Morgunblaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 58
60 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
HORS DE PRIX ísl. texti kl. 8 - 10:20
TELL NO ONE (NE LE DIS A PERSONE) kl. 5:40
TRAVAUX kl. 5:45
LA CÉRÉMONIE kl. 10
LES AMANTS REGULIERS kl. 10:15
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ
Í HÁSKÓLABÍÓ 3.MARS TIL 1. APRÍL
300 kl. 6:30 - 9 - 11:30 B.i. 16 ára
BLOOD & CHOCOLATE kl. 8 B.i. 12 ára
GOLDEN GLOBE VERÐLAUN
BESTA ERLENDA MYNDIN
ÓSKARS-
VERÐLAUN
,,TÍMAMÓTAMYND"
V.J.V. - TOPP5.IS
BREAKING AND ENTERING
20% AFSLÁTTUR
EF GREITT ER MEÐ
SPRON-KORTI 2
Hefur þú einhvern tímann gert
mjög stór mistök?
SÝND Í SAMBÍÓ KRINGLUNNI
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI
/ KRINGLUNNI
300 kl. 5:30 - 8 - 10:10 - 10:30 B.i. 16 ára DIGITAL
NORBIT kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 LEYFÐ
MUSIC & LYRICS kl. 5:50 - 8 LEYFÐ DIGITAL
THE BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 3:30 LEYFÐ
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ DIGITAL
STÓRSKEMMTILEG OG
SPLUNKUNÝ GAMAN-
MYND SEM SLÓ NÝVERIÐ
Í GEGN Í FRAKKLANDI,
MEÐ AUDREYTAUTOU
ÚR DA VINCI CODE
OG AMELIE.
HÖRKUSPENNANDI MYND
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
“UNDERWORLD”
LETTERS FROM IWO JIMA kl. 5:30 B.i. 16 ára
BLOOD DIAMOND kl. 10:15 B.i. 16 ára
AUDREY
TAUTOU
GAD
ELMALEH
FRUMSÝNING
ALLIANCE FRANÇAISE, Í SAMVINNU
VIÐ PEUGEOT OG BERNHARD, KYNNA:
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Í BANDARÍKJUNUM
V.J.V.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
ÞRJÁR vinkonur frá Akranesi,
þær Helena Rúnarsdóttir, Fríða
Ásgeirsdóttir og Agla Harð-
ardóttir, röðuðu sér í þrjú efstu
sætin í keppninni Ungfrú Vest-
urland sem haldin var í Bíóhöllinni
á Akranesi á laugardaginn. Það
var Agla sem bar sigur úr býtum,
en Helena varð í öðru sætinu og
Fríða í því þriðja.
„Ég og Helena fluttum á Skag-
ann í sjöunda bekk og svo urðum
við allar þrjár vinkonur í áttunda
bekk, og höfum verið vinkonur síð-
an þá,“ segir Agla, en þær hafa því
verið bestu vinkonur í um það bil
fimm ár.
Agla segir þær ekki hafa stefnt
að því frá unga aldri að verða feg-
urðardrottningar.
„Nei, ekki beint, og við vorum
ekkert mikið að spá í að taka þátt í
keppninni, en svo hittist það bara
þannig á að við ákváðum allar að
taka þátt í henni á sama tíma,“ seg-
ir Agla sem er nemandi í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi. Auk þess að vera kjörin
ungfrú Vesturland var Agla bæði
kosin ljósmyndamódel Vesturlands
og vinsælasta stúlkan í röðum
keppenda. Aðspurð segist hún ekki
telja að vinkonurnar öfundi hana af
sigrinum. „Ég stórefast um það. Ég
held að þær séu bara mjög ánægð-
ar, og ánægðar með að við förum
allar saman í Ungfrú Ísland,“ segir
hún og bætir því við að hún hafi
ekki búist við að sigra vinkonur
sínar. „Nei, alls ekki. Ég var sjúk-
lega stressuð á þessu augnabliki,
en ég bjóst ekki við að vinna. En
það var samt ógeðslega gaman.“ Ljósmynd/skessuhorn.is
Á laugardaginn Helena, Agla og
Fríða þegar úrslitin voru ljós.
Í áttunda bekk Helena, Fríða og
Agla á lokaballinu árið 2002.
Þrjár vinkonur komu, sáu og
sigruðu í Ungfrú Vesturland
Á meðfylgjandi mynd sem birtist
fyrst í Skessuhorninu má sjá þær
vinkonur árið 2002, en að sögn
Öglu er myndin tekin á lokaballinu
í áttunda bekk. „Þarna er gelgju-
skeiðið náttúrlega í hámarki, við
vorum rosalegar pæjur,“ segir
Agla sem er lítið farin að huga að
möguleikum sínum í keppninni
Ungfrú Ísland. „Ég er ekki ennþá
farin að spá í það, ég er ekki farin
að skoða hvaða stelpur taka þátt í
keppninni,“ segir fegurðardrottn-
ingin að lokum.
ÞÁ sem þyrstir í
að rifja upp
gamla takta sem í
algleymingi voru
á skemmtistaðn-
um Café Au Lait
undir lok tíunda
áratugar síðustu
aldar, fá ósk sína
uppfyllta í kvöld
því skemmtistað-
urinn Prikið
stendur fyrir
mánaðarlegum
þemakvöldum þar sem stemningin á
gömlum skemmtistöðum er vakin
upp frá dauðum.
Frægir fastagestir
Café Au Lait sem var til húsa í
Hafnarstrætinu (þar sem Nonnabát-
ar eru nú) var með eindæmum vin-
sæll um miðjan 10. áratuginn og var
þá líklega eini staðurinn sem gat
veitt Kaffibarnum samkeppni þegar
það kom að fræga fólkinu. Meðal
fastagesta voru allar helstu rokk-
hljómsveitir grasrótarinnar sem síð-
ar urðu vinsælar, svo sem Trabant,
Quarashi og Botnleðja og svo má
ekki gleyma plötusnúðunum Kára,
KGB og Árna Sveins sem í kvöld
rifja upp gamla takta frá sokka-
bandsárum sínum við spilarana.
Að sögn Árna var þá spiluð „svona
old-school partýtónlist“ og verða í
kvöld rifjaðir upp smellir með lista-
mönnum á borð við De La Soul,
Beastie boys, James Brown, Charlat-
ans, Sister Sledge, Propellerheads,
Wiseguys og The Supremes svo fáir
einir séu nefndir.
Frí áfylling?
Café Au Lait var alla jafna fullur
út úr dyrum frá morgni til kvölds og
voru vinsældir staðarins ekki síst
raktar til ókeypis áfyllingar á kaffi
og liðlegs reikningshalds á við-
skiptum fastagesta. Ætli Prikið
gangi svo langt í endurlífguninni?
Café Au Lait
á Prikinu
Taktar Árni
Sveinsson rifjar
upp gamla Café
Au Lait-takta.