Morgunblaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 37
✝ Ólína ÞóreyStefánsdóttir
fæddist á Akureyri
10. september 1927.
Hún lést á heimili
sínu 6. mars síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Stefán
Loðmfjörð Jónsson
sjómaður og síðar
bóksali f. 29. októ-
ber 1873, d. 29.
ágúst 1963 og Hall-
dóra Sigurðardóttir
húsfreyja f. 3. maí
1887, d. 20. nóv-
ember 1979.
Alsystir Ólínu var Karla f. 15.
september 1930, d. 9. ágúst 2004.
Hennar maki er Friðrik Jónsson f.
4. júlí 1921.
Sammæðra er Lovísa Hafberg
Björnsson f. 27. febrúar 1925.
Hennar maki er Gunnar Kristján
Björnsson f. 20. janúar 1924.
Samfeðra voru Þórarinn Stef-
ánsson f. 1892, d. 1959, Eyþór
Stefánsson f. 1893, d. 1920, Arn-
björg Stefánsdóttir f. 1895, d.
1981, Björgvin Ólafur Stefánsson
f. 1897, d. 1981, Páll Stefánsson f.
1901, d. 1987, Jón Stefánsson f.
dóttir Páls Braga og Erlu Sigurð-
ardóttur, kvænt Inga Pétri Ingi-
mundarsyni, þeirra börn eru Ottó
Marinó 1988, Sólon Kolbeinn 1995,
Jasmín Erla 1998 og Kristall Máni
2001.
Seinni eiginmaður Ólínu, gift í
apríl 1954, var Þórður Ágústsson
verslunarmaður f. 5. mars 1920 í
Hvammi í Staðarsveit, d. 14. maí
1990. Þeirra börn eru:
Stefán Þórðarson f. 31. janúar
1953, hans barn með Ólafíu Þóru
Valentínusdóttur er a) Daníel
Stefánsson f. 1973, í sambúð með
Karitas Pálsdóttur.
Ágúst Þórðarson f. 29. desem-
ber 1954. Fyrri maki hans er
Ragnhildur Sesselja Gottskálks-
dóttir f. 3. júlí 1956. Börn þeirra
eru: a) Þórður f. 1975 kvæntur
Guðrúnu Gísladóttur, þeirra börn
eru Ragnheiður Edda 1998 og
Gísli Gottskálk 2004, b) Gottskálk
Þorsteinn f. 1979 í sambúð með
Þuríði Kristjánsdóttur. Seinni
maki er Fanney Sigurðardóttir f.
17. nóvember 1964, þeirra börn
eru d) Lína 1987, unnusti Jóhann
Guðmundsson, e) Klara Sól 1992.
Útför fór fram í kyrrþey 16.
mars.
1903, d. 1941, Ása
Sigríður Stef-
ánsdóttir f. 1905, d.
1990, Þuríður Svava
Stefánsdóttir f. 1907,
d. 1979.
Fyrri eiginmaður
Ólínu var Kristjón
Ingiberg Krist-
jánsson forsetabíl-
stjóri f. 25. sept-
ember 1908 í
Traðarbúð í Stað-
arsveit, d. 18. októ-
ber 1981. Barn
þeirra er:
Páll Bragi Kristjónsson f. 7.
febrúar 1944, kvæntur Stefaníu
Ingibjörgu Pétursdóttur f. 3. des-
ember 1941. Börn þeirra eru a)
Jórunn f. 1964, börn hennar eru
Páll Bragi 1986, Björn 1990 og
Selma 2004, b) Þórður f. 1968, í
sambúð með Kristínu Mark-
úsdóttur, barn þeirra er Markús
2005 en fyrir átti Kristín Hjördísi
1995, c) Rakel f. 1970 kvænt Ósk-
ari Sigurðssyni, þeirra börn eru
Stefanía Ósk 1990, Sigurður 1994
og Saga 2002, d) Kristján Leifur f.
1977 í sambúð með Tinnu Guð-
mundsdóttir, e) Sigrún f. 1967
Elsku hjartans amma okkar er
látin.
Nú streyma fram kærleiksríkar
og hjartfólgnar minningar – dýr-
mætar minningar sem ylja okkur um
hjartarætur.
Þegar við systkinin vorum að alast
upp nutum við þeirra forréttinda að
vera mikið með ömmu og afa. Að
koma til þeirra í Ljósheimana var
alltaf tilhlökkunarefni. Hvergi í
heimi var jafn gott að vera og í
kyrrðinni hjá ömmu og afa, þar
dunduðum við í rólegheitum og tím-
inn leið líkt og í ljúfum draumi. Það
var alltaf tími til að spila ólsen, ólsen,
spjalla, syngja kvæði, lita eða kubba.
