haldin í Hömrum á Ísafirði dagana 26.– 28. mars nk. Fjölmenningarsetrið og Háskólasetur Vest- fjarða efna til ráðstefnunnar þar sem margir helstu fræðimenn í málefnum innflytjenda og byggðaþróunar flytja erindi og velta ýmsum flötum upp. Meðal þeirra sem flytja erindi eru breski sendiherr- ann, Alp Mehmet, og Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- ráðherra. Philomena de Lima greinir frá stöðu far- andverkafólks í dreifbýli á Bretlandi. David Bruce mun kynna verkefni í Kanada þar sem markvisst var unnið að því að laða innflytjendur til þeirra sveitarfélaga þar sem fólksfækkun var mikil. Norska fræðakonan Marit Anne Aure segir frá rannsókn sinni á aðstæðum farandverkafólks í norðurhluta Noregs. Á vef Háskólaseturs Vestfjarða, http://www.hsvest.is, má fá nánari upplýsingar um erindin. Innflytjendur í dreifbýli Frá Neðsta- kaupstað á Ísafirði. RAGNAR Ómarsson landsliðs- kokkur er lagður af stað til Jóhann- esborgar í Suður-Afríku. Þar mun Ragnar taka þátt í þekktri mat- reiðslukeppni sem heitir One World. Keppnin hefst í dag, föstu- dag. Tveir matreiðslunemar fóru með utan, Ragnari til aðstoðar. Utan til keppni INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, verð- ur heiðursgestur á landsfundi sænska jafnaðarflokksins sem hald- inn verður í Stokkhólmi á laug- ardag. Þar verður lýst kjöri Monu Sa- hlin í embætti formanns flokksins, en hún tekur við af Göran Persson, fyrrum forsætisráðherra. Kjör Monu markar söguleg tímamót, því þar með eru konur í fyrsta sinn í meirihluta formanna norrænu jafn- aðarflokkanna. Heiðursgestur á landsfundi í Svíþjóð VEGNA inflúensu verður Magnús Stef- ánsson félagsmála- ráðherra í veik- indaleyfi fram í næstu viku. Læknar hafa ráðlagt félags- málaráðherra að taka sér hvíld uns honum er batnað af inflúensunni en talið er að samspil hennar og lang- varandi álags hafi komið niður á heilsu ráðherra. Líðan hans er að öðru leyti góð, segir í frétt frá ráðu- neytinu. Flensa og álag Magnús Stefánsson MJAÐARGERÐ og víngerð úr ís- lenskum berjum hefur lengi verið áhugamál Hannesar Lárussonar myndlistarmanns. Á yngri árum gróf hann upp heimildir um bruggun mjaðar að hætti fornmanna og þreif- aði sig áfram þar til hann var sáttur við mjöðinn. Síðan eru um þrír ára- tugir og hefur hann gert vín úr ís- lenskum berjum og jurtum og mjöð á nær hverju ári til eigin nota. „Ég byrjaði á þessu í mennta- skóla. Upphafið var að ég hafði áhuga á að búa til mjöð, sem lík- astan þeim sem drukkinn var hér á miðöldum,“ sagði Hannes. „Ég gerði ýmsar tilraunir með bragð og styrk- leika. Best er að hafa mjöðinn í kringum 7%. Ég prófaði alls konar hunang og jurtir og komst að því að best er að nota lífrænt hunang og mjaðjurtina til bragðbætis.“ Hannes sagði mjöðinn bestan tveggja til þriggja mánaða gamlan. Þá sé komið æskilegt jafnvægi milli bragðs mjaðjurtarinnar og hunangs- ins. Hann segir allt önnur og mýkri áhrif af miði en bæði víni og bjór. „Mjöður fer vel í fólk, það verður ró- legt og ákveðin höfgi sem kemur yf- ir menn við mjaðardrykkju. Ef mað- ur drekkur eitthvað að ráði finnur maður minna fyrir eftirköstum, eða timburmönnum, en af öðru áfengi.“ Bragðgóð berjavín Hannes gerir vín á hverju ári úr íslenskum krækiberjum og bláberj- um, einnig hefur hann gert vín úr sólberjum, rifsberjum, blómum tún- fífla og mjaðjurt. Hann fer til berja á hverju hausti ásamt Kristínu Magnúsdóttur konu sinni að afla hráefnis til víngerðarinnar. Hannes segir fjarri því að víngerðin krefjist mikils nosturs. „Maður er kominn með ákveðnar aðferðir við þetta, mjög fljótlegar. Ég þvæ t.d. ekki berin og tíni ekkert úr þeim heldur hef lauf og kvisti bara með. Set þetta allt í blandara og hakka áður en ég set það í kútinn. Ég hugsa að það taki ekki nema hálftíma til klukkutíma að leggja í 25 lítra kút. Aðalvinnan er að hella á flöskurnar. Yfirleitt losa ég vínkút- ana á haustin og helli þá á flöskur og set nýja lögun á kútana. Þetta er eins og að búa til sultu eða saft, rút- ína sem maður hugsar lítið um.