Morgunblaðið - 27.04.2007, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
BÆÐI Landsvirkjun og Impregilo hafa
sent frá sér yfirlýsingar vegna umfjöll-
unar fjölmiðla um veikindi fjölda starfs-
manna ítalska verktakans vegna óviðun-
andi hollustuhátta í
aðgöngum og að-
rennslisgöngum
virkjunarinnar und-
ir Fljótsdalsheiði.
Nánar tiltekið á 14
km kafla milli að-
ganga 2 við Axará
og aðganga 4 í
Glúmsstaðadal,
undir Þrælahálsi
þar sem verst gekk
að bora göngin vegna misgengja og
sprungins bergs.
Ljóst virðist að enginn vill axla ábyrgð
og tölur læknis við Kárahnjúka yfir sjúka
eru rengdar og taldar ýkjur einar.
„Málið var rætt á fundi með Heilbrigð-
isstofnun Austurlands í gær. Þar kom
fram að talan 180 tekur til allra þeirra
sem komu til heilsugæslunnar við Kára-
hnjúka 12.–22. apríl. Heilbrigðisstofnun
Austurlands fer nú yfir sjúkraskýrslurn-
ar og Landsvirkjun bíður niðurstöðu
þeirra athugunar. Ljóst samt nú þegar
að einungis brot af þessum fjölda heim-
sókna tengist loftmengun í göngunum,“
segir í yfirlýsingu Landsvirkjunar. Skv.
upplýsingum Morgunblaðsins telur Gi-
anni Porta, yfirmaður Impregilo á Ís-
landi, mjög alvarlegan trúnaðarbrest
hafa orðið vegna ýmissa ummæla sem
téður læknir við Kárahnjúka hefur látið
falla um málið í fjölmiðlum.
Staðfest er þó að þrír þurftu sjúkra-
húsvist vegna eitrunareinkenna og átta
menn urðu veikir og þar af tveir alvar-
lega. Læknirinn segir 10 til 15 menn enn
sýna eitrunareinkenni. Listi með nöfnum
yfir 180 menn sé bráðabirgðalisti yfir þá
sem sýnt hafi einkenni jafnvel þó að þeir
hafi ekki verið frá vinnu.
Bregðast hefði þurft hraðar við
Framkvæmdaeftirlit Landsvirkjunar,
VIJV, sem samanstendur af innlendum
og erlendum verkfræðistofum og örygg-
iseftirlit Impregilo hljóta klárlega að
vera þeir aðilar sem hafa eftirlitsskyldu
með virkjunarframkvæmdinni ofan
stöðvarhússins í Fljótsdal og inn fyrir
Kárahnjúka. Eins og talsmaður Imp-
regilo segir hér á síðunni voru aðgerðir
verktakans og eftirlitsins vart fullnægj-
andi og hefði þurft að bregðast við meng-
unarvanda af meiri hraða og krafti.
Jafn ljóst sýnist vera að strax 12. apríl
sl. unnu Impregilo og framkvæmdaeft-
irlit Landsvirkjunar, VIJV, saman að úr-
lausnum á mengunarvanda í göngum.
Skv. upplýsingum frá Landsvirkjun gáfu
mengunarmælingar þá ekki tilefni til að
ætla að hætta væri á ferðum og vinna við
að setja upp aukna loftræstingu var í
fullum gangi af hálfu verktakans. Lands-
virkjun segir að hún og VIJV hafi fyrst
heyrt um að menn væru að veikjast
vegna mengunar 22. apríl og sé það
skjallega staðfest. Þetta er fyrir utan þá
39 menn sem fengu matareitrun vegna
slælegra hollustuhátta hvað varðar per-
sónuleg þrif, aðstöðu til að matast og um-
búnað matarsendinga í göngin. Vinnueft-
irlit ríkisins stöðvaði svo vinnu í
göngunum 24. apríl.
„Í hnotskurn er því þetta mál þannig
vaxið að loftræsing í aðrennslisgöngun-
um hefur ekki verið vandamál allan verk-
tímann eða frá árinu 2004. Á árinu 2007
jókst frágangsvinna með steinsteypu
verulega en sú vinna útheimtir fleiri tæki
sem brenna dísilolíu. Skömmu fyrir miðj-
an apríl varð vart aukinnar mengunar
með mælingum á fáeinum afmörkuðum
svæðum og þá þegar var ráðist í að und-
irbúa aðgerðir sem felast í að setja upp
meiri loftræsibúnað,“ segir m.a. í yfirlýs-
ingu Landsvirkjunar.