Öll vorum við sérstök í augum þeirra
og fengum að njóta þess hvert á sinn
hátt.
Amma Lína var glæsileg og eleg-
ant kona, alltaf vel til höfð og ekki
rykkorn að sjá á fallegu heimili. Í
augum okkar var amma fínasta kona
í heimi, hún var eins og drottning og
íbúðin í Ljósheimunum eins og kon-
ungshöll. Yfir lífi ömmu og afa hvíldi
líka svolítið ævintýralegur blær, þau
ferðuðust mikið, sigldu með Gull-
fossi, flugu til Ameríku og brugðu
sér árlega til Kanaríeyja. Ekki var
laust við að litlum börnum brygði
stundum í brún og rækju upp stór
augu þegar amma kom heim „alveg
kolsvört í framan“. Alltaf komu þau
færandi hendi með eitthvað fágæti
frá útlöndum.
Amma var mikill listakokkur og
eyddi drjúgum tíma í að koma ofan í
okkur mat, meyru og safaríku gúll-
asi, bixímat með spæleggi og heims-
ins bestu tartalettum. Eldhúsið
hennar ömmu var líka mikill ævin-
týraheimur, okkur fannst það nefni-
lega svo nýtískulegt. Þar var t.d.
ekki útvarp, heldur hátalari sem
tengdur var inn í stofu. Amma átti
líka forláta grillofn sem við krakk-
arnir höfðum miklar mætur á. Hann
stóð á eldhúsborðinu og í honum var
hægt að gera ostabrauð. Í eldhúsinu
voru líka alls kyns hirslur sem gam-
an var að skoða í og í vaskaskápnum
leyndist appelsín eða malt í gleri sem
rann ljúflega niður með machintosh-
molanum sem amma náði í úr stofu-
skenknum.
Jólin voru óhugsandi án ömmu og
afa og á hverjum sunnudegi komu
þau í heimsókn. Þegar bíllinn hans
afa, alltaf nýbónaður og fínn, kom
akandi inn í hverfið var hlaupið frá
leikjum og heim, afi færði okkur ís
og bauð okkur svo kannski í bíltúr,
jafnvel alla leið upp á Akranes að
heimsækja Köllu frænku og Friðrik.
Amma sýndi okkur ótakmarkaða
þolinmæði og hlýju og kenndi okkur
margt, bæði sálma, kvæði og söngva
og seinni árin fengu börnin okkar
einnig að njóta gæsku hennar og
umhyggju.
Þegar afi Þórður dó 1990 var ver-
öldinni kippt undan fótum ömmu, þá
missti hún ævilangan félaga og
þungamiðju lífs síns og þó hún hafi
ekki látið bugast vitum við að hluti af
henni dó með honum. Annað áfall
reið yfir þegar Kalla, systir ömmu og
nánasta vinkona, lést 2004.
Nú er elsku amma farin líka. Eins
erfið tilhugsun og það er, hjálpar
okkur sú vissa að hún er hjá Guði,
komin aftur í faðm afa Þórðar og til
Köllu systur sinnar.
Elsku besta amma, hvíldu í friði,
okkur þykir óskaplega vænt um þig.
Vertu guð faðir, faðir minn,
Í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgr. Pétursson.)
Jórunn, Þórður, Rakel og
Kristján Leifur.
Elsku amma Lína
Ég mun aldrei gleyma öllum góðu
stundunum sem við áttum saman.
Þegar ég kom til þín í Ljósheimana
eftir skóla tókstu á móti mér með
bros á vör og pottinn fullan af kjöt-
bollum í brúnni sósu. Við spiluðum
saman ólsen ólsen við stofuborðið og
lásum eða sungum kvæði. Svo má
ekki gleyma Leiðarljósi sem við
fylgdumst með af miklum áhuga. Á
hverjum þriðjudegi fórum við saman
út í Glæsibæ og ég man þegar ég
spurði þig afhverju þú héldir svona
ótrúlega fast í hendina á mér og þú
svaraðir því að ömmu þætti svo
óskaplega vænt um mig og vildi ekki
týna mér. Nú held ég fast í minn-
inguna um þig, amma mín, því ég vil
ekki týna þér.
Ég veit að þú ert komin á betri
stað núna.
Ég elska þig, amma mín.
Rósin
Undir háu hamra belti
höfði drúpir lítil rós.
þráir lífsins vængja víddir
vorsins yl og sólarljós.
Ég held ég skynji hug þinn allan
hjartasláttinn rósin mín.
Er kristallstærir daggardropar
drjúpa milt á blöðin þín.
Finna hjá þér ást og unað
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei það er minning þín.
(Höf. Friðrik Jónsson)
Stefanía Ósk Óskarsdóttir
Elsku amma.
Mig langar að kveðja þig með ör-
fáum orðum.
