Morgunblaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ PÓSTSENDUM www.islandia.is/~heilsuhorn Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889, fæst m.a. í Lífsins Lind í Hagkaupum, Maður Lifandi Borgartúni 24, Árnesapóteki Selfossi, Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum, Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka, Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði Krónan Mosfellsbæ Nóatún Hafnarfirði Calsium eap Kalk sem nýtist VIRKNI ehf. á Akureyri átti lægsta tilboð í framkvæmdir við núverandi lögreglustöð og fangelsi á Akureyri, skv. fréttavef Vikudags í gærkvöldi. Fjögur tilboð bárust og voru opnuð í gær hjá Ríkiskaupum. Tilboð Virkni var hið eina sem var undir kostnaðaráætlun, 175 milljónir kr., en áætlunin hljóðaði upp á tæpar 178 milljónir kr. ÞJ Verktakar buðu um 178,3 milljónir króna, Fjölnir ehf. um 191,5 milljónir króna og PA Byggingarverktakar ehf. buðu tæp- ar 200 milljónir króna. Um er að ræða endurbætur og viðbyggingu við núverandi fangels- isbyggingu til austurs, með sama yf- irbragði. Að sunnan og austan verður bygg- ingin ein hæð á hálfniðurgröfnum kjallara en að norðan verður hún tvær hæðir. Byggingin verður stein- steypt, einöngruð að innan á hefð- bundinn hátt með plasteinangrun og múrhúð á rappneti. Viðbyggingin verður 336 m² og endurgerð á núverandi byggingu er 567m². Verkinu á að vera að fullu lokið fyrir 1. júní 2008. Eitt tilboð í fangelsið undir fjárhagsáætlun AKUREYRI SAMKVÆMT drögum að hugmynd- um sem bæjaryfirvöld á Akureyri hafa kynnt forráðamönnum íþrótta- félaganna Þórs og KA er gert ráð fyrir því að á allra næstu árum verði komið upp gervigrasvelli á svæði KA í Lundarhverfi og að byggð verði áhorfendastúka við knattspyrnuvöll á svæði Þórs í Glerárhverfi, auk þess sem þar verði komið upp keppnisað- stöðu í frjálsíþróttum. Bæjarstjórn hefur ákveðið að íþróttavöllurinn í miðbænum skuli tekinn undir aðra starfsemi, og hug- ur bæjaryfirvalda hefur lengi staðið til þess að landsmót Ungmenna- félags Íslands fari fram á íþrótta- svæði Þórs. Hugmyndir sem þessar – drög að hugmyndum eins og þær eru reyndar kallaðar – hafa hins veg- ar ekki verið lagðar fram fyrr en nú í vikunni. Gert er ráð fyrir því að fram- kvæmdir á svæðum félaganna kosti um 390 milljónir króna; gervigras- völlur á KA-svæðinu 115 milljónir og framkvæmdir á Þórssvæðinu alls 275; þar er átt við fullkomna keppn- isaðstöðu í frjálsíþróttum, átta hlaupabrautir hringinn í kringum völlinn og tilheyrandi og 1000 fer- metra áhorfendastúku. Á Þórssvæðinu eru nú tveir knatt- spyrnuvellir í fullri stærð og sam- kvæmt drögum bæjaryfirvalda yrði frjálsíþróttavöllurinn á vestara svæðinu, undir stöllunum, og keppn- isvöllur félagsins í knattspyrnu á austari hluta svæðisins. Gert er ráð fyrir því, skv. framlögðum hugmynd- um, að áhorfendastúkan verði á milli vallanna og flest sætin í stúkunni snúi í austur, fyrir áhorfendur að knattspyrnuleikjum, en lítill hluti að frjálsíþróttavellinum. Gert er ráð fyrir því, ef af verður, að framkvæmdir á Þórssvæðinu hefjist strax á þessu ári, bæði við frjálsíþróttavöllinn og á svæði aust- an verslunarmiðstöðvarinnar Sunnuhlíðar, þar sem hugmyndir eru um að Þórsarar fái æfingasvæði fyrir knattspyrnu í stað þess hluta svæðis þeirra sem færi undir frjáls- íþróttavöllinn. Framkvæmdir við stúkuna hæfust 2008 og þeim lyki 2010. Samkvæmt þessum hugmyndum yrði hafist handa við gervigrasvöll á KA-svæðinu á næsta ári og hann yrði fullbúinn 2009. Hvorugt félagið hefur formlega tjáð sig um hugmyndir bæjarins en stefnt er að því að kynna þær fé- lagsmönnum á almennum fundum í næstu viku. Stúka á Þórsvöllinn og gervigras hjá KA? Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Frjálsar og fótbolti Séð yfir félagssvæði íþróttafélagsins Þórs á Akureyri. Hugmyndir um 400 milljóna króna framkvæmdir Í HNOTSKURN »Félagsmönnum í KA ogÞór verða kynnt drög bæj- arins að hugmyndum um breytingar á svæðunum á al- mennum fundum í næstu viku. »Ef hugmyndir bæjarins verða að veruleika fer landsmót UMFÍ fram á Þórs- svæðinu 2009 og gervigras- völlur KA yrði tilbúinn 2009. VINJETTUSÍÐDEGI verður haldið í Amtsbókasafninu á morgun, laug- ardag, kl. 14.30–16.30. Þar lesa upp tvær vinjettur hver, ásamt Ármanni Reynissyni vinjettuhöfundi, Her- mann Jón Tómasson, Saga Jóns- dóttir, Jóhann „Nói“ Ingimarsson, séra Solveig Lára Guðmundsdóttir, Svanfríður Jónasdóttir, Kristján Þór Júlíusson og Óli