Morgunblaðið - 27.04.2007, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
GRÁGÆSAPAR sem merkt var ásamt fleiri gæs-
um við Flóðið nálægt Blönduósi 19. júlí árið 2000
hefur síðan sýnt mikla tryggð, bæði hvort við
annað og eins við sumar- og vetrardvalarstaði.
Dr. Arnór Þórir Sigfússon fuglafræðingur sá
gæsaparið í Vatnsdalnum 22. apríl sl. og birti af
því tilefni lista yfir hvar og hvenær lesið hafði
verið af hálsmerkjum fuglanna.
„Við merktum þarna stóran gæsahóp en viss-
um ekki að þessar gæsir væru par,“ sagði Arnór.
Hann sagði ekki vitað hvað gæsirnar voru orðn-
ar gamlar þegar þær voru merktar en þær hafi
verið fullvaxnar. Gæsaparið hefur sést síðla
hausts við Moreyfjörð í NA-Skotlandi á hverju
hausti síðan árið 2000, nema haustið 2005. Einn-
ig sást til þeirra í Orkneyjum eftir áramótin í ár
og í fyrra, en þar hafa gæsirnar líklega haft við-
komu á leið sinni milli Íslands og Skotlands. Arn-
ór sagði ljóst að gæsirnar væru fastheldnar á
dvalarstaði og sæjust aftur og aftur á svipuðum
slóðum. Megnið af íslenskum grágæsum er í
Skotlandi yfir veturinn og í auknum mæli í Orkn-
eyjum. Þær fara einnig til Noregs og Írlands.
„Gæsir parast yfirleitt fyrir lífstíð og fjöl-
skyldan frá sumrinu heldur sig saman næsta vet-
ur. Ungarnir fylgja foreldrunum yfirleitt þar til
næsta vor að gæsirnar halda aftur til Íslands. Þá
fyrst brotnar fjölskyldan upp,“ sagði Arnór.
Hann taldi líklegast að ungu gæsirnar fyndu sér
maka um veturinn eða vorið áður en þær hæfu
varp. Talið er að gæsir hefji varp þriggja til fjög-
urra ára gamlar. Arnór sagði elstu íslenska gæs
sem vitað væri um, vera heiðagæs sem komst á
fertugsaldur, varð rétt rúmlega þrítug. Hann
taldi að fæstar gæsir yrðu svo gamlar, algengara
væri að þær lifðu í áratug eða svo.
ÁSTIR SAMLYNDRA HJÓNA FRÁ ÁRINU 2000
Ljósmynd/Arnór Þórir Sigfússon
Komin heim Gæsaparið trúfasta var mætt á heimaslóðir í Vatnsdalnum 22. apríl síðastliðinn.
Trygglynd og staðföst sambúð
Ungarnir yfirgefa foreldrana tæplega ársgamlir, áður en haldið er á sumarslóðir
! "
#
$"
% &' (
) *)
"
%++%
,
GERÐ verður skoðanakönnun á
meðal allra starfandi presta um
hvað þeim finnst um tillöguna sem
vísað var til biskups og kenning-
arnefndar á
prestastefnu í
fyrradag; að
þeim prestum
sem það kjósa
verði heimilað
„að vera lög-
formlegir vígslu-
menn staðfestrar
samvistar“ sem
þýðir nánast að
þeir megi gefa samkynhneigða í
hjónaband, þó svo það orðalag
verði ekki notað, eins og einn
presta á stefnunni orðaði það í
Morgunblaðinu í gær.
Samþykkt var sú tillaga á presta-
stefnu í gær að Biskupsstofa fengi
fagaðila til að framkvæma þessa
könnun fyrir 1. júní. Ekki voru allir
sáttir við tillöguna um skoð-
anakönnun; frávísunartillaga var
lögð fram en felld með miklum
mun, og tillagan sjálf síðan sam-
þykkt með 35 atkvæðum gegn 13.
Hvað finnst
prestum?
ÚRSKURÐARNEFND skipulags- og byggingar-
mála gaf í gær sveitarstjórn Skútustaðahrepps
grænt ljós á framkvæmdaleyfi fyrir lagningu nýs
Dettifossvegar er hún hnekkti því áliti Skipulags-
stofnunar að framkvæmdin fæli í sér of mikil og
óafturkræf umhverfisáhrif. Áður hafði stofnunin
talið að hreppnum bæri að sækja um meðmæli fyrir
framkvæmdinni og hnekkti nefndin því.
Vegarstæðið var annað af tveimur sem komu til
álita í matsskýrslu á umhverfisáhrifum nýs Detti-
fossvegar og var það skoðun hreppsins að leiðin
sem liggur nær Jökulsá á Fjöllum væri fýsilegri en
leið austan við núverandi veg, þar eð hún lægi ekki í
gegnum nánast algróið land heldur um nær ógróið
land og hraun.
„Sveitarstjórnin er ákaflega ánægð og almennt
séð eru Mývetningar ánægðir,“ segir Guðrún María
Valgeirsdóttir, sveitarstjóri Skútustaðahrepps.