Það er erfitt að hugsa til þess að
nú ert þú farin frá okkur. Ég veit
hinsvegar að nú líður þér miklu bet-
ur og ert laus við þá kvilla sem hafa
hrjáð þig á síðustu árum.
Minningarnar mínar úr Ljósheim-
unum í gegnum tíðina eru svo marg-
ar og góðar. Þegar pabbi sótti okkur
bræðurna og fór með okkur í mat-
arboð eða að gista hjá þér og afa var
alltaf sérstakur tími og ég hugsa
með hlýju í hjarta til þess. Hjá þér
var allt svo fínt og flott og allir sem
þekktu þig vita að þú eldaðir besta
mat í heimi. Þú talaðir oft um það að
engin hefði getað borðað jafn mikið
af tartalettum og ég, ekki einu sinni
Doddi bróðir og þegar við vorum hjá
þér hafðir þú ekki undan að bera á
diskana okkar.
Þegar afi dó var höggvið stórt
skarð í þínu lífi. Tilvera þín var aldr-
ei eins eftir það og þú saknaðir hans
afar mikið. Samt varstu svo dugleg
og aldrei kvartaðirðu yfir þínum
veikindum eða öðrum áföllum sem
þú varðst fyrir. Þvert á móti varstu
mjög dugleg að minna á hversu
heppin þú værir að ná þeim aldri
sem þú náðir og fá að eignast börnin
þín, barnabörnin og langömmubörn-
in.
Elsku amma mín, ég veit að nú ert
þú kominn í faðm afa og hann hugsar
um þig eins og honum einum var lag-
ið. Þið munuð nú njóta lífsins saman
og vinna upp þann tíma sem þið hafið
verið aðskilin.
Hvíl í friði,
Gottskálk Ágústsson
Elsku amma.
Nú hvíla rósirnar hvítu
hægan við brjósts þíns mjöll.
Og þig fer að dreyma. Við svanasöngva
sál þín líður um kvöldblá fjöll,
þangað sem rís yfir rauðan skóg
riddarans tigna höll.
Þú brosir, hann ber af þeim öllum.
Nú bíður hann eftir þér.
Þú veist að um höllina líða ljóð,
sem hann leikur einn þegar kvölda fer,
og öll hans gleði, hans ást og þrá
í ómunum vaggar sér.
(Tómas Guðmundsson)
Þú sagðir mér oft söguna frá því
þegar ég var lítill strákur í heimsókn
hjá þér og afa í Ljósheimunum þar
sem ég lá oftar en ekki í barnastóln-
um uppá eldhúsborði meðan þú eld-
aðir matinn. Þú sagðir að ég hefði
malað út í eitt og aldrei þagnað. Þér
fannst alltaf jafn gaman að rifja
þetta upp og saman hlógum við að
þessu. Þetta átti ekkert eftir að
breytast hjá okkur því allt fram til
síðasta dags áttum við ógleymanleg-
ar stundir í eldhúsinu þar sem við
tvö ræddum allt milli himins og jarð-
ar og við gátum treyst hvort öðru
fyrir öllu.
Þær eru ótalmargar þær góðu
minningar sem koma upp í hugann
þegar ég rifja upp samverustundir
okkar í gegnum tíðina. Þessar minn-
ingar eru mér ómetanlegar og ég
mun gæta þeirra og deila þeim með
börnum mínum í framtíðinni svo þau
fái að kynnast þér aðeins betur.
Þrátt fyrir að þú hafir ekki verið
nægilega heilsuhraust á síðustu ár-
um varstu nú ekki mikið fyrir að
kvarta, vildir helst aldrei að neinn
hefði áhyggjur af þér. Þá varstu allt-
af meðvituð um hvað var að gerast
hjá mér og minni fjölskyldu. Þú vild-
ir fá að vita hvað við værum að að-
hafast og hvernig Guðrún, Ragnhild-
ur Edda og Gísli Gotti ásamt öllum
hinum hefðu það. Okkar velferð
skipti þig ákaflega miklu máli og það
fór aldrei á milli mála. Þér þótti ákaf-
lega vænt um börnin í kringum þig
og lagðir mikla áherslu á að þeim
yrði sýnd þolinmæði, skilningur og
ótakmörkuð ást í blíðu og stríðu.
Ég veit það elsku amma að nú ert
þú búin að fá þá hvíld sem þú hefur
innst inni beðið eftir í dágóðan tíma.
Þegar ég hugsa til þess að nú sért þú
farin frá okkur hjálpar það að vita
hver beið eftir þér og tók á móti þér.
Tilhugsunin um að þú og afi séuð
saman á ný og farin að njóta samver-
unnar á nýjum stað er góð.
Ég þakka þér elsku amma fyrir
allt sem þú gerðir fyrir mig og allar
þær stundir sem við áttum saman.