“ Hannes notar aldrei uppskriftir og segir framleiðsluna verða mis- munandi frá ári til árs. Berjamagnið getur verið mismikið í hverri lögun og stundum fljóta með rúsínur, aprí- kósur og jafnvel þrúgusafi sem fylli- efni. Bláberjavínið vill verða sætt og þungt, hálfgert desertvín. Kræki- berjavínið verður ferskt og gott borðvín, mjög gott með lambakjöti og jafnvel fiski. „Maður tekur þetta fram yfir annað vín og yfirleitt drekkur maður lítið annað vín en þetta. Yfirleitt þykir mér heima- gerða vínið betra en annað vín og örugglega betra en öll ódýrari vín, það er ekki spurning. Þetta er gæða- vara á sinn hátt.“ Hannes safnar flöskum héðan og þaðan til að hafa undir vínið. Hann segist ekki leggja mikið upp úr miðagerð en merkja gjarnan flösk- urnar með litum eftir víngerð og skrifar þá stundum ártalið. Stund- um kemur fyrir að merkingarnar ruglist, en það gerir lítið til. Það er helst ef gefa á flösku að Hannes gef- ur sér tíma til að nostra við mið- agerð. Alþingi hefur nú til meðferðar frumvarp þess efnis að leyfa beri gerð áfengra drykkja, með minna en 15% áfengismagni, til einkanota. Hannes telur að víngerð til eigin neyslu hafi lengi verið stunduð hér á landi. En er grundvöllur fyrir skipu- legri framleiðslu mjaðar og ís- lenskra berjavína? „Ef vandað er til verka þá er ábyggilega markaður fyrir þetta,“ sagði Hannes. „Ég er viss um að það mætti þróa vandaðan drykk úr mjaðjurt, t.d. mjöð eða jafnvel snafsa eða líkjöra. Það þarf bara að vanda sig við þetta og gæta smekk- vísi, en ekki ryðja einhverju drasli á markaðinn.“ Eigin vín og mjöður Hannes Lárusson myndlistarmaður gerir mjöð úr mjaðjurt að fornmannasið og bruggar vín úr íslenskum berjum Morgunblaðið/Sverrir Kjörið í vínið Hannes segir íslensk ber og jurtir henta vel til vín- og mjað- argerðar. Hann notar aðeins gæðahráefni og afurðirnar verða eftir því. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „GJÖLDIN á okkur sem rekstrar- aðila á kerfinu hafa tífaldast, þetta voru 50.000 krónur en verða 500.000 krónur,“ segir Benedikt Magnússon, formaður ferðaklúbbsins 4x4, um gjaldskrárbreytingu á notkun tal- stöðva sem gekk í gildi um áramótin. „Við greiðum ákveðna fjárhæð fyrir beinu rásirnar, beint á milli manna í talstöð, og svo greiðum við ákveðna fjárhæð fyrir þær tíðnir sem eru kallaðar í gegnum endurvarpa.“ Á sjötta þúsund manns eru í klúbbnum og útilokar Benedikt ekki að endurvarpskerfinu verði lokað. „Fyrir beinu rásirnar minnir mig að þetta hafi verið 50.000 til 60.000 krónur sem við greiddum en fyrir endurvarpana […] 120.000 kr. Við höfum haldið úti þessu endurvarpa- kerfi á landinu og náð með því til langstærsts hluta hálendisins, þann- ig að allir sem hafa talstöð í bílnum hafa getað kallað í gegnum endur- varpa um langar vegalengdir og náð sambandi við aðra. Kostnaðurinn við þetta kerfi er um ein og hálf milljón á ári, bara við að halda því gangandi, svo bætist núna við hálf milljón. Við fengum í fyrra í fyrsta skipti styrk frá sam- gönguráðuneytinu upp á 800.000 kr. til að halda þessu gangandi. Við sótt- um um hann aftur en ég veit ekki hvort hann fæst. Að halda úti kerfi, eina kerfinu á hálendinu sem nær til alls landsins, og borga fyrir það tvær milljónir, jafnvel tvær og hálfa, það er bara of mikið fyrir áhugamanna- félag, eins og ferðaklúbbinn 4x4.“ Átti fund með forstjóranum Alls rekur klúbburinn 16 endur- varpa á hálendinu og þarf á hverju ári að sinna viðhaldi, s.s. brotnum loftnetum. Spurður um þau ummæli Hrafnkels V. Gíslasonar, forstjóra Póst- og fjarskiptastofnunar, að gjaldskrárbreytingin fæli í sumum tilvikum í sér verðlækkun sagðist Benedikt hafa átt fund með honum fyrir tveimur mánuðum. Þar hafi hann tjáð honum að þau hjá klúbbn- um „hefðu í sjálfu sér fáa valkosti aðra“ en að draga úr sínum umsvif- um og „hreinlega loka þessu kerfi“. Hann segir meðlimi klúbbsins hafa greitt 2.200 króna árgjald sem hafi verið fellt niður um áramótin. „Í staðinn taka þeir upp þessi tíðnigjöld og senda reikninginn á 4x4 klúbbinn sem er handhafi tíðnanna sem eru á okkar beinu rásum og end- urvörpum.“ Af þessum sökum vill Benedikt láta kanna hvort jeppamenn geti fengið aðgang að tetra-kerfi björg- unarsveitanna, nauðsyn krefji ef endurvarpskerfinu verði lokað. Þá sé NMT-kerfið að gefa sig, sem sé slæmt fyrir öryggi fjallamanna. Talstöðvagjöldin fyrir 4x4 klúbbinn tífaldast Morgunblaðið/Árni Sæberg Á fjöllum Jeppamenn telja brýnt að samband utan alfaraleiðar sé gott. Formaðurinn vill fá aðgang að tetra-kerfi björgunarsveitanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.