„Eftir stendur að við höfðum aðeins
upplýsingar frá 22. apríl um veikindi 8
manna og verðum því ekki vændir um að-
gerðarleysi,“ segir Sigurður Arnalds hjá
Landsvirkjun og á þar bæði við fyrirtæk-
ið og framkvæmdaeftirlitið.
„Nú er búið að setja upp allan þann
viðbótarbúnað sem til stóð að gera, sem
eru fleiri blásarar og tjöld, en göngunum
er skipt í nokkur hólf,“ sagði Sigurður í
gærkvöld. „Þeir reikna með að prófa
fyrsta hólfið í göngunum í fyrramálið (nú
í morgun, innsk.blm.) og í samráði við
Vinnueftirlitið mun verða ákveðið hvort
ekki sé unnt að hefja vinnu strax í kjöl-
farið.“
Úrbætur hófust tólfta apríl
Vinna hefst í göngunum í dag telji Vinnueftirlit ríkisins aðstæður orðnar fullnægjandi
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Beðið Landsvirkjun og Impregilo segjast hafa unnið að úrbótum í göngunum síðan 12.
apríl og hafi ekki verið kunnugt um veikindi vegna mengunar fyrr en nú í vikunni.
Sigurður Arnalds
Í HNOTSKURN
» Bæði Landsvirkjun og Imp-regilo draga lista yfir gang-
astarfsmenn sem fengu mengunar-
einkenni skv. upplýsingum læknis
við Kárahnjúka í efa.
»Staðfest er að átta menn veiktustaf loftmengun, þar af voru þrír
lagðir inn á sjúkrahús. 39 menn
veiktust af matareitrun.
» Impregilo og VIJV, fram-kvæmdaeftirlit Landsvirkjunar,
hófu aðgerðir til úrbóta 12. apríl sl.
»Vinna hefst í dag samþykkiVinnueftirlitið úrbætur verktak-
ans.
Í TENGSLUM við mengun og að-
stöðuleysi í aðrennslisgöngum
Kárahnjúkavirkjunar og meint
veikindi hartnær 200 manna þess
vegna spyrja margir hvernig því
víki við að starfsmenn geti verið
að veikjast jafnt og þétt í hálfan
mánuð án þess að gripið sé til að-
gerða sem komi strax í veg fyrir
að menn veikist.
Ómar R. Valdimarsson, upplýs-
ingafulltrúi Impregilo, segir fyr-
irtækið hafa gripið til aðgerða um leið og í ljós kom
að mengun í göngunum gæti verið heilsuspillandi.
„Líkast til hafa þessar aðgerðir ekki verið fullnægj-
andi, en vonir standa til þess að þær úrbætur sem
nú er búið að ráðast í og verið er að ráðast í séu
fullnægjandi,“ segir Ómar. Á miðvikudag sendi Gi-
anni Porta forstjóra Vinnueftirlits ríkisins bréf þar
sem tíundaðar eru aðgerðir Impregilo til að auka
loftgæði í aðgöngum 2 og 3 og aðrennslisgöngunum
sjálfum, einkum með loftblásarabúnaði, loftstokkum
og uppsetningu tjalda. Þrír sérfræðingar frá fram-
leiðendum blásaranna komi til að ráðleggja um
bestu notkun, tveir hafi komið í gær og sá þriðji
væntanlegur í byrjun næstu viku.
Mengun í göngunum nú
stöðugt undir viðmiðunarmörkum
„Fylgst var náið með mengun í göngunum og
samkvæmt mælingum var hún alla jafna undir við-
miðunarmörkum,“ segir Ómar. „Þegar hún var við
mörkin var fólki húrrað út og vinna á viðkomandi
svæði stöðvuð af öryggisdeild Impregilo.“ Halda ber
til haga að Impregilo hafði ásamt VIJV-fram-
kvæmdaeftirlitinu unnið að tillögum um úrbætur á
ástandinu frá miðjum apríl og voru þær tillögur til-
búnar sl. sunnudag. Ómar segir allar mælingar sýna
að mengun í göngunum sé nú stöðugt undir viðmið-
unarmörkum.
Aðspurður hvar ábyrgðin liggi segir Ómar að eft-
ir sé að skoða það, en Impregilo skorist ekki undan
þeirri ábyrgð að gera allt sem í valdi fyrirtækisins
stendur til að bjóða starfsmönnum fyrirtækisins
góðar vinnuaðstæður.
Því var ekki
brugðist fyrr við?
Ómar R.
