Morgunblaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 54
Þarna er gelgju-
skeiðið náttúrlega
í hámarki, við vorum
rosalegar pæjur… 60
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Á VEGAMÓTUM hitti ég fyrir gengið, fjóra vel
sjóaða og einn spánnýjan. Þannig er mál með
vexti að Tobbi, Þorbjörn Sigurðsson, hljóm-
borðsleikari er hættur og hefur Jeff Who? því
arkað um eyðilendur undanfarna mánuði í
taugatrekktri leit að arftaka. Hann fannst loks
fyrir nokkrum vikum, Valdimar Kristjónsson
heitir hann, Valdi, og hefur helst unnið sér til
frægðar að hafa spilað með Bang Gang.
Valdi er það nýkominn í herbúðir Jeff Who?
að hann hefur ekki einu sinni æft með sveitinni,
en á engu að síður innslag í nýjasta lag Jeff
Who?, sem fer í spilun eftir tvær vikur.
Tobbi hætti í kjölfarið á Airwaves, blóðtaka á
þeim tíma að sögn Jeff Who-ara. Það er Elís
Pétursson bassaleikari sem hefur að mestu orð-
ið og nær iðulega að hleypa spjallinu upp í helj-
arinnar uppistand og vitleysu. Söngvarinn,
Bjarni Lárus Hall, eða Baddi, nær þó að lauma
vísdómi inn við og við en aðrir, þeir Þormóður
Dagsson trymbill, Ásgeir Valur Flosason gít-
arleikari og áðurnefndur Valdi, fylgjast með
sposkir á svip enda lítið annað hægt. En að blóð-
tökunni.
„Við hefðum viljað finna hann Valda miklu
fyrr,“ segir Elís og er óðamála. „Við komumst
að því að góðir hljómborðsleikarar í þessum
geira eru býsna vandfundnir. Það sem var í
stöðunni var að hringja í gaurinn í Á móti sól …
hvað heitir hann aftur … ég veit ekki einu sinni
hvort hann er góður … eða þá í Grétar Örvars
eða Jón Ólafs.
Þetta var það eina sem manni datt í hug.
Kalli, bróðir hans Grétars, hann var ekki einu
sinni á landinu!“ Baddi undirstrikar að það hafi
að sönnu verið mikil óvissa á þessum tíma.
„Við vissum ekki neitt, það var mjög óþægi-
legt. Í alvörunni, það var fáránlegt hvað þetta
var mikið mál og fáránlegt að Jón Atli hafi ekki
nefnt þetta við þig fyrr, Elís.“ Hér vísar Baddi í
það að Jón Atli „Hairdoctor“ var maðurinn sem
vísaði á Valda, en hann og Valdi störfuðu saman
í Bang Gang um hríð og nú eru Jón Atli og Elís
að vinna saman að tónlist fyrir söngleikinn
Gretti.
Nenntu ekki að æfa
Elís segir að þetta tímabil aðgerðarleysis hafi
þó verið meira en vel þegið.
„Það var komin svakaleg þreyta í mannskap-
inn, við spiluðum mjög mikið á síðasta ári. Þetta
voru alltaf sömu lögin, við breyttum ekkert mik-
ið til og vorum hættir að nenna að æfa undir
rest.“ Jeff Who? var upprunalega hljómsveit
nokkurra vina úr MR og það að sveitin skyldi
slá í gegn, ekki bara hjá einhverjum nýbylgju-
hundum heldur bara öllum, kom eins og köld
vatnsgusa framan í félagana.
„Það er ótrúlegt hvernig þetta þróaðist með
„Barfly“,“ segir Baddi.
„Pabbarnir fíluðu þetta. Bylgju- og FM-liðið
líka. Og svo var þetta algjör tilviljun, við vorum
búnir að setja tvö önnur lög í spilun sem gerðu
ekki neitt. Gunni Palli ber ábyrgð á þessu, en
hann gerði myndbandið. Hann langaði að gera
myndband, gerði það ókeypis, og hann fékk að
ráða við hvaða lag. Myndbandið gerði heilmikið
fyrir lagið, við héldum að þetta væri dauður
miðill, a.m.k. hér á landi.“ Elís tekur undir það
að þetta hafi allt saman verið fremur furðulegt.
