Morgunblaðið - 16.03.2007, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 23
LANDIÐ
Neskaupstaður | Vorið hefur minnt á sig á Austurlandi undanfarna daga
og nota bæjarbúar í Neskaupstað eins og víðar í fjórðungnum góða veðrið
óspart til útiveru. Sjást menn til dæmis taka til hendinni í görðum sínum,
þótt efi um að vorið sé raunverulega í höfn nagi í hugarfylgsnum og ekki
örgrannt um að menn eigi von á hríð og kalsa ofan í ljósgræna vaxtarsprot-
ana sem nú bæra á sér. Skólabörnin láta ekki sitt eftir liggja og hafa nem-
endur og kennarar í Nesskóla notað þessa blíðviðrisdaga til útikennslu. Til
að mynda voru þessir kátu nemendur í 1. bekk í vettvangsferð um bæinn
og var viðfangsefnið að skrá öll umferðarmerki sem á vegi þeirra urðu og
kanna svo merkingu þeirra.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Vorið gerir vart við sig
Klassík á Eiðum Í kvöld kl. 20 flytur
kammersveitin Aþena Árstíðir Viv-
aldis á Eiðum. Kammersveitina leiða
þau Hlíf Sigurjónsdóttir og Hjörleif-
ur Valsson og aðrir hljóðfæraleik-
arar eru Kristín B. Ragnarsdóttir,
Ólöf Þorvarðsdóttir, Sarah Buckley,
Sesselja Halldórsdóttir, Lovísa
Fjeldsted, Þórir Jóhannsson og
Snorri Örn Snorrason. Á laugardag
og sunnudag eru námskeið fyrir
strengjanemendur á Austurlandi
undir leiðsögn Hlífar og Hjörleifs. Á
sunnudag kl. 17 verða svo fluttir
fiðludúettar eftir Bartók og Hildi-
gunni Rúnarsdóttur í flutningi Hlín-
ar og Hjörleifs, auk tónlistar í flutn-
ingi kennara og nemenda
námskeiðsins.
Konur í atvinnurekstri Konur fjalla
um reynslu sína af atvinnurekstri á
málþinginu Konur eru í atvinnu-
rekstri! Þingið heldur Tengslanet
austfirskra kvenna á Gistihúsinu
Egilsstöðum á morgun kl. 15. Meðal
framsögumanna eru Soffía Lár-
usdóttir, Charlotte Sigurðardóttir,
Svandís Egilsdóttir og Katrín Ás-
grímsdóttir. Umræður og hópavinna
verða á málþinginu.
Gerpisfriðland í mótun Gerpir er
austasti oddi Íslands og líklega elsti
hluti landsins. Blásið er til málþings
nk. sunnudag um friðlýsingu svæð-
isins, frá Búlandsborgum að Karls-
skála. Meðal umfjöllunarefna eru
gróðurfar Gerpissvæðisins, hreindýr
og fuglalíf þar um slóðir, jarðfræðin,
ferðaþjónusta og drög að auglýsingu
um Gerpisfriðland. Þau kynna Árni
Bragason og Guðríður Þorvarð-
ardóttir frá Umhverfisstofnun.
Landeigendur á Gerpissvæðinu eru
sérstaklega hvattir til að mæta, en
aðgangur er öllum heimill. Mál-
þingið hefst kl. 16 í Kirkju- og menn-
ingarmiðstöðinni á Eskifirði og
stendur í tvær klukkustundir.
Söngfugl á Eskifirði Sigrún Hjálm-
týsdóttir syngur við undirleik Jón-
asar Ingimundarsonar í Kirkju- og
menningarmiðstöðinni á Eskifirði kl.
20 í kvöld. Er efnisskráin sögð eins
og þeim einum er lagið og verður því
sjálfsagt bæði fjölbreytt og lífleg.
Von er á Eivöru Pálsdóttur með gít-
arinn 27. mars nk. og kræsileg dag-
skrá framundan í menningar-
miðstöðinni. Hana má sjá á vefnum
www.simnet.is/eskirkja.
Gengið fjalla á milli Látið skal sverfa
til stáls í þreki og úthaldi því nú er
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs að
skipuleggja það sem nefnt er krefj-
andi þrautaganga og á að fara fram
föstudaginn langa, 6. apríl nk. Ganga
á fjalla á milli á Fljótsdalshéraði eft-
ir Héraðssandinum og er leiðin um
30 kílómetra löng, frá Selfljóti yst í
Hjaltastaðaþinghá yfir að Fögru-
hlíðarfjöllum í Jökulsárhlíð. Stendur
til að ferja fólk yfir ósa Jökulsár og
Lagarfljóts. Leiðsögumaður verður
Björn Ingvarsson. Áhugasamir
skrái sig fyrir 3. apríl nk. í síma 863-
5813 eða með netpósti á ferdafelag-
@egilsstadir.is.
El Grillo í Skaftfelli Vorboðarnir úr
Listaháskóla Íslands opna nýja sýn-
ingu, El Grillo, í Skaftfelli á Seyð-
isfirði kl. 17 á morgun, laugardag.
