Morgunblaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 26
Mín plön voru aldrei að fara í bakarí eða bakstur og ég
skar mig hálfvegis út úr fjölskyldunni fyrir að vera
sá eini sem hafði ekkert með bakarí að gera.
Þ
egar Andri Sigþórsson komst að því
að hann ætti ekki afturkvæmt í fót-
boltann vegna meiðsla voru góð ráð
dýr. Fram að því hafði hann átt
stormandi feril með KR, Bayern
München, Salzburg, Molde og íslenska landslið-
inu. Hann lét þó ekki deigan síga – eða ætti
maður að segja „deigið síga“? – því hann setti á
laggirnar bakaríið Braud og bollur sem nú er
rekið á sex stöðum í Noregi.
Andri á reyndar ekki langt að sækja bakarís-
áhugann því fyrir þrjátíu árum, rétt um mánuði
áður en hann fæddist, settu foreldrar hans, Sig-
þór Sigurjónsson og Sigrún Stefánsdóttir, á
laggirnar Bakarameistarann sem nú er rekinn
víðsvegar um höfuðborgarsvæðið.
„Mín plön voru aldrei að fara í bakarí eða
bakstur og ég skar mig hálfvegis út úr fjölskyld-
unni fyrir að vera sá eini sem hafði ekkert með
bakarí að gera,“ segir hann aðspurður hvort
bakarísreksturinn hafi legið beint við eftir að
boltinn brást. „Að sjálfsögðu upplifði ég þó allt
stússið í kring um bakaríið því Bakarameist-
arinn er mikið fjölskyldufyrirtæki og til dæmis
vann ég heilmikið á sumrin í bakaríinu. Að öðru
leyti var ég ekkert í þessu. Ég var með fótbolta
á tánum frá því að ég var lítill strákur og alveg
þar til ég meiddist skyndilega og þurfti að hætta
fyrir fimm árum. Þá varð ég að finna mér eitt-
hvað að gera og vildi komast burt frá fótbolt-
anum. Þetta voru búnir að vera erfiðir tímar og
því var mikilvægt fyrir mig að skipta alveg um
gír.“
Nafnið vekur athygli
Niðurstaðan var að Andri festi kaup á bakaríi
í Kristiansund og undir hans stjórn fékk það
nafnið Braud og bollur, sem satt best að segja
hljómar ekki sérlega norskt. „Það er skrifað
upp á íslensku en skilst vel,“ segir Andri. „Fólk
sem sér nafnið og skiltið veit alveg að hér er
bakarí. Við veltum nafninu mikið fyrir okkur áð-
ur en við tókum ákvörðun og prófuðum það
fram og til baka. Við sjáum ekki eftir valinu því
við höfum fengið mikla og góða athygli út á
nafnið. Fólk hér í Noregi er líka mjög jákvætt í
garð Íslands svo það skemmir ekki fyrir.“
Svo góðar móttökur hefur Braud og bollur
fengið að á þeim tveimur árum sem liðin eru frá
því að Andri keypti fyrsta bakaríið hefur þeim
fjölgað hratt og eru nú sex talsins í Møre og
Romsdalsfylki í Noregi. „Fylkið nær yfir stórt
svæði og það er talsvert langt á milli staða. Í
sumum tilfellum þarf að taka ferjur til að kom-
ast á milli og það getur tekið allt að þremur og
hálfum tíma að komast á milli staðanna þar sem
bakaríin eru. Hins vegar eru þetta stórir bæir á
borð við Molde, Álasund og Kristiansund svo
hér eru ágæt tækifæri og möguleikar.“ Tæki-
færin eru víðar því á næstunni áformar
Andri að opna tvö bakarí til viðbótar í
fylkinu, en á svo von á því að þar með
sé markaðurinn mettur á því svæði.
Andri er í
samstarfi
með rekst-
urinn við
bakara í
hverjum
bæ fyrir
sig en
vörurnar
í bak-
aríunum
eru ekki alveg
áþekkar þeim
sem alla jafna eru
vinsælastar í bakarí for-
eldra hans á Fróni. Frændur
okkar Norðmenn verða enn um sinn að vera
án snúða og vínarbrauða að íslenskum hætti.
„Ég byrjaði með þessar vörur en hef séð að
það er erfitt að fá þær til að ganga almenni-
lega upp. Íslendingar eru flinkari að baka
þetta en Norðmennirnir. Hins vegar hef ég
ferðast mikið til Þýskalands og annarra
Evrópulanda og hef verið að taka mikið af
hugmyndum þaðan þannig að úrvalið er
svolítið alþjóðlegt hjá mér. Við erum að
reyna að koma með nýjungar sem hafa
ekki verið mikið hér á svæðinu og fólk virðist vera
mjög ánægt með það.“
Ís með dýfu og hrís
Eins og sex til átta bakarí séu ekki nóg hefur
Andri ákveðið að færa enn út kvíarnar og opnar ís-
bar í hjarta Molde í næstu viku. „Það verður alveg
nýtt fyrirtæki sem mun einfaldlega heita Isi. Þetta
verður hrein ísbúð þar sem ekki verða sæti heldur
tekur fólk ísinn með sér, líkt og þekkist heima.“ Á
boðstólum verða alls kyns dýfur og kurl sem er ný-
lunda í
Noregi.