Valdimarsson
Í KJÖLFAR viðtals sem Morg-
unblaðið tók við Þorstein Njálsson í
gærkvöld sendi hann blaðinu yf-
irlýsingu sem hljóðar svo: „Ég er
gáttaður á framkomu Impregilo og
Landsvirkjunar, er búinn að segja
allt sem segja þarf í þessu máli og
nú er málið komið í hendur réttra
opinberra aðila, s.s. sóttvarn-
arlæknis, landlæknis og vinnueft-
irlits.“
Tjáir sig ekki frekar
Þorsteinn Njálsson
MIKILL meirihluti fólks eða 71%
telur að ójöfnuður í þjóðfélaginu hafi
aukist á sl. fjórum árum. Þetta kem-
ur fram í niðurstöðum skoðanakönn-
unar sem Capacent Gallup gerði fyr-
ir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið
dagana 17. til 23. apríl. Hins vegar
töldu 18,2% að hann hefði staðið í
stað og 10,7% að hann hefði minnkað.
Heldur færri karlar en konur
töldu að ójöfnuður hefði auk-
ist.Yngsti aldursflokkurinn, 18–24
ára, skar sig úr öðrum aldurshópum
og þar voru 45,2% á því að ójöfnuður
hefði staðið í stað en 35,5% að hann
hefði aukist. Í öðrum aldurshópum
var mikill meirihluti á því að ójöfn-
uðurinn hefði aukist.
Kjósendur Sjálfstæðisflokksins
voru síst á því að ójöfnuður hefði
aukist. Engu að síður voru 55,7%
þeirrar skoðunar. Mikill meirihluti
kjósenda annarra flokka taldi að
ójöfnuður hefði aukist. Úrtakið var
tilviljunarúrtak úr þjóðskrá. Í því
voru 1.225 manns á aldrinum 18–75
ára. Svarhlutfall var 62,4%.
Skoðanakönnun Capacent Gallup fyrir Morgunblaðið og RÚV
Fólk telur ójöfnuð meiri nú
!
""
#
$%&
'%&
'%&&
&'%'&
''%'
(
)
*
+
,
) - - -)
"-" "- -
./-. /- -
"/-. /-) -
))-" -/ .-0
""-. - -)
0-0 .-" /-/
"-0 -/ )-"
"-) "-/ "-
0-" -. "-
//-" - -
0.-. /-) -
VIÐ vinnslu fréttar sem birtist í
blaðinu í gær um formannsskipti í
stjórn Landsvirkjunar og ágreining
innan ráðherraliðs Framsóknar-
flokksins um skiptin gætti nokkurr-
ar ónákvæmni í undirfyrirsögn.
Jón Sigurðsson, formaður Fram-
sóknarflokksins og viðskiptaráð-
herra, hafði fyrir síðustu áramót
ákveðið að skipt yrði um formann í
stjórn Landsvirkjunar með vorinu.
Formaðurinn valdi Pál Magnússon,
fyrrverandi aðstoðarmann Valgerð-
ar Sverrisdóttur og núverandi bæj-
arritara Kópavogs, í starfið í stað Jó-
hannesar Geirs Sigurgeirssonar,
sem gegnt hefur formennsku í
Landsvirkjun í tíu ár.
Siv Friðleifsdóttir fékk fyrst vitn-
eskju um þessi áform í fyrradag og
brást illa við, en fáleikar hafa verið
með henni og Páli frá því að tilraun
til hallarbyltingar var gerð í fram-
sóknarkvennafélaginu Freyju í
Kópavogi, m.a. að undirlagi eigin-
konu Páls Magnússonar. Siv réðst
með harkalegum hætti að Guðna
Ágústssyni, sem hún taldi vera á bak
við tillögu formannsins. Þar mun
hafa verið um misskilning að ræða,
sem nú hefur verið eytt.
Árétting
KARLMAÐUR um tvítugt var í gær í
Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald til 4. maí í þágu
rannsókna peningafölsunarmála, sem
hafa verið til meðferðar hjá rannsókn-
ardeild lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu að undanförnu.
Þá fundust fíkniefni við húsleit í
Breiðholti í fyrradag en talið er að
efnin séu hass, amfetamín og marí-
júana. Mest var af hassi eða um 100
grömm. Karlmaður og kona voru
handtekin og yfirheyrð vegna máls-
ins.
Ók á móti umferð
Þá var hálffertug kona í annarlegu
ástandi handtekin í miðborginni en í
fórum hennar fundust ætluð fíkniefni.
Konan var stöðvuð við akstur en þá
hafði hún ekið á móti umferð. Skrán-
ingarnúmer voru fjarlægð af bílnum,
sem var með bilaðar bremsur.
Í Kópavogi voru tveir piltar færðir
á lögreglustöð í fyrrinótt en í bíl ann-
ars þeirra fundust ætluð fíkniefni.
Settur í
gæslu-
varðhald