Sýningin er unnin af nemendum LÍ í
samstarfi við Dieter Roth-
akademíuna og Skaftfell. Sýningin
mun standa til 11. maí nk., er opin
föstudaga til sunnudaga frá 13 til 18
eða eftir samkomulagi og aðgangur
er ókeypis og öllum frjáls.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Hjörleifur Valsson leiðir flutning
Árstíða Vivaldis á Eiðum í kvöld.
AUSTURLAND
Hella | Skólaþing var haldið í
Grunnskólanum á Hellu nú í mars.
Að skólaþinginu stóð sameiginleg
fræðslunefnd Rangárþings ytra og
Ásahrepps. Þingið var haldið í
samstarfi við ráðgjafafyrirtækið
Alta sem stýrt hefur íbúaþingum
víða um land.
Á þinginu var leitað svara við
spurningunni um hver væru far-
sælustu skrefin sem íbúar, for-
svarsmenn skólamála og sveit-
arstjórnir gætu stigið til að eiga
áfram góða skóla í sveitarfélög-
unum. Skólahald í sveitarfélög-
unum tveimur er á tveimur stöð-
um, þ.e. á Hellu og á Laugalandi í
Holtum. Á hvorum stað eru reknir
grunnskólar og leikskólar.
Skólaþingið sóttu liðlega 100
manns með einum eða öðrum
hætti. Þátttakendur töldu áherslu
á metnaðarfullt skólastarf og víð-
tæka samvinnu í skólamálum vera
farsælustu skrefin sem hægt væri
að stíga núna til að eiga áfram
góða skóla til framtíðar.
Örn Þórðarson, sveitarstjóri
Rangárþings ytra, segist vera
nokkuð sáttur við skólaþingið, þótt
vissulega hefði mæting mátt vera
betri, sérstaklega hjá foreldrum
nemenda í Grunnskólanum á
Hellu. „Þarna voru þó stigin skref í
þá átt að kalla eftir viðhorfum
hagsmunaaðila til fræðslumála al-
mennt. Hvernig við náum til þeirra
aðila, sem einhverra hluta vegna
sáu sér ekki fært að koma, verður
að koma í ljós. Fræðslu- og skóla-
mál snerta alla íbúana og framtíð-
arsýn í þeim málum verður að
tryggja og treysta hagsmuni allra
íbúanna. Það er mikill metnaður
fyrir því hjá sveitarstjórnum
Rangárþings ytra og Ásahrepps að
standa vel að þessum málum,“ seg-
ir Örn.
Þingað um skólamál á Hellu
Skólar Skólaþingið sóttu liðlega 100 manns, jafnt ungir sem aldnir.
Áhersla er á metnaðarfullt skólastarf og víðtæka samvinnu í skólamálum.
Húsavík | Á dögunum var haldinn
sérstakur golfdagur í Hvalasafninu
á Húsavík í samvinnu við Golfklúbb
Húsavíkur. Tilefnið var að GH
fagnar 40 ára afmæli á þessu ári.
Ásbjörn Björgvinsson í Hvala-
safninu hefur undanfarna tvo vetur
sett upp púttaðstöðu á 250 fermetra
gólffleti í safninu, innan um beina-
grindur af hvölum og fleiri sýning-
argripum. Á golfdeginum voru fé-
lagar úr GH einnig búnir að setja
upp æfinganet og golfhermi sem
kylfingar nýttu sér óspart. „Þetta
gekk allt að óskum utan þess að
kylfingur einn, ungur að árum, sló
kúluna í gegnum netið og út um
glugga á safninu en sem betur fer
varð enginn fyrir henni,“ sagði Ás-
björn kampakátur með daginn.
Golfdagurinn byrjaði með því að
Sigurpáll Árni Sveinsson, atvinnu-
kylfingur og golfkennari, kom og
hélt námskeið fyrir kylfinga ásamt
því að kenna helstu grunnatriðin í
pútti. Ásbjörn sagði mætinguna
hafa verið með ágætum, um 40
kylfingar hafi komið í heimsókn og
í lok námskeiðsins var slegið upp
púttmóti þar sem Magnús Hreið-
arsson GH bar sigur úr býtum.
„Þetta var mjög ánægjulegur dag-
ur og menn höfðu hér á orði að
koma Sigurpáls hefði verið sann-
kallaður hvalreki fyrir húsvíska
kylfinga,“ sagði Ásbjörn.
Í vetur hafa fjölmargir kylfingar,
skólabörn og fyrirtækjahópar nýtt
sér þessa skemmtilegu púttaðstöðu
en völlurinn er 18 holur. Haldin eru
púttkvöld fyrir konur á þriðjudög-
um og karla á fimmtudögum en fyr-
irtæki og hópar geta pantað sér
tíma á öðrum dögum út þennan
mánuð því um mánaðamótin verður
teppunum rúllað upp og þau sett í
geymslu til næsta vetrar.
Hvalreki fyr-
ir kylfinga
Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
Íþróttir Hermann Benediktsson,
kylfingur á Húsavík, nýtur hér leið-
sagnar Sigurpáls Geirs Sveinssonar
í Hvalasafninu.