„Langstærstur hluti hreppsbúa vildi að þetta veg-
arstæði yrði fyrir valinu.“
Guðrún segir fyrirhuguð vegarstæði inni á svæð-
isskipulagi miðhálendisins og að skoðanamunur
hefði verið hvort það væri nógu sterkt, það tæki
ekki á því hvar vegurinn ætti að liggja, heldur bara
að hann gæti færst frá núverandi vegarstæði.
„Við töldum að svæðisskipulagið tæki á þessu,
Skipulagsstofnun taldi svo ekki vera og að við þyrft-
um að sækja um meðmæli fyrir framkvæmdinni.“
Að hennar sögn var samþykkt á sveitastjórnar-
fundi í gær að veita framkvæmdaleyfi til Vegagerð-
arinnar, sem yrði nú auglýst. „Menn horfa á teng-
ingu á milli landssvæða. Það er verið að bæta
aðgang að náttúruperlum sem þarna eru.“
Sveitarstjórnin ákaflega ánægð
Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála hnekkir úrskurði Skipulags-
stofnunar um Dettifossveg Talið munu efla ferðaþjónustu í nágrenninu
Á AÐALFUNDI Barnageðlækna-
félags Íslands sem haldinn var í
Reykjavík 26. apríl 2007, var sam-
þykkt ályktun þar sem skorað var á
heilbrigðisráðherra að bregðast
strax við því alvarlega ástandi í
geðheilbrigðismálum barna og ung-
linga sem birtist í löngum biðlist-
um, flótta fagfólks frá barna- og
unglingageðdeild LSH og skorti á
barna- og unglingageðlæknum.
Brugðist verði
við vandanum
HELDUR meira var um trú-
félagaskipti hjá þjóðskrá í gær en
endranær. Fleiri komu en venju-
lega til að tilkynna breytta trú-
félagsskráningu og eins var tals-
vert hringt til að leita upplýsinga
um trúfélagaskipti, samkvæmt upp-
lýsingum frá þjóðskrá. Flestir
skráðu sig úr þjóðkirkjunni og ósk-
uðu eftir að vera skráðir utan trú-
félaga.
Samkvæmt upplýsingum frá
þjóðskrá er ekki óalgengt að tæpur
tugur einstaklinga tilkynni trú-
félagaskipti á hverjum starfsdegi.
Þótt sá fjöldi hefði tvö- eða þrefald-
ast í gær væri ekki hægt að meta
hvort einhver bylgja úrsagna væri í
gangi. Til þess þyrfti lengra tímabil
en einn dag.
Fleiri úrsagnir
úr þjóðkirkjunni
PÁLL Magnússon, bæjarritari
Kópavogs og fyrrverandi aðstoðar-
maður iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, var kjörinn stjórnarformaður
Landsvirkjunar á aðalfundi fyrir-
tækisins í gær í stað Jóhannesar
Geirs Sigurgeirssonar, sem verið
hefur stjórnarformaður síðastliðin
tíu ár. Á aðalfundinum var einnig
samþykkt að greiða 500 milljónir
króna í arð til íslenska ríkisins sem
er einn eigandi fyrirtækisins.
Aðrir í stjórn voru kjörnir Jóna
Jónsdóttir, viðskiptafræðingur á
Akureyri, Valur Valsson, fyrrver-
andi bankastjóri, Valdimar Haf-
steinsson, framkvæmdastjóri í
Hveragerði, og Ágúst Einarsson,
rektor á Bifröst. Valur Valsson er
varaformaður stjórnar.
Nýr stjórnarformaður þakkaði
fráfarandi stjórnarformanni góð
störf í þágu fyrirtækisins og kvaðst
jafnframt fullur tilhlökkunar að tak-
ast á við þetta verkefni.
Jóhannes Geir sagði að þetta væri
orðinn langur og viðburðaríkur tími.
„Ég gat reyndar hugsað mér að
sitja í stjórninni eitt ár í viðbót en
nú liggur fyrir að svo verður ekki.
Ég hafði með öðrum orðum áhuga á
að fylgja Kárahnjúkaverkefninu eft-
ir fram yfir gangsetningu virkjunar-
innar síðar á þessu ári. Ástæðan er
sú að þetta verkefni hefur augljósa
sérstöðu meðal alls þess sem til
kasta stjórnar og stjórnarformanns
Landsvirkjunar hefur komið undan-
farin ár, enda Kárahnjúkavirkjun
vissulega umtöluð og umdeild. Ég
er hins vegar eindregið þeirrar
skoðunar að virkjunin, og það sem
henni fylgir, eigi eftir að sanna sig
sem eitt mesta heillaspor í fram-
kvæmda- og atvinnusögu Íslendinga
í seinni tíð.“
Páll nýr stjórnarformaður
Morgunblaðið/Golli
Nýr í brúnni Páll Magnússon (t.h.) leysir Jóhannes G. Sigurgeirsson af hólmi.
OFANLEITI 2 • HÖFÐABAKKI 9 • KRINGLAN 1
SÍMI: 599 6200 • www.hr.is
www.hr.is
KYNNTU ÞÉR NÁMSFRAMBOÐ Á
HEIMASÍÐU SKÓLANS
Opið fyrir umsóknir