„Við tökum bara upp plötu, sumarið 2005, og
læðum henni í búðir. Svo fer hún að verða vin-
sæl. Það er skrítið að ganga í gegnum það. Það
skrítnasta er þó þegar ákveðinn hópur, sem þú
lítur ekki einu sinni á, er farinn að fíla þetta.
Þetta fólk er eins og vofur fyrir þér en svo vind-
ur einhver Selfosshnakkinn sér upp að þér og
segir: „Þið eruð geðveikir!“. Ég hefði aldrei tal-
að við þennan mann! Fyrir þetta fólk er tónlist
eitthvað sem fer í gang þegar þú ræsir bílinn
þinn.“ Þeir félagar fara blessunarlega ekkert í
grafgötur með að það hafi verið undarlegt fyrir
101-rottur að fá massaspilun á hnakkastöðvum.
„Já, okkur er hleypt inn í byggingarnar núna
og við getum því afhent þeim disk með nýja lag-
inu,“ segir Elís. „En það tók smá tíma að venj-
ast þessu. Læra nöfnin og svona. Það er Þröstur
3.000 t.d., ekki Brynjar 3.000. Við pössuðum
okkur á því að koma vel undirbúnir á FM-
verðlaunahátíðina.“
Nú er um að gera að semja annað „la la la laa
laa la-la“-lag og sópa upp þessu ári líka. Eða
hvað? Nei, Jeff Who-liðum er slétt sama um
hvað gerist á þessu ári, og segjast ekki finna
fyrir neinni pressu – og þó.
„Þetta var alveg óvart,“ segir Ásgeir. „Fólk
þarf bara að díla við það þegar það kemur
„ekki“ smellur næst“. Baddi segist engu að síð-
ur vera tilbúinn til að svara fyrir af hverju þeir
hafi ekki samið annað „Barfly“.
Það er mikið um hlátrasköll við borðið, kæru-
leysislegur grallaraskapur ræður ríkjum frekar
en að stjörnur í augum séu að trufla. Þeir fé-
lagar segjast líka vera óttalegir imbar hvað út-
löndin umtöluðu varðar. Þeir hafi spilað í Kaup-
mannahöfn (fyrir fullum sal af Íslendingum) og í
New York (m.a. á pólskum stað þar sem áhorf-
endur voru fimm, og „mixerinn“ fjögurra rása).
Þá var þeim boðið að hita upp fyrir hljómsveit-
ina The Hold Steady, en þeir gátu ekki þegið
það.
„Það var möguleiki á því réttara sagt,“ segir
Elís. „En það grátlega var að við gátum ekki
einu sinni látið kanna möguleikann á því, þar
sem við vorum hljómborðsleikaralausir en auk
þess var Ásgeir nýorðinn pabbi þannig að tíma-
setningin var ómöguleg.“ Plata í haust – eða
hvað? „Vonandi,“ svarar Baddi. „Við sjáum til
hvernig gengur að æfa og semja saman. En
djöfull hlakka ég til að byrja aftur. Við erum ný-
búnir að byggja okkur nýtt æfingahúsnæði og
okkur klæjar í puttana. Þeir eru vel stirðir eftir
þriggja mánaða aðgerðaleysi og fyrsta æfingin
verður því eflaust skrautleg.“
JEFF WHO?
Morgunblaðið/ÞÖK
JEFF WHO? GLEYPTU SÍÐASTA TÓNLISTARÁR MEÐ HÚÐ OG HÁRI EN ÞÁ
GLUMDI OFURSMELLURINN „BARFLY“ Í ÖLLUM VIÐTÆKJUM, VEISLUM,
SJÓNVÖRPUM, BÍLUM OG GUÐ MÁ VITA HVERJU. ENGU AÐ SÍÐUR ER HLJÓM-
SVEITIN BÚIN AÐ VERA Í MIKLUM VANDRÆÐUM SÍÐUSTU MÁNUÐI. HVERS
VEGNA ÞÁ, SPURÐI BLAÐAMAÐUR, YFIR EINUM BJÓR OG NOKKRUM LATTE.
www.myspace.com/jeffwhoband