Morgunblaðið - 16.03.2007, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 57
ædd?Við hvað erumvið hrædd?
ið hvað erumVið hvað erum við hr
Hafnarfjarðarleikhúsið frumsýnir í kvöld
Strandgata 50, Hafnarfirði. Miðasala í síma 555 2222 og á www.midi.is
Leikverk byggt á metsölubók Andra Snæs Magnasonar
„VIÐ ERUM svo vel undirbúnir að
þetta er bara spurning um hvíldina
og að koma vel stemmdir til leiks. Ef
við svo náum gufu þá erum við í topp-
málum,“ segir Birkir Már, liðsmaður
ræðuliðs Borgarholtsskóla.
Í kvöld munu Birkir og félagar
hans þrír í liðinu etja kappi við ræðu-
lið Menntaskólans við Hamrahlíð í
úrlitum MORFÍS, Mælsku- og rök-
ræðukeppni framhaldsskólanna.
Keppnin fer fram í Háskólabíói og
munu MH-ingar mæla fyrir því að
mannkynið eigi að taka upp eitt sam-
eiginlegt tungumál en Borgarholts-
skóli mælir gegn slíkum hug-
myndum.
Rólegir ræðuskörungar
Eitthvað virðast ræðulið hafa góða
trú á gufuböðum, því til að gíra sig
upp fyrir kvöldið ætla strákarnir í
MH-liðinu einnig að skella sér í gufu.
Mun það vera hefð sem MH-ingar
hafa tileinkað sér fyrir MORFÍS.
Kannski eru það góð áhrif guf-
unnar á taugarnar sem liðin eru á
höttunum eftir því MH-ingurinn Jón-
as er eins pollrólegur og keppinautur
hans Birkir. Hann segir ræðuskör-
unga skólans engu kvíða, enda séu
liðsmenn orðnir nokkuð sjóaðir í
ræðumennsku.
Það má þó ljóst vera að menn taka
hlutina alvarlega þrátt fyrir rósemd-
ina því samkvæmt heimildum vöktu
Borgarholts-menn langt fram á
morgun í gær til að undirbúa sig.
Sigmar keppti fyrir 20 árum
Þess má til gamans geta að Sigmar
Guðmundsson, sjónvarpsmaður og
spyrill í Gettu betur, tók þátt í
MORFÍS fyrir hönd Fjölbrautaskól-
ans í Garðabæ á því herrans ári 1987.
Umræðuefnið þá var hvort taka ætti
upp einræði á Íslandi í staðinn fyrir
lýðræði. Lið Sigmars sigraði í þeirri
keppni lið Menntaskólans í Reykja-
vík.
MH Birkir Blær Ingólfsson, Magnús Felix Tryggvason, Dagur Kári Gnarr
Jónsson og Jónas Margeir Ingólfsson ætla í gufu og svo á Salatbarinn.
Borgó Hrannar Már Gunnarsson, Elvar Orri Hreinsson, Arnór Pálmi Arn-
arsson og Birkir Már Árnason eru afslappaðir og vonandi úthvíldir.
Bæði lið
treysta á
gufuna
Ræðulið Menntaskólans við Hamrahlíð og Borgarholtsskóla keppa til úrslita í MORFÍS í kvöld
„ÉG ER búinn að vera þarna á
laugardögum í sex ár og langar
bara að fá helgarfrí,“ útskýrir
einn vinsælasti útvarpsmaður
þjóðarinnar
til fjölda ára,
Gulli Helga.
Gulli und-
irbýr nú
brottför sína
af öldum ljós-
vakans en
hann hefur
starfað við út-
varp frá
1984, þar af á
Bylgjunni frá
1992. „Ég er
sko í rúmlega
fullri vinnu
með þessu,“ heldur Gulli áfram
en hann starfar sem bygg-
ingameistari og að eigin sögn
með menn í vinnu að smíða úti
um allan bæ.
Á Bylgjunni var Gulli m.a. einn
af stjórnendum útvarpsþáttarins
„Ísland í bítið“ og annar stjórn-
enda hins geysivinsæla útvarps-
þáttar „Tveir með öllu“ ásamt
Jóni Axel Ólafssyni.
Á heimasíðu téðs Jóns Axels
kemur fram að hann eigi eftir að
sakna félaga síns „úr loftinu“ en
einnig lætur hann í það skína að
það megi allt eins búast við því
að Páll Magnússon útvarpsstjóri
reyni að krækja í Gulla. Gulli
hlær hins vegar við þegar hann
er spurður hvort hann sé á leið-
inni yfir á RÚV. „Nei. Palli hefur
alla vega ekki sett sig í samband
við mig ennþá.“
Hættur Gulli Helga
Gulli Helga
fær helgarfrí