„Ég tek
nátt-
úrulega
hug-
myndir frá
Íslandi,“ heldur
Andri áfram sem
hefur verið í sam-
bandi við Emmess ís
hér heima. „Þetta er allt á
leiðinni yfir hafið núna. Við verð-
um eina ísbúðin í Noregi sem býður
upp á alla vega sex mismunandi
heitar dýfur á ísinn og svo verður
hægt að velta þessu upp úr hrís og
lakkrís og öllu mögulegu öðru.“
Andri er bjartsýnn á rekstur Isi,
enda staðsetning búðarinnar frábær að
hans sögn. „Við fáum líka sama fyrirtæki
og innréttaði bakaríin fyrir okkur til að hanna
ísbúðina og það hefur verið mjög vel gert og vakið
athygli.“ Hann vill þó sem minnst segja þegar hann
er inntur eftir því hvort stefnan sé að breiða út ís-
boðskapinn víðar. „Ætli maður byrji ekki bara á því
að sjá hvernig þessi búð gengur,“ svarar hann að
lokum, vopnaður sömu hógværð og þegar fyrsta
bakaríið var opnað fyrir tveimur árum.
ben@mbl.is
Úr boltanum í bollurnar
Hvað gerir knattspyrnuhetja
þegar hún neyðist til að leggja
fótboltaskóna á hilluna? Stofnar
bakarí undir íslensku nafni í
Noregi og það fleiri frekar en
færri. Bergþóra Njála Guð-
mundsdóttir sló á þráðinn til
Andra Sigþórssonar í vikunni.
Braud og bollur Nafn bakaríanna er íslenskt en skilst vel á norsku.
Morgunblaðið/Jim Smart
Óvissutímar Andri á bæklunardeild Landspít-
alans eftir að hann meiddist.
Með boltann á tánum Andri á fullri ferð í
leik með Molde gegn Moss Fotballklubb.
daglegt líf
26 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Stefnir í góða skíðahelgi
Útlit er fyrir að skíðaáhugamenn geti glaðst
um helgina og haldið til fjalla því veðurspáin
gerir ráð fyrir norðlægum áttum og létt-
skýjuðu sunnan heiða í það minnsta. Að sögn
Friðjóns Árnasonar, rekstrarstjóra skíða-
svæða höfuðborgarsvæðisins, stefnir í góða
skíðahelgi í Bláfjöllum þótt alltaf beri að hafa
þann fyrirvara á að menn eru háðir veðri og
vindum. Ekki hefur enn tekist að opna Skála-
fellssvæðið þar sem ekki er þar kominn nægur
snjór. Þó hefur verið ýtt frá snjógirðingum og
helstu skíðaleiðir troðnar. Í Bláfjöllum verður
opið um helgina frá kl. 10 til 18 báða dagana.
Gott er að muna eftir heitu kakói á brúsa með í
fjallið til að ylja sér í frostinu á milli ferða.
Listalíf í Álafosskvosinni
Fyrir þá sem hafa gaman af menningar-
viðburðum er tilvalið að skella sér í Álafoss-
kvosina í Mosfellsbæ á laugardag. Á milli kl.
14 og 17 standa íbúar, listamenn og vinnu-
staðir í kvosinni fyrir skemmtilegum uppá-
komum gestum og gangandi til fróðleiks og
yndisauka. Þar má m.a. hlýða á Álafosskórinn,
slást í för með Bjarka Bjarnasyni sagnfræð-
ingi, sem verður með leiðsögn um svæðið,
virða fyrir sér ljósmyndasýninguna „1920–
2007“, nú eða þá að banka upp á hjá Palla
hnífasmið svo nokkur dæmi séu tekin.
Formúlupælingar hjá Toyota
Formúluunnendur ættu að leggja leið sína í
Toyota við Nýbýlaveg á morgun því frá kl.
13.00 verður dagskrá Formúluklúbbs Toyota
kynnt. Kynnir verður Gunnlaugur Rögnvalds-
son ásamt Sean Kelly, en hlutverk klúbbsins
er að miðla upplýsingum um keppnislið Pana-
sonic Toyota í Formúlu 1 og skapa vettvang
fyrir stuðningsmenn liðsins að hittast og fylgj-
ast með keppninni. Formúluklúbburinn er öll-
um opinn og geta klúbbfélagar reynt með sér í
sérstökum formúluhermi.
Tónleikar með Hjálmum
Aðdáendur hljómsveitarinnar Hjálma ættu
þá ekki að láta tækifærið til að berja hljóm-
sveitina augum einu sinni enn fram hjá sér
fara. En tónleikar Hjálma hefjast á Græna
hattinum á Akureyri kl. 22.00 í kvöld og á
Nasa í Reykjavík upp úr miðnætti annað
kvöld.
Afmælisveisla hjá Veggsporti
Heilsuræktin Veggsport verður í afmælisgír
um helgina og ætlar að halda upp á 20 ára af-
mæli á morgun. Af því tilefni verður m.a. efnt
til afmælisskvassmóts þar sem helstu skvass-
spilarar landsins ætla að fara á kostum auk
þess sem hljómsveit Eiríks Haukssonar
hyggst trylla sveitta spinning-hjólamenn.
Fimleikar, sund og boltaíþróttir
Íþróttaáhugamenn hafa úr ýmsu að moða
um helgina því haldið verður fimleikamót í Ár-
mannsheimilinu í Laugardal um helgina og Ís-
landsmeistaramótið í sundi fer svo fram í
Laugardalslauginni um helgina. Karlar og
konur munu keppa í bikarúrslitunum í blaki í
Laugardalshöllinni um helgina og körfubolta-
menn ætla að keppa í átta liða úrslitum.
mælt með …
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Morgunblaðið/G.Rúnar