G. Jóhannsson. Vinjettusíðdegi í Amtsbókasafninu ÞÓRA Sigurðardóttir opnar sýn- ingu á Bókasafni Háskólans á Ak- ureyri í dag kl. 15. Þóra, sem er borinn og barnfæddur Akureyr- ingur, var um árabil skólastjóri Myndlistaskólans í Reykjavík en hefur auk þess sinnt kennslu og uppbyggingu náms við skólann. Verkin á sýningunni í HA eru teikningar, ljósmyndir og hlutir og eru unnin í ár og í fyrra. Þóra sýnir í bókasafni HA Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hellisheiði | Skátaandinn sveif yfir vötnum þegar fjöldi skáta lét aftaka- veður á Hellisheiði um helgina ekki hindra sig í svonefndri DS göngu, sem er árleg áfangastaðakeppni fyrir 15 til 18 ára dróttskáta. „Þessi keppni er ein besta æfing sem hægt er að fá í rötun og fjallamennsku á vegum skátanna enda er hvergi slakað á kröfunum,“ segir Gísli Örn Bragason, 23 ára jarðfræðinemi og skátaforingi í skátafélaginu Vífli í Garðabæ, en hann kom að göngunni í fimmta sinn. Krefjandi verkefni á 30 tímum Markmið göngunnar er fyrst fremst að gefa ungmennum tækifæri til að skipuleggja gönguferð, þar sem þarf að taka tillit til aðstæðna og rata á eigin vegum. Þátttakendur fara á milli allt að 17 áfangastaða og verða að komast á þá innan 20 mínútna frá- viks því annars reiknast mínusstig á liðið. Liðin safna stigum fyrir úrlausn verkefna, samstarf, skátaanda, ferða- mennsku og fleira. „Liðin verða að ganga saman allan tímann og mega ekki undir neinum kringumstæðum skipta sér,“ segir Gísli Örn. „Þess vegna læra skátarnir fljótt að liðið kemst ekki hraðar en veikasti hlekk- urinn og þá skiptir samvinna gríð- arlega miklu máli. Ýmis atriði eins og að skiptast á að troða spor í snjóinn, deila farangri, nærast vel og vinna vel saman við að leysa verkefni á stöð- unum skila oft betri árangri en mikið þrek liðsins.“ Gangan var nú haldin í 10. sinn og í sjötta sinn síðan hún var endurvakin 2002. 10 manna hópur skipulagði gönguna og um 20 hjálparsveit- armenn og eldri skátar aðstoðuðu við framkvæmdina en 28 þátttakendur voru í keppninni í ár. Áfangastaðir eru um alla Hellisheiði, allt frá Hveradölum yfir í Reykjadal og að Kömbunum, og segir Gísli Örn það mikið verk að gera ferðaáætlun með 30 km göngu á 30 tímum í huga. „Það sást vel á metnaði og áræði keppenda að þeir voru komnir til að vinna,“ seg- ir hann. Níu lið mættu til keppni í ÍR- skálann á föstudagskvöld. Þar var fyrsta verkefnið að velja áfangastaði og semja ýtarlega leiðarlýsingu til að fara eftir um helgina. Daginn eftir var gengið á milli staða frá dagrenn- ingu fram yfir kvöldmat. „Fyrir marga var það alveg ný reynsla að ganga í óbyggðum með ekkert hald- bært nema punkta á korti, áttavita og GPS-staðsetningartæki,“ segir Gísli Örn og bætir við að fæstir keppendur hafi áður gengið eins langt á eins stuttum tíma og þeir gerðu í þessari keppni. Vonskuveður á heiðinni Gísli Örn segir að síðdegis á laug- ardag hafi skollið á vonskuveður en liðin hafi verið vel undirbúin og farið sem fyrst í skálann Þrymheima á Hengilssvæðinu. Stemningin hafi verið góð og keppendur hafi ekki látið aftakaveður aftra sér frá því að sofa undir berum himni til að ná í auka- stig. Mestu keppnismanneskjurnar hafi síðan drifið sig á fætur fyrir allar aldir en allir hópar hafi átt að vera mættir í mark fyrir klukkan tvö á sunnudag. Blautur snjór hafi verið á allri heiðinni og veður hið leiðinleg- asta og þó að margir hafi aldrei upp- lifað annan eins veðurofsa hafi allir náð í mark á settum tíma. Hópurinn Sundakútar úr Skátafé- laginu Mosverjum náði besta heildar- árangri í keppninni og hlaut að laun- um glæsilega vinninga frá Cintamani. Team Hreiðar úr Kópum varð í öðru sæti og Rúfus úr Landnemum í því þriðja, en að sögn Gísla Arnar stóðu öll liðin í keppninni sig með stakri prýði. Hann bætir við að keppnin hefði aldrei getað farið fram án ein- stakrar hjálpar frá vöskum sjálf- boðaliðum. „Hjálparsveitir skáta í Garðabæ, Hvergerði og Reykjavík eiga þakkir skildar fyrir liðlegheit og samstarfs- vilja en þær voru með mannskap og bíla á heiðinni alla helgina. Þá ber að þakka þeim fjölmörgu skátum sem komu að keppninni auk allra fyr- irtækjanna sem gáfu vinninga.“ Dróttskátar í stórræðum Gleði Skátaandinn sveif yfir vötnum þegar fjöldi skáta tók þátt í árlegri áfangastaðakeppni á Hellisheiði. Skipulögð vinnubrögð Fyrsta verkefnið var að velja allt að 17 áfangastaði og semja ýtarlega leiðarlýsingu fyrir 30 km göngu á 20 tímum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.