Morgunblaðið - 27.04.2007, Side 1
STOFNAÐ 1913 113. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
5.284kr.SPARAÐU 3.000kr.SPARAÐU 5.284SPARAÐU
GILDI
R AÐEINS
Í DAG
á meðan birgðir endast!
5.384kr.SPARAÐU 5.284 kr.SPARAÐU 5.284SPARAÐU
Aðeins eitt grill á mann!
Vnr.50632112
Gasgrill
ELEGANT UNION gasgrill með tvískiptum brennara, grillflötur 49x38
cm, hliðarborð, neistakveikjari, þrýstijafnari, grillsteinar og efri grind.
7.990
13.274
GÆÐI Á LÆGRA VERÐI
VERÐLAUNAÐUR
MAGNÚS GOTTFREÐSSON HEFUR RANN-
SAKAÐ ORSAKIR SPÁNSKU VEIKINNAR >> 12
AÐALMÁLIÐ AÐ HALDA
SIG Á JÖRÐINNI
MÖGULEIKAR
Á MEISTARATITLI >> ÍÞRÓTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
LANDSVIRKJUN segir að þeir
180 menn sem eru á lista Þorsteins
Njálssonar, læknis við Kárahnjúka,
séu blátt áfram allir þeir sem komu
á heilsugæsluna á tímabilinu 12.–22.
apríl, burtséð frá því hvar þeir hinir
sömu vinna á virkjunarsvæðinu.
Fari Heilbrigðisstofnun Austur-
lands yfir sjúkraskýrslurnar og
Landsvirkjun bíði niðurstöðu þeirra
athugana.
Jafnframt segir Landsvirkjun
rangt hjá lækninum að fyrirtækinu
og framkvæmdaeftirliti þess, VIJV,
hafi verið fullkunnugt um mikið
streymi fólks til heilsugæslunnar
vegna eitrunareinkenna úr göngun-
um frá miðjum apríl. Landsvirkjun
og eftirlitið viti enn aðeins um átta
menn sem veikst hafi vegna loft-
mengunar og 39 menn sem veiktust
vegna matareitrunar.
Segir listann sannan og réttan
Impregilo segir Þorstein líka fara
með fleipur og á listanum sé til
dæmis skrifstofufólk og stíflugerð-
armenn sem aldrei hafi komið inn í
göngin, hvað þá unnið þar, og fólk
sem fór af landi brott í mars. Þá séu
ásakanir um að listanum hafi verið
stolið af heilsugæslunni út í hött og
annarlegar hvatir taldar liggja að
baki slíkum gífuryrðum. Impregilo
segist vera að yfirfara listann og
verði niðurstöðunni komið til þar til
bærra yfirvalda, hver svo sem þau
eru en þó líklega Vinnueftirlitsins.
En hvað segir Þorsteinn sjálfur,
sem velflest spjót standa á og varð
til þess að mengunarmálið komst í
hámæli? Að listinn sé einvörðungu
yfir þá aðila sem hafi haft einkenni
eitrunar eða matareitrunar. Margir
hafi ekki misst úr vinnu, aðrir verið
veikir einn dag og nokkrir lengur.
Málið sé alvarlegt og hann hafi vís-
að því til sóttvarnalæknis, land-
læknis og vinnueftirlits. | 6
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Af stað Stefnt er að því að hefja
vinnu aftur í göngunum í dag.
Orð
stendur
gegn orði
Rengja Kára-
hnjúkalækninn
FIMMTÁN ára nemandi úr Snælandsskóla liggur
þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans eftir
slys í Sundlaug Kópavogs um klukkan 10 í gær-
morgun. Hann fannst meðvitundarlaus á botni
laugarinnar og var komið upp á bakkann þar sem
endurlífgun fór fram. Tókst að lífga drenginn við og
var hann fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann.
Drengurinn var í skólasundi þegar slysið varð en
þar sem hann fannst mun dýpið hafa verið rétt rúm-
ur metri skv. upplýsingum Vildísar Guðmundsdótt-
ur, forstöðumanns Sundlaugar Kópavogs.
Í lauginni eru sex öryggismyndavélar auk fleiri
eftirlitsvéla uppi á yfirborðinu. Því til viðbótar er
alltaf vaktmaður úti við laugina og annar inni til að
fylgjast með eftirlitsskjám. Hver innivaktmaður
ar verði öryggisþættir endurskoðaðir ef nánari
rannsókn leiði í ljós misbresti. Hún segir enga leið
að gera sér grein fyrir hvernig slysið gat orðið mið-
að við öryggisviðbúnað.
Þegar slysið varð voru fimm sundkennarar með
skólahópa sína í lauginni auk vaktmanna.
Jón Júlíusson harmar slysið og segir að það verði
að komast að tildrögum þess og hvort hægt sé að
bæta eftirlit til að fyrirbyggja önnur slys. „Það
verður að sjálfsögðu allt gert,“ segir hann. „Það eru
bæði eftirlitsvélar og laugarverðir á staðnum og
þetta á ekki að geta gerst.“ Hann segir að í lauginni
séu allir öryggisverkferlar yfirfarnir einu sinni á ári
og starfsfólk látið gangast undir þjálfun samkvæmt
því sem reglur um sundstaði krefjast.
fylgist með myndavélunum í 20 mínútur í senn og
þá tekur næsti maður við. Vegna öryggisástæðna
má ekki hafa þessar vaktir lengri hjá hverjum og
einum, segir Jón Júlíusson, íþróttafulltrúi Kópa-
vogs. Hann segir hafa sést fyrst til drengsins þegar
sundkennari frá Hjallaskóla sá hann og hóf kenn-
arinn endurlífgun ásamt laugarstarfsmanni.
„Þetta á ekki að geta gerst“
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar til-
drög slyssins og hefur tekið allar upptökur úr eft-
irlitsmyndavélakerfinu til rannsóknar og var sund-
lauginni lokað til kl. 16 á meðan farið var yfir
eftirlitskerfin. Vildís segir að við fyrstu athugun sé
ekkert sem bendi til að þau hafi brugðist. Hins veg-
Fjöldi öryggismyndavéla
og laugarverðir á staðnum
Ungur piltur fannst meðvitundarlaus eftir slys í Sundlaug Kópavogs
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
HÁHÝSI spretta nú upp á nokkrum
stöðum á höfuðborgarsvæðinu, turn-
ar sem eru til muna hærri en þau há-
hýsi sem til þessa hafa verið byggð í
borginni og nágrannasveitarfélögum
þess. Þannig er turninn við Grand
hótel 65 metra hár, turn á mótum
Borgartúns og Höfðatúns á að vera
70 metra hár og hæsta hús landsins,
sem er nokkru hærra en Hallgríms-
kirkjuturn eða tæpir 78 metrar, rís í
Smáranum í Kópavogi.
Pétur Ármannsson arkitekt segir
að sjónræn áhrif þessara bygginga
séu gríðarleg og því þurfi að gera
miklu meiri hönnunar- og bygging-
arlistarlegar kröfur til þeirra en
venjulegra húsa og gjörhugsa stað-
setningu þeirra. | 11
Háhýsi breyta ásýnd borgarinnar
Sjónræn áhrif
þessara bygginga
gríðarleg
Sjötíu metrar Fyrirhugaður turn við Höfðatún verður 70 metra hár og sést hér frá sjónum á tölvugerðri mynd með Höfða í forgrunni.
!