Við munum sakna þín.
Þórður Ágústsson og fjölskylda.
Elsku amma okkar,
Það var sárt að heyra að þú værir
farin frá okkur og margar minningar
streyma um huga okkar. Fjölmargar
eru þær og það er varla hægt að gera
þeim skil í fáum orðum. Sumar eru
bara sundurlaus brot, eins og þegar
þú varst að hátta okkur, eða þegar
þú varst að fara með bænirnar með
okkur. Þegar við fengum að lita við
skrifborðið hans afa, þegar þú þvoðir
á þér hárið í eldhúsvaskinum, en það
þótti okkur bráðfyndið. Þegar mað-
ur mátti setja á sig alla skartgripina
og gramsa í fötunum sem Þórður afi
gaf þér. Þegar þú eldaðir annaðhvort
kjötbollur í brúnni sósu eða hitaðir
tartalettur þegar maður kom í heim-
sókn til þín.
Allar minningar sem við framköll-
um eru góðar.
Alltaf passaðirðu okkur vel þegar
við vorum yngri. Þú vildir allt fyrir
okkur gera.
Við eigum eftir að sakna hlýjunn-
ar sem var allt í kringum þig.
Skrítnu stundanna eins og bara að
liggja undir borði á gólfteppinu inni í
stofu og hlusta á fólkið inni í eldhúsi
spjalla eða þegar maður lá bara og
glápti út í loftið í gömlu góðu íbúð-
inni þinni eru minningar sem eru svo
minnisstæðar og hlýjar. Og hvað það
var gaman, þegar maður sá þig
standa úti í glugga og vinka bless
þegar maður fór.
Við gætum endalaust rifjað upp
allar þær góðu stundir sem við átt-
um saman og það munum við gera
um ókomna tíð.
Alltaf varstu með bros á vör þegar
maður kom í heimsókn, þótt svo að
veikindin væru farin að segja til sín.
Við munum það svo vel, þegar þú
gast ekki komið til okkar á jólunum í
fyrra út af veikindum. Það var mjög
sárt, því án þín voru jólin ekki þau
sömu. Eftir jólin treystirðu þér ekki
til að fara neitt út, en það var allt í
lagi, við vissum að þú varst með okk-
ur í anda og við komum bara í heim-
sókn til þín í staðinn.
Elsku amma okkar, alltaf varstu
tilbúin til þess að tala um líf okkar og
tilveru. Það var eitthvað við þig sem
ekki er hægt að útskýra. Það var
alltaf gott að tala við þig og þá um
allt milli himins og jarðar. Þú skildir
okkur alltaf og ráðlagðir okkur vel.
Allar þessar minningar eru stór
hluti af uppvexti okkar og munum
við geyma þær vel.
Við söknum þín sárt, en með bros
á vör og hlýju í hjarta. Við vitum að
þú ert núna hamingjusöm með afa
Þórði á ný. Við vitum að þið hafið það
gott saman í himnaríkinu þínu sem
þú sagðir okkur eitt sinn frá. Þar
sitjið þið saman og horfið á okkur
brosandi.
Við elskum þig amma og vitum að
þú átt eftir að gæta okkar allra í ná-
inni framtíð. Þú munt alltaf eiga
stóran hlut í hjarta okkar.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði í sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita að því
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hugann fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Höfundur óþekktur)
Þín barnabörn,
Lína og Klara Sól.
Ólína Þórey Stefánsdóttir
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ARNGRÍMUR MAGNÚSSON,
Sæbergi,
Borgarfirði eystri,
lést á gjörgæslu Landspítalans við Hringbraut
miðvikudaginn 14. mars.
Jarðarförin auglýst síðar.
Elsa Guðbjörg Jónsdóttir,
Ásgeir Arngrímsson, Jóhanna Borgfjörð,
Helgi Magnús Arngrímsson, Bryndís Snjólfsdóttir,
Jón Ingi Arngrímsson, Arna S. D. Christiansen,
Sigrún Halldóra Arngrímsdóttir, Ólafur Arnar Hallgrímsson,
Jóhanna Guðný Arngrímsdóttir, Jóhann Rúnar Magnússon,
Ásgrímur Ingi Arngrímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma, langalangamma og langalangalangamma,
GUÐRÚN KRISTMANNSDÓTTIR,
Hólagötu 4,
Vogum,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja miðviku-
daginn 14. mars.
Jarðarförin auglýst síðar.
Sæmundur Kr. Klemensson, Soffía Ólafsdóttir,
Þórður Klemensson,
Kristmann Klemensson, Þóranna Þórarinsdóttir,
Elís Björn Klemensson, Valgerður Auðbjörg Bergsdóttir,
Egill H. Klemensson,
Brynjar Klemensson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.