Morgunblaðið - 16.03.2007, Qupperneq 60
58 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Epic Movie kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 7 ára
Epic Movie LÚXUS kl. 4, 6, 8 og 10
Norbit kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20
The Number 23 kl. 8 og 10.15 B.i. 16 ára
Ghost Rider kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára
Anna og skapsveiflurnar m/ísl. tali kl. 4 og 4.45 STUTTMYND
Night at the Museum kl. 3:30 og 5.40
Hefur þú einhvern tímann gert
mjög stór mistök?
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI
EPIC MOVIE kl. 6, 8 og 10 B.i. 7 ára
Norbit kl. 6 og 8
Smokin´ Aces kl. 10 B.i. 16 ára
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir
HÚN ER STÓR....VIÐ MÆLDUM
UPPLIFÐU MYNDINA SEM FÉKK ENGIN ÓSKARSVERÐLAUN!
FRÁBÆR GAMANMYND ÞAR SEM GERT ER GRÍN
AF HELSTU STÓRMYNDUM SÍÐASTA ÁRS
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA
300X
BETRI
EN AÐRAR
MYNDIR
ELLEFU plötur af tuttugu, á nýjum
Tónlista, eru íslenskar og þrjár
þeirra eru í þremur efstu sætunum
og allar halda þær sætum sínum frá
því í síðustu viku. Safnplata með
lögum úr Söngvakeppni Sjónvarps-
ins virðist falla plötukaupendum
vel í geð um þessar mundir og ef að
líkum lætur mun salan aukast eftir
því sem nær dregur Evróvisjón-
keppninni í Finnlandi. Laddi selur
ennþá vel af afmælisplötu sinni en
það má reikna með að hann þurfi
innan skamms að víkja fyrir nýrri
plötum. Hver er sinnar kæfu smið-
ur mun þó án efa seljast vel fram-
vegis, enda afskaplega góður vitn-
isburður um hæfileika Ladda.
Fjórmenningarnir í GusGus
komu sterkir inn í síðustu viku með
fimmtu plötu sveitarinnar Forever.
Sveitin á sér afar traustan aðdá-
endahóp en litlar líkur eru á að sá
hópur stækki umtalsvert nema lag
af plötunni komist fyrr en síðar í
góða spilun og inn á Lagalistann.
Þá er rétt að benda á þær plötur
sem koma nýjar inn á listann. Fyrst
er að nefna nýjustu plötu kanadíska
septettsins Arcade Fire, Neon Bible
sem fær frábæra dóma víðast hvar
og svo er nýjasta plata Air, Pocket
Symphony komin út en hún mun án
efa einoka unglingapartí heimsins
næstu mánuðina. Þriðji nýliðinn er
svo rokksveitin Korn sem gefur út
órafmagnaðar upptökur úr hljóð-
veri MTV-sjónvarpsstöðvarinnar.
Íslendingar velja
íslenskt, nema hvað!
Mika Hin bjarta von Bretanna.
ÞAÐ kemur eflaust fáum á óvart að
vinsælasta lag landsins er „Grace
Kelly“ með Mika. Þessi 23 ára Breti
var í upphafi árs valinn besti nýlið-
inn í könnun breska ríkisútvarps-
ins, BBC’s Sound of 2007 og hann
ætlar svo sannarlega að standa
undir nafni. Lagið þykir afskaplega
ferskt og hömlulaus raddbeiting
Mika er hressandi mótvægi við alla
þá „öruggu“ söngvara sem Bretar
eiga nóg af. Okkar maður Eiríkur
Hauksson átti vinsælasta lagið í síð-
ustu viku og í kjölfar nýs mynd-
bands við „Ég les í lófa þínum“ eru
góðar líkur á að Eiki hrifsi aftur til
sín toppsætið.
„Patience“ með þeim fjórmenn-
ingum í Take That hefur gengið vel
um alla Evrópu á undanförnum
mánuðum og ætlar endurkoma
sveitarinnar að minna á það fár
sem um þá stóð á fyrri hluta níunda
áratugarins. Myndband við lagið
var tekið upp hér á landi eins og
frægt er orðið.
Athygli vekur að nýjasta lag Silv-
íu Nætur „Thank u baby“ fellur um
þrjú sæti, niður í það sjöunda eftir
þrjár vikur á lista. Silvía átti afar
gott ár í fyrra en það kann að vera
að nokkurra mánaða fjarvera henn-
ar úr kastljósinu hafi verið of dýru
verði keypt. Aðeins hallar á ís-
lenska flytjendur á Lagalistanum
þessa vikuna en þó ekki meira en
svo að í tíu efstu sætunum er að
finna sex íslensk lög.
Mika veltir Eika
Hauks af toppnum